Nýja dagblaðið - 07.12.1933, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 07.12.1933, Blaðsíða 1
NyJA DAGBIAÐIÐ 1. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 7. desbr. 1933. 35. blað. Er Sjálfstæðisflokknrinn að brjóta stjórnarskrána? Formaður stjórnarskrárnetndar hélt því iram við eina umræðu kosningalaganna í neðri deild í gær að breytingartillaga þeirra Thors Thors, akobs Möllers og Gisla Sveinssonar um úthlutun upp- bótarsæta, séu brot á hinni nýsamþykktu stjórn- arskrá og krafðist úrskurðar torseta um, hvort tillagan skuli koma til atkvæða. — Urskurðurinn fellur í dag. í DAG Sólaruppkoma kl: 10,04. Sólarlag kl. 2,34. Háfóð árdegis kl. 8,30. Háflóð síðdegis kl. 8,50. Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 3,20 e. m. til 9,10 árd. Veðurspá: Suðaustan 'gola. Úr- komulaust. Söfn, skrifstofur o. fL: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 pjóðskjalasafnið ....... opið 1-4 pjóðminjasafnið ......... kl. 1-3 Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3 Alþýðubókasafnið .... opið 10-10 Landsbankinn ......... opinn 10-3 Búnaðarbankinn ....... opinn 10-3 Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4 Útibú Landsbankans á Klappar- stíg .................. opið 2-7 Sparisjóður Rvíkur og nágrennis opinn kl. 10-12 og 5-7 Pósthúsið: BréfapóstsL .. opin 10-6 Bögglapóststofan .... opin 10-5 Landsíminn ............. opinn 8-9 Búnaðarfélagið opið 10-12 og 1-4 Fiskifél.... Skrifstt. 10-12 og 1-5 Samband ísl. samvinnufélaga opið kl. 9-12 og 1-6 Skipaútg. rikisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafél. íslands .... opið 9-6 Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Hafnai'skrifstofan opin 9-12 og 1-6 Stjórnarréðsskrifstofum&r opnar 10-12 og 1-4 Tryggingarstofnanir ríkisins opnar kl. 10-12 og 1-5. Baðhús Reykjavíkur opið kl. 8-8 Alþingi: Fundur í báðum deildum kl. 1. Bæjarstjórnarfundur í Kaupþings- salnum kl. 5. Bæjarþing kl. 10. Heimsóknartimi sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 34 Landakotsspítalinn ............ 3-6 Laugai’nesspítali ...... kl. 12^-2 Vífilstaðahælið .. 12^-2 og 3^-4Vi Kleppur .................... kl. 1-6 Næturvörður í Reykjavíkurapóteki og lyfjabúðinni Iðunn. Næturlæknir Hannes Guðmunds- son, Hverfisgötu 12. Simi 3105. Skemmtanir og samkomar: Nýja Bíó: Grænland kallar, kl. 9. Gamla Bíó: Iíonungur ljónanna, kl. 9. Samgöngur og pöstterOir: Brúarfoss væntanlegur snemma í dag. Suðui’land til Borgarness kl. 8. Lyi’a til Færeyja og Bei’gen kl. 6. Dagskrá útvarpsins. Ki. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvai’p. 15,00 Veðui’fregnir. Endurtekning frétta o. fl. þing- fréttir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veð- urfregnir. 19,20 Tiikynningar Tón- leikar. 19,35 Dagskrá næstu viku. Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Um myndlist. (Guðm. Einarsson). 