Nýja dagblaðið - 17.12.1933, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 17.12.1933, Blaðsíða 1
NyJA DAGBIAÐIÐ 1. ár. Reykjavík, sunnudaginn 17. desbr. 1933. 44. blað Ný skipulagning síldarsölunnar? Frá strandínu ÍDAG Sólaruppkoma kl. 10.23 Sólarlag kl. 2.25 Háflóö árdegis kl. 5.20 Háflóð síðdegis kl. 5.50 Ljósatimi hjóia og bifreiða kl. 2.55 e. m. til 9.50 árd. Söfn, skriistoíur o. IL: pjóðminjasafnið .......... kl. 1-3 NáttúrugripasafniÖ ...... opið 2-3 Alþýðubókasafniö ....... opið 4-10 Pósthúsið Brófapóstst. .. opin 10-11 Landsíminn ............ opinn 10-8 Heimsóknartimi sjúkrahúsa: Landspítalinn ............ kl. 2-4 Landukotsspitalinn ........... 3-5 Laugarnesspítali ...... kl. 12VÍ-2 Vifilstaðahæiið .. 12Vá-2 og 3V*-4V2 Kleppur ................... kl. 1-6 Næturvörður í Reykjavíkurapóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Næturlæknir: Bergsveinn Ólafsson Suðurgötu 4. Simi 3077. Skemmtanir og samkomtu: Nýja bíó: Tilboð merkt 202 kl. 9. Gamla bíó: kl. 5 Konungur ljón- anna, kl. 7: Riddaralið í bænum, kl. 9: Ógift, amerísk kvikmynd. Listsýning Magnúsar Ámasonar í Oddfellowhúsinu kl. 1—10. Pétur Sigurðsson heldur fyrirlest- ur i Varðarhúsinu kl. 8Vá- Málverkusýning Ólafs Túbals i Goodtemplarahúsinu, opin 10—8. Málverkasýning Freymóðs Jó- hannssonar í Braunsverzlun uppi, opin 10—9. Messur i dómkirkjunni: kl. 11 sr. Fr. Hallgrímsson, kl. 5 sr. Bjarni Jónsson. í fríkirkjunni kl. 2 sr. Ámi Sigurðsson. Samgöngur og póstferðlr: Goðafoss frá útlöndum. Columbia vestur og norður um land oftir hádegið. Dagskrá útvarpsina. Kl. 10 fréttaerindi (Vilhj. p. Gísla- son) og endurtekning frétta. 10.40 veðurfregnir. 11.00 messa í dóm- kirkjunni (sr. Fr. Hallgrímsson). 15.00 miðdegisútvarp. 15.30 erindi: Bernhard Shaw og svertingjastúlk- an (Ragnar E. Kvaran. 18.45 bamatími (frú Ragnh. Jónsd.). 19.10 veðurfregnir. 1920 tilkynning- ar. 1925 grammófóntónleikar: lög úr Othello. 19.50 tilkynningar. 20.00 klukkusláttur, fréttir. 20.30 erindi: Uppruni og þróun tónlistar, I. (Páll ísólfsson). 21.00 tónleikar: (Lúðrasveit Reykjavíkur). Grammó fón: Haydn: Kvartett í G-dúr. (Budapester strengjakvartettinn). Danslög til kl. 24. Útvarpið á morgun: Kl. 10.00 veðurfregnir. 12.15 há- degisútvarp 15.00 veðurfregnir, endurtekning frétta o. fl. 19.00 tónleikar. 19.10 veðurfregnir. 19.20 tilkynningar. 19.25 óákveðið. 1950 tilkynningar. 20.00 klukkusláttur, fréttir. 20.30 erindi frá útlöndum, (sr. Sig. Einarsson). 21.00 fellur niður vegna skeytasendinga frá Danmörku til Grænlands. Sem kunnugt er fór Jóhann Jósefsson útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum til Þýzka- lands í sumar til þess að kynna sér eitthvað möguleika á sölu á fiski og síld þar í landi. Ekki mun Jóhanni hafa litist á síld- armarkaðinn þar, og ekki hafa haft góða sögu að segja, er hann kom aftur. Enda munu nú liggja milli 80 og 40 þús- und tunnur af sfld óseldar í Þýzkalandi. Út af þessu hafa nokkrir út- gerðarmenn haldið fund með fjármálaráðherra um málið og rætt stofnun samtaka um sfld- arsölu. Nefnd hefir þó ekki Vernharður Eggertsson, sem sagt var frá í blaðinu fyrir skömmu að hefði verið dæmdur fýrir bifreiðarstuld og of hrað- an akstur, var látinn laus eftir að dómurinn var uppkveðinn, þar eð dómnum var áfrýjað til hæstaréttar, en tveim dögum síðar hvarf Vernharður úr bænum. 