Nýja dagblaðið - 07.12.1933, Blaðsíða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
FLÖRA
SMJÖRLÍKI
er búið til í fullkomnustu
smjörlíkisgerðarvólum af
tyrsta flokks fagmönnum
* og' úr beztu táanlegum
hráefnum.
/
Þess vegna er F L O R A
bezta, drýgsta og ljúf-
fengasta smjörlíkið.
Hyggnar húsmæður nota
eingöngu Flóra smjörlíki.
Allir sem þarta ad gera stærri kaup
á smförliki, ættu sfális sín vegna að
leita tilhoða
Kaupfélagi Eyfirðinga.
Atlandshafsílug
Lindbergs.
London kl. 17,00 6/12 FÚ.
Lindbergh flugmaður og
kona hans lentu heilu og
höldnu í Port Natal í Brasilíu
um fimmleytið í dag. Þau
lögðu af stað frá Bathurst á
vesturströnd Afríku í morgun.
Vegalengdin, sem þau flugu
yfir Atlantshafið er 1900 mílur
enskar, og gekk flugið slysa-
laust.
Vetrarríki.
Normandie kl. 0,15 6/12 FÚ.
Blöðunum verður nú tíð-
ræddara um veðrið en jafnvel
um stjómmál. Vetrarhörkur
ríkja nú svo að segja um alla
Evrópu nema Island og suður
Grænland, og eru sumstaðar
þær mestu í manna minnum. í
Frakklandi er meira frost en
menn vita til áður, og Parísar-
búar skemmta sér nú á skaut-
um. Sumstaðar er 25 gráða
frost á Celcius. Víða fylgir
mikil snjókoma þessum kulda.
Bannlögin numín
úr gildi.
London kl. 17,00 6/12 FÚ.
Bannlögin í Bandaríkjunum
hafa nú verið formlega afnum-
in. Roosevelt Bandaríkjaforseti
gaf í gærkvöldi út opinbera til-
kynningu þess efnis, að 18.
breytingin á stjómarskránni
væri úr gildi felld. Jafnframt
skoraði hann á alla borgara að
vinna einlæglega að því, að efla
virðingu fyrir landslögum og
rétti.
Frá Alþingi í gær.
Jónas Jónsson flytur í ed.
svohljóðandi þingsályktunar- ’
tillögu um háskólann:
„Efri deild Alþingis skorar .
á ríkisstjómina að undirbúa og
leggja fyrir næsta þing frv. 1
mn sparnað og skipulagsbreyt- !
ingu við Háskóla íslands:
1. Að rektor háskólans verði
ráðinn til 8 ára í senn af
kennslumálastjórninni. — Að
hann hafi rúmgóðan embættis-
bústað við stúdentagarðinn,
sómasamlegt fé til risnu og
nauðsynlegs skrifstofuhalds.
Honum sé ætluð framkvæmd-
arstjórn háskólans, en lítil eða
engin kennsla.
2. Að lögð verði niður allt
að því helmingur af hinum
föstu kennaraembættum við
háskólann, svo og embætti há-
skólaritara. 1 stað þeirra kenn-
ara, sem hætta að starfa við
háskólann, verði ráðnir auka-
kennarar við háskólann, og sé
þeim goldið fyrir hverja
kennslustund tvöfalt. kaup
stundakennara við hinn al-
menna menntaskóla“.
Fundir hófust í deildum í
gær kl. 1 og var fundi í neðri
deild frestað kl. 4. Kl. 5 var
settur fundur í sameinuðu
þingi og stóð hann aðeins fá-
ar mínútur, en að honum lokn-
um hélt áfram fundur neðri
deildar og hélt sá fundur enn
áfram eftir kl. 9 í gærkveldi.
1 efri deild voru 21 mál á
dagskrá. Meðal þeirra var
þingsályktunartillagan um
kaup á húsi og lóð góðtempl-
ara og húsbyggingarstyrk, og
var tillagan felld með jöfnum
atkvæðum og er þarmeð úr
sögunni á þessu þingi.
