Nýja dagblaðið - 02.11.1933, Side 1

Nýja dagblaðið - 02.11.1933, Side 1
I. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 2. nóvemb. 1933. 5. bl. ÍDAG Sólaruppkoma kl. 8.15. Sólarlag kl. 4.06. Háflóð árdegis kl. 5.05. Háflóð síðdegis kl. 5.20. Veðurspá: Stillt og bjart veður. Ljósatími hjóla og bifreiða 4.50 e. in. til 7.30 árd. Söfn, skrifstofur o. fl.: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 pjóðskjalasafnið ....... opið 1-4 jijóðminjasafnið ....... opið 1-3 Náttúrugripasafnið ....... opið 2-3 Alþýðubókasafnið .... opið 10-10 Listasafn Einars Jónssonar lokað. Landsbankinn .... opinn kl. 10-3 Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-3 Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4 Útibú Landsbankans á Klappar- stíg .................. opið 2-7 Sparisjóður Rvíkur og nágrennis opinn kl. 10-12 og 5-7y2 Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan .... opin 10-5 Landsíminn .............. opinn 9-9 Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4 Fiskifél. .. Skrifst.t. 10-12 og l%-4 Samband isl. samvinnufélaga opið ................ 9-12 og 1-6 Sölusamband ísl. fiskframleiðenda 10-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafél. íslands .... opið 9-6 Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10-12 og 1-4 Bæjarþing kl. 10. Bæjarstjórnarfundur í Kaupþings- salnum kl. 5. Heimsóknartími sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspítalinn ............ 3-5 Laugarnesspítali ....... kl. 12V2-2 Vífilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2 Kleppur ................... kl. 1-5 Næturlæknir: Sveinn Gunnarsson Óðinsgötu 1. Sími 2263. Næturvörður í Lyfjabúðinni Ið- unn og Reykjavíkurapóteki. Samgöngur og póstferðir: Dettifoss frá útlöndum. Póstbíll til Hafnarfjarðar, Sand- gerðis og Reynivalla. Skemmtanir og samkomur: Gamla bió: Hljómleikar Einar Markan kl. 7*4. Nýhöfn 17 kl. 9. Nýja bíó: Svarti húsarinn kl. 9. Iðnó: Galdra-Loftur kl. 8. Dagskrá útvarpsins. Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. Ehdurtekning frétta o. fl. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynningar. Tónleikar. 19,35 Lesin dagskrá næstu viku. Tón- leikar. 20,00 Klukkusláttur. Frétt- ir. 20,30 Erindi: Krishnamurti i Osló (Frú Aðalbjörg Sigurðar- dóttir). 21,00Tónleikar. (Útvarps- Iríóið) Grammófónsöngur: Rúss- land undir snjó (Gamaley). Hán- del: Arioso; Es blaut die Nacht. (Eva Liebénberg). Stradella: Pietá, Signore; Hándel: Ombra mai fu; Kahn: Ave Maria. iCarusð). Dans- iög. Fisksalan á 8páni. Viðtal við Helga P. Briem, fulltrúa Islands í Miðjarðarhafslöndunum. gjaldeyrismálin til þess að auka markaðinn fyrir spánsk- ar vörur, sérstaklega hjá þeim j þjóðum, sem Spánverjar kaupa j mikið af. Þessi stefna þeirra í j gjaldeyrismálunum hefir komið j þannig fram, að í fyrra lögðu þeir t. d. hald á greiðslur fyrir tyrkneskar vörur, þangað til tyrkneska stjórnin gerði nýjan verzlunarsamning við Spán, þar sem Tyrkir skuld- bundu sig til þess að kaupa miklu meiri vörur en áður frá Spáni. Eins var stöðvaður gjaldeyrir hjá Dönum um nokkurt skeið