Vísir Sunnudagsblað - 29.05.1938, Blaðsíða 8

Vísir Sunnudagsblað - 29.05.1938, Blaðsíða 8
8 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ UMHVERFIS JÖRÐINA. Frli. af 5. síðu. að til beggja lianda breiddi sig fagur furuskógur. Kl.3 siðdegis komum við að bryggju í Pan- ama. Þar stóð þá yfir einskonar þjóðhátíð (carneval), svo að mikið gekk þar á; fólk alt í skrautbúningum og lék lausum hala. Þaðan héldum við kl. 8 um kvöldið. Veður var hið besta alla leið meðfram strönd- um Mið-Ameríku-ríkjanna, og þann 6. mars komum við til San Pedro, sem er hafnarbærinn við Los Angeles í Californiu. Staðið var við í 30 stundir. Um þær mundir voru þar flóðin miklu. Héldum við nú áfram, uns við sáum rauðu stöplana á Gold- en' Gatc-lirúnni. Þá fór eg nú að þekkja mig aftur. Höfðum við alls farið 26.442 sjómílur og verið á ferðinni í eitt hundr- að og tíu daga og átt viðstöðu í tutlugu og tveimur liöfnum. Eg fór í land í San Francisco, heima, en skipið hjóst í aðra ferð. Þetta skrifaði eg upp á leið- inni að gamni mínu, og er það eins og nokkurs konar „logg- hók“. Veðrið er oft nefnt, því að á sjónum skiftir það svo miklu máli og maður hefir það stöð- ugt í liuga. Hér er skýrt frá eins og fyrir har, og er þvi efn- ið ekki skemtilegt, en blátt á- fram veruleiki, eins og hann her hásetanum að hendi. Mörgu hefði verið hægt við að bæta, en það hefði orðið jafn óskemti- legt, og sleppi eg þvi að þessu sinni. "■■■■■■■■ ■■■■■■■■> ÞETTA KVENFÓLK!! 2 vinkonur liittust. „Eg hélt, að þið Ella væruð ósáttar?“ „Já — en eg sættist við liana í gær, til þess að fá hana til þess að segja mér, livað hún Hildur hefði verið að segja um mig“. FULLUR EFTIRVÆNTINGAR Karl litli datt i tjörnina og kom heim hlautur, kaldur og skjálfandi. „Snáfaðu undir eins i rúmið“, sagði pabbi hans, „en þegar þér er orðið heitt, færðu liýðingu!“ Yngri bróðir Karls, sem var í sama rúmi, sagði eftir dálitla stund: „Svona, nú er lionum orðið heitt!“ LÉT EKKI STINGA UPP 1 SIG Billinn sat fastur i for, og bíl- stjórinn var alveg ráðalaus. „Nú verðið þér að láta naut draga yður upp úr“, sagði flaklt- ari nokkur háðslega um leið og hann gekk framhjá. „Já, haldið þér að þér vilduð gera svo vel?“ svaraði bilstjór- inn. ENGIN VEIKI. „Eg held að maðurinn mmn hafi einhverja slæma veiki, herra læknir. Oft, þegar eg er að tala við liann, tek eg alt í einu eftir því, að hann hefir eklci heyrt orð af því, sem eg var að segja.“ „Það er engin veiki, kæra frú, það er náðargáfa“. Á VEIÐUM. „Jæja, hvernig þóttu þér veiðarnar?“ „Æ, blessuð minstu elcki á það! Eg hitti tvo kunningja mína!“ 9 9“ ...... „Já — Magnús í hnéð og Her- mann i öxlina!“ ÞARNA KOM ÞAÐ! „Þegar eg er húinn að sitja við skriftir langt fram á nótt“, sagði ungl skáld við vin sinn, „þá er mér alveg ómögulegt að sofna!“ „Eg kann einfalt ráð við þvi —lestu liara yfir það, sem þú ert búinn að skrifa ....“ BANNAÐ! Kennarinn liafði gefið nem- endunum það verkefni að lýsa veggfóðrínu heima hjá sér fyrir næsta tíma. í bókinni lians Pét- urs litla stóð aðeins: „Pabbi bannaði mér það“. ANNAÐHVORT — EÐA. „Mér sýndist, Hans“, sagði faðirinn, „að hann litli bróðir þinn sé að borða litla eplið en þú það stóra!. Léstu liann velja sjálfan?“ „Auðvitað, pabbi,“, svaraði strákur. „Eg sagði við hann: „Hvort viltu heldur litla eplið, eða ekkert“ .... nú, hann vildi heldur það litla ....!“ ÞÉR VESALINGS, VESA- LINGS FUGLAR. Maður nokkur gekk sér til skemtunar með syni sínum í lystigarði borgarinnar. Alt í einu spurði snáðinn: „Pabbi, hvaða fuglar eru þetta, sem synda þarna á tjörn- inni ?“ „Það eru svanir, drengur minn“. „Aumingja fuglarnir!“ sagði drengurinn með meðaumkun. „Af hverju segirðu það?“ „Að þurfa að þvo svona lang- an háls á hverjum degi.“ SÁ LAGLEGASTI. Mjög andrík heldri kona átti eitt sinn tal við nokkra karl- menn. „Eg játa það“, sagði hún, „að lcvenmenn eru yfirleitt hé- gómlegri heldur en karlmenn. Til dæmis sé eg, að hálsbindið er skakt á þeim laglegasta ylck- VÍ SIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (GengiS inn frá Ingólfsstræti). S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. ar. Það gæti aldrei gengið hjá okkur kvenfólkinu“. 5 karlmenn voru viðstaddir og allir gripu þeir til hálsbind- isins. ÓMÖGULEGUR! Leiksviðsstjóri nokkur í Ilollywood hitti yfirboðara sinn og sagði við hann: „Eg er búinn að fá ágæta liugmynd!“ „Nú — og hver er hún?“ „Eg ætla að kvikmýnda lif Lindherglis“. „Agætt! En hver á að leika Lindbergh?" „Látið yður ekki bregða: Lindbergh sjálfur!“ „Þér eruð víst ekki með öll- um mjalla! Hann er alls ekki rétti maðurinn í það hlutverk“. HiM p-^x-x- : : ÞEGAR JAPANIR NÁLGAST Ibúarnir í kínverskri borg á flótta, af ótta við innrás japanska hersins.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.