Nýja dagblaðið - 24.11.1933, Page 3

Nýja dagblaðið - 24.11.1933, Page 3
U T J A DAGBLABIB s NYJA DAGBLAÐIÐ Út;íefandi: „BlaÖaútgáfan h/f“ Ritstjóri: Dr. phil. porkell Jóhannesson. Ritsljórnarsk rifstofur: L augav. 10. Símai: 4373 og 2353. Afgf’. og auglýsingaskrifstofa: Austurstrœti 12. Sími 2323. Framkv.stjóri: Vigfús Guðmundsson. Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura eint. Prentsmiðjan Acta. Iiaudhelg'is- gæzlan. Blaðinu hafa borizt fréttir um að nokkuð mundi vera ábótavant um landhelgisgæzl- una í Garðsjónum. Símaði blað- ið því suður í Garð og náði einnig tali af mönnum þaðan, sem staddir eru hér í bænum og spurðist fyrir um þetta, og fékk eftirfarandi upplýsingar: Það hefir mikið borið á skemmdum á veiðarfærum í Garðsjónum í haust, 2 bátar misstu alveg net sín á Sandin- um og veiðarfæri fjöldamargra annara báta hafa orðið fyrir meiri og minni skemmdum af völdum togaranna. Nú geta bátar ekki stundað veiðar ann- 1 arsstaðar en vestur á Ilrauni, en þar er lítt mögulegt að leggja veiðarfæri í sjó sökum þess hvað botninn er ósléttur, svo veiðarfærin slitna þar í sundur. Á venjulegum slóðum og þar sem vel hefir fiskazt er alveg þýðingarlaust að leggja sökum þess að þar eyðileggj- ast veiðarfærin strax af völd- um togaranna. Fyrir þá báta, sem eru við dragnótaveiðar, og eru úti alla nóttina, er það stórhættulegt, því togararnir eru þama stundum* ljóslausir. Kvartað mun hafa verið yf ir þessu við stjórnarráðið, en ekki hefir árangur orðið mikill svo kunnugt sé. Er það hörmulegt að sjó- menn skuli ekki geta stundað atvinnu sína í friði fyrir lög- brjótum hér á næstu grösum og verða að þola það bótalaust, að veiðitæki þeirra séu algjör- lega eyðilögð. Þess verður að krefjast af ríkisstjórninni að þvílíku fram- ferði togaranna verði eftir- minnilega hnekkt. En ekki virðist ætla að batna mikið. Fyrir skömmu lágu tvö stærri varðskipin inni á höfn hér í Reykjavík og Þór með 9 manna áhöfn samdægurs suð- ur í Skerjafirði. Það er ekki aðeins í Garð- sjónum sem togaramir gerast aðgangfrekir. Frá sjómönnun- um á Austfjörðum, hafa bor- izt sárustu kvartanir yfir tog- urunum, eins og lesa má 1 síð- asta blaði Ægis. En duglegasta varðskips- stjóranum er ennþá haldið að- gerðalausum í landi á fullum launum. Útgerðarmenn og sjó- menn heimta tugum og hundr- uðum saman, að honum sé fengið starf sitt aftur í hend- ur. En dómsmálaráðherrann dauf- heyrist. Islenzkur iðnaður. Framsóknarflokkurinn í Reykjavík stefnir að því; „Að efla og auka iðnaðinn í bænum og að bæjarstjórnin hlutist til um það við Alþingi, að tóllalöggjöf ríkisins verði end- urskoðuð með tilliti til iðnaðarins. Að hraðað verði virkjun Sogsins11. (Stefnuskrá Framsóknarflokksins í bæjarmálum Reukjavíkur). íslenzka þjóðin vex að mann- : fjölda rúmlega um eitt þúsund manns á ári hverju. Síðasta 1 fjórðung fyrri aldar leitaði í þessi árlega viðbót þjóðarinn- | ar sér lífsskilyrða og verk- j efna fyrir