Nýja dagblaðið - 13.12.1933, Side 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
1. ár.
Tdag
Sólaruppkoma kl. 10.18.
Sólarlag kl. ?.26.
Háílóð árdegii'. kl. 1.30.
Háflóð síðdegis kl. 2.05.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 3.00
e. m. til 9.S 5 árd.
Veðurspá: Hfeg sunuauátt og úr-
komulaust.
Söfn, sl .rifstotrr o. fL:
Landsbókasaf oið opið kl. 1-7 og 8-10
pjóðskjalasafaið ....... opið 14
Alþýðubókas afnið . .Ty. .opið 1010
Landsbanki’ m ......... opinn 10 3
Búnaðarbai .kinn ...... cpinn 10-3
ÚtvegsbanlJnn .. opinn kl. lf>4
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg .................. opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn kl. 10 12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. cpin 10-6
Bögglapóststofan .... ojún 10-5
Landsíminn ............. opion 8-9
Búnaðarfélagið opið 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband ísl. samvinnuféln;;a
opið kl. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opio 9-12 og 1-6
Sðlusamband ísl. fiskframleiðendu
10-12 os; 1-6
Kimskipafél. íslands .... opið 9-6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. iögmanns opin lt) 12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin l')-12ogl-4
Hafnarskrifstofan opin 912 v)g 1-6
Stjórnarráðsskrifstofumn r
opnar 10-12 og 1-4
Tryggingarstofnanir ríkisins
opnar kl. 1012 og 1-5.
Baðhús Reykjavíkur opið kl. 8-8
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 cg 1-6
Hsestiréttur kl. 10.
Heimsóknartími sjákrahúsa:
Landsspítalinn ........... k). 8-4
Landakotsspítalinn ........... 3-5
Laugarnesspítali ..... kl. 12%-2
Vííilstaðahælið . - 12%-2 og 3%-4%
Kleppur .................. kl. 1-5
Næturvörður í Ingólfsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Næturlæknir: Hragi Ólafsson
Ljósvallagötu 10. Sími 2274.
Skemmtanir og samkomnr:
Nýja Bíó: Ræningjahreiðrið kl. 9.
Gamla Bíó: Riddaralið í bænum
kl. 9. pýzkur gamanleikur.
Málverkusýning Höskuldar Björns-
sonar í Oddfellowhúsinu, opin
kl. 10--7.
Málverkisýning Ólafs Túbals í
Goodtemplarahúsinu, opin 10-8.
Samgðngnr og póstforðir:
Hermóður fer til ísafjarðar kl. 12
í kvöid.
Reykjavík, miðvikudaginn 13. desbr. 1933.
40. blað
DagskrA útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. 19,00
Tónleikar. 19.10 Veðurfregnir. 19,20
Tilkynningar. Tónleikar. 19,35 Tón-
listarfræðsla (Emil Thoroddsen).
20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Erindi. pættir úr náttúrufræði:
.röklamæiingar (Jón Eyþórsson).
21,00 Tónleikar: Fiðlusóló (J>ór.
Guðmundsson). — Grammófón.
Grieg: Per Gynt Suites, nr. 1. og
2. Sálmur.
Hvað er að gerast í
Al|)ýðnflokknum?
F j ó r u m núverandi bæj arf ulltrúum
flokksins sparkað úr bæjarsfjórninni.
Sex efstu sæti listans eru
skipuð þessum mönnum:
1. Stefán Jóhann Stefáns-
son hæstar.málaflm.
2. Jón Pétursson hafnsögu-
maður.
3. Kristinus Amdal.
4. Sigurður ólafsson.
■>. Jóhanna Egilsdóttir.
6. Pétur Halldórsson.
Lengra hirðir blaðið ekki að
te’ja.
I fyrrakvöld var haldinn
fundur í fulltrúaráði - Alþýðu-
flokksfélaganna hér í bænum
og stóð fram á nótt. Þar fór
fram einskonar prófkosning
frambjóðenda á lista flokksins
við bæj arstj órnarkosningamar,
sem í hönd fara.
