Nýja dagblaðið - 17.11.1933, Síða 4

Nýja dagblaðið - 17.11.1933, Síða 4
4 !» Ý J A DAGBLAÐIB Annáll. Atvinnubœtur á Akureyri. Verka- lýðsfélögin á Akureyri haia sent áskoranir til bæjarstjórnar um að hefja uú þegar atvinnubótavinnu, því lítið er nú um atvinnu í bæn- um, og litið úr sjó að hafa. Verka- mannafélag Akureyrar hefir skor- að á bæjarstjórnina, að láta smíða ÖO þús. síldartunnur í atvimiu- bótaskyni, en Verkalýðsíélag Ak- ureyrar vill láta byggja smábáta- kví við höfnina. Einnig bendir fé- lagið á uppfyllingu við höfnina, uppfyllingu síkja á Oddeyrinni, iyrirhleðslu Glerár, framhalds- byggingu Leirugarðsins og grjót- sprengingu og grjótmulning tii liúsa- og gatnagerðar, sem ákjósan- lega og gagnlega atvinnubótavinnu þegar fréttabréf þetta var ritað, 6. þ. m. höfðu engar ákvarðanir verið I teknar i þessum málum. Samning i fjárhagsáætiunar bæjarins stóð þá ' yfir. (F.Ú.). Áttræðisafmæli. þann 30. okt. s. i 1. átti hreppsstjóri Mosvaliab.repps, Guðmundur Ásgeir Eiriksson á þorfinnsstöðum, 80 ára afmæli, og heiðruðu hreppsbúar hann þann dag með samsæti og gjöfum. Guð- mundur hefir verið hreppsstjóri í 48 ár, hreppsnefnd í 30 ár, sýslu- nefnd i 18 ár og formaður Bún- aðarfélags Mosvaliahrepps í 26 ár. Hann byrjaði búskap á þorfinns- stöðum 1882, og er nýlega hættui búskap. Guðihundur er ennþá ern og gefur sig að almennum mál- um. (F.Ú.). Hótanabréfin. Nafnlausu hót- anabréfunum heldur stöðugt á- fram að rigna yfir auglýsendur Nýja dagbiaðsins. En ekki munu þeir margir, sem verða mjög ótta- slegnir við að fá þá pappira. Fisksalan. Kópur seldi i fyrra- clag í Grimsby 70 tonn af báta- fiski aí Vestfjörðum fyrir 950 sterlingspund. Haukanesið seldi einnig bátafisk af Austfjörðum, aðallega frá Nesi . i Norðfirði, fyrir 892 sterlingspund. Ritstjórí Vesturíands er nú orð- inn Arngrimur Fr. Bjarnason fyrv. póstafgreiðslumaður í Boi- ungarvík, og fyrverandi frambjóð- andi jafnaðarmanna í Norður-ísa- Ijarðarsýslu. Mun Arngrímur nú vera búinn að vera í flestum flokkum á landinu, en ekki mun hann hafa haft hæfileika til þess að komast til metorða í öðrum flokki en þeim, sem hann nú hef- ir gengið í, íhaldsflokknum. Áheit á Happakrossinn 2 kr. frá G. R. Sjóhrakningar. í ofviðrinu, sem geysaði fyrir Norðurlandi um næstsíðústu helgi, lentu hjón nokkur frá Ólafsfirði i slæmum hrakningum. þau voru á ferð milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur í litlum trillubát, þegar ofviðrið skall á. þegar þau voru stödd undan Langanesi — utan Dalvík- ur, bilaði vélin í bátnum, og hrakti hann undan veðri og sjó, norðaustur yfir fjörðinn, og upp í stórgrýtta fjöru utan við Látur. þegar báturinn kenndi grunns, og maðurinn vatt sér upp úr stýris- húsinu — en þar höfðust hjónin við í hrakningunum — reið sjór yfir bátinn, og kastaði manninum upp í urðina, og þar lá hann með- vitundarlaus, er konan, sem komst við illan leik ómeidd í land kom honum til hjálpar, og bjargaði honum undan sjónum. Gekk hún síðan heim í Látur og sótti mann- hjálp. Hresstust þau 'ijónin furðu- fljótt eftir volkið. — F.