Pressan - 14.07.1994, Blaðsíða 10
Útgefandi Pressan hf.
Ritstjóri Karl Th. Birgisson
Ritstjómarfulltrúar Guðrún Kristjánsdóttir
Styrmir Guðlaugsson
Auglýsingastjóri: Pétur Ormslev
Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar:
Nýbýlavegi 14-16, sími 643080
Símbréf: Ritstjóm 643089, skrifstofa 643190, auglýsingar 643076
Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjóm 643085, dreiéng 643086,
tæknideild 643087
Áskriftargjald 860 kr. mánuði ef greitt er með VISA/EURO,
en 920 kr. annars.
Verð í lausasölu 280 krónur.
Haustkosningar —
um hvað?
Innan stjórnarflokkanna er nú alvarlega rætt um möguleikann á
því að rjúfa þing í haust og boða til þingkosninga í stað þess að
sitja út kjörtímabilið. Áhrifamiklir ráðherrar meta stöðuna svo að
jafnar líkur séu á að af kosningum verði.
Það ertvenntsem mælir með kosningum í haust. Framundan er
erfið fjárlagagerð og kjarasamningar eru lausir um áramótin. Stjórn-
arliðar óttast að erfitt verði að ná samkomulagi um nauðsynlegan
niðurskurð ríkisútgjalda á kosningaári, minnugir síðustu mánaða í lífi
síðustu ríkisstjórnar, þegar ráðherrar í kosningabaráttu misstu alla
stjórn á sjálfum sér. Þeir óttast líka að launþegahreyfingin muni not-
færa sér veiklyndi þeirra og efna til harðari átaka en ella. Launþega-
foringjar eru þegar farnir að bíta í skjaldarrendur opinberlega, þótt í
einkasamtölum viðurkenni þeir að engar kjarabætur sé að sækja við
núverandi aðstæður. En þeir eru líka í pólitík.
Hvorttveggja er verðugt umhugsunarefni og það er út af fyrir sig
göfugt að stjórnmálamenn skuli viðurkenna veikleika sína og gera
sér grein fyrir þeim. Það sýndi hins vegar ekki mikinn pólitískan
kjark að efna til kosninga nú þegar engar aðrar efnislegar ástæður
eru til þess og mörg verkefni óleyst. Ef á hinn bóginn ríkisstjórnin
treystir sér ekki til að takast á við verkefni sín á hún að segja af sér
umsvifalaust.
Ríkisstjórnin hefurtalið sig stjórn aðhalds og stöðugleika. Ein-
hverjar blikur eru á lofti um að botni efnahagskreppunnar sé náð og
framundan bjartari tímar. Forgangsverkefni stjórnarinnar hefur verið
að ná fjárlagahalla niður, en í upphafi ferils síns ætlaði hún að ná
hallalausum fjárlögum á tveimur árum. Þetta er enn stærsta verk-
efnið — og brýnasta hagsmunamál komandi kynslóða í landinu —
og stjórnarflokkunum ber skylda til að takast á við það.
Kosningar með líklegum stjórnarskiptum eru ekki vænlegar til að
leysa neinn vanda. Stjórnarandstaðan hefur ekki lagtfram neinar
marktækar hugmyndir um hvernig hún hyggst bregðast við erfiðustu
verkefnunum, lægri fjárlagahalla og minna atvinnuleysi. Fyrri
reynsla af stjórn þeirra flokka gefur fyllstu ástæðu til svartsýni ef
þeir kæmusttil valda á ný.
Ef ráðamenn hafa rétt fyrir sér um að stefna þeirra sé farin að
skila nokkrum árangri hlýtur að liggja beint við að þeir skili af sér
fullu dagsverki að vori, en hlaupist ekki undan vegna óþæginda sem
pólitískar aðstæður kunna að skapa þeim. Til þess voru þeir kjörnir,
aðtakastá við þær.
BLAÐAMENN: Bragi Halldórsson umbrotsmaður, Gunnar L.
Hjálmarsson, Hulda Bjarnadóttir, Jim Smart
Ijósmyndari, Jökull Tómasson útlitshönnuður,
Pálmi Jónasson, Sigríður H.Gunnarsdóttir prófarkalesari,
Sigurður Már Jónsson, Snorri Kristjánsson
myndvinnslumaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
PENNAR: Stjómmál: Árni M. Mathiesen, Baldur Kristjánsson,
Einar Karl Haraldsson, Finnur Ingólfsson, Gunnar Jóhann
Birgisson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Mörður Árnason,
Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn
Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéðinsson.
