Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 30.05.1937, Qupperneq 3

Vísir Sunnudagsblað - 30.05.1937, Qupperneq 3
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ 3 1 tilefni af 25 ára ríkisstjórnarafmæil Kristjáns konungs X. 15. mai s. 1. liöf'ðu ýmsar verslanir í Kaupmannaliöfn til sýnis i gluggum sínum gripi, er voru sérstaklega gerðir fj’áar þetta tækifæri. Oscar Clausen: ......... Sira Einar formaður. Síra Einar Kolbeinsson var prestur á Rauðamel í byrjun 17. aldar. Hann var afar einkenni- legur maður í háttum og hneigð- ist meira til veraldlegra starfa en til prestsverka. Ilann var gáfaður maðirr og liafði mikla hæfileika í ýmsar áttir; þannig var hann mikill og góður söng- maður. Hann liafði verið við lærdóm nokkur ár utanlands, lengst af í Bremen. Síra Einar var einþykkur og óþjáll í lund og um hann var sagti1) að hann hafi verið „plumpur i fram- ferði“. — Ilann var óvanalega mikill matmaður og át stundum svo milcið, áð hann lá i offylli svo dögum skil'ti. — Það kom einu sinni fyrir, að prestur liafði etið svo mikið á jólunum að liann gat ekki embættað á Kolbeins- stöðum, þar sem hann átti heima, tvo fyrstu jóladagana, og féllu því allar messur niður á hátíðinni. — Síra Einari þótti preststekjur sínar heldur rýrar og var það hvorutveggja, að tekjur pesta á þeirn tímum voru ekki nein ósköp og svo hitt, að hann þurfti mikils með, þó að -ekki væri nema til þess að fylla sinn eigin maga. — Hann tók því upp á því, að gefa sig til sjó- róðra og fór á hverri vertið vestur í Lón undir Jökli, en það- an var hann ættaður og þar var hann oftast formaður og liepn- aðist vel. — Þegar síra Einar var orðmn gamall maður lirósaði hann sér •oft af því, hversu aflasæll for- maður liann hafði verið, t. d. liafi hann einu sinni fengið 6 liundr. til lilutar, i Lóni, frá jól- um til páska. En þá vertíð steig hann ekki í stólinn á Kolbeins- stöðum frá þvi á þrettánda þangað til á páskadaginn. Þá lagði liann út af öllum guð- spjöllunum, sem þar voru á milli, en sú messa hefir eflaust staðið mestan hluta dagsins. Það kom líka fyrir, að þegar síra Einar kom úr verinu, þá hafði verið safnað mörgum lík- um í ldrkjuna á Kolbeinsstöð- um, sem biðu þess að verða jarðsungin þegar prestur kæmi heim. Tók hann sig þá til og gerði einn stóran jarðarfaradag 1) Sjá prestaæfir síra J. H. Ekki frá upphafi. Dómari (við réttarhald í hjónaskilnaðarmáli): Hafi þér' verið kunnugur sambúð hjón- anna alla tið? Vitni: Ekki frá upphafi. — Eg var ekki í brúðkaupsveislunni. og jarðsöng þá alt i einu. Sókn- armenn urðu að lokum leiðir á þessu framferði síra Einars og kærðu hann fyrir biskupi. — Þá var Oddur Einarsson hiskup i Skálholti og dæmdi liann síra Einar frá embætti árið 1629. Eftir það var prestur svo á fíakki um sveitir og fór um alt land, eins og hver annar föru- maður, og þannig var lif hans í 32 ár, eða þangað til hann dó ár- ið 1660. — Um hann var það sagt, að „hann hefði ei lán til að staðnæmast lijá góðu fólki, þó hann ætfi þess kost.1”) 1) Sbr. Prestaæfir síra J. H., Hítárdal. 4C.úA.^JUOiÍIMA Ofy umustajn.. Smyglarnir taka margt til bragðs á vorum döguin og sumt kátlegt. Stundum geta þeir verið skemtilegir cða prðið öðrum að gamni. Um hollenskan mann er sögð þessi saga ( að efni til): Dag nokkurn kom hollensk- ur maður að landainærunum, akandi á bifhjóli sínu, svo sem ekki er i frásögur færandi. Hjólið var búið hliðarkörfu vænni og alt hið vandaðasta. Og i hliðarkörfunni sat unnusta mannsins, prúð og liljóð og Iiærði ekki á sér. Hún liafði fagran hatt á höfði og slæðu þykka fyrir andliti, skrýdd loð- feldi með háum kraga, en tepp- um sveipað alt umliverfis. Menn vita hvílikur gustur getur verið og sveljandi i opnum ökutækj- um og því er ávalt skynsamlegt að búa sig' vel, þó að lilýtt sé i veðri. Hinn ungi ökuþór hafði vegabréfin i lagi, bæði sitt og unnustunnar. Ilann dró þau upp úr vasa sínum, glaður í bragði, og sýndi tollþjónunum. — Alt í stakasta lagi! Og nú yrði hann að hraða sér. Hann þyrfti að sækja áriðandi ráð- stefnu i fjarlægri borg. Ráð- stefnan ætti að hefjast næsta morgun, svo að ekki væri til- setunnar boðið. Tollþjónarnir voru ungir menn og kátir og spjölluðu margt gamansamt við ekilinn. Hann hló og svaraði einhverju, en unnustan i liliðarkörfunni var undarlega þögul. Hún mælti ekki orð frá vörum og ekki stökk henni bros, svo að þess yrði vart.. — En ökumaðurinn var óþolinmóður og vildi kom- ast af stað sem allra, allra fyrst. — En að eg ávarpi blóma- rósina, hugsaði einn tollþjón- anna. Gaman að heyra fagra kvenrödd núna og sjá Ijómandi augu, því að hér hefir engin ung stúlka komið i allan dag. Og pilturinn lét ekki sitja við ráða- gerðirnar, lieldur ávarpaði stúlkuna kurteislega, en liún svaraði ekki einu orði. — Sú er skemtileg eða hitt held- ur, hugsaði tollþjónninn, en ekillinn gerðist ærið vandræða- legur og kvaðst með engu móti geta beðið lengur. Þessi bið get- ur orðið til þess, að eg neyðist til að aka með ólöglegum hraða, en ekki vil eg verða til þess að brjóta lögin. En tollþjónninn vildi ekki fallast á það, að ekillinn færi svo, að ekki fengist orð úr „unnustunni“. -—■ Bíddu við, góða mín, sagði hann í hugan- um, þú sleppur ekki svona. — Best að lita á liina fögru ásjónu þína og vita, hvort maður fær eklci ljúflingabros að skilnaði. — Og samstundis þreif hann í hatt „unnustunnar“ og svifti honum af. En þar íylgdi meira með. -— Slæðan fylgdi, svo' sem líklegt má þykja. Og enn fylgdi meira. Sjálft höfuð unnustunn- ar fylgdi! Það var úr gleri og liolt innan. Og er betur var að gætt kom í ljós, að „unnustan" var bara svolítið kálf-grey, bundið sauðabandi! — Og kálf- urinn hröldc upp með andfæl- um, skildi ekkert i þessum lát- um tollþjónsins og grenjaði ámátlega. Undarlegur slcolli, að lofa manni ekki að sofa í friði, hugsaði kálfurinn. — En „unn- ustinn“ fölnaði og mælti ekki orð frá vörum. — Og það er hvergi nærri vist, að hann hafi náð í tæka tíð á ráðstefnuna.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.