Ú. Garðyrkja. Garðyrkja hefir far- ið mjög í vöxt í Hrútafirði síðast- liðin tvö ár, en áður var talið liæpið, að kartöflurækt gæti svar- að kostnaði þar úín slóðir. Garð- ávaxtauppskera í Bæjarhreppi nú í 3 síðastliðin ár hefir verið sem hér segir: 1931 kartöflur 8 tunnur, gulrófui- 33 tunnur, 1932 kartöflur 54 tunnur, gulrófur 50 tunnur. 1933 kartöflur 158 tunnur, gulróf- ur 151 tunna. I hreppnum eru rúmlega 300 manns og kemur þá 1 tunna garðávöxtur á hvern ibúa samkv. uppskerunni i haust. — F.Ú. Brezkur útflutningur. Útflutn- mgur Englands nam 34 milj. sterlingspunda í októbmánuði síð- astliðnum, og er það hið mesta sem verið hefir síðan i apríl 1932. í sama mánuði nam innflutning- ur Bretlands 63 milj. sterlings- punda, og er það einni miljón sterlingspunda meira en í október- mánuði s. 1. ár. — F.Ú. Nemendurnir á Hólum. í gær segir Morgunblaðið að þeim nem- öndum, sem eru i Hólaskóla í vetur iia.fi öllum að undantekn- um 1 eða 2 mönnum, verið smal- að í skólann i haust á eftir fundi sem Framsóknarmenn hafi haldið í liaust í Skagafirði. Á fundi þess- um átti að hafa verið samþykkt að smala mönnum í skólann og hafi þessi smalaferð gengið svo froklega, að menn hafi verið vaktir upp á miðri nóttu til þess að fá þá til þess að fara í skól- ann. Bóndi úr Skagafirði, Pétur Jónsson frá Brúnastöðum, sem Fyrirspurn til Sjáltstædisflokks- ins og Þjóðernis- hreyfíngarinnar. „Hjer með tilkynnist yður, að þeir, sem auglysa í „Kommun- istablaði Jónasarflokksins“, sæta sömu meðferð hjá Sjálf- stæðismönnum og Þjóðemis- sinnum og Gyðingar hjá Þjóð- verjum. Ef þjer á ny auglysið í „Þorparablaðinu“ verða gerðar ráðstafanir til að „boycotta“ verzlun yðar.“ Ofanritað bréf hefir mér borizt í pósti og heyri ég sagt að fjöldi annara manna hér í Reykjavík fái lík bréf þessa dagana. Þar sem höfundar þessara nafnlausu bréfa virðast tala í umboði „Sjálfstæðismanna og Þjóðemissinna“ vil ég spyrja stjórnir þeirra flokka hvort þær standi á bak við þessar bréfasendingar. En þessum nafnlausu bréf- riturum, sem þora ekki annað en vega úr myrkraskotum sínum, segi ég það, að ég mun auglýsa hvað sem þeir segja, þar sem ég tel auglýsingar beri mestan árangur, án hlið- sjónar af því hvaða pólitískum flokki blöðin fylgja að málum. Ólafur Gunnlaugsson kaupmaður, Ránargötu 15. staddur er hér i bænum, kom til blaðsins i gær og bað blaðið að geta þess, að um það leyti sem Morgunblaðið segir að hafi verið kominn einn eða tveir umsækj- endur, hafi þeir verið milli 10 og 20, að fundur Framsóknarmanna í Skagafirði hafi ekki gert neina sainþykkt um að safna mönnum í skólann, og loks sagði hann að þeir nemendur sem væru í Hóla- skóla í vetur, væru ekki nema iáir úr Skagafirði. — Svona er nú sannleikurinn i fréttabréfum Morgunblaðsins. Skipafregnir. Súðin var á Akur* eyri í gær. Esja er í Reykjavílc