vestan haf. Fyrsta i þriðjung þessarar aldar hefir vöxtur þjóðarinnar allur verið í smábæjunum við ströndina, þar sem nýgræðingur þjóðar- inar leitaði sér lífsskilyrða við verzlun og sjávarútveg. Ann- an þriðjung aldarinnar á hann að leita sér lífsskilyrða við aukna og bætta ræktun lands- ins og í íslenzkum iðnaði. i Skilyrði til iðnaðar eru um margt hin ákjósanlegustu hér á landi. Island hefir yfir að mða allt að því óþrjótandi orku í fallvötnum sínum. Við sum fallvötnin, eins og t. d. Sogið og Laxá í Þingeyjar- sýslu, er aðstaða til rafvirkjun- ar eins og hún getur bezt ver- ið. En rafmagnið er sú ctrka, sem bezt er fallin til alls iðnað- ar, vegna þess hve auðvelt er að dreifa því og ráða yfir því á allan hátt, auk þess sem því fylgir engin óhollusta eins og t. d. kolunum. Landið er einnig' auðugt af hráefnum, og á undanförnum árurn hefir þjóðin skilað af sér miklu af hálfunninni fram- leiðslu. Hér skal lauslega bent á eitt atriði í þessu efni, sem er harðla athyglisvert. Öldum saman hefir þjóðin sjálf gert sér klæði og skæði úr ull og skinnum, sem framleidd voru og framleidd eru í landinu. Sú framleiðsla hefir oftast ver- ið meiri en. til þess að full- nægja þörfinni. Stundum hefir vaðmál, prjónles eða skinn (feldir) verið aöalútflutnings- : vara þjóðarinnar. Það var byggt á heimilisiðnaði í sveit- um atvinnugrein, sem ekki var tekið eftir sem sérstakri atvinnugrein, heldui' var skoð- uð sem þáttur í íslenzkum landbúnaði. Árið 1929 flutti íslenzka þjóðin út óunna ull og skinnavöru fyrir rúmlega 6 millj. króna, en flutti inn vefnaðarvöru, fatnað, skinna- vöru, skófatnað úr gúmmí, garn og kaðla fyrir meira en 21 millj. króna. Árið 1930 I nam útflutningur sömu vöru I IV2 millj. kr. en innflutning- ur 151/2 milljón. 14—15 miljónir króna árlega lyrir erlenda vinnu árin 1929—1930. 1929 og 1930 greiddi þjóðin því á ári 14—15 millj. króna fyrir vinnu, sem áður var unn- in í landinu sjálfu — í íslenzk- um sveitum — og enn mætti auðveldlega vinna í landinu sjálfu við ný og betri skilyrði. Sú vinna er fullnægjandi lífs- skilyrði fyrir 4—5 þúsund fjölskyldur eða 20—25 þús. ! manns eftir þeim kröfum, sem þjóðin gerir nú til lífsins. En það er hvorttveggja, að á þessu þarf að gerast mikil og gagngerð breyting og er að gei'ast mikil breyting. Sú breyting hefir orðið miklu meiri og örari þrjú síðustu I árin en menn almennt grunar. Margvíslegur iðnaður hefir náð furðu miklum þroska í skjóli innflutningshaftanna, og þó að margur sá iðnaður sé ekki | enn sem komið er samkeppnis- ! fær við erlendan iðnað, gefur hann þó börnum landsins brauð, sem þau væru án að 1 öðrum kosti. Þannig má á það benda, að ullariðnaðurinn hef- ir notið góðs af innflutnings- höftunum. Klæðaverksmiðj- urnar Gefjun og Álafoss hafa mjög færzt í aukana, og ullar- i verksmiðjan Framtíðin, sem aðaláherzlu leggur á fram- leiðslu prjónavöru og bands, hefir risið á legginn til fui'ðu- mikils þroska á stuttum