Nýja dagblaðið - 25.11.1933, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 25.11.1933, Blaðsíða 1
í DAG Sólaruppkoma kl. 9.31. Sólarlag kl. 2.57. Uáflóð árdogis kl. 11,45. Ljósatími liljóla og bifreiða kl. 3.35 e. m. til 8.50 árd. Höfunduv hóianabvéfanna, Thovavensen, handsamaðuv Hinvik i Veðurspá: Suðvestau kaldi og skúrir. Söfu, skritstoíur o. 1L: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 Jijóðskjalasafnið ....... opíð 1-4 pjóóminjasaí'niö lokað. Náttúrugripasafnið lokað. Alþýðubókasafnið .... opið 10-10 Listasafn Einars Jónssonar lokað. Landsbankinn ......... opinn 10-1 Búnaðarbankinn ....... opinn 10-1 Utvegsbankinn ........ opinn 10-1 Utibú Landsbankans á Klappai-- stíg ................... opið 2-7 Sparisjóður Rvikur og nágrennis opinn kl. 10-12 og 5-7 Pósthúsið: Brófapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan .... opin 10-5 Landsíminn ............ opinn 8-9 Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4 Fiskifél....Skrifst.t. 10-12 og 1-5 Samband ísl. samvinnufélaga opið . . ........... 9-12 og 1-6 Sölusamband ísl. fiskframleiðenda opið ............... 10-12 og 1-4 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafél. íslands .... opið 9-6 Skrifst. bæjarins .... opnar 9-12 Skrifst. lögreglustj... opin 10-12 Skrifst. lögmanns .... opin 10-12 Skrifst. tollstjóra .... opin 10-12 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 Stjómarráðsskrifstofumar opnar 10-12 og 1-4 Tryggingarstoínanir rikisins opnar kl. 10-12 og 1-5. Heimsóknartími sjúkrahúsa: Landsspitalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspítalinn ............ 3-5 Laugarnesspitali ...... kl. 12*4-2 Vífilstaðahælið 12^-1% og 3^2-4% Kleppur .................... kl. 1-5 Næturvörður í Reykjavíkurapóteki og lyfjabúðinni Iðunn. Næturlæknir: Bjöm Gunnlaugs- son, Tjarnarg. 10, sími 2232. Samgöngur og póstferðlr: Póstbíll til Grindavíkur. Skemmtanir og samkomur: Nýja Bíó: þættir úr lífi fegurðtir- drottningar, kl. 9. Gamla Bíó: Götustrákar. Aðal- hlutverk leikur Buster Keaton. Alþingi: Fundur í báðum deildum kl. 1.. Dagskrá útvarpsins. Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. Endurtekning frétta o. fl. þing- i'réttir. 18,45 Barnatími. (Margrét Jónsdóttir). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynningar. Tónleikar. Dagskrá næstu viku. Jóhann Jós- efsson alþingismaður. Erindi: Við- skiptamál íslendinga og þjóðverja. 20,00 Klukkusl. Fréttir. 20,30 Erindi: Á tímamótum. Arnór Sigurjónsson. 21,00 Tónleikar. Fiðlusólu (E. Sig- fússon). •— Grammófónkórsöngur: Rússnesk þjóðlög. Varlamoff: Rússn. Barcarolle. (Leðurblöku- kórinn). Danslög til kl. 24,00. Manndráp á þýsku landamærunum. Berlín kl. 11,45 24/11 FÚ. Austurrískir landmæraverðir skutu í morgun á þrjá þýzka hermenn, er voru hinu megin við landamærin, og beið einn þeirra bana. Ekki er enn kunn ugt um ástæðurnar til árásar þessarar, en málið var undir eins tekið í rannsókn. Sagt er að hermennirnir haf verið um 80—100 metra innan landa- mæra Þýzkalands, og hafi enga tilraun gert til þess að nálgast austurrísku landamærin. Franska