Það, sem mesta athygli má
vekja, er, að flokkurinn virðist
ætla að sparka út úr bæjar-
stjóminni öllum fulltrúunum
sem þar eiga nú sæti af hans
hálfu nema Stefáni Jóh. Stef-
ánssyni.
Þeir Ágúst Jósefsson, ól-
afur Friðriksson, Sigurður
Jónasson og Kjartan ólafsson
eiga að fara út úr bæjar-
stjóminni.
Þetta mun þó ekki vera
endanleg ákvörðun, enda í
mesta máta furðuleg.
Skipstrand og manntjón.
Eoskur botnvðrpungur strandar
nálægt Svfnafellsós.
Bátur frá þýzkum botnvörpung, sem sendur var til
hjálpar, skolast upp I brimgarðinn. Þrír menn farast.
Síðastliðið sunnudagskvöld
strandaði enskur togari Marga-
ret Clark írá Aberdeen, við
Svínafellsós um 6 km. vestan
við Ingólfshöiða. Á skipinu
voru 12 manns og björguðust
allir heilir í land um kl. 3
síðd. á mánudag me.ð aðstoð
aðkomipna byggðamanna. —
Björgun tókst þann veg, að
skipverjar sendu flotholt með
línu í land og björguðust síðan
á skipsbátnum, sem dreginn
var milli skips og lands. Skip-
verjar dvelja nú í öræfum, og
er óvíst um brottför þeirra
þaðan. Skipið hefir nú rekið
mjög nærri landi, en allt er í
óvissu um björgunartilraunir.
Talið er að í skipinu sé lítils-
háttar af fiski.
í gærmorgun voru 6 menn
sendir á báti frá þýzka botn-
vörpungnum Consul Dobbers
frá Nordenham til hjálpar
enska botnvörpungnum. Álitið
er að bátur þessi hafi verið
tengdur við þýzka botnvörp-
unginn með línu, sem slitnað
hafi, og að bátinn hafi þá
rekið upp í brimgarðinn. Laust
eftir kl. 16 í gær komu þrír
bátverja heim að Fagurhóls-
mýri í öræfum, allþjakaðir og
illa til reika, og hafði þeim
skolað á land af bátnum, en er
þeir sáu síðast til bátsins var
hann á hvolfi. Höfðu hinir þrír
félagar þeirra ekki losnað við
hann, en menn eru orðnir mjög
hræddir um að þeir hafi farist.
Samkvæmt ósk þýzka konsú-
latsins í Reykjavík, sem hefir
skýrt frá þessum atburðum,
fóru menn úr öræfum snemma
í morgun niður á sandana til
þess að svipast eftir mönnum
þessum og bát.
Magnús Gudmundsson
„náðar(( ritstjöra Vísis
og Morgunblaðsins.
Dómsmálaráduneytið bannar opinbera
rannsókn á rógmælgi ritstjóra Visis
og Morgunblaösins um Nýja dagblaöiö.
í gærdag barst setudómar-
anum í rógsmálinu svolátandi
bréf dags. 11. þ. m. frá dóms-
málaráðuneytinu:
„Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið.
Reykjavík, 11. desbr. 1933.
Þér hafið, herra setulög-
reglustjóri, dags. 4. þ. m. sent
hingað bréf h.f. Blaðaútgáfan,
dags. 27. og 29. f. m., þar sem
ritstjóri dagsblaðsins Vísis,
Páll Steingrímsson svo og rit-
stjórar Morgunblaðsins, þeir
Jón Kjartansson og Valtýr
Stefánsson, eru kærðir fyrir
atvinnuróg. Fylgdu eintök þau
af blöðunum Morgunblaðið og
Vísir, sem kært er yfir, með
bréfi yðar.
1 tilefni af þessu er yður
hérmeð tilkyimt, til birtingar
fyrir þeim, er hlut eiga að
máli, að það, sem kært er yfir,
telur ráðuneytið ekki ganga út
fyrir svið meiðyrðalöggjafar-
innar.
Fyrir því verður að fara
eftir reglum meiðyrðalöggjaf-
arinnar, ef kærendur óska
málssóknar.
