Pressan - 14.07.1994, Blaðsíða 18
bólinii
Portrettið
Gripnir
Jakob Bjarnar Grétarsson og
Davíð Þór Jónsson um mynd-
ina af sjálfum sér:
„Þessir tveir menn líta út fyrir að
vera skíthræddir, þetta eru einhverjir
glæpamenn sem eru að gægjast út
því þeir heyra sírenuvælið fyrir utan
gluggann... einhverjir Julio Kleid-
hommar. Algjörir lúðar, einhverjir
sem díla sveppi eða brugga landa og
þeir hafa greinilega verið að drekka
hann sjálfir.
J: Þeir eru mjög líklega staddir í
einhverju eyðibýli úti á landi.
D: Nei en sjáðu hvað þetta er
fallegur maður (bendir á sjálfan sig),
þetta er frekar tekið í Tælandi; Þetta
er maður sem er staddur með elsk-
huga sínum ÍTælandi og það erverið
að koma að honum.
J: Já, þú átt við að þú sért með
mér.
D: Já, sá sem er áberandi fríðari
og yngri er þarna greinilega fyrir
borgun.
J: Ég get nú samt ekki almenni-
lega séð það á mínum að hann hafi
mikinn áhuga á þínum... höldum
okkur því við landamennina, og þó
gæti hitt líka verið.
D: Þeir gætu líka verið haldnir
víðáttufælni, þar sem þeir eru að
virða fyrir sér heiminn og þora ekki
út á meðal fólks — einhver ótti í aug-
um þeirra — og þeir verða alveg log-
andi hræddir við að sjá mann með
myndavél fyrir utan, svona akrófóbar
(lofthræddir?!).
J: Það er eitthvað svoleiðis,
þetta eru virkilega skelfingu lostnir
menn.
D: Kannski ekki skelfingu lostnir,
en þeim er ekki um þetta allt saman.
Það er nokkuð Ijóst að þeir vildu
heldur vera ekki á mynd en að vera á
mynd...
J: Þeir einhvern veginn ösnuðust
til að kíkja út og voru gripnir í ból-
inu... og sjá eftir því núna!"
I
samtímalist í neðri bílageymslu
Y N D L I S T
GUIMIXIAR J.
ÁRIMASOIM
„Sýningin býður upp á hressilegt mótvœgi við gljábónaða
parketmenningu viðskiptalífsins. “
Ki —
Samsýning I neðri
bílageymslu Borg-
arkringlunnar.
í stuttu máli: Vel heppnað
framtak sem á skilið at-
hygli listáhugafólks.
egar þrengir að myndlistar-
mönnum og það er erfitt að
fá almennilegt pláss til að
sýna verk sín, sérstaklega fyrir þá
sem eru að byrja að koma sér á
framfæri, þá er kannski eina ráðið
að fara „underground“.
Hópur ungra listamanna hefur
tekið list sína neðanjarðar, í bók-
staflegum skilningi, og sýnir í bíla-
kjallara undir Borgarkringlunni.
Til að komast á sýninguna verða
menn að leggja leið sína inn um
sólarhliðið, í gegnum þennan stað
birtu, ánægju og munaðar, og ýta á
neðsta hnappinn á lyftunni. Þegar
dyrnar opnast er eins og komið sé
niður í undirheima — 4.000 fer-
metra gímald, hálffökkvað og svalt,
með rörum og lögnum hangandi
neðan úr lágu loftinu. Á móti
manni berst þungt gnauð úr loft-
ræstistokkum og draugalegt væl,
sem reynist vera hvalablístur frá
einu listaverkanna. Þótt ólíklegt
megi virðast hefur hópnum tekist
að gera úr þessum stað lífvænlegt
umhverfi fyrir liststarfsemi sína.
Hér er á ferðinni fjörutíu og sjö
manna hópur íslenskra og erlendra
listamanna. Mörg hver eru, eða
hafa verið til skamms tíma, nem-
endur við Myndlista- og handíða-
skóla íslands, þar með taldir all-
margir erlendir gestanemendur,
sem hingað leggja leið sína vegna
nemendaskipta. En þótt hér sýni
fólk sem er enn að læra, þá er
merkilegt að sjá hvað það mætir
ákveðið og sjálfsöruggt til leiks,
staðráðið í að gera sig ffekar sekt
um lærdómsrík mistök en mein-
lausa varkárni (og í vissum skiln-
ingi verða listamenn alltaf að læra,
og ef þeir eru hættir að læra þá eru
þeir búnir að vera). Þetta er „galop-
in“ sýning, sem einkennist af leit-
andi anda. Fæstir eiga neinn um-
talsverðan feril að baki og því
ómögulegt að vita hvort þau hafi
enn sem komið er skýr stefnumið.
Ég sé því ekki ástæðu til að útbýta
normatívum gæðavottunum, en
bendi þess í stað á nokkrar sterkar
ímyndir sem gæti orðið til þess að
vekja forvitni manna.
