Nýja dagblaðið - 24.11.1933, Qupperneq 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
1. ár.
Reykjavík, föstudaginn 24. nóv. 1933.
24. blað.
í DAG
Sólaruppkoma kl. í).28.
Sólarlag kl. 3.00.
Háflóð árdegis kl. 10,40.
Háflóð síðdegis kl. 11.10.
Ljósatími liljóla og bifreiða kl. 3.35
e. m. til 8.50 árd.
Veöurspá: Stinningskaldi á sunn
an, þíðviðri og dálítil rigning.
Söfn, skrifstofur o. fL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ......... opið 1-4
þjóðminjasafnið iokuð.
Náttúrugi'ipasafnið iokað.
Alþýðubókasafnið .... opið 10-10
Listasafn Einars Jónssonar lokað.
Landsbankinn .... opinn ki. 10-3
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-3
Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg ................... opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn ki. 10-12 og 5-7y2
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn .............. opinn 8-9
Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4
Fiskifél....Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband ísl. samvinnufélaga
opið ................ 9-12 og 1-6
Söiusamband ísl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipaféi. íslands .... opið 9-6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
St j órnarráðsskrifstof umar
opnar 10-12 og 1-4
Lögregluvarðstofan opin allan sól-
arhringinn.
Tryggingarstofnanir rikisins
opnar kl. 10-12 og 1-5.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspitalinn ........... 3-5
Laugurnesspítali ..... ki. 12*4-2
Vífilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2
Kleppur ................... kl. 1-5
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir Valtýr Albertsson,
Túngötu 3. Sími 3751.
Samgöngur og póstferðir:
Suðurland frá Borgamesi.
Póstbílar til Garðsauka, og Eýrar-
bakka og Stokkseyrar.
Goðafoss væntanlegur fyrripartinn
á morgun.
Selfoss væntanlegur á morgun að
vestan.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Drottningin og ég, þýzk
mynd, kl. 9.
Gamla Bió: Bláa ljósið, kl. 9.
Alþingi: Fundur í báðum deildum
kl. 1.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. þing-
fréttiiv 19.00 tónleikar. 19.10 veð-
urfregnir. 19.20 tilkynningar, tón-
Ieikar. 19,35 Erindi Fiskifélagsins:
Fiskmerkingar. —• (Dr. Bjarni
Sæmundsson). 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Kvöldvaka,
„Allt með ísleiizkum skipum“
segir Morgunblaðið og íslenzk endurreisn
Þau eftirtektarverðu tíðindi
gerðust í neðrí deild Alþing'is
í gærdag, að frumv. Eysteins
Jónssonar og Bergs Jónssonar
um einkarétt íslenzkra skipa
til strandferða hér við land
var fellt við fyrstu umræðu í
deildinni, og þar með neitað
um, að málið fengi' að ganga
til rannsóknar í nefnd og til
2. umræðu.
Þessi einstaka málsmeðferð,
að frumvarp fái ekki að ganga
til 2. umræðu og að neitað sé
um að rannsaka það í þing-
nefnd, kemur svo að segja
aldrei fyrir á Alþingi, og það
jafnvel þótt um mál sé að
ræða, sem mikill meirihluti
Eu allur Sjálfstæðisíiokkurinn í neðri deild snerist í
gær til yarnar fyrir erlendu skipafélögin og felldi
frumyarp Eysteins Jónssonar og Bergs Jónssonar um ailliaiö U1U11U1 I1UÍ1
að veita íslenzkum skipum einkarétt til strandsiírlinga. þá er Napoieon mikii
° ° tók Mnskvíi hpvsli-ilrU 1«19
135 ára og man
eítír Napoleon
London 23/11 kl. 17,00 FÚ.
Frá Moskva kemur sú fregn
í dag, að þar hafi andast í
borginni 135 ára gömul kona,
og hafði hún því lifað stjórn-
artímabil 4 keisara, bylting-
una, og- ráðstjórnartímabilið.
Meðal annars mundi hún
þingsins er á móti. Alþingi
tekur sér yfirleitt ekki sæm-
andi að fella mál, án þess að
athugun, sem a. m. k. þessu
svarar, hafi áður farið fram.
