Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 30.05.1937, Qupperneq 6

Vísir Sunnudagsblað - 30.05.1937, Qupperneq 6
6 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ GJÖFIN. smárunna, og var því ekki kyn- legt, þótt Jón bóndi fyndi hann ekki. Nú liðu nokkrir dagar. Hatt- urinn var horfinn, týndur, og ekki þýddi um það að tala. Hann var líka orðinn gamall og lélegur. En nú hvarf Hvít einn daginn, og hvernig sem Benni litli leitaði, gat hann ekki fundið hana. Og nú hlýn- aði með degi hverjum. Dag nokkurn var Jón bóndi að lagfæra engjagirðinguna, og þá kom hann auga á eitthvað livítt skamt frá einum smá- runnanum. Benni var þarna á stjákli hjá pabba sínum, og nú fóru þeir báðir að athuga þetta betur. Og nú heyrðu þeir Hvít gagga. „Skyldi Hvít hafa valið sér varpstað undir . runnanum?“ sagði Jón bóndi. 0g þegar þeir fóru að at- huga þetta betur, lcomust þeir að raun um að svo var. Hún lá þarna undir runnanum og ýfðist við þá, er þeir komu. En þeir ráku hana af eggjunum. „Það eru fjögur egg þarna,“ sagði Benni himinlifandi, „— Það var dag nokkurn, snemma vors. Pabbi hans Benna litla var búinn að ganga frá matjurtagarðinum sínum til sáningar. Varð hann þvi gramur í geði, er hann sá að Hvit, liænan hans Benna, var búin að róta þar öllu til og grafa sér holu i einu beðinu. „Það er nú eitthvað annað en að þú fáir að verpa í miðj- um matjurlagarðinum minum, Hvít,“ sagði bóndi og rak hana á brott þegar í stað. Og aum- ingja Hvit varð dauðskelkuð og tók til fótanna og vængj- anna og var horfin á auga bili. Sól skein i heiði, og bóndi skrapp inn og tók gamlan strá- hatt, sem hékk þar á snaga, og setti á höfuð sér. „I hamingju bænum, Jón,“ sagði konan hans, „þú ætlar þó ekki að fara að nota strá- hattinn þinn, svona snemma vors?“ „Því ekki það,“ sagði Jón og leit á. veggalmanakið og horfði kankvíslega á kerlu sína. „Vor- ið er komið.“ „O jæja, það er nú ekki vor- legt stundum, þótt almanakið segi vorið komið,“ sagði kon- an hans, „og mundu, að hann er hvass og svalur, og ekki trúi eg því, að hattgarmurinn tolli á kollinum á þér.“ „Hvass!“ sagði Jón og hló við. „Það er vorblær — og eg ætla að fara að sá í matjurta- garðinum.“ Og þar með fór Jón bóndi sína leið. En á leiðinni út í matjurtagarðinn, kom snörp vindhviða og feykti af honum gamla stráhattinum. Jón leit fyrst í loft upp, og svo alt í kringum sig, en hatturinn var horfinn, og hann gafst brátt upp á leitinni. „Gamla konan hefir líklega haft rétt fyrir sér,“ sagði hann við sjálfan sig og hætti við að sá þann daginn. Honum þótti nú ráðlegra, að bíða þar til lygndi. En það er af hattinum að segja, að hann staðnæmdist ekki fyrr en hinum megin við engjagirðinguna, í nánd við og í gamla stráhattinum þin- um.“ Jón bóndi klóraði sér i höfð- inu. „Þú ert hygnari en eg liélt, Hvít,“ sagði hann. Og hann lagði liana á eggin aftur. „Ætlarðu að láta hana liggja á?“ spurði Benni ákafur og með eftirvæntingu. „Ætli ekki það,“ sagði pabbi lians og strauk Hvít. „Við skul- um lofa henni að vera liérna og þú getur litið eftir lienni.“ „En liatturinn, pabbi?“ spurði Benni. „Hafðu engar áhyggjur af því, Benni minn,“ sagði pabbi hans og liló. „Það er best að Hvít fái hann — í sumargjöf.“ Sléttubanda-vísa eftir þjóðskáldið á Bægisá, síra Jón Þorláksson: Sótlin presta burtu ber, bestu mönnum eyðir, dróttin vesta eftir er, aukast hrönnum leiðir. Sé vísan lesin aflur á bak, verður hún þannig: Leiðir lirönnum aukast, er eftir vesta dróttin, eyðir mönnum bestu, ber burtu presta sóttin. Þetta er góður skáldskapur. Og svo kveða ekki aðrir en snillingar. OQ5 ö etta Ósanngirni. Meðal sumra þjóðflokka í Afríku eru það ófrávíkjanleg lög, að ef gift kona deyr, þá er yngsta systir hennar skyldug til þess, að ganga að eiga mann hennar (ekkilinn). Þetta gildir alt að einu, þó að yngsta systirin sé manni gefin. — Hún verður að yfirgefa mann sinn og börn, hvort sem henni er það ljúft eða leitt, og setjast í sæti systur sinnar. Og ekkillinn er skyldug- ur til þess að kvongast systur konu sinnar, hinnar látnu, hvort sem honum leikur nokkur liug- ur á þvi eða ekki! Misskift er láninu. — — Misskift er láninu mann- anna, ekki síður en öðru i þess- um syndum spilta táranna dal, sagði karlinn. Hann var að lesa blað og rakst þar á merkilega frétt. — Hér stendur nefnilega, skal eg segja ykkur, að komið hafi f}rrir einhversstaðar i út- löndum, að maður nokkur liafi glcypt perlu í matnum sínum. Hann varð náttúrlega fárveik- ur, manngarmurinn, og varð að fara til læknis. Og læknirinn * opnaði á honum kviðinn og náði perlunni. En svo verðmæt liafði perlan verið, að hún borgaði bara allan kostnaðinn! — Já, því segi eg það — misskift er láninu í henni veröld. — Borga varð eg úr eigin vasa, þegar læknirinn skar í fingurinn á mér um árið ! BLYSFÖR STÚDENTA TIL KRISTJÁNSB ORGARHALLAR.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.