og fer vestur um land á morgun. Gullfoss kom að vestan og norðan í fyrrinótt. Goðafoss fer vestur og norður á inorgun kl. 6 (aukahöfn Patreksfjörður). Brúarfoss fór frá Frá bæjarstjórnarfuncli Framh. af 3. síðu. bandi við það kom fram til- laga um Að fela borgarstjóra að setja upp námsskeið fyrir lög- regluþjóna o. fl. (frá meira- hluta bæjarráðs). Að bæjarstjómin leiti úr- skurðar dómstólanna um, hvort setning þeirra 7 manna, sem ágreiningur er um, hafi verið lögleg. (Frá Jakob Möller). Að bærinn greiði þessum 7 mönnum fullt kaup meðan á málinu stendur — 1—2 ár ? (Frá Jakob Möller). Að einnig verði fenginn, úr- skurður dómstólanna um það, hvort lögreglustjóri hafi haft heimild til að veita nefndum 7 mönnum lausn. (Viðbótartil- laga frá Hermanni Jónassyni). Tillögumar komu ekki til at- kvæða, því að fundi var slitið kl. 12. Kosningaerjur á Spáni. London kí. 17 16/11. FÚ. Allmiklar viðsjár eru nú á Spáni út af kosningunum sem fram eiga að fara þar á sunnu daginn kemur. Hundruð Eng- lendinga, sem heima eiga í Andalúsíu, eru nú að flytjast til Gibraltar, af því að þeir óttast upphlaup og óeirðir í sambandi við kosningarnar. Aukalögreglulið hefir verið sent til Andalúsiu til vonar og vara. I Barcelona halda áfram deilurnar út af búðalokuninni, en þær deilur standa einnig í sambandi við kosningaundir- búninginn. 77 manns hafa ver- ið teknir fastir í borginni. I Minorca eru einnig róstur, og jafnvel búizt við allsherjar- verkfalli þar á morgun. London í fyrradag áleiðis til Kaupmannahafnar. Dettifoss var á pórshöfn í gær. Lagarfoss fór frá Leith á miðvikudaginn áleiðis til Austfjarða. Selfoss er á leið til Vostmannaeyja frá Leith. Guðspekifélagíð. Afmælisfundur, sameiginlegur kl. 8%. — Efni: stutt ávarp, upp- lestur o. fl. • Ódýrn • auglýsin ga rnar. Keiilíslö Tek að mér kennslu barna og unglinga. Hagkvæmii' borg- unarskilmálar. A.v.á. Þýzku kenni ég. Axel Guð- mundsson, Skálholtsstíg 2. — Sími 1848. Ksmp og sala 1 Til sölu kvenkápur frá 25 krónum. Saumsstoían Tízkaa Austurstræti 12. Munið lága vöruverðið á TtSGÖTU 3 (þar sem áður var Efnalaugin) SALTFISKSBÚÐIN er vel birg af nýjum fiski. Sími 2098. Islenzkt smjör. Ný ísl. egg, Sauðatólg. Kjötbúð Reykjavíkur Vesturgata 16. Sími 4769. Rúllugardinur alltaf til úr bezta efni. Skóla- brú 2 (hús Ólafs Þorsteins- sonar læknis). Munið síma Herðubreiðar 4565, Fríkirkjuvegi 7. Þar fæst allt í matinn. Hafið þið reynt hið holla og ljúffenga kjarnabrauð frá Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík- ur? ÓDÝRASTAR vörur fáið þið aðeins á Vest- urgötu 16. Verzlunin Brúartoss Sími 3749. | Tilkynningar | „Verkstæðið Brýnsla* Hverfisgötu 4 (hús Garðars Gíslasonar) Brýnir öll eggjárn. Sími 1987. RAUÐA HÚSIÐ. — Ég held það væri bezt, sagði majórinn lágt og sneri sér að mrs Calladine, að þér sendið Betty til Lundúna strax í kvöld. — Ójú, ætli það ekki, sagði hún og féllst á þetta. Þú kemur líklega með okkur, Ruth. — Það er víst