1 gær kom svo tilkynning frá sýslumanninum í Ámes- sýslu um að Vemharður Egg- ertsson hefði verið tekinn þar fastur, eftir beiðni bæjarfóget- ans í Vestmannaeyjum, og var Landhelgisbrot á Vestfjörðum. Isafirði 16/12. FÚ. Ægir kom í gærkvöld með tvo togara, Ladennia og Derby County, báða frá Grímsby, sem hann hafði staðið að ólögleg- um veiðum framundan Bol- ungarvík. Dómur hefir ekki verið kveðinn upp í máli tog- aranna, en báðir skipstjórarn- ir hafa játað sekt sína. Isvestia skrifar um friðarmálin. London 16/12. kl. 17. FÚ. Vegna þess að Sovétsam- bandið og Ítalía skrifuðu í gær undir hlutleysissanxninga sín á milli, birtir rússneska blaðið lsvestia í dag grein um utan- ríkisafstöðu Rússa og friðar- málin, og segir þar, að Sovét- sambandið hafi nú gert sams- verið skipuð af hálfu þess opin- bera. Þeir, sem rætt hafa aðallega um þetta, eru útgerðarmenn- irnir Ingvar Guðjónsson, Finn- ur Jónsson frá ísafirði, Halldór Guðmundsson frá Siglufirði og Hafsteinn Bergþórsson úr Reykjavík. Starfa þeir sem nefnd í málinu og hafa kosið sér Finn Jónsson sem formann. Hversu mikið ágengt þeim hef- ir orðið um myndun félags- skapar þessu viðvíkjandi, er ekki kunnugt um, en nokkur ! ágreiningur mun þó vera um fyrirkomulagið ennþá. hann því sendur þaðan og hing- að til Reykjavíkur. Hafði maðurinn farið héðan með Esju síðast og þóttist ætla norður í land, en fór af skipinu í Vestmannaeyjum. Þaðan fór hann svo með mótor- bát til Eyrarbakka, en var tek- inn þar, eins og fyr segir, eft- ir beiðni bæjarfógetans. Var hann sakaður um að hafa framið tvö innbrot í Eyjum. I gærkvöldi var lögreglu- þjónn sendur með Vemharð til Vestmannaeyja með Islandinu, til yfirheyrzlu og rannsóknar. konar samninga við öll mikil- megandi ríki í Evrópu, nema Stóra Bretland. Sovétsamband- ið getur nú átt venjuleg ríkja- viðskifti við öll kapitalistisk ríki, að því tilskyldu, að þao blandi sér ekki í innanríkismál, segir blaðið. Lerroux reynir að mynda stjórn á Spání. London 16/12. kl. 17. FÚ. Eftir spænsku þingkosning- arnar, þótti það auðséð, að erf- itt mundi verða um myndun nýrrar stjórnar. Eftir að ráðu- neyti Barrios hafði sagt af sér í morgun, hefir Zamora forseti í dag átt tal við ýmsa stjóm- málaleiðtoga í landinu, og er nú síðast gert ráð fyrir því, að Lerroux, leiðtogi róttæka flokksins, muni reyna að mynda nýja stjóm. Mál Torglers varið i Leipzig í gær. London 16/12. kl. 17. FÚ. Dr. Sack, verjandi Torglers, flutti í dag varnarræðu sína fyr ir hann í ríkisréttinum í Leip- zig. Hann sagði, að málsrann- sóknin væri stórviðburður, ekki einungis í sögu Þýzkalands, heldur í allri mannkynssögunni og kvaðst ennfremur vona, að hún mætti teljast viðburður í réttarsögunni, sem dæmi þess, að réttlætið fái að ráða. Hann fór fram á það, að Torgler yrði náðaður og benti því til stuðn- ings á það, að jafnvel hinn op- inberi ákærandi hefði sagt, að ekki væri unnt að sanna neitt um það, á hvern hátt Torgler hefði verið viðriðinn brunann. Hann sagði, að Torgler hefði hispurslaust gefið sig réttvís- inni á vald, þar sem hann hefði vitað sakleysi sitt. „Eins og mig mundi hrylla við