í neðri deild voru 9 mál á
dagskrá. Meðal þeirra var þál.-
till. um framlag til Sundhallar-
inar, komið frá efri deild og
til fyrri umr. í nd. og var til-
lagan samþykkt, og þá aðeins
eftir um hana ein umræða.
Samþykkt 'var einnig og send
til efri deildar tillaga um skip-
un milliþinganefndar í launa-
málum, og er hennar nánar
getið á öðrum stað í blaðinu.
En mestur hluti fundartím-
ans fór í að ræða kosninga-
lagafrumvarpið, sem nú hefir
verið endursent frá ed. til
einnar umr. í nd.
Prentvilla var hér í blaðinu
fyrir nokkru, þar sem sagt var
frá flutningi breytingartillög-
unnar um tvo kjördaga í sveit-
um. 1 neðri deild var þessi til-
laga flutt af Framsóknarmönn-
unum Bergi Jónssyni, Bern-
harð Stefánssyni og Eysteini
Jónssyni, og í efri deild af
Framsóknarmönnunum Birni
Kristjánssyni og Ingvari
Pálmasyni. Allir Framsóknar-
menn í þinginu greiddu þessari
tillögu atkvæði nema þeir
Hannes Jónsson og Jón Jóns-
son. En Alþýðuflokksmenn og
Sjálfstæðismenn greiddu at-
kvæði á móti, og féll tillagan
í báðum deildum.
Tillaga Vilmundar Jónsson-
ar um úthlutun uppbótar-
sætanna.
<33ófra£mitit - tþróttir - íistir
Þóruun Magnúsdóttir:
Dætur Reykjavíkur.
Þetta eru sex smásögur
sagðar af einni fósturdóttur
Reykjavíkur, 28 ára gamalli
stúlku.
Fósturdóttur Reykjavíkur!
Sveitastúlkan segir sögumar.
Hún kom að vísu barnung til
Reykjavíkur. En fólkið hennar
sterkt, heilbrigt alþýðufólk,
kom með henni, og með því
voru svo máttugar fylgjur úr
sveitinni, að þessi næma unga
stúlka hélt áfram að vera
sveitastúlka í ys og þys borg-
arinnar, svo ör sem hún var,
borgin, á auðinn sinn allan.
En þó að hún Þóruiín yrði
ekki ein af systrunum, dætrum
Reykjavíkur, þá borðaði hún
og drakk með þeim, og hún
skildi þær, skildi þær fyrst
eins og bam, síðar eins og
ung stúlka, skildi þær með
samúð sinni, fann skyldleikann,
þó að hún væri ekki samborin
systir. Hana langaði meira að
segja stundum, já oft, til að
samlagast hópnum alveg, en
hún gat það ekki. Því fór hún
að hugsa um þær, dreyma um
þær, þessar frænkur sínar. Og
draumarnir urðu að sögum um
dætur Reykjavíkur.
Stundum verða draumamir
þó ekkert meira en draumar.
Rithöfundur, sem með eldmóði
sínum og ritsnilld getur náð
valdi yfir allri þjóðinni, situr
hjá 17 ára mey eina kvöld-
stund og fer með minninguna
um „meyna með sólargeislalit-
inn á hárinu, bláma himinsins
í augunum og birtu hins ný-
fallna snævar á hörundinu. Á
morgun legg ég af stað út á
hafið — en hafið mun um
síðir bei-a mig heim til ætt-
landsins með tindana hvítu og
eldinn í skauti sínu.
Þá ætla ég að leita að yður
um alla borgina og gefa yður
rauða rós“.
