Vísir Sunnudagsblað - 12.09.1943, Blaðsíða 2

Vísir Sunnudagsblað - 12.09.1943, Blaðsíða 2
2 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ fyrir, hljóp svo heim til móður sinnar og spurði hana, hvorl þetta væri satt, eða livort hann væri ekki sonur pabba sins. Þá hló kerling. „Þetta getur þér dottið í hug! Þú ert ekki svo grænn.“ Og bætti við: „Oft má satt kvrt liggja.“ Don Diego var leikbróðir lians. Hann var af aðalsættum. Féll vet á með þeim. Einn dag mætlu þeir á götunni manni, sem hét Pontíus de Aguirre. „Ivallaðu liann Pontíus Píla- lus,“ segir don Diego, „og taktu svo til fótanna." Pablos gerir svo, til að þóknast leikbróður sínum, en strax og maðurinn hevrir þetta, kemur hann með hnífinn á lofti og ætlar að drepa Pablos, sem verður að flýja inn lil kennarans og biðja hann á- sjár. Pontius de Aguirre elti liann þangað og heimtar hann framseldan; og það verður ekki Iijá þvi komizt, þrátt fyrir bæn- ir frúarinnar, að leysa niður um Pablos og lofa manninum að flengja hann. Við hvert högg spvr hann: „Ætlarðu nú framar að segja Pontíus Pílatus?“ „Nei,“ veinar Pablos og lofar þessu liátíðlega. Svo sneyptur og skelkaður yarð hann, að morguninn eftir, þegar hann var látinn lesa trúarjátninguna fyrir bekkjarbræðrum sínum, sagði hann „dæmdur af Pontíus de Aguirre,“ því að Pílalus þorði hann ekki með nokkuru móli að nefna. Kennarinn hafði svo gaman af einfeldni hans, að haiin lofaði að gefa honum upp sakir í tvö næstu skiptin, sem hann verðskuldaði hýð- ingu. Nokkuru síðar var lcjöt- kveðjuhátíð. Bjó Pablos sig eins ríkmannlega og liann mátti og fékk sér bykkju til reiðar; fór svo með félögum sinum um götur bæjarins og sem leið liggur niður á sölu- torgið. Klárinn hans féklc mik- inn áhuga fyrir kálhöfðum, sem þar voru og át eilt þeirra. Þegar sölukeflingin, sem átti það, kqmst að því, fékk hún aðrar kerlingar i lið með sér ásamt allskonar fruntajýð, og var nú gerð atlaga, sem linti ekki fyrr, en klárinn lá hálfdauður á göt- unni og Pablos gauðrifinn og holdvotur niður í rennunfti. Komst hann við illan leik heim, fékk hinar verstu móttökur hjá foreldrum sínum, svo að hann lók þá ákvörðun að koma hvorki þangað né i skólann aftur, en gerast sveinn Diegós, sem tólc því vel og einnig for- elclrar hans. Don Alonso de Zunicjga vildi Iáta son sinn Diego læra meira, og sendi liann því til kandídats Cabra, sem hafði það íyrir at- vinnu að uppfræða heldri manna syni. „Hann var eins og reyrprik i skrifarabúningi, ekkert nema lengdin, liöfuðið var lítið og hárið rautt. Meira þarf ekki að segja þeim, sem þekkja tals- háttinn: þann lit hefir hvorki liundur né köttur. Auguii voru svo innsmogin, að hann virtist horfa út um nokkurskonar vindaugu, svo djúp og dimm, að maður gat líkt þeim við búðarholur. Nefið flatt og mik- ið til upptært af kulda, en ekki af kynsjúkdómi, sem hann. hefði aldrei timt að verða sér út um. Hakan var nábleik og munnurinn svo hungilrslegur, að það var eins og hann ætlaði' þá og þegar að gleypa liökuna. Tcnnur vantaði margar; hafa víst verið reknar úr vistinni, fyrst ekkerl var handa þeim að gera. Hann hafði langan liáls, eins og strútur, og bárkakýlið svo framskotið, að það virtist ætla að ná í næringu upp á eigin spýtur, svo aðframkomið sem það var af skorti. Handleggirn- ir voru tálgaðir og hendurnar sem tvö stráknippi. Séður frá mitti og niður úr liktist bann heizt gaffli eða sirkli. Hann hreyfði sig mjög varlega, en færi Iiann að greikka sporið, skrölti i beinunum eins og i hljómbaukum. Rödd hans var hreimlaus, skeggið sítt, því að til sparnaðar lél hanri aldrei raka sig; en hann sagði sjálfur, að sér bvði svo við Iiöndununi á rakaranum, að fyrr léti hann drepa sig, en að láta liann fara þeim um andlitið á sér.“ Pablos brá í brún, er hann sá, að gömlu koslgangararnir og þjónarnir voru aJlir tálgaðir og fölir eins og beinagrindur. Við morgunverðarborðið „Settist kandidat Cabra fyrstur og las borðbænina. Okkur var borin súpa i trétarínum, svo þunn og tær, að hefði Narcissus ætlað að súpa á, hefði honum verið hætt- ara en við lindina. Eg sá, með hvílíkri áfergju mötunautarnir köfuðu með holdlausum fingr- unum niður í súpuna eftir einni hvitbaun, sem leyndisl á botn- inum. — Það er áreiðanlegt, sagði Cabra eftir hvern sopa, að ekkert jafnast á við kjötsúpuna. Mér er sama, hvað hver segir. Allt annað er löstur og sællífi. Síðan svalg hann súpuna af mikilli lyst og bætti við: — Þetta gerir mann svo heilsu- hraustan og skerpir gqfurnar“. Eftir máltíðina var ekkert eft- ir á diskunum nema sinar og bein. „Það er