stjórnin fellur. Berlín kl. 11,45 24/11 FÚ. Eins og búizt var við í gær, féll franska stjórnin við at- kvæðagreiðslu um fjárlögin í gærkvöldi. Meirihluti sá, sem atkvæði greiddi móti stjórn- inni, var af öllum flokkum, bæði kommúnistar, jafnaðar- menn, ný-jafnaðannenn, mið- flokksmenn og hægriflokks- menn. í París búast menn við vand- ræðum út af stjórnarskiptun- um, því að í myndun nýrrar stjórnar er ekki hægt að fara eftir atkvæðagreiðslu þessari, og munu þeir nú orðnir fáir í Frakklandi, sem vilja taka að sér forsætisráðherrastöðuna. London kl. 17,00 24/11 FÚ. Það hefir komið til tals að formaður vinstra miðflokksins í Frakklandi myndi stjóm, og hefir hann í dag skorað á alla miðflokkana eða flokksbrotin, að sameinast um stjórnar- myndun, í þeim tilgangi að endurreisa fjárhag ríkisins. Skýrslur um bannið í Banda ríkjunum, London kl. 17,00 24/11 FÚ. 1 Bandaríkjunum hafa nú verið birtar skýrslur um fram- kvæmd bannlaganna, þau 18 ár, sem lögin voru í gildi. Samkvæmt skýrslum þessum hafa 100 löggæzlumenn verið drepnir á þessum tíma, meðan þeir unnu að bannlagagæzlu, en meira en 600 hafa verið særðir. Alls voru á þessum 13 árum teknir fastir fyrir bann- lagabrot 800.000 menn,. og gerðar upptækar eignir og ým- iskonar áfengi fyrir ca. 910 miljónir króna. Hann jáiaði fyriv lögvegluvétii seini í gævkvöldi að hafa seni sex bvéf en neitaði að veva höf* unduv fleivi bvéfa og að aðviv vævu meðsekiv. Nokkur af hótanabréfum þeim, er borizt hafa auglýsend- um Nýja dagblaðsins, voru birt í blaðinu fyrir nokkru. Síðan hefir orðið vart við bréf af þessu tægi öðru bverju. Flest þeirra hafa verið til verzlunarfyrirtækja, með yfir- lýsingu um það, að „Sjálfstæð- ismenn“ myndu hætta að skipta við viðkomandi fyrir- tæki, ef það héldi áfram að auglýsa, eða að beitt myndi verða við þau sömu aðferð og beitt væri gegn „Gyðingum í Þýzkalandi" af Nazistum þar. Sum bréfin virtust hinsvegar hafa verið send til „Sjálfstæð- ismanna“ með áskorunum um að framkvæma það, sem í hót- unum fólst gegn viðkomandi verzlunarf yrirtækj um. öll voru bréfin nafnlaus og vélrituð, en við samanburð leyndi það sér ekki, að þau myndu komin úr einum eða tveimur stöðum. Ýmsir þeirra, sem hótana- bréfin fengu, kvörtuðu þegar við lögreglustjóra, og óskuðu eftir Að rannsakaður yrði uppruni bréfanna. Lögreglan tók þvinæst málið til rannsóknar. Var höfð gát á þeim, sem lögðu grunsamleg bréf í póst, og í gærdag hafð- ist upp á manninum. Það var milli kl. 2 og 3 eft- ir hádegi í gær, að maður kom inn í bréfapóststofuna og keypti frímerki fyrir 2 krónur. Jafnframt frímerkti hann eitt bréf á póstborðinu. Það sást þá, að þetta bréf, sem maður- inn var að frímerkja, leit út alveg eins og hótanabréfin. Þetta bréf var lagt í póst- bréfakassann inni á afgreiðsl- unni. Maðurinn fór svo út úr af- greiðslustofunni og inn í gang- inn fyrir handan hjá pósthólf- unum. Þar tók hann upp sex bréf og frímerkti og lét þau í póstkassann þar. Hann var þarna aleinn inni og mun hafa haldið, að enginn sæi til sín. En maðurinn sást og þekkt- ist, Það var Hinrik Ihor' arensen læknir. Bréf