En sögumar — þær sem
verða meira en draumur —
eru um stúlkuna, sem af tryggð
við sál sína rís gegn tízkunni
og umhverfinu og sigrar —
þrátt fyrir allt; um næmt og
veikt og elskulegt bam, sem
er svívirt og getur ekki lifað,
um stúlkuna, sem aftur öðlast
trú á lífið og fær þrek til að
lifa því upp í sveitinni, þeg-
ar jólasálmurinn er sunginn,
farin er sleðaferð til kirkjunn-
ar og börnin og faðir þeirra
koma með trúnaðartraust sitt;
um nýgiftu konuna, sem geng-
ur á hólm við gamlan elskhuga;
og að lokum um það, hvernig
Reykjavíkurstúlkurnar taka
biðlinum sínum — svona á
mörkunum milli gamans og al-
vöru. Þetta allt er a. n. 1. séð
og skilið inn um gluggann á
næsta húsi — þar sem allt er
svo kunnugt — en um leið
er farið í huganum inn á veg-
ina, sem við blasa, með glöggri
sjón og þó þyrstri forvitni um
hvert þeir liggja.
Hún Þórunn er ennþá nærri
barnung. Hún er líklega ekki
auðug af því sem oftast er átt
við, þegar talað er um persónu-
lega reynzlu, þá reynzlu, sem
má fá í æfintýrum og ógöng-
um og mannraunum. En hún
á þá reynzlu, sem er fólgin í
orðunum: heima — og þó ekki
heima, systir — og þó ekki
systir. Hún er einmana í
hópnum, hún skilur þær allar
hinar með samúð sinni — ein-
mitt af > því að hún undrast
þær.
Allar eru sögumar höfundi
sínum, 23 ára stúlku, til sóma.
Og sú sagan er bezt, sem erf-
iðast var að segja vel, sagan
um hólmgöngu ungu konunnar,
hennar Ernu, við sinn gamla
unnusta. Sumum kann að
þykja boðskapur sagnanna of
lítill: Það er bara verið að
segja frá dætrum Reykjavíkur.
En þannig er frá þeim sagt,
að okkur þykir vænna um þær
á eftir.
En fallegast vitni bera þær
þó þessari gáfuðu fösturdótt-
ur, henni sem vill reyndar
vera ein af dætrum Reykjavík-
ur, en er þó dóttir íslenzku
sveitarinnar „með heiðarfaðm-
inn víðan og breiðan“. A.
Til þess að finna, hvernig
uppbótarþingsætum ber að
skipta á milli þingflokka, skal
fara þannig að: Fyrst skal
finna meðaltal atkvæða á hvem
kjördæmiskjörinn þingmann
þess þingflokks, er fæst hefir
atkvæði á hvern þingmann, og
er það hlutfallstala kosningar-
innar. Síðan skal skrifa at-
kvæðatölur hinna annara þing-
flokka, hverja afturundan ann-
ari í sömu línu, og deila í þær
hverja um sig tölu þingmanna
hlutaðeigandi flokks kosinna í
kjördæmum, fyrst að viðbætt-
um 1, síðan 2, þá 3 o. s. frv.
unz síðustu útkomur geta á
1 þennan hátt ekki orðið jafnari
hlutfallstölunni. Útkomumar
skal skrifa í röð niður undan
atkvæðatölunum. Uppbótar-
þingsætum skal úthluta til
þingflokka eftir tölum þessum
þannig, að fyrsta uppbótar-
fellur til þess þingflokks, sem
hæsta á útkomuna, annað til
þess, sem á hana næsthæsta,
og síðan áfram eftir hæð
talnanna, unz eitt uppbótar-
þingsæti hefir fallið á hverja
þeirra, nema 11 uppbótarþing-
sætum hafi verið úthlutað áð-
ur. Þó skal því aðeins úthlutað
uppbótarþingsæti á tölu lægri
en hlutfallstalan, að enginn
annar þingflokkur hefði fengið
hærri atkvæðatölu á hvern
þingmann, ef hann hefði bætt
við sig því þingsæti.
Símastúlkur.
Jóhann Jósefsson, Haraldur
Guðmundsson, Bemharð Stef-
ánsson, Finnur Jónsson, Jakob
Möller og Vilmundur Jónsson
flytja tillögu um að heimila
ríkisstjórninni að greiða tal-
símakonum við langlínumið-
stöðvar landssímans og aðstoð-
armönnum við skeytaafgreiðslu
launauppbót.