því“, sagði hann að lokum, „að þurfs. að hugsa til þess, aö nokkur sannur Þjóðverji væri sekur um þann verknað, sem skjól- stæðingur minn er sakaður um, svo þakka ég guði fyrir það, að öll rannsókn málsins hefir ekki gefið minnstu ástæðu til þess, að álíta hann samsekan þeim, sem brunanum valda. Þessvegna krefst ég sýknunar hans“. Fundur i Vik í Mýrdal- Á fjölmennum fundi Fram- sóknarbænda í Vestur-Skapta- fellssýslu, sem haldinn var í Vík í Mýrdal 12. þ. m. og boðaður hafði verið af Lárusi bónda Helgasyni í Kirkjubæj- arklaustri, voru einum rómi samþ. eftirfarandi tillögur: 1. „Fundurinn ályktar, vegna klofnings þess, sem nú er í Framsóknarflokknum, að standa saman einhuga nú sem fyr í flokknum og gera allt sem hægt er til að klofning- urinn geri flokknum sem minnstan óskunda í héraðinu". 2. „Fundurinn álítur það réttlætismál, að unnið sé að því, að jafna þann mismun sem átt hefir sér stað í kaup- greiðslu í opinberri vinnu í hinum ýmsu héruðum lands- ins“. Auk þessara tillagna voru margar aðrar samþykktar. Samhugur og áhugi fundar- manna var eindreginn um það, að vinna að eflingu Framsókn- arflokksins í kjördæminu og stuðla að sigri fulltrúa hans í næstu kosningum. Lík Þjoðverjanna sem tórust eru jöröuð i dag að Hofí i Örœfum. Fagurhólsmýri 16/12. Strandmennirnir af togaran- um Margarete Clark frá Aber- deen fóru út í skipið í gær, vegna þess að þeir áttu von á björgunarskipi frá Englandi, en skip þetta hafði ekkert gert vart við sig um hádegi í dag. En síðdegis í dag hefir verið svo vont skygni, að ekki hefir sést til sjávar. Þjóðverjamir fjórir, sem björguðust frá togaranum Con- ul Döbbers, höfðu farið út í skipið með Englendingunum, og ætluðu með þeim í björg- unarskipinu til Englands. Þeir komu aftur hingað heim að Fagurhólsmýri síðdegis í dag, þar sem skipið var enn ókomið. Lík sjötta mannsins af þýzka bátnum rak upp í fjöru í fyrra dag og verður, ásamt líki Þjóðverjans, sem fannst ör- endur í bátnum, jarðað á morg- un frá Hofskirkju. Vegna þess hve mikið brim er, er ekki gert ráð fyrir að enska björgunarskipið geti tek- ið strandmennina, sem nú eru úti í strandaða togaranum, og verða þeir sóttir út í skipið á morgun og fluttir aftur til bæja. Er svo gert ráð fyrir að þeir fari við fyrsta tækifæri annaðhvort til Reykjavíkur eða til Vopnafjarðar. Enginn sjór er enn kominn í enska togarann, en hann hefir hefir í rokinu síðastliðinn sól- arhring færst um hálfa aðra skipslengd. Talið er sennilegt að hann geymist þarna á sönd- unum til vors án þess að sjór komi í hann. Eldsvoði í nótt. Klukkan rúmlega 2 í nótt var slökkviliðið kvatt inn í Sogamýri. Var kominn upp eld- ur í timburhúsinu á Sogabletti 9. Það er lítið hús, byggt 1928 og mun þar hafa búið fátt af fólki. Tókst að slökkva eldinn, en gat brann á loft yfir eld- húsi og var eldurinn kominn í hey, sem geymt var uppi á loftinu. — Blaðið hafði tal af mönnum úr slökkviliðinu, þeg- ar þeir komu í bæinn aftur laust fyrir kl. 3 '/2, og álitu þeir, að eldurinn hefði komið upp á tveim stöðum í húsinu. Innbrot i Vestmannaeyjum Sökudólgurinn handsamaður a Eyr- arbakka og sendur héðan af lögregl- unni með Islandi í gœrkveldi til Vestmannaeyja.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.