Pressan - 14.07.1994, Síða 29
BÍÓIN í BORGINNI
Pottþéttur gálgahúmor
SERIALMOM
Laugarésbiói
★★★★
John Waters er einn skemmtilegasti leik-
stjóri sögunnar. Hann er sérfræðingur í að
gera hluti, sem fæstum finnst skoplegir,
hlægilega. Hans ær og kýr eru vessar ým-
iskonar, óeðli og ofbeldi. Það þarf sæmi-
lega brenglaða einstaklinga til að hafa
gaman af myndum hans enda gerist húm-
orinn varla svartari. í tveimur síðustu
myndum meistarans, „Hairspray" og „Cry-
Baby", var hann að mildast og grinið var á
köflum 3-bió-legt. Hann dvaldi í gömlum
tíma og málaði fæðingarbæ sinn, Balti-
more (þar sem allar hans myndir gerast),
mjúkum tónum nostalgíunnar. Með Rað-
mömmu er hann kominn aftur i nútimann
og hefur ekki verið beittari síðan hann
gerði „Polyester".
Kathleen Turner fer á kostum i hlutverki
raðmömmunnar sem kálar öllum sem fara í
taugarnar á henni og fjölskyldunni. Rað-
mamman er hin verndandi móðurímynd i
þúsundasta veldi. Þetta ersprenghlægileg
mynd fyrir alla gálgahúmorista landsins!
Rokkaðir lúðar
WAVNE’S WORLD 2
Háskólabíói
★★
Fyrsta myndin um rokkuðu lúðana Wayne
og Garth var bráðfyndin enda voru týpurn-
ar nýjar og ferskar. Myndin gekk vel og
samkvæmt lögmálum Hollywood kom
framhald. Týpurnar hafa litið breyst og eru
þess vegna ekki jafnkómiskar og í fyrstu
myndinni — maður er búinn að hlæja að
brandaranum áður. Sögufléttan er algjört
rugl, en það eru þó nokkrir brandarar i
þessari mynd sem kitla hinar margumtöl-
uðu hláturtaugar. Þótt endirinn sé lummu-
legur er alveg tilvalið að sjá þessa mynd
— sérstaklega ef maður er unglingur og í
góðu stuði.
Bara grín
LESVISITEURS
Regnboganum
★★
Þetta er vist algjör metsölumynd frá Frakk-
landi og fjallar um riddara og skjaldsvein
hans frá elleftu öld sem lenda á timaflakki
til nútímans. Myndin er hröð og fyndin á
köflum, en þessartímaflakksmyndir eru nú
orðnar hálfþreyttar, enda hefur „Back to
the Future"-syrpan gert hugmyndinni full-
komin skil. Skítugir og illa þefjandi mið-
aldamennirnir eru auðvitað lokaðir inni og
álitnir geðbilaðir, en svo losna þeir og þá
heldur vijleysan áfram í farsakenndum 3-
bíó-stil. Ágætt grin og sprell en sumar per-
sónur myndarinnar eru fullklisjukenndar (-
glaða plastpokakerlingin, hommalegi hót-
eleigandinn) og sem heild er þessi mynd
litið annað en þokkalegur farsi.
Aðrar helstu myndir
Sambióin:
Beverly Hills Cop III
Eddie Murphy mættur enn og aftur.
Reality Bites
Winona Ryder í unglingamynd sem gefur
sig út fyrir að vera gáfumannsleg.
Bíódagar★
Falleg mynd um voðalega litið.
Angie
Geena Davis alltaf jafnsæt.
Police Academy 7
Þynnra gerist það varla.
Blank Check
Disney-mynd.
Hostile Hostage
Svört grínmynd.
ThunderJack
Krókódila-Dundee smjattar á fornri frægð.
Beverly Hillbillies
Grin um bóndadurga sem verða snögglega
auðugir.
Stjörnubió
Bíódagar★
Röð af nostalgíuatriðum og þegar myndin
er búin siturfátt eftir nema tómleikatilfinn-
ing og svolitil hlýja gagnvart nokkrum at-
riðum þar sem Friðriki Þór og Einari Má
tekst að hitta áhorfandann í hjartað.
My Girl 2
Fjölskyldumynd. Fjármagnið nægði ekki til
að Hómalón- strákurinn væri aftur með.
