Nýja dagblaðið - 14.12.1933, Blaðsíða 4
4
N Ý J A
DAGBLA ÐIÐ
AnnálL
0
Skipafregnir. Gullfoss er í Rvík.
Goðafoss er á leið til Vestmanna-
eyja frá Hull. Brúarfoss kemur
til Leith i dag. Dettifoss fór i gœr-
kvöldi frá Akureyri á leið til
Húsavíkur. Lagarfoss kom til
Leith í gær kl. 2. Selfoss er í
Reykjavík.
Úr Mýrasýslu er skrifað að mik-
il veikindi hafi verið í fé þar í
haust. Nokkur áhugi er þar um
að auka mjólkurframleiðslu. En
ýmsa örðugleika telja menn á
þessu sökum slæmra samgangna.
ísfisksalan. Karlsefni 661(1?*í gær
hátafisk að vestan í Grimsby
fyrir 953 sterlingspund.
Tryggvi gamli kom af veiðum í i
gær og fór af stað til Englands
síðari hluta dags.
Útflutningur á ísfiski. Til nóv-
embermánaðarloka var búið að
flytja út tæp 11 þús. kit af ís-
fiski á þessu ári fyrir kr. 2.788.
290. — Verð á ísfiskí hefir verið
mjög lágt upp á síðkastið, og hef-
ir salan hjá togurunum verið
mjög slæm. þeir togarar sem
verst hafa selt, hafa ekki fengið
nema rúm 300 sterlingspund fyr-
ir afla sinn.
Strandferðimar. Áætlun fyrir
strandferðaskip ríkisins er ný-
komin út. Sú nýbreytni hefir ver-
ið gerð, að hraðferðir til Aust-
fjarða hafa verið teknar upp. Eins
og kunnugt er, hafa Austfirðir
verið mjög afskiptir af samgöng-
um við Reykjavík, en nú verður
mikið bætt úr þessu á næsta ári,
með hraðferðum sem Skipaútgerð
rikisins tekur upp. Verða 3 hrað-
ferðir til Austfjarðanna, snúið við
á Seyðisfirði og Vopnafirði. prjár
hraðferðir verða næsta sumar
austur um land til Siglufjarðar
og til baka. Verða samgöngur við
Austfirði og Norðausturland þá
mikið betri en áður. Viðkomur á
þórshöfn verða t. d. 27 og á Seyð-
isfirði 33.
Freðkjöt. Útflutningur á freð-
kjöti var í nóvembermánuði
kg. fyrir 6800 kr. Alls er búið að
flytja út af freðkjöti á þessu ári
1.040 þús. kg. fyrir 612.940 kr.
SUdarútflutningurinn. 8138 tn. af
af síld voru fluttar út í nóvem-
ber fyrir kr. 188.280.
Útllutningur saltkjöts i nóvem-
ber hefir verið 1013 tn. fyrir kr.
71.360.
Kapphlaupið um A-listann. — í
Verklýðsblaðinu síðasta birta hin-
ir „ótækifærissinnuðu" kommún-
istar eða það flokksbrotið, sem
Brynjólfur Bjamason veitir for-
stöðu, lista sinn við næstu bæjar-
st j ómarkosningar. Alþýðuf lokkur-
inn, sem jafr.an hingað til hefir
keppst við að hafa sinn lista sem
fyrst búinn, svo hann geti hlotið
A-listanafnið, hefir enn ekki lokið
því verki og er víst ósamkomulag
því valdandi, þó dult fari. Er
mikill hugur í kommúnistunum
að ná frá þeim A-lista-nafninu og
er það með meiri áhyggjuefnum
Alþýðuflokksforingjanna um þess-
'ar mundir.
Hafnarijarðarfréttir tvo síðustu
daga. Lögreglan í Hafnari. fann
i fyrradag, eftir tilvisun, í helli
nokkrum í hrauninu 2 tunnur
fuilar af vatni og ýms bruggunar-
tæki, svo sem brúsa, rör og fleira.
Ókunnugt er um eiganda. —
Drengur, sonur Bjarna Árnasonar
sjómanns Reykjavíkurveg varð
fyrir vörubifreið í fyrradag og
meiddist nokkuð á höfði og fæti.
Iionuin leið sæmilega í gær. —•
Skarlatssótt gengur i Hafnarfirði
en fer hægt yfir og er talin væg.
