Vísir Sunnudagsblað - 22.02.1942, Blaðsíða 5

Vísir Sunnudagsblað - 22.02.1942, Blaðsíða 5
VlSlR SUNNUDAGSBLAÐ 5 Hér sést ný tegund þrúgna, sem brezki lierinn lætur nú fram- leiða í stórum stíl. Er fótabúnaður þessi léltur og góður. Þess er ekki getið, bvort Bretar liafi látið Rússa fá nokkuð af hon- um til að nota á austurvígstöðvunum. ekki opnúð öðruvísi en á borð- inu fyrir augunum á mér, og var þelta gert. Borgaði með seðli af digrustu gerð, því eg var kominn úr mikilli veiðiferð. Meðan á skiftunum stóð lét eg ekki hjá liða að leita frétta af stúlkunni um áttirnar í Tryggvagötu og livort hún liefði nokkurntima séð þar húsnúm- er; þetta lægi mér svo ákaflega ríkt á Iijarta. Mærin brosti ljúf- lega, en kvaðst ekki hafa minnstu hugmynd um áttir, hvorki hér eða annarsstaðar, og ávalt láta skeika að sköpuðu í því efni. Hún kvaðst vera fædd og uppalin í vesturbænum, en hvort það væri í norður eða suð- ur, eða hvort vestrið byrjaði þar eða emdaði, sagðist hún ekki vita. — Þarna sátu nokkrir menn inni, mest dátar, en einn íslend- ingur mjakaðist til mín hægt og gætilega og bauð mér viskípela fyrir 130 krónur, og taldi það vægt verð eins og ástandið værí nú. Ekki óhugsandi að hann gæti útvegað mér stelpu í kaup- bæti, ef eg þyrfti á að halda; hef- ir víst hugsað að eg væri ekki allsgáður, að spyrja Reykjavík- urdömu um áttir. Eg þakkaði elskulegt boð og sagði honum, að í fyrsta lagi þyrftum við ls- lenidingar ekki að drekka áfengi, gætum augafyllt okkur af engu, eins og við hefðuip gert hingað til. 1 öðru lagi gæti eg ekki lagt míg níður við svona litið, þvi eg liefði nærrí því verið búinn flð kaupa heila smálest af há-. karli fyrir sjö þúsund og fimm hundruð krónur undir berum himni rétt áðan. í þriðja lagi yrði maður að vara sig á þessum ódýru dropum, þeir væru svo átakanlega líkir sjálfu sér og sumu öðru, og sagði honum sög- una af piltinum, sem langaði til að trúlofa sig. Hann hafði geng- ið vel undan sumrinu, eins og sjálfsagt var, og gekk með manni bak við hús og nappaði af honum lieilan whiskypela fyr- ir hundraðkall. Innsiglaður peli. Allt í lagi. Því næst náðist stelp- an, sem kostaði ekkert, lífleg og snoppufríð, með bullrauðar varir likt og skorið hefði verið í hrosslæri og allt annað i leik- andi lagi. Jæja, sjálfsagt var nú að byrja á þvi, að smakka á pel- anum, áður en farið yrði að stynja upp bónorðinu. Hann dró því fleyginn upp úr aftanverð- um biðilsbuxunum, afhjúpaði hann og opnaði, og bauð döm- unni bragð, því ungi maðurinn kunni alla mannasiði. „Damerne först“, eða svo var það meðan Danskurinn réði. — En mikil heimsins skelfing og dauðans angist kom yfir stúlkuna, þeg- ar hún hafði kjmgt fyrsta sopan- um. „Jesús minn almáttugur!“ æpti hún, saUp ákaft hveljur og slökk á dyr, og varð ekki af trú- lofuninni. Sveinninn sat eftir með sárt ennið. Þetta var nú verra en að missa spröku við borðið, og hugði nú auminginn að drekkja sprg sinni i dropanúm — og fékk sér vænan teig. En þar fór eins og þegar hlandi er helt í heita flösku, enda var slíkt góð- gæti i pelanum, alvel hreint og ósvikið. — Náunginn gapti við frásögn mína, og sá ég í kverkar honum, er eg kvaddi og fór. Nú var að girða sig í brók enn á ný og reyna að finna stofn- unina. Erfiðast var að öðlast vitneskju um, frá hvaða enda Trvggvagata byrjaði, því engin eru þar opinber búsnúmer. Engin von að aðrir vissu þetía, eg vissi það ekki sjálfur eftir 13 ára veru í borginni. Það lá þvi beinast við, að atbuga hvert Iiús út af fyrir sig, og lenli eg loks inn í sal, þar sem gengið var inn beint frá götunni. Eg mundi ckki betur cn að í þess- um sal befði eilt sinn verið út- hlútað matvælaseðlum, og þótti mín för góð orðin, að hafa loks fundið stofnunina og það á sin- um gamla stað. Margt var að- komumanna þarna inni, en eng- inn leiðarvísir nokkurstaðar sjá- anlegur hvers konar stofnun þetta væri. Eg stillti mér í röð- ina framan við afgreiðsluborð- ið og hélt á gamla stofninum mínum. Var mér það mikill hugarléttir, að eg sá ýmsa vera með spjöld i höndunum, sem á var letrað með svörtu, stafirn- ir: S. R. — Þetla útlagði eg: Skömmtunarskrifstofa rikisins, og hugði þetta vera hina nýju útgáfu úthlutunarseðlanna, sem mér hafði tjáð verið að gilda ættu til ársloka. Runnu þar all- ar stoðir undir að styrkja mig í trúnni. En brátt varð trúar- fögnuður minn fyrir miklum hnekki. Eg komst að því, að ákafar peningagreiðslur voru um hönd hafðar, og leizt ekkí á blikuna, því eg bafði vanisí því áður, að fólk fengi úthlut- unarseðlana ókeypis. Gat þetta verið einhver ný félagsstofnun sem var liér í algleymingi ? Auð- vitað! Margt skeður á skemmri stund en fullum 4 mánúðum með ameríkönskum hraða. — Sálarrannsóknar- eða Sálar- angistarfélag Reykjavíkur hlaut þetta að vera í tilefni af ástand- inu! Eg var vitlaus maður á vit- lausum stað eins og fyrri dag- inn. Og til að spila mig ekki „etjót“, meira en nauðsyn krafði, laumaðist eg út á göt- una, jálandi sekt mina í hljöði, að liafa verið að hnýsast í ann- ara helgidóm. Svona er að vera ekki með réttu ráði. Á götunni hitti eg brezkan lögregluþjón, sýndi honum stofninn minn og blabraði framan i liann á lieims- málinu, en slakk inn í einu og einu orði úr Norðurlandamál- unum til áréttingar, því mér datt í liug að það væru verndar- ráð stórveldanna, að fela Skömmtunarskrifstofuna, svo> óvinurinn byrjaði ekki á því að’ matreiða sjálfa útblutunarseðl- ana, því nazistar eru, eins og kunnugt er, alætur. Blessaður maðurinn vildi gera mér allt til íftraa Fregnir segja frá ólgu mikilli í Rúmeníu vegna styrjaldarinn- ar við Rússa. Ilafa litlar spurnir farið af Mikael konungi Rúm- ena, frá því^ að hann lók við völdum aftur. Hér sésl hann með móður siuni, Helenu, sem er af grískum ættum. Hún er vin- sæl meðal alþýðu monna,

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.