Ein eftirtektarverðasta ímyndin,
í verki eftir Moniku Larsen-Denn-
is, er myndband af nakinni mann-
eskju sem flýtur á grúfu í vatni,
sem varpað er á gríðarstóran ís-
klump, þannig að einna líkast er að
þessi draumkennda og áleitna
ímynd af drukknaðri manneskju
komi innan úr ísnum. Hundrað
fimmtíu og sjö metra löng ástar-
saga, eftir Agnetu Schmidt, er
örmjór strimill sem er gerður með
því að skera hveija einustu línu úr
dæmigerðri ástarsögu og líma lín-
urnar saman, með vaxi, enda í
enda. Strimillinn hefur verið
strengdur til að mynda vef milli
gólfs, lofts og veggja, svo hægt sé að
„lesa milli línanna“.
Sumir nota umhverfið sem út-
gangspunkt í verkum sínum. Guð-
brandur Ægir hefur smíðað kassa-
bíl handa fullorðnum úr móta-
timbri, nokkurs konar minnis-
merki um bílaæði landsmanna, en
titill verksins hljómar: „Kröfur (ef
aðeins lífið væri...)“. Rétt hjá ligg-
ur á stóru ferningslaga svæði, milli
fjögurra súlna, þykkt lag af svört-
um gúmmístrimlum, sem hafa ver-
ið vandlega skornir úr gúmmí-
slöngum innan úr bíldekkjum.
Verkið er eftir Eriku Frodell og
heitir „Ég er sprungin“, sem er sér-
lega viðeigandi, ef hafður er í huga
sá einhæfi þrældómur sem hún
hefur lagt á sig. í dimmu herbergi
gerir Aðalsteinn Stefánsson at-
hyglisverða tilraun með ljós og
endurspeglun í verki sem lætur lit-
ið yfir sér við fyrstu sýn, því þar er
eingöngu að sjá þrjá svarta ferninga
á vegg. Þegar nær dregur kemur í
ljós þokukennd spegilmynd, sem
líkist helst þrívíddarmynd (holo-
gram) úr fókus, en sem hverfur
jafnharðan þegar maður fjarlægist
hana. Fleiri verk ættu skilið að vera
nefnd, en þetta voru aðeins nokkur
sýnishorn úr fjölbreyttri sýningu.
Miðað við aðrar tilraunir af svip-
uðum toga hefur tekist vel til. Stað-
urinn kann að þykja ókræsilegur til
listsýninga, en í þessu tilviki er
hann ekki óviðeigandi, því sýning-
in býður upp á hressilegt' mótvægi
við gljábónaða parketmenningu
viðskiptalífsins. Þrátt fyrir mikinn
fjölda er hvergi þröngt um nokkurt
verk, enda svæðið stórt, og með vel
útfærðri lýsingu hefur tekist að
deila víðáttunni niður án þess að
notast við skilrúm. Það er ánægju-
legt að sjá að mitt í öllu mótlætinu
eru einkaaðilar reiðubúnir að
styðja viðleitni af þessu tagi. List-
áhugafólki er bent á að prófa lyft-
urnar í Borgarkringlunni fýrir 23.
júlí.
18 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 1.4. JÚLÍ 1994
I
I
I
I
Frá stjórn IVIið-
stöðvar fólks í
atvinnuleit
Um nokkurt skeið hafa þjóð-
kirkjan, ASÍ, BSRB og VSÍ annast
rekstur Miðstöðvar fólks í atvinnu-
leit. í Pressunni fimmtudaginn 23.
júní er fjallað um miðstöðina með
sérlega ruddalegum og ófaglegum
hætti. Að sinni eltum við ekki ólar
við margvíslegar missagnir og rang-
túlkanir í umræddri Pressugrein en
ástæða er til að vara lesendur við
þeirri aðför að mannorði einstak-
linga sem þessi umfjöllun felur í sér.
Þeir forstöðumenn miðstöðvar-
innar, sem hafa við óvissar og erfið-
ar aðstæður tekið að sér að veita
þessari starfsemi forstöðu, hafa af
óeigingimi sinnt starfi sínu í sam-
ræmi við það sem stjóm miðstöðv-
arinnar hefur ætlast til. Um leið og
við vísum hvers kyns aðdróttunum
um annarleg markmið og lélega
fjármálastjórn algerlega á bug vilj-
um við taka það ffam að fýrrver-
andi framkvæmdastjóri, Guð-
mundur Einarsson, hafði ekkert
með fjármál miðstöðvarinnar að
gera þann tíma sem hann starfaði,
enda vom þau og eru alfarið á
hendi stjórnar miðstöðvarinnar.
Stjóminni þykir eftirsjá að Guð-
mundi Einarssyni og vill þakka
honum og öðmm sem lagt hafa
miðstöðinni lið með starfi sínu fýrir
heiðarlega og vel unnin störf.
Fyrir hönd stjórnar
miðstöðvarinnar,
Sigríður Kristinsdóttir,
formaður SFR.
