Nýja dagblaðið - 14.12.1933, Side 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
1. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 14. desbr. 1933.
41. blað
/ DAG
Sólaruppkoma kl. 10.19.
Sólarlag kl. 2.26.
lláflóð árdegis kl. 2.45.
lláflóð síðdegis kl. 3.20.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 3.00
e. m. til 9.35 árd.
Veðurspá: Allhvass sunnan eða
suðvestan. Rigning öðruhvoru.
Söfn, skrifstoíur o. fL:
Landsbókasaftiið opið kl. 1-7 og 8-10
pjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
pjóðminjasafnið ....... opið 1-3
Náttúrugripasafnið ...... kl. 2-3
Alþýðubókasgfnið .. . .opið 10 10
Landsbankiun ......... opinn 10 3
Búnaðarbaítkinn ...... opinn 10-3
IJtvegsbankinn .. opinn kl. 104
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg .................. opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrenuis
opinn kl. 1012 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............. opinn 8-9
Búnaðarfélagið opið 10-12 og 14
Fiskifól....Skrifst.t 10-12 og 1-5
Samband ísl. samvinnufélaga
opið kl. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
liimskipafél. íslands .... opiö 9-6
Skrifst. bœjarins opnar 9-12 og 14
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12og 14
Skrifst. lögmanns opin 1012 ogl-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 14
Hafnarskrifstofan opin 912 og 1-6
St jórnarráðsskrifstofuma r
opnar 10-12 og 14
Tryggingarstofnanir ríkisins
opnar kl. 1012 og 1-5.
Baðhús Reykjavíkur opíð kl. 8-8
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Bæjarþing kl. 10.
Heimsóknartíml sjúkrahúsa:
Landsspitalinn ........... kl. 34
Landakotsspítalinn .......... 3-5
Laugarnesspítali ..... kl. 12%-2
Vifilstaöahælið .. 12y2-2 og 3y24y2
Kieppur .................. kl. 1-5
Næturvörður í Jngólfsapóteki og
Laugavegsapf'teki.
Næturlæknir: Kjartan Olafsson
Lækjargötu 6. Sími 2614.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Ræningjahreiðrið kl. 9.
Gamla Bíó: Riddaralið í bænum
kl. 9. pýzkur gamanleikur.
Málverkusýning Höskuldar Björns-
sonar í Oddfellowhúsinu, opin
kl. 10- -7.
Málverkíisýning Ólafs Túbals í
Goodtemplarahúsinu, opin 10—8.
Samgðngnr og póstferðir:
Suðurland til Borgarness kl. 9.
íslandið er væntanlegt frá Akur-
eyri eftir miðdegi.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. 19,00
Tónleikar. 19.10 Veðurfregnir. 19,20
Tilkynningar. Tónleikar. 19,35 Les-
in dagskx-á næstu viku. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Erindi: Lífið eftir dauðann (Grét-
ar Ó. Fells). 21,00 Tónleikar (Út-
varpstríóið). Grammófón: Lög eft-
ir Schubert. Daixslög.
Afstaða Framsóknarflokksins
til núverandi rikisstjórnar.
»
Frá miðstjórn Framsóknarflokksins hefir Nýja dagblað-
inu í gær borizt eftirfarandi ályktun til birtingar:
„JJar sem miðstjórn Framsóknarílokksins hefir áður látið það
álit sitt í Ijós, með fundarsamþykkt, að ekki beri að styðja stjóm
með Sjálfstæðisflokknum, þá finnur miðstjórnin ástæðu til að lýsa
yfir þvi, að þó að nú sitji tveir Framsóknarmenn i stjórninni, þá
eru þeir ekki studdir til þess at Framsóknarflokknum, en sitja
þar eítir beiðni konungs, þar sera ekki reyndist mögulegt að
mynda þingræðisstjóm“.
Ályktun þessi var samþykkt í miðstjói-n Framsóknarflokks-
ins á fundi í fyrradag.
Síðustu fréttirnar af
skipsskaðanum.
