Nýja dagblaðið - 10.12.1933, Side 3
N Ý J A
DAGBLAÐIS
8
Tilkynning
frá Miðstjórn Framsóknarflokksins
Miðstjórn Framsóknarflokksins hefir á fundi 20. nóv.
1983 samþykkt eftirfarandi:
„Framsóknarflokkurinn hefir með bréfaskiptum við Al-
þýðuflokkinn gengið frá grundvelli undir samvinnu um mynd-
un bráðabirgðastjórnar og samþykkt að fela Sigurði Krist-
inssyni forstjóra forgöngu um stjómarmyndunina.
Tveir af þingmönnum flokksins, Hannes Jónsson og Jón
Jónsson, hafa hinsvegar á fundi þingflokksins 14. þ. m.
neitað að styðja Sigurð Kristinsson til stjórnarmyndunar-
innar.
Neitun þessara manna hefir það í för með sér, vegna
flokkaskipunar á Alþingi, að Framsóknarflokkurinn getur
ekki komið fram áðurnefndri ákvörðun sinni, og með því
skapast fyrir aðgerðir þessara tveggja manna stjórnarástand,
sem flokkurinn er mótfallinn og vill ekki bera ábyrgð á.
Þar sem afstaða þeirra Hannesar Jónssonar og Jóns
Jónssonar í þessu máli er alvarlegt brot á samþykktum
Framsóknarflokksins, sem leiða mundi til þess, að flokkur-
inn yrði óstarfhæfur og missti alla tiltrú, ef trúnaðarmönn-
um hans héldist slíkt uppi, telur miðstjórn Framsóknar-
flokksins sig knúða til að lýsa yfir því, að hún telur þá
alþingismennina Hannes Jónsson og Jón Jónsson ekki í
Framsóknarflokknum".
í lögum Framsóknarflokksins, 28. gr., er svo fyrir mælt:
„Heimilt er miðstjórn að víkja manni úr flokknum, enda
komi samþykki meiri hluta þingsflokks til, en rétt á hann
til að skjóta máli sínu undir úrskurð næsta flokksþings og
vei'ja það þar‘.‘
Þingmenn Framsóknarflokksins hafa á fundi 9. des. full-
nægt ákvæði ofannefndrar greinar flokkslaganna, að því er
við kemur afstöðu Hannesar Jónssonar og Jóns Jónssonar til
flokksins, og er þeim Hannesi Jónssyni og Jóni Jónssyni þar
með vikið úr Framsóknarflokknum.
Miðstjórn Framsóknarflokksins.
Frá Alþingi í gær.
NYJA DAGBLABI9
Útgefandi: „Blaðaútgéfan h/f‘
Ritstjóri:
Di-. phil. þorkell Jóhannesson.
Ritstjómarskriístofur:
Laugav. 10. Símar: 4373 og 2353.
jlfgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús Guðmundsson.
Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuöi.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiöjan Acta.
Enskt hneykslismál.
■ntcsá&t
í London hefir undanfama
daga verið fyrir dómstólunum
hneykslismál, sem þykir ein-
stakt í sögu Englands
Maður heitir Leopold Harris.
Hann hafði með höndum lög-
legan og tekjumikinn atvinnu-
rekstur, sem vátryggjandi. En
auk þess hafði hann með hönd-
um það gróðafyrirtæki að
„skipuleggja“ íkveykjur bæði
fyrir einstaka menn og iðnað-
arfyrirtæki, er orðið höfðu
hart úti í kreppunni. Hann var
beinlínis ráðunautur í þessum
efnum, og svo umsvifamikill
varð hann að lokum, að hann
greiddi of fjár í mútur. Þegar
upp um hann komst og dómur
féll í máli hans, bauðst hann
til að gefa mjög mikilsverðar
upplýsingar, er enn hefðu eigi
komið fram, gegn því að dóm-
urinn yrði mildaður. Þessu
boði var hafnað, en nú hefir
leynilögreglan, Scotland Yard,
komist að því hverjar þessar
„mikilsverðu upplýsingar“ eru.
Formaður björgunarsveitar
Lundúnaborgar heitir Miles.
Ilann er 38 ára að aldri og
hefir haft þetta virðulega em-
bætti með höndum síðan hann
var 32 ára. Hann hefir haft í
laun um 24 þús. kr. á ári
skattfrjálst, auk þess haft
frítt húsnæði, hita og ljós og
þjón til snúninga. En þrátt
fyrir þetta hafði hann snúið
sér til Harris, og óskað eftir
ofurlitlum bitlingi fyrir smá-
greiða, er hann gæti gert hon-
um vegna starfs hans. Fékk
hann svo mánaðarlega 25 £
eða um 500 kr. fyrir þessi við-
vik sín. Þegar hann fékk svo
vitneskju um, að horfur væri
á að upp kæmist um Harris,
setti hann honum stefnumót í
Hyde Park undir gömlu
skuggatré, sagði honum frá,
hvemig horfði og fékk fyrir í
mútu 500 £ eða um 10 þús.
kr. Gaf hann Harris það ráð,
að bjarga sér á flótta, meðan
enn væri tími til. En áður en
Harris fékk því við komið,
varð hann fastur í vaðnum, og
njóta báðir félagaj-nir sætleika
sameiginlegs skiptorots.