í fyrra. I gær náði Nýja dagblaðið tali af Helga Briem, en hann kom í fyrradag með Brúar- fossi. — Hvernig eru horfurnar um saltfiskssöluna á Spáni? — Góðar eins og stendur. Framboðið er lítið, nema frá íslandi. Fiskverðið er heldur hækkandi. Þegar ég fór um miðjan mánuðinn var búizt við, að verðið á Austur- og Norðurlandsfiski mundi verða um 30 shillings fyrir pakkann, og allt útlit fyrir greiða sölu. Fiskurinn of þurr í fyrra. — Líkar íslenzki fiskurinn vel á Spáni? — Nokkur óánægja var með hann í fyrra. Þótti hann sér- staklega of þurr. Sendingarn- ar, sem komið hafa í haust, líkuðu miklu betur. Fiskurinn, sérstaklega fyrir Barcelona- markaðinn, verður að vera lin- þurkaður, því að neytendurnir vilja matreiða hann þannig, að hann verði sem líkastur nýj- um fiski. Fullverkaður fiskur verður því of þurr fyrir þá. I sumar ferðaðist ég um Vest- ur og Norðurland og nágrenni Reykjavíkur, til þess að gefa bendingar um, hvaða fiskverk- un er hentugust fyrir markað- inn á Spáni. Gjaideyrismálin á Spáni. — Hver er ástæðan til heim- komu yðar nú? — Stjórnin óskaði eftir að ég kæmi. — Er nokkuð sérstakt á seyði þar syðra? — Um það get ég ekki sagt að svo stöddu. — Spánska stjórnin virðist ætla að nota Spánverjar setja nefnd til þess að at- huga viðskiptasam- böndin. Nefnd hefir nú verið skipuð til þess að athuga viðskipta- sambönd við fjölda landa, sem Spánn skiptir við, og þar á meðal Island. Innflutningur- inn frá íslandi nemur nú sem svarar Vs hluta af innflutn- ingi frá Bretlandi, sem er stærsta innflutningslandið. — Nefndin hefir samið slcýrslu um störf sín, og er hún dag- sett 29. júlí sl. Þegar ég kom að heiman í ágústmánuði í sumar, frétti ég úr skýrslu þessari, og hefi ég gefið yfirlit um innihald hennar í sfeýrslu minni til íslenzku stjómarinn- ar. Helgi P. Briem fer til Madrid. Um mánaðamótin síðustu var skriður að koma á mál þetta og fór ég þá til Madrid til þess að geta fylgst með því máli; en í erindisbréfi mínu er fyrir mig lagt, að hafa vakandi auga á öllum þeim stjórnarráðstöfunum, er á ein- hvern hátt snerta verzlun með fisk, og settar kynnu að verða, og tilkynna þær þegar. — Hefi ég heyrt, að einhverjar trölla- sögur hafi gengið hér út af þeirri ferð minni, en um þá ferð gaf ég stjóminni þegar skýrslu. — Álítið þér nokkura hættu á ferðinni fyrir fiskmarkað okkar? — Persónulega er ég miklu bjartsýnni en áður, eftir veru mína í Madrid. Meira get ég ekki sagt yður að svo stöddu. Ríkisstjómin ræður hverjar upplýsingar gefnar eru opin- berlega um þessi efni. Kjðtsala Dana til Englands minnkar um 16°|0- London kl. 17 1/11. FÚ. Sú ákvörðun brezku stjórn- arinnar, að takmarka um 16% innflutning á dönsku svína- kjöti til Englands, hefir valdið miklum vonbrigðum í Dan- mörku. Tjónið, sem danskir bændur bíða árlega af þessari í-áðstöfun mun nema um 50 milljónum króna. I dönskum blöðum í dag er um það rætt með mikilli áhyggju, hvað fi'amundan bíði í málefnum landbúnaðarins. Skeyti frá Kaupmannahöfn hermir, að landbúnaðarráð- herrann hvetji bændur til þess að bíða átekta og slátra ekki fyrst um sinn þeim svín- um, sem