Héraðslæknir hefir þó ákveðið, að
börn frá sýkt.um heimilum skuli
ekki sækja skóla meðan veikin er
á heimilunum. — Botnvörpungur-
inn Sviði kom frá Englandi í gær-
morgun og fór á veiðar i gær-
kveldi.
Jón Engilberts listmálari sýnir
margar snotrar og ódýrar teikn-
ingar eftir sig í glugga Jóns
Björnssonar kaupmanns í Banka-
stræti.
Hermóðnr fór í gærkvöldi vestur
á ísafjörð með póst og farþega.
Á skipið að ganga frá ísafirði
sem flóabátur fram i febrúar.
Tailfélög Húsavíkur og Siglu-
fjarðar háðu kappskák á mánu-
dagsnótt. Húsvíkingar höfðu 7
vinninga á móti 5.
Á laugardag fóru þeir Lúðvíg
Kemp og Rögnvaldur Jónsson
vegaverkstjóri á bíl frá Sauðár-
krók yfir Kolungafjall að Jtverá í
Norðurárdal. Bílstjóri var Sigurð-
ur Björnsson. Ferðin gekk greið-
lega. Bíll hefir áður farið frá
pverá til Blönduóss.
sunnudag. Athöfnina framkvæmdi
síra Friðrik Raínar. Aðrir ræðu-
menn voru: Arthur Gook trúboði,
Andreasen forstöðumaður Hjálp-
ræðishersins, síra Sig. Stefánsson
á Möðruvöllum og Jóhannes Sig-
urðsson. Hún þetta er 18 sinnum
12 álnir að stærð, gjört úr stein-
steypu og hið prýðilegasta sam-
komuhús. Yfirsmíðí hafði á hendi
Guðmundur Ólafsson og gjörði
það kauplaust. Forstöðukona fé-
lagsins er Jóhanna pór. Hátt á 4.
hundrað manns var viðstatt at-
höfnina og margir urðu frá að
hverfa. — F.Ú.
Kristniboðsfélag kvenna á Akur-
8503 ! eyri lét vígja hús sitt kl. 4 sd. á
RAUÐA HttSIÐ.
Hörkufrost eru ennþá víða
i mið- og suður-Evrópu, og einnig
í Noregi. par er kominn allmikill
is á marga firði suður eftir
landi. Á Drammensfirði er svo
mikill ís, að ísbrjótur hefir verið
sendur þangað til að halda op-
inni siglingaleið. Veðurfregnir
þær, sem útvarpað er nú í ná-
grannalöndunum, segja að ,engar
horfur séu á því, að veðurfar
breytist mikið til batnaðar fyrst
um sinn, eða að hitni í veðri. FÚ.
í Landssambandi norskra út-
gerðarmanna var haldinn aðal-
fundur í Bergen í fyrrad. Formaður-
inn, Matthiessen aðalræðismaður,
flutti ræðu, um útgerð Norð-
nianna á liðnu ári, og horfur
hennar. Han sagði, að mesta hætt-
an, sem nú steðjaði að norskum
útgerðarmáium væru sívaxandi
rikisstyrkir til ýmsra útgerðarfé-
laga samkeppnisþjóðana, og taldi
hann að frjálsum siglinum væri
hætta búin af þessu. Einnig taldi !
liann að norsk útgerðarfélög ættu !
þó að sumu leyti við ol þungar
skattaálögur að búa, og yrði að
stilla slíku í hóf. þrátt fyrir ailt
taldi hann, að líta mætti björtum
augum fram á við. — F.Ú.
Pýzka rikisþingið kom saman i
fyrradag. pað varð stytzt þingseta,
sem sögur fara af i pýzkalandi,
því að þingið sat aðeins í tæpar
10 mínútur, og var síðan frestað
þangað til í janúar. Göhring var
endurkosinn forseti þingsins. Hit-
ler var ekki á þessum þingfundi,
því hann var staddur 1 Wilhelms-
hafen, til þess að taka á móti
beitiskipinu Köln, sem var að
koma úr ársferðalagi umhverfis !
hnöttinn. — F.Ú.
