Nýja dagblaðið - 02.11.1933, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 02.11.1933, Blaðsíða 4
4 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Brauðgerð Kauptél. Reykjavíkur Bankastræti 2. Sími 4562 Selur brauð og kökur með lægsta' verði bæjarins, svo sem: Rúgbrauð.......40 aura Franskbrauð .... 40 — Normalbrauð ... 40 — Súrbrauð.......30 — Kjamabrauð ... 80 — Vínarbrauð og Bollur ........10 — Snúðar......... 8 — Smákökur....... 8 — Góðar vörur, Reynið viðskiftin. Sent um allan bæ. Sími 4562.-----Sími 4562. Annáll. Alþingi. Alþingi kemur saman í dag. Fyrst verður guðsþjónusta í dómkirkjunni. Þar messar séra Brynjólfur Magnússon frá Grindavík. — Guðsþjónust- unni verður útvarpað. Þar næst verður gengið í Alþing- ishúsið og Alþingi sett. Fertugsafmæli, öskar Jónsson verkstjóri í prentsmiðjunni Acta er fertug- ur í dag. Hann hefir verið verkstjóri í Acta síðan 1. ágúst 1926. Ný ljóðabók. Valdemar Holm Hafstað, ungur maður úr Þingeyjar- sýslu, hefir nýlega gefið út ljóðabók er heitir „Komdu út í kvöldrökkrið". Höfundurinn er sjúklingur, og bera kvæðin þess ljós merki. Nýtt kirkjublað er nýlega komið út. Blaðið er lítið og fátæklegt að efni, enda segir ritnefndin í inn- gangsorðunum að blaðinu, að það sé fátæklegt eins og flest- ar kirkjur hér á landi. Grein- amar sem í blaðinu eru, heita „Minning Lúthers“ og „Kraft- ur frá hæðum“. Kosning stúdentaráðs Háskólans er nýlega afstaðin. 9 menn eiga sæti í ráðinu. Hver deild kýs einn mann í nefndina, en fimm eru kosnir hlutbundn- um kosningum sameiginlega fyrir allan skólann. Þessir voru deildarkjömir: Einar Ásmundsson, stud. jur. Kristbjöm Tryggvas. studuned. Lárus H. Blöndal, stud. mag. Pétur T. Oddsson, stud. theol. Við ahnenna kjörið hlutu kosningu: Baldur Johnsen, stud. med. . Eggert Steinþórsson, stud.med. Gunnar Pálsson, stud. jur. Sölvi H. Blöndal, stud. jur. Theódór Skúlason, stud. med. Meðal fai'þega með Esju austur um í fyrra- ; kvöld var Þorsteinn Jónsson j kaupfélagsstj. á Reyðarfirði. 1 Skipafregnir. í Esja fór frá Vestmannaeyj- i um kl. 10 árd. í gær. Súðin er 1 í Osló. Lyra fer í kvöld frá , Bergen. Gullfoss fór frá Kaup- ! mannahöfn í gærmorgun áleið- is til Vestm.eyja. Goðafoss fór frá Hull í gær á leið til Ham- borgar. Brúarfoss er í Reykja- vík, og fer væntanlega á föstu- dagskvöld vestur. Dettifoss kemur frá útlöndum í nótt. Lagarfoss er á leið til Bergen. Selfoss fór frá Vestm.eyjum í gærkvöldi á leið til Aberdeen. Þonnóður Eyjólfsson ritar í blaðið á morgun og svarar árásunum, sem á hann hafa verið gerðar í Mbl. og Vísi. Vanrækslu kallar Vísir það, að lögreglu- stjóri hafi ekki látið aðra lækna, en „yfirlækna Hæsta- réttar“ skoða Bjöm Gíslason. Lögreglustjóri ritaði dóms- ! málaráðuneytinu bréf í sumar og benti á að rétt væri að fá Björn skoðaðan á Landsspítal- anum eins og venja væri í svipuðum tilfellum, en þessu var neitað. Bréfið verður birt síðar. Úr Austur-Skaftafellssýslu. Eftir því, sem blaðinu var sagt í gær, af Steinþóri bónda Þórðarsyni á Hala í Suðursveit, hefir veðráttan verið slæm þar eystra allan þennan mánuð og sumarið óvenju votviðrasamt. Voru alls 93 rigningardagar á sumrinu, en í fyrrasumar voru ekki nema 48. Grasspretta var yfirleitt góð og hey urðu í meiralagi, en sökum rigning- anna hraktist mikið af þeim og eru þau því ekki eins góð og ella. Frá Norðfirði. Eimskipið Haukanes frá Hafnarfirði tók í vikunni sem leið fullfermi af bátafiski í ís og flutti áleiðis til Englands. Daginn eftir atkvæðagreiðsluna um bann- lögin var að forgöngu séra Ei- ríks Brynjólfssonar á Útskál- um haldinn mjög fjölmennur fundur í Keflavík, til þess að ræða um varnir gegn bruggun og.sölu ólöglegs áfengis. Árang- ur varð sá, að Ungmennafé- lagið og Verklýðsfélagið í byggðarlaginu kaus 10 menn til þess að hafa framkvæmdir um þessi mál, og segir kunn- ugui' maður, að hlutaðeigendur sé einráðir í að gjöra sitt til að halda ófögnuði þessum í skefj- um þar um slóðir, enda þegar sýnilegur árangur. Á Sólheimasandi. 