Menning og mannlíf: Davíð Þór Jónsson, Einar Kárason,
Friðrika Benónýs, leikhús, Gunnar J. Árnason,
myndlist, Gunnar L. Hjálmarsson, popp, Hallur Helgason,
kvikmyndir, Illugi Jökulsson, skák, Indriði G. Þorsteinsson,
Jónas Sen, klassík og dulrcen málefni, Kolbrún
Bergþórsdóttir, bókmenntir, Kristinn Jón Guðmundsson,
Magnús Ólafsson, Margrét Elísabet Ólafsdóttir.
AUGLÝSINGAR: Halldór Bachmann, Jóhannes Bachmann.
Telurðu að Jóhanna ætti
að fara í sérframboð?
Sigurður
Pétursson
sagnffæðingur:
„Mér finnst
að Jóhanna eigi að halda áffam að
berjast fyrir hugsjónum sínum og
stefnumálum eins og hún hefur
gert. Ef henni finnst hún ekki ná
þeim fram innan Alþýðuflokksins
á hún hiklaust að fara í sérffam-
boð.“
Ingvar
Viktorsson,
fýrrverandi
bæjarstjóri:
„Nei, mér finnst að hún eigi að
einbeita sér innan Alþýðuflokksins
og halda því starfi áfram sem hún
hefur unnið þar, auk þess sem ég
vil hafa hana áffam í flokki með
mér. Mér hefur alltaf litist vel á Jó-
hönnu og vil hafa hana með mér
og mínum mönnum.“
w l
lh;] JónÁ.
Héðinsson,
fýrrverandi al þingismaður:
„Ég finn sáralítinn byr hjá al-
þýðuflokksfólki úti á landi um þá
hugdettu formannsins að ganga í
ESB. Ef Jón Baldvin ætlar að teyma
flolddnn út á land fljótlega þá leiðir
það bara af sjálfu sér að stór hluti
mun sitja eftír, hvert sem hann fer
og hvort sem hann fer undir sínu
nafni eða Jóhönnu.
Það gæti því þróast þannig að
það væru full rök fýrir Jóhönnu að
leiða nýjan arm í flokknum og að
stór hluti teldi óhjákvæmilegt að
fýlgja henni.“
Ámi
Gunnarsson
framkvæmda-
stjóri:
„Ég teldi það hreint afleitt ef Jó-
hanna ætlaði að slíta ræturnar í
flokknum. Hins vegar tel ég að því
miður hafi þetta ástand varað allt
of lengi án þess að menn gerðu út
um þessi leiðtogaátök í flokknum
og ég held að það geti ekki farið
neitt öðruvísi, þótt ég ætli ekki alls
eldd að leggja dóm á hvort hún eigi
að gera það.“
Fjandsamleg yfirtaka
VKDSKIRTI
- HIN HLIOIN
Vikulegur dálkur um viðskipti og fjármál
er skrifaður af pallborði nokkurra
einstaklinga í viðskipta- og fjármálalífi.
vill selja sín hlutabréf.
Einhver kynni að segja að eðli-
legt væri að meirihlutinn eða félag-
ið sjálft keypti af öllum, sem vildu
selja. Þær aðstæður eru því miður
ekki fýrir hendi og kannski ekki
gefið að slíkar reglur verði settar.
Þeir sem stunda viðskipti geta ekki
reiknað með að ríkisvaldið leiki
hlutverk stóra bróður og verndi þá
„Þeir sem nú eru í minnihluta eru í sömu stöðu og meirihlut-
inn var í áður; að sitja uppi með hlutabréf sem enginn vill
kaupa. Hlutabréf sem enginn vill kaupa hafa verðgildið 0 kr. ‘
Undanfarnar vikur hefur
þjóðin fýlgst með sápu-
óperu ungra manna í við-
skiptalífi Reykjavíkur. Sviðið er Is-
lenska útvarpsfélagið hf. og ein
persónan á heima í Kaliforníu. Það
er í sjálfu sér ekkert merkilegt að
hraustir menn reyni með sér krafta
sfna með atkvæðagreiðslu í hluta-
félagi en það er sjaldgæft að menn
reyni krafta sína með áflogum eins
og gerðist á stjórnarfundi í íslenska
útvarpsfélaginu hf.
Það er þó ekki óþekkt í fjöl-
miðlaheiminum því fýrir þrjátíu
árum deildu ritstjórar dagblaðsins
Vísis og slcrifuðu níðgreinar hvor
um annan í Morgunblaðið en flug-
ust á á ritstjórnarskrifstofu Vísis.
Sagan segir að áflogunum hafi lykt-
að með því að eldri ritstjórinn
hafði þann yngri undir og sagði
þessi fleygu orð: „Svona eru dokt-
arar þegar þeir snúa upp í loft.“
Doktorinn er í dag prófessor við
Háskóla íslands.