Skrímsli i Skotlandi. Miklar ;
sögur hafa gengið undanfarið um
skrímsli, sem menn þykjast hafa
orðið varir við í Loch Ness í
Skotlandi, og nú í vikunni varð
þetta skrimsli að umræðuefni i
enska þinginu, þingmönmnn til
mikillar skemmtunar. pingmaður
einn, skozkur, lagði það til, að
stjórnin gerði út vísindalegan leið-
angur til þess að rannsaka
skrímslið. Umboðsmaður stjórnar-
innar taldi svo, að slikar rann-
sóknir yrði að gera fyrir framtak
einstakiingsins, en hið opinbera
! sæi ekki ástæðu til að skifta sér
: af þeim. pingmaðurinn stakk þá
I upp á því, að fiugmálastjómin
j sendi flugvél á staðinn, en full-
| trúi flugmálaráðherrans sagðist
■ vilja fá meiri upplýsingar um
skepnuna áður en slíkur leiðang-
ur yrði gerður út. — FÚ.
Milli Bolivíu og Paraguay eru
viðsjár nú eins og undanfarið ár.
í fyrradag bjuggust menn við þvi,
Frá leiðangri Byrds
Þrir menn stalust
um borð i Astralin
i íyrradag.
Berlín kl. 11.45 13/12. FÚ.
Nokkru eftir að skip Byrds
admíráls var komið frá Wel-
lington í gær, fundust þrír
menn um borð, sem höfðu falið
sig í skipinu áður en það lagði
af stað. Það voru þrír piltar
frá Wellington, sem langaði til
að vera með í Suðurheim-
skautsleiðangrinum. Byrd mun
líklegast ekki snúa aftur með
mennina, og verður þeim þá að
ósk sinni.
Frakkar enn treg-
ir að borga.
Berlin kl. 11.45 13/12. FÚ.
Enda þótt engin opinber til-
kynning hafi borist til Was-
hington um það, hvort Frakk-
ar ætluðu sér að greiða þann
hluta stríðsskuldanna sem fell-
ur í gjalddaga 15. desember,
þá er það talið víst, að þeir
muni ekki gera það, enda hafa
þeir ekki greitt síðustu afborg-
anirnar, sem námu um 60
milljónum dollara. Afborgunin
að þessu sinni nemur 22.2
milljónum.
að skærunum milli þeirra mundi
vera lokið, með því að mikill
hluti aí her Bolivíumanna hefði
gefist upp fyrir Paraguaymönn-
um. Nú segja fréttir frá Bolivíu
í gær, að þar muni bylting vera
yfirvofandi. — pjóðabandalagið
hefir skipað sérstaka nefnd, til
þess að rannsaka þessi mál, og
er hún nú stödd í SuðunAme-
ríku. — FÚ.
í Paris er byrjað að koma út
nýtt þýzkt blað, sem heitir Par-
iser Tageblatt, og er ritstjóri þess
Georg Bernhard, fyrrum ritstjóri
þýzka stórblaðsins Vossischer
Zeitung í Berlín. Hann segir, að
blaðið eigi að verða málgagn þess
írjálslyndis og lýðræðis, sem út-
lægt sé nú úr pýzkalandi. — F.Ú.
Kínverskir bændur hafa undan-
íarið beðið mikið tjón vegna verð-
falls á silki, og er nú í ráði aö
gera tilraun til þess að framleiða
pappír úr laufi mórberjafrésins.
Verður verksmiðja sett á stofn í
þessu skyni, og er henni ætlað að
talca 4000 smálestir af mórberja-
laufi til vinnslu á dag. — F.Ú.
• Ódýru 0
auclýsingarnar.
Kaup og’ sala
Hús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Aðalstræti 9 B
opin kl. 11—12 og 5—7. Sími
4180 og 3518 (heima). Helgi
Sveinsson.
Til sölu þrír fyrstu árgangar
Spegilsins og fjórir fyrstu ár-
gangar Fálkans. Tilboð sendist
afgreiðslu þessa blaðs merkt
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkiu-.
Sími 1245.
Hillupappír, mislitan og
hvítan selur Kaupfélag Reykja-
víkur. Sími 1245.
Saumastofan Tízkan selur
fallegar blússur og pils fyrir
jólin. Pantið í síma 4940. Aust-
urstræti 12.
Tryggið yður bökunaregg í
tíma.
Kjötbúð Reykjavíkur,
Vesturgötu 16. Sími 4769.
Húsnæði
Sólríkt herbergi til leigu á
Bergstaðastræti 82.
Bílskúr til lejgu. Uppl. í
síma 1895.
Tilkynningar
Linguaphone enskunámskeið
óskast leigt. Tilboð merkt „11“
sendist á afgreiðslu Nýja dag-
blaðsins.
„Verkstæðið Brýnsla*
Hverfisgötu 4
(hús Garðars Gíslasonar)
Brýnir öll eggjárn.
Sími 1987.