1 Sextán kennarar úr barna- i skólunum í Reykjavík fóru austur að Jökulsá á Sólheima- sandi nú um helgina til þess að sjá sig um — þar af 12 konur. Farið var úr Reykjavík um kl. 9 um morguninn og komið að Skógum um kl. 5 um kvöldið, og farið þá austur til árinnar. Síðan var haldið heim- leiðis og gist um nóttina í Hvammi og Seljalandi í bezta yfirlæti á báðum stöðum. — Ferðafólkið segir, að nú sé ver- ið að enda við að hlaða upp í vestasta álinn, sem Jökulsá braut sér við brúarsporðinn, en eftir muni vera um hálfs- mánaðarvinna þar við ána. Gengið var yfir Markarfljóts- brú, en bíllinn ók yfir fljótið, ýmist ofan við eða neðan við brúna. Búizt er við að Markar- brjótsbrú verði bílfær um næstu helgi. Smáár undir Fjöll- unum er verið að brúa um þessar mundir. — F.Ú. Nýja dagblaðið. Fáein fyrstu eintök Nýja dagblaðsins eru send mönnum hér og hvar á landinu. Þeir, sem kynnu að vilja gerast kaupendur, útvega kaupendur eða verða útsölumenn, láti af- greiðslu blaðsins vita það sem allra fyrst. Gengið í gær. Sterlingspund........... 22.15 Dollar.................. 4.67 100 Mörk................166.62 — Fr. frc............. 27.54 — Belg................ 97.85 — Sv. frc..............135.82 — Lírur............... 37.45 — F. mörk.............. 9.83 — Pesetar............. 59.67 -- Gyllini............ 283.06 — Tékk.sl. kr.......... 21.17 — S. kr................114.41 — N. kr...............111.44 —' D. kr...............100.00 Gullverð ísl. kr. miðað við franskan franka 58.09. Skófatnaður hermanna. Á gildandi fjárhagsáætlun Bandaríkjahersins er áætlað rúmlega ein miljón dollara til skókaupa handa hermönnunum á næsta ári. Nýléga auglýsti herstjórnin eftir tilboði í að selja 320 þús. pör af skóm til hersins. Tilboð komu frá sex skóverksmiðjum, og kostuðu skómir $ 3,25 að meðaltali í lægsta tilboðinu, og er það 10% hærra en árið sem leið. Framleiðslan hefir hækkað í verði þar eins og annarsstaðar. Kaupendur! Gerið afgreiðslunni strax viðvart, ef vanskil verða á blaðinu. Nýja dagblaðið birtir smáauglýsingar, tvær línur fyrir eina krónu (t. d. um atvinnu, húsnæði, kennslu, tapað, fundið o. fl.). % Ódýrn § aug]ýsingarnar. Húsnæði Steinhús til leigu í útjaðri bæjarins. Uppl. í síma 3981. Óska eftir stofu, litlu hier- bergi og eldhúsi seint í nóv. eða 1. des. Fyrirfram greiðsla. A.v.á. Herbergi til leigu í desem- ber. Sigurvin Einarsson Hring- braut 150. Atvinna Tek að mér prófarkalestur á allskonar ritum. Sveinn Berg sveinsson stud. mag., Hotel Skjaldbreið. Stúlka óskast á gott heimili í Rangárvallasýslu. Upplýsing- ar í síma 2391. Nokkrir góðir útsölustaðir í útjöðrum bæjarins óskast fyrir Nýja dagblaðið. Góð sölulaun. Afgreiðslan í Austurstr. 12. Mig vantar mann til að aka á tún. Magnús Stefánsson Laugaholti. Tapað-Fundið Tapast hefir kippa með sex lyklum. Sé skilað á Bergstaða- stíg 54, uppi. Mjög vandaður stafalás tap- aðist á Hverfisgötu. Góð fund- arlaun. Skilist á Fjölnisv. 10. Kaupskapur Vil kaupa 5. og 6. árg. af tímaritinu Fjölnir. Símar 4103 og 2429. Hafið þið reynt hið holla og ljúffenga kjamabrauð frá Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík- ur? RAUÐA HUSIÐ. — Skyldi ég ekki vera nógu fínn til að koma inn í stofuna, ha? — Ég skal segja húsbóndanum, að þér séuð komn- ir, herra minn, sagði Audrey, og tók nú skarið af. Hún lokaði hurðinni á eftir sér og lét gestinn ein- an. Þarna fékk hún dálítið til þess að tala um við föðursystur sína. ímyndunarafl hennar komst óðara á flugstigu; hún fór að rifja upp fyrir sér allt sem hann hafði sagt við hana og hún við hann. „Strax og ég sá hann, sagði ég við sjálfa mig .. Sannarlega hafði alveg gengið yfir hana. En fyrst og fremst varð hún nú að hafa upp á húsbóndanum. Hún gekk gegnum forsalinn og leit inn