Aí Þjódverjunum þremur, sem vantaði
i íyrradag, hefir einn fundist á lífi, ann-
ar örendur, en sá þriðji er enn ófundinn.
Fagurhólsmýri 13/12. FÚ.
Einn þeirra þriggja manna,
sem týndust í gærmorgun af ;
skipsbát þýzka botnvörpungs-
ins Consul Dobbers frá Nor-
denham, er á lífi og kominn til
byggða, og annar hefir fund-
izt örendur.
Nánari fregnir eru sem hér
segir:
1 gær fóru 3 menn héðan
(frá Fagurhólsmýri) niður að
strandstað enska botnvörp-
ungsins Margaret Clark, til
þess að halda vörð um skipið,
og er þeir komu á strandstað-
inn fundu þeir einn manninn
liggjandi í skipsbát enska
skipsins mjög þjakaðan og að-
framkominn af vosi og kulda, '
en lítið meiddan. Manni þess- !
um hafði skolað í land á ;
strandstaðnum, og hafði hann j
síðan skriðið upp í bátinn og
látið þar fyrirberast. Byggða-
menn klæddu hann þegar í þur
föt af sér, og fluttu hann
síðan til sæluhússins við Ing-
ólfshöfða. Þar vóru eldfæri og
annar aðbúnaður, og hresstist
hann fljótt og var fluttur
heim að Fagurhólsmýri í
morgun og leið vel í dag eftir
atvikum.
Skammt frá enska botnvörp-
ungnum, eða 200 metrum aust-
ar á sandinum fundu byggða-
menn ennfremur skipsbátinn
frá þýzka botnvörpungnum
Consul Dobbers, og lá í honum
annar þeirra þriggja manna,
sem orðið höfðu skipreka í
gærmorgun, og var hann þá
örendur.
Þriðji maðurinn var ekki
fundinn er þetta fréttist, en
leitin hélt áfram. Enski botn-
vörpungurinn Margaret Clark
er nú rekinn upp í sand og er
talinn lítið skemmdur. í dag
er seldur fiskur, sem skipið
hafði meðferðis.
Spánskir uppreisn
armenn í skot-
grölum.
London kl. 17 13/12. FÚ.
Enn er langt frá því, að
allt sé með kyrrum kjörum á
1 Spáni. í Saragossa hefir verið
barizt á strætum, og fréttir
berast um strætabardaga 'frá
Salamanca og • víðar að. Her-
liðið og lögreglan vinna saman
að því að bæla niður óeirðirn-
ar. I Cordova gerðu uppreist-
armenn sér vígi í þrem húsum
og gerðu skotgrafir og varnar-
garða um kring. Herliðinu
tókst með sprengjum að sigr-
ast á þeim, og voru nokkrir
menn teknir til fanga.
Dómur fyrir jól
í þýzka brennU'
málinu.
Berlín kl. 11.45 13/12. FÚ.
Réttarhöldin út af bruna-
málinu hófust aftur í Leipzig í
dag, og byrjaði ákærandi hins
opinbera á ræðu sinni í morg-
un, eftir að nokkur vitni, sem
urðu eftir um daginn, höfðu
verið yfirheyrð. Það á að
ljúka ákæru- og varnarræðum
í þessari viku, og mun þá dóm-
ur verða kveðinn upp fyrir jól.
London kl. 17 13/12. FÚ.
Dr. Werner, hinn opinberi á-
kærandi í Ríkisþingshússbruna-
málinu hélt í dag mikla ræðu,
þar sem hann skýrði nauðsyn
alls þessa málareksturs. Fyrst
Dauðadómar i
Indiandi.
Berlín kl. 11.45 13/12. FÚ.
í Lahore í Indlandi var í
gær kveðinn upp dómur yfir 21
Indverja, sem höfðu gert til-
raun til þess að sprengja
skrúðgöngu er þáverandi land-
stjórinn í Indlandi, Irwin lá-
varður, tók þátt í í Delhi 1929.
Tveir hinna kærðu voru dæmd-
ir til lífláts, þrír til æfilangr-
ar útlegðar, 11 hlutu fangelsis-
refsingar, en 5 voru sýknaðir.