rétt, að þjónarnir fái þetta, sem eftir er, sagði hús- bóndinn; þeir þurfa lika að borða, enda erum við búnir að fá nóg“. Þá las hann bæn og sagði að henni lokinni: „Látið nú þjónana komast að borðinu og farið nú að lyfta ykkur upp til klukkan tvö, svo ykkur verði ekki illt af matnum“. Einn nemandinn í lieimavist- inni var frá Biskaja og hét Surre. Hanri var farinn að ryðga svo í þvi, hvernig og hvar menn Játa matinn ofan i sig, að eitt sinn þegar hann var svo heppinn að l'inna brauðskorpu á gólfinu, reyndi hann þrisvar sinnum ár- angurslaust að hitta á munninn. Salerni var ekld til í húsinu. Sögðu þjónarnir, að hingað til hefði enginn þurft slíks með þar. Virtist nú Pablos augljóst, að svo lilla fæðu mundi líkam- inn laka til sin á næstunni, að eklci væri þorandi að skilja neitt við sig, hversu brýn sem honum fyndist þörfin. Kvöldverðurinn var langtum lélegri en hin máltíðin. — „Það er mjög gagnlegt og heilsubæt- andi, sagði Cabra, að borða lít- ið á kvöldin, svo að maginn of- hlaðist ekki. Og hann vitnaði i heilan hóp af einhverjum and- skolans læknum. Hann söng hófseminni lof og dýrð; menn æltu og að forðast þungan svefn og illa drauma. Vitandi þó, að í húsi hans myndi engan dreyma um annað en mat.“ „Eflir nokkra daga breytti Cabra matseðlinum. Hárin liafði verið sakaður um að vera Gvð- ingur, og til þess að afsanna það, bætti hann nú fleski i súp- una okkar. í þessu skyni tók hann fram litla krukku úr járni með smágötum, eins og salt- staut, oþnaði liana, og lét flesk- bita ofan í hana, lokaði hcnni siðan og lél hana hanga á bandi niður í súpupottinn, svo að nokkur safi kæmist í súpuna út um götin. Þannig mætti nota sama fleskbitann dag eftir dag. Þetta fannst honum þó, er frá leið, nokkuð mikil evðsla, og lét hann sér nægja eftir það að sýna pottinum fleskið“. Viðurværið álti enn eflir að versna, því að nokkru síðar tók Cabra sjötuga keriingu, frænku sína, í eldbúsið, sem drýgði mat- inn með bári • sínu, pöddum, spónum og tölum úr talnabandi sínu. Hún var um leið „hús- læknir“ og lét þá laxera, sem voru með einhverja lympu (auðvitað af hurigri). Einn heimavistarpilturinn sálaðist, og þegar kunnugt varð um banamein hans, kallaði faðir Diegos son sinn heim úr skólan- um, og fór Pablos auðvitað með honum, alls hugar feginn. Fé- lagar þeirra fylgdu þeim með augunum „hryggir í huga eins og fanginn í Alsir, þegar hann liorfir á eftir löndum sinum, sein levstir hafa verið úr á- nauð.“ Þeir Pablos lágu rúmfastir í marga daga í búsi don Alonsos, á meðan þeir’voru að jafna sig eftir sultarveruna hjá Cabra. Þegar þeir voru orðnir rólfærir, ákveður don Alonso að senda son sinn á háskólann í Alcalá til að ljúka málfræðinámi sínu. Pablos fær að fara með. Leggja þeir á slað við þriðja mann og gisla fyrstu nóltina í afskektu sveitargistihúsi. Gestgjafinn, sem var „morisco“ eða Mári og auk þess mesti bófi, tók þeim opnum örmum. I veilinga- kránni voru nokkrir gestir, um- renningar og vændiskonur. Einn bófinn segist þekkja Diego og .skjallar hann upp, segist jafnvel vcra frændi hans. Það verður úr að Diego vcilir öllum í kránni mat og' drylck, eins og hver vill hafa, og borgar brús- ann. Það er ekki fyr en á eftir, að liann sér, að. „frændinn“ og bófinn, sem átti veitingakróna, höfðu haft með sér samstarf í því skyni að féfletta hann. Nú hæddu þeir hann fyrir einfeldn- ina. Hröðuðu þeir félagar sér burt og náðu heilu og höldnu til Aleglá. Þeir koma sér nú íyrir i stúcl- ental)ústað þeim, sem þeim var ætlaður lil dvalar. Húsbóndinn „var einn af þeim, sem trúa á guð fyrir kurteisis sakir“, og tók liann á móti Pablos „með meiri fýlusvip, en þótt cg hefði verið hið lieilaga sakramenti“. Hann var sem sé „morisco". Quevedo bætir því við til skýr- ingar, að lil séu margir bágöf- ugir menn af þeim þjóðflokki, þótt fleiri séu bófar. Móttökurnar hjá stúdentun- um voru ekki blíðar. Strax fyrsta morguninn komu þeir á nærklæðunum inn lil Diegos og heimtuðu „busagjald“, sem þeir kölluðu svo, og tjáði ekki annað en greiða það. Fyrir það áttu nýsveinar að fá sömu réttindi og eldri stúdentar, en þau voru reyndar aðallega í því fólgin að mega „hafa kláða, flekkaða samvizku og Iíða Jningur, cins og allir hinir“. Diego komst í bekk með piltum, sem þekktu til föður bans, cn Pablos lenti í öðrum bekk innan um tóma ó- kunnuga. Þeir flyktust í kring um hann, skoðuðu hann i krók og kring og skellihlógu. Allt í einu sendi einn þeirra stærðar hrákhlussu beint framan i hann og skvrptu hinir þá allir á liann,

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.