í bókaherbergið, kom til baka dálítið vandræða- leg og nam staðar þar sem Cayley sat. — Fyrirgefið herra minn, sagði hún lágt og með undirgefni í röddinni, ef til vill getið þér sagt mér hvar húsbóndinn er. Mr Robert er kominn. — Hvað segið þér? sagði Cayley og leit upp úr bókinni. Hvað eigið þér við? Audrey endurtók spurninguna. — Það veit ég ekki. Er hann ekki í vinnuher- berginu. Hann fór út í musterið eftir hádegisverð- inn. Ég man ekki til að ég hafi séð hann síðan. — Þakka yður fyrir herra minn. Ég ætla að gá upp í musterið. „Musterið" svokallaða var lystihús byggt af tígul- steini. Það stóð úti í trjágarðinum bak við íbúð- arhúsið, nálægt 300’ metra frá því. Þar var Mark vanur að sitja og sökkva sér ofan í hugleiðingar, áður hann drægi sig í hlé í „vinnustofu" sinni, til þess að skrifa hugleiðingarnar hjá sér. Hugleið- ingarnar voru nú ekki á marga fiska, og auk þess bar það oítar við, að þær bæri á góma við mið- degisvijrðinn en að þær kæmust á pappírinn, og þó komust þær oftar á pappírinn en á prent, svo séð yrði. En þótt svo væri, var húsböndanum í Rauða húsinu engan veginn um það gefið, ef einhver gest- anna minntist gálauslega á musterið eins og það væri byggt í þeim hversdagslega tilgangi, að vera af- drep fyrir fólk, sem langaði til að blíðskapast svo- lítið, eða þá reykja sígarettu. Einu sinni hafði hann rekizt þar á tvo af gestum sínum, sem voru að spila alkort. Mark sagði ekkert í það skiptið, en seinna spurði hann — ögn mýkri á manninn en venjulega — hvort þeir gæti ekki fundið einhvern annan stað, þar sem hægt væri að spila. Syndurum þessum var aldrei oftar boðið í Rauða húsið. Audrey gekk í hægðum sínum til musterisins, leit snöggvast inn og labbaði hægt til baka. Ekki hafði þetta labbið neinn árangur. Kannske var hús- bóndinn uppi hjá sér. „Ekki nógu fínn til þess að vera boðið inn í stofuna“. Ojæa, frænka, ætli þú kærðir þig um nokkum inn 1 þína stofu, sem væri með rauðan snýtuklút um hálsinn, og í klúrum, ó- hreinum skóm og — þey! Þetta var áreiðanlega ein- hver að skjóta kanínur. Frænka var æði gefin fyrir kanínukjöt í lauksósu. — En sá hiti. Hún myndi áreiðanlega ekki slá hendinni á móti einum tebolla núna. Jæja, eitt var samt víst: mr Robert ætlaði ekki að gista; hann hafði engan farangur með sér. Náttúrlega gæti mr Mark lánað honum eitthvað af fatnaði; hann átti föt svo að nægt hefði tíu mönn- um. Ekki átti hún mjög erfitt með að sjá það, að hann var bróðir mr Marks. Hún gekk inn. Um leið og hún fór framhjá dyr- unum á herbergi ráðskonunnar, á leið inn í forsal- inn, var hurðin opnuð snögglega og höfuð gægðist út úr dyrunum, afskræmt af hræðslu. — Æ, varst það þú, Aud, sagði Elsie. Það er Audrey, sagði hún og sneri sér við í dyrunum, inn í herbergið. — Komdu inn, Audrey, kallaði mrs Stevens. — Hvað gengur á? sagði Audrey og leit inn í herbergið. — Æ, elsku, en hvað þú gerðir mig hrædda. Hvert fórstu eiginlega. — Út í musterið. — Heyrðir þú nokkuð? — Heyrði hvað? — Skot og bresti og öll ósköp, sem á gengu. — Nú, það, sagði Audrey og létti stórlega. Það var víst einhver að skjóta kanínur. Á heimleiðinni sagði ég við sjálfa mig: Frænka er sólgin í meirt kanínukjöt, sagði ég, og það skyldi ekki koma mér á óvart ... — Kanínur, sagði föðursystirin og var fyrirlitn- ingarhreimur í röddinni. Þetta. var inni í húsinu, blessuð mín. — Já, það var það, sagði Elsie. Hún var þjón- ustustúlka. Ég sagði við mrs Stevens — er það ekki satt mrs Stevens? „Þetta var inni í sjálfu húsinu“, sagði ég. Audrey leit fyrst á föðursystur sína og því næst á Elsie. — Haldið þið hann hafi haft á sér skammbyssu? sagði hún og lækkaði röddina. — Hver sagði Elsie og var nú æst. — Nú þessi bróðir hans. Frá Ástralíu. Strax og ég sá hann hugsaði ég með mér: „Þér eruð fantur, maður minn“. Þetta hugsaði ég, heyrirðu það Elsie.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.