En í þetta sinn sameinuð-
ust allir Sjálfstæðismennirnir
í deildinni, 13 að tölu, um að
drepa þetta frv., þegar í stað.
13 atkvæði eru að vísu minni-
hluti í deildinni. En af tilvilj-
un voru nokkrir þingmenn fjar-
verandi, því að engum hafði
komið til hugar, að Sjálfstæð-
isflokknum þætti svona mikils
við þurfa til að tryggja rétt
erlendra útgerðarfélaga til að
græða á strandferðunum við
ísland.
«
Bíkið greiöir á flmm árum 2 miljónir og
750 þúsund kr. til islenzka skipaflotans.
Þrátt fyrir styrkinn frá rík-
inu varð á rekstri Eimskipa-
félagsins árið 1930
ca. 270 þús. kr. rekst-
urshalli.
og á árinu 1931
57 þús. kr. reksturs-
halli.
Og þó er þess að gæta, að all-
ar gjaldskrár hinna íslenzku
■ skipa eru enn að heita má
óbreyttar frá því á stríðsárun-
um, bæði að því er snertir
farþega- og vöruflutninga.
Hvernig fer, þegar þessar
gjaldskrár lækka — ef sam-
keppni hinna útlendu skipa á
að halda áfram eins og áður
— og ef „Sjálfstæðisflokkur-
inn“ heldur áfram að stein-
drepa við fyrstu umræður sér-
hverja viðleitni íslenzku út-
gerðarinnar til að hamla því,
að útlendingar fleyti rjómann
af strandferðunum hér við
land, og það þótt allar aðrar
þjóðir banni nú útlendingum
að annast strandferðir.
Van der Lubbe
tekur til máls.
London 23/11 kl. 17,00 FÚ.
I réttarhöldunum út af Rík-
isþingsbrunanum gerðist það
tíðinda í dag, að van der
Lubbe, sem aðeins einu sinni
áður hefir borið sig nokkurn
veginn djarfmannlega í réttin-
um, hélt langa ræðu, þar sem
hann lýst yfir því, að hann
Frh. á 2. síðu.
Eins og standa sakir annast
8 íslenzk skip strandferðir að
meira eða minna leyti hér við
landið.
Það eru ríkisskipin tvö, Esja
og Súðin.
Og það eru sex skip Eim-
skipafélags Islands, Gullfoss,
Lagarfoss, Selfoss, Goðafoss,
Brúarfoss og Dettifoss.
Auk þessara skipa eru svo
flóabátarnir, sem styrktir eru
af ríkinu.
Við þennan íslenzka skipa-
flota keppa nú fimm erlend
millilandaskip um strandflutn-
ingana, tvö frá Bergenska fé-
laginu og þrjú frá Sameinaða
gufuskipafélaginu í Kaup-
mannahöfn.
Framlög ríkisins til íslenzka
skipaflotans, reksturshalli og
styrkur til ríkisskipanna og
flóabátanna og styrkur til
Eimskipafélagsins, hefir á ár-
unum 1928—1932 numið þeim
fjárupphæðum, sem hér segir,
talið í krónuní:
Ár Greitt alls þar af til Eimskip
1928 412 þús. 145 þús.
1929 434 — 145 —
1930 527 — 145 —
1931 738 — 145 —
1932 636 — 212 —
Á þessum 5 árum hefir rík-
ið þannig greitt til íslenzka
skipaflotans kr.:
2 milj. 747 þús.
Þar af til Eimskipafélags
íslands kr.:
792 þús.
í guðsþakkaskyni.
G-ísli Sigurbjörnsson fær 700 kr.
íerðastyrk at gjafafénu til þess
að fara til útlanda.
Eins og menn rekur sjálf-
sagt minni til var oft í fyrra-
vetur karp nokkurt um starf
mötuneytis safnaðanna.