þeir eiga nú aflögu. Dimitroff móðgar réttvísina. Berlín kl. 11.45 1/11. FÚ. í upphafi réttarhaldanna út af Ríkisþingsbrunanum í Leip- zig í morgun gat Bunger rétt-- arforseti þess, að Búlgarinn Dimitroff hefði í gær móðgað réttinn á mjög ósvífinn hátt. Hefði hann meðal annars sagt, að röð vitnanna í þessu máli byrjaði á Nazistaþingmönn- um, og endaði á þjófum, en þar hefði hann átt við Leder- mann, sem bar vitni í gær. Þessum orðum réttarfor- setans svaraði Dimitroff enn einhverju, sem honum ekki líkaði, og var honum þá vísað úr réttarsalnum enn á ný. Að þessu loknu var yfirheyrður lögregluþjónn sá, sem tekið hafði Torgler fastan. Yfirlýsing R epublicanaf lokks ins í gær. London kl. 17 1/11. FU. Yfirstjói*n Republicana- ílokksins í Bandaríkjunum gaf út yfirlýsingu í dag, þar sem hún lýsir yfir því, að friður sá sem ríkt hefir á milli flokka frá því er Roosevelt forseti tók við völdum og til þessa dags, sé nú rofinn. 1 yfirlýsingunni er forsetinn sakaður um að hafa brugðizt loforðum sem liann gaf í kosningunum, meðal annars um spamað í al- jijóðabúskapnum, minnkun útgjalda, og hækkun verðlags. í>eir gefa fyrir sál sinni, Osló kl. 17.15 1/11. FÚ. Eitt hið helzta stóriðjufé- lag í Japan hefir gefið sem svarar 30 milljónir króna til viðreisnar bágstöddum bænd- um í landinu. Fregnir hafa borizt um það upp á síðkastið að mjög mikil óánægja og uppreistarhugur ríki meðal smábænda í Japan, og mun þessi gjöf vera liður í þeirri starfsemi að bæta hag þessara bænda. Svo er talið, að hvergi í heiminum sé stéttamunur meiri né önnur eins kúgun á allri alþýðu og í Japan. Um 90% þjóðarinnai er gjörsam- lega blásnauður öreigalýður. Er það hald manna, að ástand Jietta hljóti að breytast fljót- lega á einhvern hátt. En tæp- lega verður því breytt með ölmusugjöfum. Litvinofí í París. Viðurkenna Rússar skuldir keisara- stjórnarinnar viö Frakka? Berlín, kl. 11,45 1/11 FÚ. Rússneski utanríkisráðherr- ann, Litvinoff, er nú í París, og átti tal við Paul Boncour í gær. Tal þeirra mun hafa snú- ist um verzlunarsamninga milli Rússlands og Frakklands, og ennfremur um samkomulag út af gömlu rússnesku skuldunum frá keisaratíðinni. Frá því um 1890 og fram til 1917 lánuðu Frakkar rússnesku keisarastjóminni stórfé. Þetta fé hefir Rússastjóm talið sér óskylt að greiða og hefir það valdið miklum ágreiningi með henni og Frökkum. Síðan í sumar hefir dregið meir til bandalags með Rússum og Frökkum, sem kunnugt er af íregnum, og nú lítur út fyrir, að samið verði um viðurkenn- ing hinna gömlu skulda keis- arans og greiðslu að einhverju leyti. Maður biður bana af skotí Maður að nafni Þorvaldur Hammer, úr Grindavík, sem ráðinn var um tíma hjá Mark- úsi bónda Sigurðssyni á Svartagili i Þingvallasveit ^ fór í smalaför í fyrradag. ! Hafði hann með sér byssu til ' þess að skjóta rjúpur um leið. í gær fannst hann skotinn til bana í hrauninu. Hafði skotið komið í bakið. Álitið er að hann hafi haft byssuna bundna á bakið með ól. Mun hann hafa dottið, ólin slitnað um leið og skoðið þá hlaupið af og í bak mannsins.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.