Nýi sendiherrann
í Moskva.
London kl. 17 13/12. FÚ.
Bullitt, sendiherra Banda-
ríkjanna í Moskva, lagði fram
skipunarbréf sitt í dag, og
komst þannig að orði við það
tækifæri, að það væri hlutverk
sitt, ekki einungis að skapa
venjulegt samband milli ríkj-
anna, heldur vináttusamband,
og var hann fullvissaður um
það, að í því efni nyti hann
samvinnu Sovétstjómarinnar.
Rojsevelt heimtar
guli af bönkunum.
London kl. 17 13/12. FÚ.
Síðustu stj órnmálafregnir
frá Bandaríkjunum herma, að
Mr. Hughes, aðstoðarfj ármála-
ráðherra, hafi sagt af sér, og
að Woodin fjármálaráðherra,
sem nú er undanþeginn störf-
um, muni afhenda lausnar-
beiðni sína snemma í janúar
sakir vanheilsu. Ennfremur
segir, að Roosevelt hafi frum-
varp á döfinni, sem veitir
honum fullkomið vald til þess
að taka allt gull úr umferð,
krefjast þess hvar sem það
kunni að vera fyrir hendi, og
til þess að knýja Federal Re-
serve bankasambandið að af-
henda gullbirgðir síanr.
Stalin hækkar
kaup í Rauða
hernum.
Berlín kl. 11.45 13/12 FÚ.
Frá Moskva er símað, að
Stalin hafi ákveðið, að hækka
kaup í Rauða hernum, og
gengur hækkunin í gildi 1.
janúar næstkomahdi. Nemur
hún 50% fyrir óbreytta liðs-
menn, og 20% fyrir liðsfor-
ingja.
og fremst miðaði hann að því
að sanna, að tilraunin til þess
að brenna Ríkisþingshúsið
hefði verið merki af hálfu
kommúnista um það, að koll-
varpa skyldi ríkinu og koma
á einræði. Hann fór mjög hörð-
um orðum um stofnun sjálf-
boða rannsóknarnefndarinnar,
og veittist ákaft að þeim, sem
i ábyrgð bæru á útgáfu Brúnu
I bókarinnar, sem út kom í Eng-
I landi.
Ísbvjóíar að vevki í dönsku
sundunum. ** I Fvakklandi vav
fvosíið 21 stig í gæv og 7 stig
á Italíu . bb Engav batahovfuv.
Kalundborg kl. 17 13/12. FÚ.
Allvetrarhart er nú orðið í
Danmörku, og er ís óðum að
leggja á skipaleiðir innanlands.
Á Skive- og Odense-höfnum er
nú fastur lagnaðarís, sem far-
inn er að tefja skipagöngur,
og í Bornholm og víðar er
einnig getið um ísalagnir. Allir
fjórir ísbrjótar ríkisins eru að
búast til ferðar, og eru tveir
þeirra nú að taka kol. Á morg-
un er gert ráð fyrir að þeir
verði tilbúnir.
Frostið heldur áfram í Dan-
mörku og hefir fiskur drepist
af þeim orsökum í geymslu-
stíum fiskkaupmanna í Es-
bjerg, og veldur þetta miklu
tjóni.
Berlín kl. 11.45 13/12. FÚ.
Kuldarnir í Mið-Evrópu
hafa nú breiðst út til norður-
Ítalíu, og hafa slíkir kuldar
ekki komið þar í mörg ár. í
Verona var í morgun 7 stiga
frost, í Florenz 6 stig, en í
Milano 4 stig. í Milano og ná-
grenni hefir verið mikil snjó-
koma, og veldur hún töfum á
umferð. I suður-Frakklandi
eru einnig miklir kuldar, og
var frostið 21 stig' í Argonne-
skógi í morgun.
Oslo kl. 17 13/12. FÚ.
I dag koma fregnir um vax-
andi ísalagnir á norskum fjörð-
um og höfnum. Er meðal ann-
ars getið um ís alla leið suður
í Tönsberg.