I fyrrakvöld var fundur í
þeirri 17 manna nefnd, sem
hafði framkvæmd hjálparstarf-
seminnar með höndum. Lágu
þar fyrir reikningar um starf-
semi mötuneytisins. Tekjur
mötuneytisins hafa verið um
37 þús. Þar af eru 19 þús. úr
bæjarsjóði og 7500 kr. úr ríkis-
sjóði, en hitt gjafir frá ýms-
um, annaðhvort peninga-, elds-
neytis-, fata- eða matargjafir.
Máltíðir sem afgreiddar
voru frá mötuneytinu voru
samkv. reikningnum 40279 og
8525 lítrar af mjólk voru
gefnir.
Starfsemi mötuneytisins
virðist öll vera heldur losara-
leg og allt óformlegt.
Engin skrá er t. d. yfir
keypta og gefna muni, sem
mötuneytið hefir fengið og til
eru í lok starfsársins. Efna-
hagsreikningur var heldur eng-
inn færður. Fylgiskjöl með
gjöfunum vanta. Það sem upp-
lýsist, er, að gjafir afhentar
frá mötuneytinu hafi verið
hérumbil 26 þúsund króna
virði, en hvert allar þess-
ar gjafir hafa faríð eða hverj-
ir hafa fengið þær, er alveg
ómögulegt að sjá, af reikn-
ingsfærslunni.
Reksturskostnaðurinn er
nokkuð hár eða kr. 6312,78
Ekki skal þó hér farið út í að
gagnrýna hann. Ekki voru
fylgiskjölin í góðu lagi. Það
getur vel verið, að kostnaður-
inn sé yfirleitt mjög sann-
gjarn, en ekki er þó hægt að
telja það nauðsynlegt að
greiða Gísla Sigurbjörnssyni
700 kr. í ferðastyrk til útlanda
af þessu fé, sem gefið hefir
verið til bjargar fátæklingum,
sem ekki eiga málungi matar.
í reikningnum stendur
„ferðastyrkur til Gísla Sigur-
björnssonar“, en samþykkt var
á fundi 17 manna nefndarinn-
ar að bæta við, „til að kynna
sér fátækramál“! Skýrsla um
þau fátækramál, sem Gísli
hafði kynnt sér, lá ekki fyrir.
Otullkomið bókkald. — Hverjir hata
gefið — og hvað hefir veriö geflð.
Annar endurskoðandi reikn- | mötuneyti safnaðanna, sem að
inga mötuneytisins, P. J. Þ.
Gunnarsson, bar fram svohljóð-
andi tillögu á fundinum:
„Haldin sé tvírituð bók, þar
sem frumritið er í bréfformi,
sem felur í sér viðurkenningu
og þakklæti til gefanda, enda
sé gefanda sent frumritið. Af-
ritið sé síðan notað til útreikn-
ings á verðmæti gjafarinnar
og annara skýringa og aðal-
upphæðin síðan færð í sérstaka
tekjubók, sem svo verður einn
liður í reikningshaldinu. Allar
gjafir hverju nafni, sem nefn-
ast, séu færðar í fyrnefnda tví-
ritaða bók“.
Tillaga þessi var samþykkt.
Hingað til hafa gefendur eng-
ar skvittanir fengið fyrir þeim
vörum, sem þeir hafa gefið
mötuneytinu.
Það, sem verður að gera
kröfu til með stofhun eins og
mestu starfar með almennu
fé, er fyrst og fremst að ein-
hverrí reglu sé fylgt með út-
hlutun gjafanna þannig að
nokkur vissa sé að gjafirnar
komi þar niður, sem þeirra er
helzt þörf. I öðru lagi, að gef-
endurnir viti, að það, sem þeir
gefa, komi að tilætluðum not-
um og hægt sé að sjá hverjir
fá gjafirnar, svo mögulegt sé
að vita til hvers allt gjafaféð
hefir verið notað. Mest af fé
mötuneytisins er tekið af al-
mannafé og almenningur á
heimtingu á að vita til hvers
það er notað. Framtíðarstarf-
inu þarf að verða allmikið
öðruvísi háttað en hingað til
hefir verið, til þess að viðun-
andi sé.
Skal hér ekki að sinni farið
út í það, en mun verða rætt
hér í blaðinu síðar.