Deilur í íslenska útvarpsfélaginu
hf. snúast um eitthvað annað en
fjölmiðlun og arðsemi af rekstri fé-
lagsins. Félagið hefur aldrei í sögu
sinni greitt hluthöfum arð af eign
sinni og á langt í land með að jafna
gömul töp, en fýrr er ekki heimilt
að greiða arð. Deilurnar virðast
snúast um yfirráð í Islenska út-
varpsfélaginu hf. Aðeins einn eig-
enda, Sigurjón Sighvatsson, hefur
sérþekkingu á afþreyingarmiðli
eins og sjónvarp er. Annar eigenda,
Jón Ólafsson, hefur mikla reynslu
af dreifingu myndbanda. Kannski
er Stöð 2 aðeins myndbandaleiga
með heimsendingarþjónustu. Jón
hefur eitthvað á móti sér, sem eng-
inn vill tala um upphátt, en aðrir
lofa áreiðanleik hans í viðskiptum.
Ýmsum kann að virðast að þeir
sem yfirráðin hafa í félaginu ætli
sér að hafa arð af eign sinni í Is-
lenska útvarpsfélaginu hf. af við-
skiptum við félagið en ekki með
arðgreiðslum eins og venja er í
hlutafélögum. Því hefur hinn svo-
kallaði „minnihluti“ valið lögfræð-
ing og endurskoðanda í stjórn fé-
lagsins til að hafa eftirlit með störf-
um „meirihlutans“.
Frá sjónarmiði óperufræðinga er
kontrapunktur sápuóperunnar hin
fjandsamlega yfirtaka, það mynd-
ast nýr meirihluti vegna kaupa
óþekkts aðila á fölum hlutabréfum
í Islenska útvarpsfélaginu hf. Hinn
óþekkti aðili var eins konar fimmta
herdeild í meirihlutanum sem var
fýrir, aðili sem hafði komið í hlut-
hafahópinn fýrir orð þeirra sem
urðu að lokum undir í baráttunni
um yfirráðin. Spurn eftir hluta-
bréfum í íslenska útvarpsfélaginu
hf. var því ekki afleiðing góðrar af-
komu eða frábærrar stjórnar fé-
lagsins.
Þeir sem nú eru í minnihluta eru
i sömu stöðu og meirihlutinn var í
áður; að sitja uppi með hlutabréf
sem enginn vill kaupa. Hlutabréf
sem enginn vill kaupa hafa verð-
gildið 0 kr. Það væri nú ef til vill
ekki svo alvarlegt mál, því þeir sem
reyna fýrir sér á hlutabréfamark-
aðnum geta ekki reiknað með að
þeir græði á öllum viðskiptum.
Einhverjir hafa orðið að setja
hlutabréf sín að handveði fýrir lán-
um. Veðhafar sitja því uppi með
haldlaus veð og þeir geta tapað, en
þeir voru í góðri trú þegar veðsetn-
ingin var gerð.
Hlutabréf eru frábrugðin
skuldabréfum á þrjá vegu; skulda-
bréf hafa gjalddaga en hlutabréf
hafa engan gjalddaga, skuldabréf
hljóða upp á skilyrðislausa greiðslu
á gjalddaga en hlutabréf eru aðeins
ávísun á verðmæti ef þau verða til
staðar þegar kemur til skipta og í
stað umsaminna vaxta af skulda-
bréfum er greiddur arður af hluta-
bréfum ef afkoma leyfir.
Við fjandsamlegar yfirtökur eins
og átti sér stað í Stöð 2 kemur ber-
lega fram hver mesta áhættan er í
hlutabréfakaupum; að enginn
kaupandi sé til staðar þegar eigandi
fýrir öðrum viðskiptajöfrum.
Hætt er við að deilur á Stöð 2
haldi lengi áffarn og að deilu-
ramminn verði ekki stjómarfundir
eða hluthafafundir. Dómstólar
verða fengnir til að skera úr um
gerðir fyrrverandi og núverandi
stjóma og mun þá margt forvitni-
legt koma í ljós. Eitt af því, sem
deilt hefur verið um, er sala á
hlutabréfum í Sýn hf.
Sú saga gengur, að hið nýja
myndlyklakerfi, sem var í pöntun
fýrir Stöð 2, hafi verið pantað á
nafhi Sýnar hf. en með ábyrgð Is-
lenska útvarpsfélagsins hf. Ef svo
er, þá er spurning hvers virði Is-
lenska útvarpsfélagið hf. sé, því
stærstu verðmæti þess eru áskrif-
endurnir, tæknibúnaður þess, en
efnislegar eignir eru lítils virði.
Það er enn góður safi eftir í
sápuóperu Islenska útvarpsfélags-
ins hf.
10. RRESSAN FIMMTUPAQURINN 14. JÚLÍ 1994