bezt að ég verði samferða og sjái um, að allt gangi skikkanlega, sagði Bill og var nú bljúgur. Hann skildi hvorki upp né niður í því, sem var að gerast. En þar sem hann hafði ráðgert að dvelja eina yiku enn í Rauða húsinu, átti hann ekkert athvarf í Lundúnum eins og á stóð, en þang- að virtist allt hitt fólkið ætla. En vafalaust myndi Tony skýra allt fyrir honum strax og hann gæti talað við hann undir fjögur augu. — Cayley vill að þú verðir eftir, Bill. En þér verðið víst í seinasta lagi að fara í fyrramálið héð- an, major Rumbold? — Já. Ég verð yður samferða, mrs Calladine. — Mr Cayley bað mig að taka það fram enn einu sinni við ykkur, að þið þurfið ekki að hlífast við að nota ykkur bílinn. Hann brosti nú og bætti við: Ég bið ykkur að afsaka, að svo lítur út sem ég sé að blanda mér í þetta mál alveg að ástæðulausu, en það vildi svo til, að ég var hér nsgi'staddur. Hann hneigði sig og gekk inn í húsið. — Noho! sagði miss Norris. Henni fannst hún vera stödd á leiksviði. Þegar Antony kom inn í forsalinn var lögreglu- fulltrúinn frá Middleston í þann veginn að fara inn í bókaherbergið, og Cayley með honum. Cayley nam staðar og, kinkaði kolli til hans. — Bíðið augnablik, herra lögreglustjóri. Hér kemur mr Gillingham. Það er bezt að hann sé með okkur. Svo bætti hann við og sneri sér að Antony: Þetta er Birch lögreglufulltrúi. Birch horfði á þá til skiptis spyrjandi augum. — Við mr Gillingham fundum líkið, sagði Cayley til skýringar. — Einmitt það. Komið þér þá með, við skulum reyna að komast til botns í þessu. Ég vil gjarnan vita hvernig þetta atvikaðist, mr Gillingham. — Það viljum við öll. — Jæja. Hann horfði með athygli á Antony. Vitið þér hvernig liggur í þessu máli? — Ég veit hvernig fara mun. — Hvernig þá. — Ég verð þvældur til þess ítrasta af Birch lög- reglufulltrúa, sagði Antony og brosti við. Fulltrúinn hló hjartanlega. — Ja, ég skal fara eins vægilega með yður og mér er unnt. Komið þér nú. Þeir gengu inn í bóka- herbergið. Lögreglufulltrúinn settist við skrifborð, sem þar stóð og Cayley settist í stól þar við hlið- ina. Antony lét fara vel um sig í hægindastól og bjóst til að fylgja málinu með athygli. — Við byrjum á þeim látna, sagði fulltrúinn. Robert Ablett hét hann víst? Hanh tók upp vasa- bók sína. — Já, bróðir Mark Ablett, sem hér á heima. — Einmitt það! Hann fór að reyna pennann. Og átti hann heima hér í húsinu? — Nei, alls ekki. Antony hlýddi á með athygli meðan Cayley sagði frá öllu, sem hann vissi um Robert. Hann hafði aldrei heyrt það fyrr. — Ég skil. Féll í ónáð og var sendur utan. Hvað hafði hann brotið af sér? — Það veit ég varla. Ég var tólf ára drengur, þegar þetta var og á þeim aldri er manni sagt að vera ekki með óviðeigandi spurningar. — Óviðeigandi spurningar? —Já, einmitt. — Svo þér vitið þá eiginlega ekkert um það, hvort þetta var fyrir slark og óreglu eða — hvort hann var vondur maður.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.