Vísir Sunnudagsblað - 21.08.1938, Síða 4
4
VISIR SUNNUDAGSBLAÐ
Mýjar byggingar í Þýskalandi
CiöCJöSííiOtSKÍÍOeöttOÖOCSíSíSOOCíKÍOOOOOOÍ
O o
« Þann 10 apríl sl- birtist í þessu í?
« blaði .grein um þýska list, og er g
n eftirfarandi grein nokkurskon- «
g
jj ar framhald af þeirri fyrri.
c.
íOOOOOOOOOOOOOCSOOOOOCOOOOOOOOOOO
T öllum mennipgarlöndum,
A hvort sem þau eru smá eða
stór, er tækni nútímans notuð til
þess að byggja úr öllum liugs-
anlegum efnum og með öllum
brögðum byggingalistarinnar
nýjar og vandaðar byggingar,
og mun mörgum finnast það
sjálfsagður hlutur, að svo sé
einnig í Þýskalandi. Það er þó
tvent sem veldur því, að bygg-
ingarlist Þjóðverja verður hér
gerð að umtalsefni. t fyrsla lagi
ieru það ástæðurnar fyrir því, að
nú er byggt sérstalclega mikið
þar í landi. Ein aðalástæðan er
sú, að öll ráð voru notuð til
þess að útrýma atvinnuleysinu.
Þegar fyrir 5 árum var byrj-
að á framkvæmdunum, sem
miðuðu að þessu marki; var
strax veitt hundruð þúsundum
manna atvinna ■ við umbætur
vegakerfisins í Þýskalandi. Rik-
isbifreiðabrautirnar, sem svo
mikið hefir verið rætt um, áttu
einn aðalþátt í því„ vegna þess
að það þiirfti ekki einungis að
leggja sjálfa vegina, heldur
einnig að byggja brýr, hráefna-
verksmiðjur o. s- frv. og þann-
ig jókst atvinna við áform
þetta koll af kolli í ýmsum at-
vinnugreinum, sem lúta að
byggingariðnaðinum.
Á sama tíma voru loftsam-
göngurnar endurbættar og sett-
ar í nýtísku skipulag. Við það
jókst atvinna engu minna. Sem
dæmi má nefna, að ein lang-
stærsta bygging í Þýskalandi er
bein afleiðing endurbættra loft-
samgangna: afgreiðsluskálinn í
Berhnar-flugliöfninni. Bygging
þessi er 1000 mtr. löng og stend-
ur við sjálfan flugvöllinn, en
hann er næstum því 4 ferkm.
að stærð. t henni á ekki einung-
is að annast um afgreiðslu far-
þega og farangurs þeirra, held-
ur er þar einnig komið fyrh'
veðurathugunarstöð, flugvá-
tryggingarstofnunum, lækn-
ingastofum, gistingarherbergj-
um og veitingasal fyrir 2000
manns, en á pöllunum í kring
um húsið geta 100 000 manns
setið til þess að horfa á flug-
sýningar og þessháttar. Hið
þýska flugmálaráðuneyti hefir
aftur á móti ekki aðsetur sitt
við flughöfnina, heldur í nýju
stórhýsi í miðbænum.
En það er einmitt miðbik
Berlínarborgar, sem á að verða
fvrir hinum stærstu og stór-
fenglegustu breytingum, bæði
vegna liinnar sívaxandi umferð-
ar, sem verður enn meiri, þeg-
ar bifreiðabrautirnar, sem að
borginni liggja, verða fuhgerð-
ar, og ennfremur vegna eðlis
Berlínar sem höfuðborgar rík-
isins. Hinum nýju valdhöfum i
Þýskalandi þótti það m. a. al-
veg óþolandi, að skrifstofum
dómsmálaráðuneytisins hefir til
þessa verið dreift um 30 hús
í hænum! Sama gildir um Ber-
línar-háskóla og stofnanir hans,
sem enn þann dag í dag verða
að liafast við i ótal eldri hús-
um — þangað til að hið nýja
háskólahverfi við útjaðar bæj-
arins verður tilbúið. En það er
lekki einungis nóg af nýjum
stórhýsum í Berlín, lieldur
verða þar einnig á þessu eina
ári á vegum verkamannasam-
bandsms D. A. F. bygðar 30.000
nýjar verkamannaíbúðir i út-
hverfum hæjarins, tvibýlishús
með görðum í kring.
Berlín á að fá nýtt anchit, og
mun það vera komið á eftir
5-—10 ár og þá fátt vera eftir
af þvi gamla og úrella, sem
þótli höfuðhorg landsins til
ósóma.
Þar sem hér hefir að ofan
verið bent á þær breytingar
lands- og byggingarlags, sem
umferðin útheimtir, skal enn
minst einnar byggingar i þessu
sambandi, sem ef til vill verður
sú stórfeldasta: hin nýja brú
yfir Elbe-fljótið í Hamborg.
Stólparnir, sem eiga að bera
brúna uppi og 8 akbrautir á
henni, verða 160 mtr. að hæð
eða 3 mtr. hærri en turnar dóm-
kirkjunnar í Ivöln.
Þó að allar þessar nýju bygg-
ingar — og fleiri mætti nefna,
þvi að hér hefir verið stiklað
á stóru —- stuðli að því að auka
atvinnu þar i landi og setji nýj-
an svip á horgir og sveitir lands-
ins, er þó hin innri breyting, ef
svo rnætti að orði kveða, mikil-
vægari en sú ytri. Á þessu sviði
hins opmbera lifs í Þýksalandi
kemur, eins og á öllum öðrum,.
í ljós nýr vilji, nýr andi, nýtt
vald.
Stjórn nasista, sem nú er bú-
in að fara með völd í Þýskalandi
á 6- ár, var strax frá byrjun á-
kveðin i því að hefja þýska rik-
ið, undir fastri stjórn, að nýju
til stórveldis. í engu getur mátt-
ur og megin voldugs ríkis kom-
ið betur í Jjós en í glæsilegum
bvggingum, sem bera vott um
vilja og verkfýsni kynslóðar
þeirrar, sem liefir skapað þær.
Hitler komst einu sinni þannig
að orði: „í menningai’starfi
tokkar munum við byrja með
þvi að reisa fjölda stórra, at-
hyglisverðra hygginga, af því
að við erunx sannfærðir um, að
hin ævarandi fyrirmynd mun
vera hesti kennarinn fyx'ir ó-
komna tíma.“
Rikisstjórnin reið á vaðið og
Likari af fjar-
sýnisstöð á fjall-
inu Feldberg sem
nú er aö veröa
fullgerö;
,ikan af „Aka-
ernie fúr Deut-
:he Jugendfúh-
ixng (háskóla
y^rir * æskulýðs-
:iðtoga)“ — í
raunschweig. —
;ygging þessi er
ú í smíSum.