Engar aðdróttanir
I umræddri ffétt var eingöngu
vitnað í núverandi og fýrrverandi
starfsmenn miðstöðvarinnar. Fyrir-
sögn greinarinnar var orðrétt höfð
eftir núverandi ffamkvæmdastjóra,
sem sagði að miðstöðin væri í al-
gjömm lamasessi og bætti því við
að stjómendurnir væm algerir ný-
græðingar. Aðrir fýrrverandi starfs-
menn miðstöðvarinnar tóku undir
gagnrýni núverandi ffamkvæmda-
stjóra og blaðamaður reyndi ekki á
nokkurn hátt að koma eigin skoð-
unum á ffamfæri. Þeir sögðu sjálfir
að þetta væri „tilgangslaust apparat“
utan um „ekki neitt“. Að greinin
hafi verið „ruddaleg11 eða „ófagleg“
er alvarleg aðdróttun að heiðri mín-
um sem blaðamanns, ekki síst í Ijósi
þess að ekki er bent á eitt einasta at-
riði því til stuðnings. Þess í stað kýs
Ferrarí
DEH-670 GEISLASPILARI m/útvarpi
® Verð: 42.900 stgr.
Innlheldur m.a.:
«6 ARC útvarpsmóttakara
með 24 stöðva minnl
a> Kristaltœran hljóm sem fœst með 8 „times
oversampling” og 1 bita D/A breyti
a> 2x25 W eða 4x15 W magnaraútgang
cd Hótalarastilli (Fader)
cd RCA-útgang
cti Þjófavörn
ofi Litabreyti ó takkaborði
cj> LW/MW/FM stereo
KE-1 730 UTVARP/KASSETTA
Verð: 19.900 stgr.
Inniheldur m.a.:
06 2x8,5 W magnaraútgang
flö 24 stöðva minni
06 „Auto/Reverse” (sjólfvirk skipting milli hliða)
06 Hógœða tónhaus
oo Sjólfvirkan „loudness”
oo Tœkið er ó sleða
oo LW/MW/FM stereo
Hágœða hátalarar
á verði frá 4.600 kr. stgr.
Frábœrir magnarar
á verði frá 11.000 kr. stgr.
VERSLUNIN
HVERFISGOTU 103 -SIMI62S999
The Art of
00 PioNeen
stjórnin að dylgja um annarlegar
hvatir undirritaðs. Þegar núverandi
og fyrrverandi starfsmenn segja
stöðina í algjörum lamasessi og at-
vinnulausir séu hættir að nota hana
skyldi maður ætla að stjómin hefði
annað og þarfara að gera en að gera
fólki upp ruddaskap og ófagleg
vinnubrögð.
Pálml Jónasson blm.
Hressileg
orðaskipti
Vegna smáfféttar um „Flugdag
fjölskyldunnar“ vill Leiguflug, Is-
leifur Ottesen hf., koma eftirfarandi
á ffamfæri:
„Ekki kom til átaka, eins og segir
í greininni, heldur fóru ffam
„hressileg“ orðaskipti eftir að Flug-
tak vildi hafa samráð um verð í út-
sýnisflugi, sem er ólögmætt. Flug-
tak seldi miða sína á 700 per sæti,
en Leiguflug 500 per sæti, og er vert
að taka fram að það var aðeins gert
í þeim tilgangi að sem flestir gætu
komið, efnalitlir sem og aðrir, og
notið þessa annars skemmtilega
dags sem „Flugdagur fjölskyldunn-
« «
• KEW X-tra 3500 er mjöa öflug og einstaklega vel útbúin hóþrýstidæla með
öllum útbúnaði og fylgihíutum til prifa.
• KEW fyrir þó sem vilja fara vel meS lakkiö ó bílnum sínum en rispa það ekki
drullugum þvottakústum.
Mjög auðveld og þægileg í notkun.
H«#|
jA*-
Fylgihlutir meö KEW X-tra 3500:
Multispeed spúlrör, kraftspúll, hreinsinól, froSustútur,
bílahreinsiefni, hobbyhreinsiefni, blöndunarbrúsi,
þvottabursti, hraSengi og vagn.
REKSTRARVÖRUR
RÉTTARHÁLSI 2.110 REYKJAVÍK . SÍMI: 91-875554
ÞEKKING
ÚRVAL
ÞJÓNUSTA
Penguin Popular Classics á kr.
Risaforlagið Penguin er um þessar
mundir að setja á markaðinn nýjan
bókaflokk, Penguin Popular Classics. Hér
eru á ferðinni sígild meistaraverk heims-
bókmenntanna í ódýrum og sérlega
smekklegum útgáfum. Nú geta menn
eignast snilldarverk úrvalshöfunda á borð
við Charles Dickens, Oscar Wilde, Thom-
as Hardy, Jane Austen og Emily Bronté fyr-
ir sama og ekkert, því hver bók kostar að-
eins kr. 150! Þetta er því tilvalið tækifæri
til þess að byggja upp gott bókasafn fyrir lít-
inn pening.
bók/Ua, /túdervtðw
við Hringbraut, sími 615961
FIMMTUDAGURINN 14. JÚLÍ1994 PRESSÁN 19