Vísir Sunnudagsblað - 17.09.1939, Side 1

Vísir Sunnudagsblað - 17.09.1939, Side 1
1039 Sunnudaginn 17. september 38 blaé HE. IGUJ U L. ÍN N ■ EFTÍR m KrISTMANN GuÐMUNDSSON. Það logaði glatt á arni, svo bjart var i fjallakofanum. Yfir eldinum hékk ketill og barst frá honum ilmur af kaffi. Ungfrú Anna var einmitt að raða boll- unum á borðið. Haraldur gekk um gólf með pípuna í munnin- um. Þau bjuggust við Eyvindi á hverri stundu; hann hafði skroppið i einhverjum erindum lil bæjar, sem var skamt þaðan. Þau höfðu bæði verið hljóð lengi, og þessi þögn var þeim báðum til ama. Anna beygði sig yfir það, sem hún var að gera, svo Haraldur sá ekki andlit hennar. Honum var alt annað en rójtt innanbrjósts. —- Það var annars einkennilegt livað Ey- vindur var lengi? „Veist þú hvernig stendur á þvi, að Eyvindur þurfti endilega að fara þetta núna? — Hann er þó annars ekki vanur að stuðla að því, að við séum tvö ein sam- an!“ Hún ansaði ekki strax, en hélt áfram að leggja á borðið. Þegar hann færði sig nær henni leit hún upp. „Anna —“, sagði hann lágt og blíðlega; „hefirðu verið að gráta?“ Hún hristi höfuðið döpur á svip; liún var há og ljóshærð stúlka með stór, greindarleg augu. —- „Hann fói'“, svaraði hún, „af því að hann vildi að eg segði þér að við ætlum að gifta okkur bráðum“. — Þegar hún liafði sagt þetta snéri hún sér undan. „Einmitt það“, varð honum að orði. Hann gekk út að glugg- anum og horfði út í lognhríð- ina fyrir utan. „Hafði hann ekki hugrekki til að segja mér þetta sjálfur!" sagði hann í hálfum hljóðum. „Svo þið ætlið að gifta ykkur bráðum? — Ein- mitt það.“ Hann vænti ekki svars. Hann var að hugsa um vin sinn Ey- vind. Þau höfðu lialdið vináttu, öll þrjú, síðan þau lcyntust fyrst i barnaskólanum. Hann hafði verið stoltur af því að vera í kynnum við Eyvind, sem var svo stór og sterkur og fallegur. Það vakti undrun hans frá því fyrsta, að Anna virtist hafa meiri mætur á honum en Ey- vindi, sem öllum stúlkum leist vel á. Vinur hans átti ríka for- eldra og var alinn upp í dálæti, hann var vanur að fá alt seln liann óskaði sér, og gat verið talsvert hrokafullur á stundum. En við Onnu og hann, Harald, liafði hann ávalt verið góður og lítillátur. Og framan af virtist samdráttur þeirra aðeins gleðja hann; hann var oft að stríða þeim með því, hvað hann ætti að gefa þeim í brúðargjöf! Það var nú reyndar dálítið taktlaust af honum, því þau voru fátæk bæði. — Uppfundningarnar se'm hann, Haraldur, var altaf að glíma við voru ekki famar að gefa mikið af sér ennþá, enda var enginn, sem trúði neitt á þær nema hann sjálfur. Hann hafði byrjað á þessu um tví- tugt, og svo hafði verkfræði- námið hans farið alveg út um þúfur. Eyviudur var aftur á móti orðinn yfirréttarmála- flutningsmaður, og var þe'gar eftirsóttur lögfræðingur. Hann hafði alt sem einn verðandi ektamaka og tengdason má prýða, og hefði auðvitað getað valið úr konuefnum. Margir íiöfðu furða sig á því, að hann skyldi ekki gifta sig. En Harald hafði lengi rent grun í hvaða orsök lægi til þess: hann var orðinn ástfanginn í Önnu. Það voru eitthvað um tvö ár síðan það byrjaði. Haraldur varð þess fljótlega var er við- mót vinar hans tók að breytast. Eyvindur fór að skopast að upp- fundningunum hans, einkum þegar Anna var viðstödd. Eða