Atvinna
Tveir vanir bílstjórar óska
eftir atvinnu við bifreiðaakst-
ur yfir hátíðina. Tilboð sendist
á afgreiðslu Nýja dagblaðsins
fyrir laugardag merkt „Bíl-
stjóri“.
Er hann þannig settur, að við getum talazt þar við
í næði.
— Áreiðanlega. Það er fyrirtaks staður. Nú skalt
þú sjá.
Þeir fóru út um aðaldyrnar og héldu svo til
vinstri handar. Þegar Antony kom frá Woodham,
hafði hann nálgast húsið hinummegin frá. Vegur
sá, er þeir gengu nú, lá út á þjóðveginn til Stanton.
Annars vegar við trjágarðinn Stanton var lítill bær
svo sem hálfrar mílu veg þaðan. Þeir fóru gegnum
hlið og framhjá garðyrkumannshúsi, og nú blasti
garðurinn við þeim.
— Ert þú nú viss um, að við höfum ekki farið
framhjá? sagði Antony. Garðurinn var baðaður í
tunglsljósi og veginn greindu þeir fyrir fótum sér
jafnharðan og þeir gengu eftir honum.
— Skrítið, finnst þér ekki? sagði Bill. Einkenni-
legur staður fyrir leikvöll, en hér hefir hann víst
verið frá því fyrsta.
Nú voru þeir komnir alla leið. Hér beygði veg-
urinn til hægri, en þeir héldu áfram í beinni
stefnu nálægt 10 metra eftir grasi grónum gang-
stíg og allt í einu kom völlurinn í ljós.. Þur skurð-
ur, tíu feta breiður og sex feta djúpur lá umhverf-
is völlinn á allar hliðar, nema þar sem gangstíg-
urinn lá yfir díkið. Grasigrónar tröppur láu niður
að leikvellinum, en til hliðar á honum stóð tré-
bekkur handa áhorfendum að hvílast á.
— Já, sá er vel falinn, sagði Antony. Hvar eru
klótin geymd?
— í einhverju lystihúsinu þarna. Þeir gengu eft-
ir jaðrinum á grasbalanum, þangað til þeir komu
að lágreistu timburskýli, sem byggt var inn í skurð-
bakkann.
— Þetta er einkennilegt!
Bill hló.
— Hér er aldrei neinn. Þetta skýli er aðeins til
að geyma í leikáhöldin þegar rignir.
Þeir gengu kringum völlinn, til þess að sjá ef
einhver lægi niðri í díkinu — sagði Antony — og
svo settust þeir á bekkinn.
— Jæja þá, sagði Bill. Nú erum við í næði. Hvað
segirðu þá?
Antony reykti um stund, þungt hugsandi. Svo
tók hann út úr sér pípuna og leit á vin sinn.
— Ert þú við því búinn að leika hlutverk Wat-
sons? spurði hann.
— Watsons?
— Já, hans, sem alltaf er spurður: Skilurðu hvað
ég á við, Watson? Einmitt hlutverk hans. Ert þú
við því búinn að láta útlista fyrir þér alveg aug-
ljós mál, spyrja gagnslausra spuminga, gefa mér
tækifæri til þess að kveða þig gjörsamlega í kút-
inn, gera sniðugar uppgötvanir alveg hjálparlaust,
nokkrum dögum eftir að ég hefi gjört þær sjálfur
— og fleira þessu líkt, því að það myndi geta
orðið mér til mikillar hjálpar.
— Drottinn minn dýri, Tony, sagði Bill stórhrif-
inn, þarftu að spyrja að slíku? Antony þagði og
Bill hélt áfram himinlifandi: Ég get séð það á jarð-
arberjablettinum á skyrtunni þinni, að þú hefir
fengið jarðarber í eftimiat. Iiolmes, ég óttast þig.
Þú þekkir aðferðir mínar. Hvar er tóbakið? Tó-
bakið liggur i persnesku töfflunni. Get ég verið frá
störfum mínum heila viku? Það held ég vissulega
að ég geti.
Antony brosti og hélt áfram að reykja. Bill beið
með eftirvæntingu nokkrar mínútur. Svo mælti hann
með stöðugri rödd:
— Jæja, Holmes, þá finn ég mig knúinn til þess
að spyrja, hvort þú grunir nokkurn?
Antony mælti:
— Manst þú, sagði hann, eftir einni glettni
Holmes við Watson? Þetta var út af tröppunum
upp í íbúð þeirra í Baker Street. Watson vesaling-