M. Guðmundsson.
Gissur Bergsteinsson.
Til
herra setulögreglustjóra
Kristjáns Kristjánssonar“.
Það þarf vitanlega ekki að
eyða orðum að því að rógmælgi
ritstjóranna er atvinnurógur á
hæsta stigi og refsiverður sam-
kvæmt 11. gr. laganna nr.
84/1933. — 1 þeirri grein seg-
ir, að það sé atvinnurógur er
varði allt að 6000 króna sekt
Framh. á 8. síðu.
Byrd heímskautsfarí fór frá
Ástrafíu í gær á leíð til Suð-
urheimskautslandanna.
London kl. 17. 12/12. FÚ.
Byrd fór frá Wellington í
Nýja Sjálandi í dag, í suður-
heimskautsför sína. Aðaltil-
gangur fararinnar er sá, að
gera úr flugvélum mælingar
að nýju korti yfir Suðurheim-
skautslönd.
EldsYoði á Sigluíirði
Hús Gunnars Jóhannssonar brennur til
kaldra kola Engu bjargað úreldinum.
í fyrrakv. brann til kaldra
kola húsið Hlíðarvegur 23 B á
Siglufirði, eign Gunnars Jó-
hannssonar formanns Verka-
mannafélagsins. Eldsins varð
vart um 10-leytið og magnað-
ist hann svo fljótt, að á svip-
stundu var húsið alelda. —
Slökkviliðið kom á vettvang, en
engu varð bjargað. Enginn var
heima í húsinu, er eldurinn
brauzt út, húsmóðirin var ný-
gengin í næsta hús með yngsta
barnið, en húsbóndinn hafði
farið á fund kl. 8.45.
I húsinu bjó eigandinn, kona
hans og fimm börn þeirra, 3
uppkomin, og Lúter Einarsson,
einhleypur maður. Missti hann
allt sitt, óvátryggt, nema föt-
in sem hann stóð í. Auk þess
brann með húsinu dót tveggja
manna, sem geymt var þar.
Húsið sjálft var vátryggt hjá
Brunabótafélaginu á 17 þús.
kr., og innbú Gunnars í Nye
Danske fyrir fimm þús. kr.
Tjónið er þó tilfinnanlegt, því
margt brann sem ekki verður
bætt, þar á meðal mikilsvarð-
andi plögg viðkomandi Verka-
mannafélaginu. Ennfremur á-
vísanir á útistandandi kaup-
gjald, reikningar bókasafns
Siglufjarðarkaupstaðar og
nokkur hundruð krónur í pen-
ingum. Rannsókn er ekki byrj-
uð.
Byrd, hinn ameríski flug-
garpur, er heimskunnúr af
ferð þeirri er hann fór til
Suðurpólsins 1929. Lagði hann
upp í þá för með miklum
viðbúnaði og var fjöldi vís-
indamanna í förinni. En mest-
um tíðindum þótti það sæta,
að Byrd hafði með sér flugvéí
og hugðist að fljúga frá ís-
röndinni þar sem þeir leiðang-
ursmenn höfðu höfuð-aðsetur
sitt og alla leið til pólsins og
svo til baka, 1600 mílna veg.
28. nóv. lagði Byrd af stað í
flugferðina kl. 19,29 síðd.(New
York tími). Voru þeir 4 sam-
an. Þeir komu til baka 29. nóv.
kl. 5,10 síðd. eftir mjög æfin-
týralegt ferðalag. Höfðu þeir
haft hið bezta sýni yfir hið
stórkostlega meginland, er
liggur umhverfis Suðurpól. —
Ferð þessi hefir síðan haft
stórkostlega þýðingu fyrir
rannsóknir á heimskautalönd-
um, því kalla má, að upp það-
an hefjist nýtt tímabil í rann-
sóknum þessum, með notkun
flugvéla og ljósmynda við kort-
lagningu og mælingu stórra
landsvæða með lítilli fyrirhöfn
og á stuttum tíma.
í hinni nýju ferð mun Byrd
halda áfram að kortleggja og
rannsaka Suðurskautslöndin,
þar sem hann hætti 1929,