það, sem verra var, að tala al- varlega um fyrir honum: liann skyldi liætta þessari vitleysu, því ef hann héldi áfram með þessi uppfundingaheilabrot yrði hann aldrei annað en ræf- ill! Það sárasta af öllu var, að þar tók Anna í sama strenginn. Hún trúði ekki á það, sem hann liafði gel't að lífsstarfi sínu! Anua, — hann hafði elskað liana síðan hann var litill dreng- ur. Og hann hafði vonað, að hún elskaði hann einnig. Reynd- ar bafði hann aldrei spurt hana að því. Þau liöfðu aldrei talað um ástir, þau höfðu ekki einu sinni kyst hvort annað. En hann iiafði tilbeðið hana alla tíð, og hún liélt sig ávalt mest að hon- um. Þangað lil núna upp á síð- kastið. Hún var hætt að hlusta þolinmóðlega á hann, þegar hann var að segja henni frá fyrirætlunum sínum og draum-, um um framtíðina. — „Þetta gengur ekkel't hjá þér!“ sagði liún oft. „Þú byggir tóma loft- kastala, það verður ekkert úr þér góði! Reyndu nú að halda áfram við námið og fá þér ein- iive'rja góða stöðu. Svo geturðu þá sýslað við þessar uppfundn- ingar þínar í tómstundunum.“ Hann ásakaði hana ekki, því hann vissi að þetta voru alt orð Eyvindar. Það var æskuvinur lians, sem var að fæla hana frá honum á þennan liátt. Og það var reglulega lúalega gert! — Haraldur hafði aldrei haft orð fyrir að vera sérle'ga liugaður maður. í skóla gerðu félagarn- ir oft grín að honum fyrir það, að hann reyndi ávalt að hliðra sér hjá illindum og slagsmál- um. Þeir liöfðu til að kalla hann heigul og bleyðu. Og það var satt, að hann hafði mestu andstygð á hnefarétti og of- beldi, þó hann væri sjálfur vel að manni. En núna, síðan hon- fór að skiljast hvernig Eyvind- ur fór að ráði sínu, að hann reýndi að tæla Önnu frá hon- um, undir vinmælagrimu, þá var ekki laust við að liann lang- aði til að reyna livor þeirra hefði mesta krafta í köglum! En hann var sami heigullinn og áður, hann hélt áfram að umgangast Eyvind eins og vin sinn. Þau héldu hópinn ennþá, öll þrjú. En nú gætti Eyvindur þess altaf vandlega, að þau væru aldrei saman tvö ein. Þess vegna hafði honum komið mjög á óvarl i kvöld, að hann skyldi endilega þurfa að fara frá og skilja þau ein eftir. En það var þá til þess arna: hún átti að segja honum að Eyvind- ur og hún væru trúlofuð! — Hann krepti ósjálfrátt lmefana og beit á jaxlinn: þetta var fantabragð! „Haraldur —“, sagði hún hljóðlega. „Haraldur, — þú skilur það — að við getum ekki verið saman svona þrjú lengur. Eyvindur er svo afbrýðissamur, — hann ásakar mig fyrir það, að þú hangir altaf á okkur! — Mér leiðist það, Halli minn, en eg lofaði að tala um þetta við Þig-“ „0, jæja!“ Hann sagði þetta eitthvað svo einkennilega, að hún leit rann- sakandi á hann. — Henni hafði altaf fundist hann vera falleg- ur; hann var hár og nokkuð grannur, rór í fasi, með íhugul- an svip. Augu hans voru grá og lirein, andlitið frítt, en þó karl- mannlegt. — Alt í einu roðnaði hún út undir eyru og leit niður fyrir sig. Hann gelck til hennar og strauk léttilega um öxlina á lienni. — „Heyrðu, Anna“, sagði hann hljótt; „ertu nú al- >Teg ákveðin — eg meina, viss um að þú elskir Eyvind?" Hún ansaði engu og leit ekki upp. „Það er nokkuð, sem mig langar til að segja þér, áður en eg fer“, hélt hann áfram c-ftir

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.