21,00 Tónleik- ar. (Útvai’psti’íóið). Gi’ammófón: Bach: — Brandenburger Konsert, Passacaglia. Danslög. Eins og um getur í þing- fréttum blaðsins í dag, stóð í í gær „ein umræða“ um kosn- ingalaga frumvarpið, sem end- ursent hefir verið frá efri deild. Ýmsar nýjar breytingatillög- ur voru á ferðinni, þ. á m. sam- eiginlegar tillögur frá stjórnar- skrárnefnd, sem fela í sér samkomulag í ágreiningnum út af fyrirkomulagi landlistanna. En aðalumræðumar snerust um nýja breytingartillögu um úthlutun uppbótarsæta, sem borin er fram af Thor Thors, Jakob Möller og Gisla Sveinssyni. Samkvæmt þessari brtt., sem allur Sjálfstæðisflokkurinn a. m. k. í neðri deild virðist standa á bak við á 127. gr. kosningalaganna að orðast á þessa leið: „Til þess að finna, hvemig uppbótarsætum ber að skipta á milli þingflokka, skal fara þannig að: { Fyrst skal fiona meðaltal at- kvæða á hvern kjördæmiskos- inn þingmann hvers þing- flokks, og verður lægsta út- koman hlutfallstala kosning- anna. Síðan skal margfalda þá hlutfallstölu við deilinguna, og draga útkomurnar frá samtöl- um atkvæða hvers þeirra flokka. Mismunur sá, sem þá verður eftir hjá hverjum flokki, er sú atkvæðatala, sem kemur til greina við úthlutun uppbótarþingsæta, og skal upp- bótarþingsætum skipt á milli þessara flokka í hlutfalli við þessar atkvæðatölur þeirra, eftir venjulegum reglum hlut- fallskosninga, þannig, að deilt skal í atkvæðatölurnar með tölunum 1, 2, 3, 4 o. s. frv. (sbr. 115. gr.), unz útkoman verður eins nálægt því að vera jöfn hlutfallstölu kosninganna og unnt er, og falla uppbótar- sætin á hæstu útkomurnar, þó aldrei fleiri en 11 samtals". Um þetta fyrirkomulag upp- bótarsætanna stóðu umræður á fjórðu klukkustund. Fomiaður stjórnarskrár- nefndar, Vilmundur Jónsson, lýsti yfir því, að hann teldi tillöguna brot á hinni nýsam- þykktu stjómarskrá og fæli hún í sér ranga reiknings- aðferð, sem ætluð væri til þess að ná til handa Sjálfstæðis- flokknuni 1—2 þingsætum, sem Alþýðuflokkurinn myndi að líkindum eiga að fá eftir stjórnarskránni við næstu kosningar. í hinni nýju stjórnarskrá eru með svofelldum orðum ákveðnir: „allt að 11 þingmenn til jöfnunar milli þingflokka, svo að hver þeirra hafi þing- sæti i sem fyllstu samræmi við atkvæðatölu sina við al- mennar kosningar". En samkvæmt tillögu þeirra Th. Th„ J. M. og G. Sv. fer uppbótarsætafjöldinn eftir þeirri atkvæðatölu hvers flokks, sem eftir verður, þegar búið er að draga frá heildar- atkvæðatölu hvers flokks um sig „hlutfallstölu kosningarinn- ar“ margfaldaða með tölu kjördæmakosinna þingmanna flokksins. Þetta er önnur regla en sú, sem venjulegt er að beita við hlutfallskosningar. Vilmundur Jónsson hefir krafizt forsetaúrskurðar um það, hvort tillaga Sjálfstæðis- flokksins væri ekki stjómar- skrárbrot og mætti koma til atkvæða. Sjálfur hefir hann borið fram aðra breytingartillögu um úthlutun uppbótarsætanna og er hún prentuð í þingfrétt- um hér í blaðinu. Þegar komið var fram und- ir kl. 7 í gærkveldi, reis hörð deila um það, hvort gengið skyldi til atkvæða um málið í kvöld. Sjálfstæðismennirnir heimtuðu að það yrði gert, en formaður stj ómarskrámefndar mótmælti, þar sem tveir nefnd- armenn væru fjarverandi og annar þeirra yeikur. Fjárdrátturinn í Landsbankanum Dómur undirréttar. Eins og kunpugt er, var Þorsteinn Jónsson bankafull- trúi ákærður 25. sept. í haust fyrir fjárdrátt í Landsbankan- um. Var hann þá strax settur í gæzluvarðhald og hefir síðan staðið í rannsókn út af þessu máli, sem hefir verið mikið og margbrotið. 