Pressan - 14.07.1994, Page 28
óháði listinn
20 vinsælustu lögin á íslandi
••••••••
Sæti Lag Hljómsveit V
1. (Z)
Z. (4)
ó. (1)
( )
o. (o) 6. (13) 1 Can't Imagine the World Without IVle Echobelly
i. (11)
ö. (ia) riiT ine uoast ••••••
a. (iz) Shmimci *********
ÍU. ( )
íi. ( )
±Z. ( )
10. (14)
16. (15) Jailbird ■ Dust Brothers IVlix • • • •Primal Scream
1/. ( )
ia. ( ) 20. (6) To the End ••••••••'
Vinsældalisti X-ins og
PRESSUNNAR er leikinn
á X-inu klukkan tólf á
hádegi á hverjum
fimmtudegi þegar
PRESSAN er komin út.
Vinsældavaliö fer fram í
síma 626977 virka daga
klukkan 9-17.
Vertu með í aö velja
tuttugu vinsælustu lög-
in á íslandi.
>•••••••••••••••••
Þossi funk hip-hop
1. Jailbírd Sweeney li vs. Prirnai Scream
2. Get It Together ..Beastie Boys
3. Numb..............Portishead
4. Mantra ..............Material
5. Happy Vibes .........The Vibes
Fantast Topp 5
1. Army Ants....Stone Temple Pilots
2. Run to the Sun ......Erasure
3. Slim Jim .........Sheep on Drugs
4. Goln' up in Smoke....Ten City
5. Afrfca Inside Me ..Arrested Development
28 PRFSSAN .FI.MMTUDAGURINN 14,JÚLÍ 1994
KK og Gummi
spila saman í
fyrsta sinn
Gítarfestival er nú hafið á Akur-
eyri þriðja árið í röð. í ár hafa að-
standendur hátíðarinnar fengið til
landsins einn fremsta gítarleikara í
heiminum í dag, Oscar Ghiglia, en
hann var til margra ára fastráðinn
við Aspen-tónlistarhátíðina í
Bandaríkjunum. Hann hefur hald-
ið námskeið og tónleika um allan
heim og ætlar að kenna gítarnem-
endum og -kennurum á hátíðinni
dagana 13.-16. júlí og munu inn-
lendir gítarleikarar hafa forgang.
Þeim sem vilja sitja námskeiðið
sem hlustendur er það velkomið
og greiði þeir 7.000 krónur fyrir,
en innifalið í því verði er svefn-
pokapláss og miði á ferna tónleika
hátíðarinnar, sem lýkur senn.
Fimmtudaginn 15. júlí verða
tónleikar nemenda námskeiðsins
og verður það mjög fjölbreytt dag-
skrá, en aðgangur er ókeypis.
Lokatónleikar hátíðarinnar
verða svo haldnir 17. júlí þegar
bestu blúsarar landsins, þeir Krist-
ján Kristjánsson og Guðmundur
Pétursson, stilla saman strengi
sína og spila saman í fýrsta sinn á
tónleikum í Deiglunni.
Guðmundur sagði í viðtali við
PRESSUNA að þarna hefði alltaf
verið einhver sería af klassískum
gítarleikurum en nú hefði Öm
Viðar, framkvæmdastjóri hátíðar-
innar, ákveðið af útfæra þá hug-
mynd að fá aðra tegund gítarleik-
ara.
„Þetta verður meira og minna
spilað af fingrum fram og það
verður gaman að þessu. Við sjáum
bara til hvað kemur út úr því,“
sagði undrabarnið að lokum.
Undrabarnið hanterar gítarinn.
Á (immtudag
... Gúrkum. í þessari ægi-
legu gúrkutið er rétt að
minna á að
gúrkur eru fínt
álegg og ægi-
lega hitaein-
ingasnautt.
Samkvæmt
könnun DV eru
gúrkurnar ódýr-
astar í Bónus
og því ekki úr
vegi að bregða
sér þangað og kaupa svo
sem eins og tíu kíló.
... Hjólreiðakeppni Æsku-
lýðsráðs Hafnarfjarðar
sem fer fram á fimmtudag-
inn á Víðistaðatúni; Tour de
Hafnarfjörður. Hljómar vel.
... Kvöldgöngu um Ægi-
síðuna. Rómantísk ganga
um þá síðu gæti reddað
kvöldinu. Hvað er annars
rómantískara en að kyssa
makann með saltbragð í
munni?
hakkavélin
G u n n i
Tvær til að trekkja á böllin:
Zombí í
stuði
VINIR VORS OG BLÓMA
ÆÐI
SKÍFAIM
«
VV&b-strákarnir
koma flestir frá
þeim gullfallega bæ
Stykkishólmi. Þar
hafði loftslagið þau
áhrif að strákamir
tóku ungir að spila
innantómt fiörpopp
með hljómsveitinni
Busunum. Svo
breytti hljómsveitin
um nafn og tvo
meðlimi og hafa verið Vinir síðan.