þau, er hér um ræðir, bæði inni á bréfapóststofunni ' og frammi voru gerð upptæk með úrskurði lögreglustjóra, 1 opnuð og rannsökuð. sóknina, að í sex af umslög- unum voru bréf samskonar efnis og hótanabréfin, sem bor- izt hafa undanfarna daga, en í einu umslaginu j því, sem afhent hafði verið inni d bréfa- póststofunni, var bréf til firma hér í bæn- um, undirskrifað af Hinrik Thorarensen. Hinrik Thorarensen var þá , tekinn fastur og yfirheyrður. Hann játaði að hafa sent bréf- | ið til firmans, sem hann hafði í undirskrifað og lagt inn á , póststofuna, ákveðið að vera nokkuð riðinn við ritun eða útsendingu þeirra hótanabréfa, sem áður hafa borizt. En ekki gat hann gert grein fyrir, hvernig á því stæði Að bréfin eru í samskonar umslögum, rituð á alveg sams- konar papír, afrituð með sams- konar kalkipappír, rituð með samskonar ritvél og að í þeim er samskonar orðbragð og samskonar ritvillur. Sum bréfin eru skrifuð ým- ist með rauðu eða svörtu, og þegar ritvél Thorarensens fannst, sýndi það sig, að hún er með rauðu og svörtu bandi. Aðspurður í réttmum þrætti Hinrik Thorarensen fyrir það, að nokkrir hefðu verið í vitorði með honum við bréfaskriftirnar. en neitaði að hafa sent hiri~'sex bréfin. og sagði, að maðurinn, sem teldi sig hafa séð hann leggja bréfin í póstkassann hlyti að segja ósatt. Þá var gerð húsrannsókn á heimili hans. Ritvél, sem þar átti að vera, fyrirfannst þá ekki. Þessa ritvél sagðist Hinrik Thorarensen hafa keypt hjá Gustav Sveinssyni lögfræðingi, fyrv. fonnanni Varðarfélags- ins. En í bréfakörfu við skrif- borð hans fundust um 100 ör- litlar pappírstætlur, sem lög- reglan tók í sínar vörslur. Lögreglan vann þvínæst að því hálfan annan klukkutíma að setja pappírstætlurnar sam- an og tókst það. Þá kom í Hós að á þessum pappírstætl- um var frumritið af þeim sex hótanabréf- um, sem lögð höfðu verið í póstkassann þá um daginn- Þá loksins játaði Hinrik Thorarensen, að hann hefði skrifað bréfin og lagt þau í póstkassann. En hann neitaði því alveg Réttarhöldunum var lokið seint í gærkvöldi, og var Hin- rik Thorarensen þá látinn laus. Laust fyrir miðnætti hringdi blaðið til lögreglustjóra og spurði hann, hvort réttarhöld myndu halda áfram á morgun. Lögreglustjóri g'af þau svör,1 að hann myndi snemma í dag senda útskrift úr réttarprófun- um til dómsmálaráðuneytisins til frekari aðgerða og jafn- framt úrskurða sig úr málinu, þar sem hann er í útgáfufélagi Nýja dagblaðsins og teldi því sjálfsagt, að annar væri skip- aður til að annast. framhaldsrannsókn málsjns og dóms- álagning. Við afbroti eins og því sem hér um ræðir, liggur allt að sex mánaða fangelsi samkvæmt lögum nr. 84, 1933. — Auk þess getur slíkur verknaður valdið þeim, er fremur, skyldu til hárrar skaðabótagreiðslu. Utanáskrift þeirra sex bréfa, sem tekin voru í póstkassan- um, var til Morgunblaðsins, Storms, íslenzkrar Endurreisn- ar, Áfengisverzlunar ríkisins, Sigurðar Jónassonar forstjóra — og loks eitt afrit til Nýja dagblaðsins, og er það í fyrsta sinn, sem því hefir verið sýnd slík kurteisi!

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.