tíma. I skjóli innflutningshaft- anna hefir húsgagnaiðnaður- inn líka mjög færst í aukana. Þessi iðngrein hefir nú náð hér í Reykjavík hinum prýði- legasta þroska á stuttum tíma. Islenzk húsgögn eru að vísu dýr, en þau hljóta líka að vera það, af því að efnið er allt að- flutt og dýrt hingað komið, og vinnulaun mega teljast hér fremur há. En öll þau vinnu- laun eru bót í búi þjóðarinn- ar. Og þess skal með ánægju getið, að íslenzk húsgögn eru yfirleitt bæði smekkleg og vönduð að öllum frágangi og iðnaðarmönnunum til sæmdar, þegar á heildina er litið. Til þess að gera ofurlitla grein fyrir, hvað á hefir unn- izt með auknum iðnaðU hin síðustu ár, skulu hér að lok- um neíndar tvær vörutegund- ir. Árið 1929 var fluttur inn olíufatnaður fyrir kr. 241.544. 00. Þessi innflutningur er nú að heita má horfinn og má það þakka h/f. Sjóklæðagerð íslands, sem framleiðir sjó- klæðnað, sem fyllilega stendur jafnfætis samskonar erlendri framleiðslu. Árið 1929 var flutt inn í landið niðursoðin mjólk fyrir kr. 346.827.00. Á síðastliðnu ári var þessari þörf landsmanna fullnægt með eigin framleiðslu fi’á niðursuðuverk- smiðj u Kaupf élags Borgfirð- inga. Vörur verksmiðjunnar hafa hlotið mikið lof, mjólkin er hrein og ómenguð og því fremri flestri erlendri dósa- mjólk, sem oft er blönduð öðrum óverðmætari efnum. Hér hefir aðeins verið gerð grein fyrir því verðmæti sem framleiðsla tveggja iðnvara hefir flutt inn í landið hin síðustu ár. Þau verðmæti eru að vísu ekki fullkomlega jafn- mikil sem tölurnar éinar telja. Þessar 600 þús. krónur, sem voru greiddar árið 1929 fyrir sjóklæði og dósamjólk, eru ekki allar greiddar sem vinnu- laun í landinu. Nokkuð af þeim fer auðvitað í efni óg í vélar (vexti, afborganir o. fl.). En miklu af þessari upphæð liefir verið bjargað inn í landið, handa börnum þess. Og þvílík eru fleiri dæmin. Og sérstaklega eiga þau að verða miklu fleiri. A. Ræktun Karakulfjár. Þær vonir, sem bundnar eru við ræktun Karakul-fjár hér á landi, eru byggðar á verðmæti unglamba-skinnanna. Er talið nokkumveginn víst, að ein- blöndun, með íslenzkum ám, og hreinræktuðum Karakul-hrút, 1 gefi söluhæf og talsvert verð- ! mæt lambskinn. En verulega ! dýr unglambaskinn ■— „Persi- j an“ — fást sennilega ekki að ■ jafnaði með einblöndun. En j líklegt er að 1/2-blóðs Karakul- 1 ær, sem tímgast við hreinrækt- aðan Karakul-hrút, gefi þegar 1 miklu fínni og verðmætari ! lambskinn en hægt er að framleiða með einblöndun. Karakul-ærstofn, jafnvel þótt ekki sé nema i/j-blóðs, er því dýrmætur, ekki aðeins til „Persian ‘ ‘ skinnaframleiðslu, , heldur einnig til sölu innan lands og utan. Karakul-ær eru j mjög dýrar og eftirsóttar. Þess vegna eiga ekki að vera í lögum nein ákvæði er leggja nokkrar minnstu hömlur á það, að menn geti komið upp Karakul-ærstofni hér á landi. ^ — Kynblöndun með hreinrækt- uðu Karakul-fé við önnur sauð- I íjárkyn, er að því leyti ábyggi- legri og vissari, en flest önnur