Fyrsta platan er Æði.
Ég skil vel að Vinimir skuh vera að
meikaða á böllunum. Grunnt barna-
poppið virkar eflaust ágætlega á haug-
fullu krakkana sem helst sækja böllin.
En fyrir gamlingja eins og mig, sem hef
heldur aldrei verið hallur undir gleði-
poppið, er ,Æði“ Vinanna frekar úldið
eyrnakonfekt. Hér er sullað saman
þeim séríslensku stuðvessum sem hafa
borist milli ungmenna landsins síðustu
árin. Vinirnir skulda Sálinni eitt og
annað. Langoftast hljóma þeir eins og
útvötnuð sveitaballaútgáfa af því ágæta
sveitaballabandi. Hér má líka finna
Stuðmannalega takta og þónokkuð er
um upphitaðar leifar af gamla Greifa-
grautnum. Spilamennskan er þokka-
lega örugg en mjög óffumleg og fyrir-
sjáanleg. Gítarinn gutlast áfram eins og
það sé ennþá 1985 og Rikshaw heitasta
bandið í bænum. Lögin eru flest fjarska
leiðinleg. Titillagið, ,Æði“, sleppur þó
og kemst næst því að vera skemmtilegt.
Þar víkja upptrekktar, flogaveikar og úr
sér gengnar stuðtilraunir hinna lag-
anna fyrir aðeins fúllorðnari stemmn-
ingu. Með pælingum svipuðum þeim
sem eru í gangi í því lagi gæti hljóm-
sveitin vaxið upp úr grunnskólapopp-
inu með tíð og tíma.
Textar þess-
arar plötu gera
Stefán Hilmars-
son að Nóbels-
verðlaunaskáldi.
Öskiljanlegur
orðtakaskáld-
skapur hans er
hafður að leiðar-
ljósi hér og
meistari Stefán
semur m.a.s.
einn textann.
Friðrik Sturluson semur tvo, og verður
að teljast eini textasmiður plötunnar
sem lítur út fyrir að vera með réttu
ráði, og Þorsteinn söngvari og einhver
Stönweld R. semja rest. Sjaldan hefur
bullið flætt eins óhindrað um heila
plötu og áhugamenn um mjög vonda
textagerð fá hér helling fyrir sinn snúð.
Það er á mörkunum að þessi plata
fari hringinn: sé svo afspyrnubjánaleg
að hún teljist frábær. Með mjög góðum
vilja mætti komast að þeirri niðurstöðu
og gefa plötunni fjórar stjömur, en
sorrí Stína: þessi gleðipoppsófögnuður,
sem er eins og afturgengið zombí í
lakkskóm úr fortíðinni, fær hauskúp-
una. Það skal þó tekið ffarn að þessi
hauskúpa er í miklu stuði.
Ema,
Eva og
Ema
part II
ÞUSUND ANDLIT
ÞÚSUND ANDLIT
SPOR
★
Þúsund andlit er hljómsveit sem
spilar spastískt popp. Tónlistin kippist
til eins og taugaveiklaður púðluhundur
í bandi. Þetta er þokkalega vel gert létt-
popp með sannfærandi tölvuáferð en
hefur jafhlítið að segja fyrir íslenska
poppmenningu og -sögu og plata
sönghópsins Emu, Evu og Emu, sem
margir muna eftir með verk í magan-
um.
Sigrún Eva er hress stuðpía með fína
rödd og hún gerir sitt besta til að halda
uppi geggjuðu stuði á þessari plötu.
Henni tekst það ágætlega en hefúr svo
sem ekki merkilegum lagasmíðum að
moða úr. Þetta gætu næstum því allt
verið B-hliðar-lög ffá sænsku hljóm-
sveitinni Ace of Base. Það er óhætt að
taka ofan fyrir góðum og vönduðum
hljóðfæraleik, en ég er bara þeirri
ónáttúru gæddur að meta tónlist eftir
því hvort hún er skemmtileg, en ekki
hvort hún er vönduð. Og þetta er alls
ekki skemmtileg plata. Hún er þó
skömminni skárri en Æði Vinanna —
en þessar tvær em sveitaballaplötur
2 andlit 1000 andlita.
sumarsins — því þessi virðist vera gerð
fyrir fólk eldra en sextán ára. Textamir
em m.a.s. með þokkalegu réttu ráði og
það virðist hafa verið lögð aðeins meiri
vinna í þá en hálftíma stresskast áður
en þeir voru sungnir inn.
En annars skiptir engu máli hvað
þessi fiíli gagnrýnandi er að baula úti í
bæ. Ef plöturnar verða til þess að liðið
fjölmenni á böllin er sumrinu borgið.
Hljómsveitin Busarnir í miklu
stuði. Verða Vinir vors og
blóma jafnhallærisleg hljóm-
sveit og þessi eftir þrjú ár?