GuardingTess
Nicolas Cage passar Shirley MacLaine.
Háskólabíó
Beverly Hills Cop III
Eddie Murphy mundar byssuna og glottið.
Greedy
Gamanmynd um græðgi. Kirk Douglas leik-
urgamla kallinn.
Naked Gun 331/3
Brandaramynd.
Naked ★★★
Hér er dregin upp kolsvört mynd af þjóðfé-
lagsástandinu á Bretlandi. Sterk mynd en
ekki ýkja „skemmtileg".
Laugarásbió
Abovethe Rim
Körfuboltamynd fyrir krakkana.
Sirens
Áströlsk erótík.
Regnboginn
Sugar Hill
Wesley Snipes kannar undirheima New
York-borgar.
Needful Things
Skrattinn sest að i bandariskum smábæ.
Tryllir gerður eftir sögu Stephens King.
Piano ★★★★ og Kryddlegin hjörtu ★★★
Þessar virðast ganga endalaust Listrænt
bíó.
Á Söstudag
... Ferð út úr bænum. Bara
að komast eitthvað burt!
Upp í sveit í kyrrðina! Nú er
besti tíminn fyrir hljóðlátar
stundir við niðandi læki og
innhverfa íhugun í íslenskri
náttúru. ísland, sækjum það
heim!
... Veitingahúsinu 22. Það
bregst ekki að þegar maður
kemur þar inn minnir það
mann á árshátíðina hjá
Hvalstöðinni. Varast ber þó
að koma þar við ef durgur
að nafni Magnús stendur í
dyrunum, en sá maður ber
mikilmennskubrjálæðið utan
á sér og virðist í sífellu vera
að tapa sér... ekki sá vin-
sælasti.
Ungir
lista-
bnota
upp
hefð-
bundið
form
Nokkur hundruð manns renndu
við á opnun listsýningar sem hald-
in var í botni bílageymslunnar í
Borgarkringlunni síðastliðinn
laugardag. Þar voru samankomnir
með verk sín rúmlega fjörutíu
ungir listamenn, en fjórtán úr
þeim hópi eru erlendir gestalista-
menn og gestanemar við Myndlist-
ar- og handíðaskólann. Fjöldi
gestanema við MHÍ hefur aukist
undanfarin ár og ber sýningin því
vitni að tengsl eru á milli innlendra
og erlendra strauma hjá yngstu
kynslóð listamanna. Islensku þátt-
takendurnir eru allir að stíga sín
fyrstu skref á ferlinum og sumir
nýskriðnir úr skóla hér heima jafht
sem erlendis.
„Mér finnst þessi sýning merki-
leg fýrir þær sakir að hún styrkir
tengsl innlendra og erlendra lista-
manna. Einnig það að við höfum
valið að vinna þetta ekki í hefð-
bundnu galleríi og tökum þar af
leiðandi alla ábyrgð á þessu sjálf.
Það að brjóta upp þetta hefð-
bundna form býður upp á allt aðra
möguleika,“ segir Kristrún Gunn-
arsdóttir, en hún er einn af for-
sprökkum sýningarinnar ásamt
þeim Aðalsteini Stefánssyni og
Moniku Larsen-Dennis.
Helga Kristrún Hjálmarsdóttir
hóf sýninguna með því að sturta
tíu kílóum af sykri yfir sig á gólfið
og búa til engil úr því, en þetta
þetta er hluti af mynd eftir hana
sem heitir „Mitt mál“. Helga
Didda, textahöfundur með meiru,
las nokkur ljóð á sýningunni, Jó-
hann Eiríksson, meðlimur í Rep-
tilicus, var með ffumflutt hljóð-
verk, Þórdís í Jarþrúði tók snerru
á skinntrommumar sínar og Krist-
Skjálftavaktin
HM-helgina
Hér koma nokkrir punktar um hvernig best sé að búa
sig undir helgina stóru sem framundan er. Ljóst er að
leikir ftalíu/Búlgaríu og Svíþjóðar/Brasilíu verða að
baki. Og þið vitið framhaldið. Áfram...