Það vakti afarmikla athygli
í fyrra, er upp komst um
Harris, af því að það þótti
bera vitni um meiri spillingu
í ensku viðskiptalífi en þjóðin i
vildi við kannast. En þó er 1
hitt > með meiri endemum, að
einn af æðstu trúnaðarmönn-
um ríkisins skuli vera við mál-
ið riðinn og er málið talið með
mestu hneykslismálum, sem
komið hefir fyrir á Englandi á\
síðari árum' ,A
Fundir voru boðaðir í báð-
um deildum í gær kl. lOVá f.
h. í efri deild voru þrjú mál
á dagskrá. Tillaga um milli-
þinganefnd í launamálum var
afgi'eidd til sameinaðs þings. I
Frv. um ábyrgð fyrir Jóhann-
es Jósefsson var afgr. sem lög.
Milliþingaforseti deildarinnar
var kosinn Pétur Magnússon
með hlutkesti milli hans og
Jónasar Jónssonar.
í neðri deild voru líka. þrjú
mál á dagskrá. Till. um með-
gjöf með fávitum. var vísað til
stjómarinnar. Till. um sam-
vinnubyggðir var sömuleiðis
vísað til stjórnarinnar. Um
tilL um samgöngur við Aust-
firði var ákveðin ein umræða.
Var þá fundi slitið, en settur
nýr fundur þegar í stað til að
ræða þá tillögu. Var tillagan
samþ. með 11:4 atkv. j
í þeim umræðum bar það við
að Thor Thors lýsti yfir því,
að hann bæri ekki traust til
hinnar „fungerandi“ ríkis-
stjómar og vildi enga ábyrgð
á henni bera.
Þetta voru síðustu fundir
deildanna, og óskuðu forsetar
þingmönnum góðrar heimferð-
ar og þökkuðu samstarfið. En
kl. 2 var boðaður fundur í sam-
einuðu þingi.
Á fundi þeim í sameinuðu
þingi, er hófst kl. 2 e. h., voru
afgreidd þrjú mál, kosninga-
lagafrumvarpið, þingsályktun-
artillagan um áfengismálið, og
þingsályktunartillagan í launa-
málum.
Var kosningalagafrumvarpið
afgreitt frá Alþingi sem lög.
Tillagan um að skora á
ríkisstjómina að gefaútbráða-
birgðalög um afnám bannsins
var afgreidd með rökstuddri
dagskrá, sem borin var fram
af Jakob Möller, þess efnis, að
þingið felur stjórninni að und-
irbúa fyrir næsta Alþingi
áfengislöggjöf í samræmi við
þjóðarvilja þann, er fram kom
í atkvæðagreiðslunni um bann-
lögin í haust.
Dagskráin var samþykkt
með 26 gegn 16 atkv.
Tillagan um milliþinganefnd
í launamálum var samþykkt.
Því næst var gefið fundar-
hlé.
Kl. 5 síðdegis hófst fundur
að nýju. Þá fóru fram kosn-
ingar í landkjörstjóm, milh-
þinganefnd í launamálum,
menntamálaráð og Þingvalla-
nefnd.
1 landkjörsstjórn, sam-
kvæmt hinum nýju kosninga-
lögum, voru kjörnir Magnús
Sigurðsson bankastjóri, Vil-
mundur Jónsson alþm., Eggert
Claessen málaflutningsm., Jón
Ásbjörnsson málaflm. og Þor-
steinn Þorsteinsson hagstofu-
stjóri.
í milliþinganefnd í launamál-
um voru kjömir Ámór Sigur-
jónsson ritstjóri, Jömndur
Brynjólfsson alþm., Gunnar
Magnússon kennari, Kári Sig-
urjónsson alþm. og Kristján
Albertson rithöfundur.
í menntamálaráð voru kjörn-
ir Barði Guðmundsson» Ragnar
Ásgeirsson garðyrkjufræðing-
ur, Árni Pálsson prófessor,
Ingibjörg H. Bjarnason skóla-
Frh. á 4. síðu.
hi"uií" w w 'w
opnndum
Mjólkursölubúð
i hinn nýja húai
Tjarnargötu 10.
Mæling á mjólk og rjóma framkvæmd með nýrri aðferð,
það er: Mjólkin mæld í lokuðum, sjálfvirkum mæliglös-
um beint í ílát kaupenda.
Nýmjólk, rjómi, undanrenna, skyr, ostur og smjör
daglega til sölu.
Þessar vörur eru þegar viðurkenndar í bænum fyrir
gæði. — Hór eftir verður heildsöluafgreiðslan einnig á
sama stað. Útsala okkar á Týsgötu heldur áfram eins
og áður.
Mjólkurbú Flöamanna
Sími: 4287
Grjótheiminn minn ef girnist þið að fá,
gerið svo vel að koma fljótt og sjá.
Út þennan mánuð óskast tilboð hreint1
eftir þann tíma verður það of seint.
Jónas Jónsson
Pyirir jólin Fyrir jólin
geta menn fengið með gjafvirði ýmsa
búshluti þar sem áður var Café Vífill
í Austurstræti 10. Þar verða seld t. d.
allskonar húsgögn, heil sett, sérstök
borð, hægindastólar, leirtau, borðbún-
aður, silfurföt, borðdúkar, útvarpstæki,
borðlampar, velour-gardínur, veggteppi
málverk o m. fl, sem ekki er hægt að telja upp
Útsalan hefst kl, 10 f. h. á mánudagsmorgun
og stendur aðeins yfir í 3 daga.
Aðeins selt gegn staðgreiðslu