kynblöndun, að Karakul-kindin hefir svo stei’ka arfgengishæfi- i leika, að við fyrstu blöndun 1 verður afkvæmið alltaf Kara- kul. Það er því auðvelt og fljótgert að koma upp Karakul- fjárstofni með kynblöndun. Ef menn aðeins hafa það hugfast að ala aldrei upp nema undan hreinræktuðum Karakul-hrút, geta menn átt það víst, að fá aldrei lamb, sem ekki er Kara- kul. Þetta er margsönnuð stað- reynd sem óhætt er að leggja til grundvallar fyrir Karakul- fjárræktinni. En ef menn vilja fara út fyrir þetta af- markaða svið, renna þeir blint í sjöinn, t. d. ef látið er tímg- ast saman 1/2-blóðs Karakul- hrútur og íslenzk ær, getur brugðið til beggja vona um ( hvort afkvæmið verður Kara- kul eða íslenzkt. Þannig kyn- blöndun gæti í mörgum tilfell- ! um aðeins orðið til skaða eins ( og allt sem menn ekki vita fyrirfram um árangurinn af. Fyrir Alþingi liggur nú frumv. til laga um viðauka við lög frá 1931 um innflutning sauðfjár, sem felur í sér heim- ild fyrir „ráðhei’ra, þegar Bún- aðarfélag Islands mælir með, að veita undanþágu frá ákvæð- um þessara laga, um að lóga skuli einblendingum, þegar um Karakul-fjárkyn er að ræða“. Greinargerð sú er fylg- ir írumvarpinu ber það með sér, að frumvarpið er aðallega komið fram til þess að heimila að menn geti fengið léyfi til að ala upp og nota einblend- ingshrúta af Karakul-fjárkyhi til framhaldstímgunar, en hinu virðist vera. gengið framhjá, sem er þó aðalatriðið, að leyft verði nú þegar að ala upp innlendan Karakul-fjár-ærstofn, á þann hátt er ég hefi hér að framan gert grein fyrir. í þeim viðaukalögum er væntan- lega vei'ða sett á þessu þingi, er mikilsverðasta atriðið, að það verði skýrt og ákveðið tekið fram, að leyfilegt sé, án nokkurrar sérstakrar umsókn- ar, að ala upp Karakulgimbr- ar. Hitt skiftir miklu minna rnáli, þótt einhverjar hömlur séu á, að ala upp Karakul- hrúta, en ég teldi samt heppi- legast, að leyft verði uppeldi Karakul-fjár yfirleitt, en ráð- herra setti reglugerð um hvernig kynblöndun skyldi hagað, og ættartölubækur ætti öllum að vera skylt að halda, sem hafa Karakul-fjái’rækt með höndum. P. t. Landsspítalanum 16. nóv. 1933. Þorbergur Þorleifsson. m Utgerðarmenn! Munið eftir íslenzku öngul- taumunum, þegar þið kaupið veiðarfæri ykkar. 1. fl. efni. V erðið samkeppnisfært. Sími 4156. Foreldrar! Klæðið börnin yðar íslenzkum fötum í vetrarkuldunum. Fjölbreytt úrval af fataefn- um og káputauum. 6EFJUN Laugaveg 10. Sími 2838. A. S. V. heldur kvöldskemmtun í Iðnó á föstudag, 24. nóv., kl. 9 síðdegis. SKEMMTISKRÁ: 1. Ræða: Iiaukur Þorleifsson. 2. Upplestur. 3. Ungherjar ASV sýna smá- leik. 4. Einsöngur: Erling Ólafsson. 5. Ræða: Sigurður Halldórsson. 6. Karlakór verkamanna. DANS á eftir. (Hljómsveit Aage Lorange). Aðgöngumiðar á kr. 2,00 verða seldir í Iðnó eftir kl. 5 á föstudag og við innganginn. Ágóðinn rennur til allmennr- ar styrktarstarfsemi félagsins. Stjórnin.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.