• Pasta þremur tímum fyrir leik,
það borgar sig að hafa matinn vel
meltan svo hann gjósi ekki upp í
hamagangi leiksins. Pasta er algjört
möst fýrir leik því maður brennir
því svo vel og það er létt í maga.
• Andleg íhugun um allt sem
snýr að HM... fara yfir allt sem á
undan er gengið svo maður verði
inni í umræðum kvöldsins.
• Sjá til þess að nægur bjór sé til
á heimilinu og kúlerinn verður að
vera í standi, muna að koma hon-
um fýrir inni í stofú fýrir leik.
• Svo er bara að drekka nógu
stíft og hamast nógu mikið, svona í
samfloti við áhorfendur í hitanum
og leikmenn sjálfa.
• Kaupa stærsta sjónvarpsskerm
sem til er í búðunum í dag svo
hægt sé að horfa almennilega á
þetta, það er jú kominn tími til þess
að nota mánaðarlaunin í sjálfan sig
svona einu sinni og láta böm og
konu sitja hjá í þetta sinn.
Senda gestalistann út í tíma svo
þeir gestir sem velkomnir em fari
ekki að melda sig til annarra og
maður endi uppi einn að horfa á
risaskjáinn sirm.
• Fjarlægja allt og alla úr hús-
inu...
• 1 boði má ekkert snakk vera,
það truflar svo mikið einbeitingu
leiksins þegar næsti maður er að
japla á þessu.
• Senda krakkana í pössun til
tengdó og biðja vinkonu konunnar
að taka hana út á lífið... maður
blæðir í allsherjar dags- og kvöld-
skemmtun.
• Fá risahátalarana lánaða hjá
Nonna frænda svo hægt sé að
tengja þá við sjónvarpið... það má
ekkert annað heyrast en fótbolti!
• Vel að merkja! Hafirðu ekki
áhuga á HM farðu þá á Grillhús
Guðmundar og fáðu þér snæðing á
meðan á leikjunum stendur. Það er
ekkert skemmtilegra en að hlusta á
karlmenn í tilfinningaham á efri
hæðinni, á Glaumbar. í undanúr-
slitunum lék húsið á reiðiskjálfi. Á
laugardag, í það minnsta sunnu-
dag, má búast við að húsið hrynji.
Skjálftinn og lætin mælast ömgg-
lega á Richter.
rún Gunnarsdóttir birtist á skóla-
krítartöflu og „fór hamförum“ þ.e.
fór úr latexumbúðum með mikl-
um átökum.
David Lynch og Guðný Guð-
mundsdóttir voru kynnar sýning-
arinnar.
Listaverkin munu standa áfram 1
tvær vikur og laugardaginn 23. júlí
verður opnunárdagskráin endur-
tekin. Það er því ekki úr vegi að
léggja leið sína inn í bílageymslu
Borgarkringlunnar og sjá hvað
þessir ungu listamenn hafa upp á
aðbjóða.
fyrir
... Rúnna Júl. og Tryggva
Húbner á Blús-
barnum. Eðal-
rokkarinn Rúnar
Júlíusson situr
semfastastá
Blúsbamum og
rokkar vió hvurn
sinn fingur
ásamt gítarsnill-
ingnum Tryggva
Húbner. Hann
mun aldrei gleyma rokkinu,
hann Rúnni.
... að Mascapone-ostur-
inn fari að fást á íslandi.
Svo maður geri ekki út af
við flugfreyjuflotann með því
að biðja þær sí og æ að
kaupa ostinn. Maður verður
að geta búið til sitt eigið Tira
Misú án afskipta ríkisins.
Nei, þetta era ekki tvær myndir af sama manninum, þótt auðvelt sé að
álýkta svo við fýrstu sýn. Þetta eru þeir Kristinn Jón Guðmundsson,
ólöglegi innflytjandinn í New York sem sent hefur PRESSUNNI ffá-
bæra pistla með jöfhu millibili, og David Koresh, trúarleiðtogi frá
Waco sem brenndur var inni ásamt heilaþvegnum lærisveinum sín-
um. Mennimir eru nákvæmlega eins og minna um margt á Frelsara
vom, en þeir hafa báðir reynt að taka upp lífsstíl Hans með misjöfnum
árangri.
FIMMTUDAGURÍNN 14. ÍÚÚH'ð94