1 dómnum segir svo um fjárdrátt Þorsteins: Samkvæmt skýrslu endur- skoðanda virðist fjárdrátturinn hafa byrjað á árinu 1929 og haldið stöðugt áfram til þess tíma, er ákærður var tekinn fastur. Árið 1929 hefir ákærð- ur tekið við árgjöldum og dráttarvöxtum að upphæð kr. Nýja dagblaðið átti í gær- kvöldi tal við Ásgeir Ásgeirsson forsætisráðherra, og skýrði hann blaðinu frá, að hann hefði sent konungi skeyti í fyrra- kvöld, þar sem hann hefði tjáð konungi, að hann sæi sér ekki fært að mynda þingræðis- stjórn, og afsalaði þar með því umboði, er hann hefði haft til þess. Spurningu blaðsins um það, hvort nokkur annar myndi nú geta myndað þingræðisstjórn, svaraði forsætisráðherra því, að það virtist vera fullreynt og mundi það varla takast á þessu þingi. Eina ráðið væri að hafa „fungerandi“ stjórn áfram þar til eftir næstu kosn- ingar. Hvort það yrði sú stjórn, sem nú situr eða önn- ur, er þingið kemur sér saman um, kvaðst forsætisráðherra Eigi að síður héldu Sjálf- stæðismenn fast við kröfuna um, að málið yrði afgreitt í kvöld, en forseti, Jörundur Brynjólfsson, sleit fundinum kl. að ganga 8 og frestaði um- ræðum þangað til í dag. Þá fellir hann úrskurð um hvort tillaga Sjálfstæðisflokksins feli í sér stjómarskrárbrot. 1337,46 árið 1930, er upphæð- in kr. 16.731,81, árið 1931 er upphæðin kr. 27.821,14, árið 1932 er upphæðin kr. 20,321,61 og loks árið 1933 kr. 15.690,28. Af þessum upphæðum hefir ákærður þá endurgreitt aftur árgjöld nokkurra manna ásamt dráttarvöxtum, 27.—31. desem- ber 1930 og 30. des. 1931 sam- tals kr. 7553,48, svo samtals hefir ákærður dregið sér af árgjöldum og dráttarvöxtum eftir því sem séð verður kr. 74.348,82. Dómurinn var kveðinn upp í gær í málinu og eru niðurstöð- ur dómsins á þessa leið: Því dæmist rétt að vera: Ákærður Þorsteinn Jónsson sæti betrunarhússvinnu í 16 mánuði. Hann greiði Valtý Blöndal f. h. Landsbanka Is- lands kr. 74.424,24 í skaðabæt- ur með 5% ársvöxtum frá 5. desember að telja innan 15 daga frá lögbirtingu dóms þessa. Loks greiði hann allan kostn- að sakarinnar. Þar með talinn kostnaðinn við gæzluvarðhald sitt. Dómi þessum skal fullnægja að viðlagðri aðför að lögum. ekki geta sagt um. Sú stjóm sem nú sæti, sagði hann að sæti samkvæmt ósk konungs, þar til öðruvísi yrði ákveðið af þinginu. Viðtal við Jón Bald- vinsson forseta sam- einaðs þings. Blaðið átti tal við forseta sameinaðs þings, sem hafði fengið skeyti frá konungi, þar sem hann er spurður um, hvort hann gæti bent á nokk- urn, sem líklegur væri til þess að geta myndað þingræðis- stjórn. Kvaðst forseti ekki hafa svarað ennþá, en mundi gera það í fyrramálið, þegar hann hefði átt viðræður um þetta við formann flokkanna. Vitnaleið slunum í brennumálinu lokið. London kl. 17,00 6/12 FÚ. í dag var 53. dagur réttar- haldanna út af bruna þýzka Ríkisþingshússins. Dómstjórinn lýsti því yfir, að vitnaleiðslun- um væri nú lokið. Asgeir Asgeirsson forsætisráðherra símar konungi, að hann geti ekki myndað þing- ræðisstjórn.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.