Nýja dagblaðið - 23.12.1933, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 23.12.1933, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ 1. ár. Reykjavík, laugardaginn 23. des. 1933. 49. blað. í DAG Sólaruppkoma kl. 10,30. Sólarlag kl. 2,23. Háílóð árdegis kl. 10,00. Háflóð síðdegis kl. 22,30. Veðurspá: Minnkandi suðvestan- átt. Nokkur snjóél. Sötn, skrilstotui o. £L: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 þjóðskjalasafnið ........ opið 1-4 pjóðminjasafnið lokað. Náttúrugripasafnið lokað. Alpýðu])ókasafnið .... opið 10-10 Landsbankinn ......... opinn 10-1 Búnaðarbankinn ........ opinn 10-1 IJtvegsbankinn ........ opinn 10-1 Útibú Landsbankans á Klappar- stíg .................. opið 2-7 Sparisjóður Rvíkur og nágrennis opinn kl. 10-12 og 5-7^t Pósthúsið: BréfapóstsL .. opin 10-6 Bögglapóststofan .... opin 105 Landsiminn ............. opinn 8-9 Búnaðarfélagið opið 10-12 og 1-4 Fi&kifél....Skrifstt. 10-12 og 1-5 Samband ísL' samvinnufélaga opið kl. 9-12 og 1-6 Skipaútg, ríkisins opin 9-12 og 1-4 Eimskipafélag íslands .... opið 9-4 Sölusamband ísl. fiskframleiðenda opið 10-12 Stjómarráðsskrifstofumar opnar 10-12 Skrifst. bœjarins .... opnar 9-12 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skriíst. lögmanns opin 10 12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Hafnarskrifstofan opin 912 og 1-6 Tryggingarstofnanir ríkisinj opnar 10-12 Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6 Baðhús Reykjavíkur opið kl. 8-8 Lögregluvarðstofan opin allan sólarhringinn. Heimsóknartími sjúkrahúaa: Landsspítalinn ........... kl. 3-4 Landakotsspitalinn ........... 3-5 Laugarnesspítali ...... kl. 12^-2 Vífilstaðahœlið 12y2-iy2 og 3y2-4y2 Kleppur ................... kl. 1-6 Næturvöröur í Reykjavíkurapóteki og lyfjabúðinni Iðunn. Næturlæknir: Ólafur Helgason, Ingólfsstræti 6. Sími 2128. Skemmtanir og samkomnr: Nýja Bíó: Hvíti Indíanahöfðing- inn, kl. 9. Gamla Bíó: Ógift, kl. 9. Málverkasýning Freymóðs Jó- hannssonar i Braunsverzlun uppi, opin 10—9. Listsýning Magnúsar Árnasonar í Oddfellowhúsinu opin 11—7. Samgðngur og póstlezttr: Esja væntanleg að vestan. Dagskrú útvarpsins. Kl. 10.00 veðurfregnir. 12.15 há- degisútvarp 15.00 veðurfregnir, Endurtekning frétta o. fl. 18,45 Barnatími (Ólína Andrésdóttir). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynn- inkar. 19,25 Tónleikar. (Útvarps- tríóið). 19,50 Tilkynningar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Er- indi: Jól og jólahald. (Guðbr. Jónsson). Danslög til kl. 24,00. Ríkisútvarpið þriggja ára. Utvarpsnotendur á landinu eru nú 7367; þar af aðeins 1900 í sveitum. Þann 20. þ. m. voru þrjú ár liðin síðan Ríkisútvarpið tók til starfa. Útvarpsstión og for- maður útvarpsráðs gerðu þann dag nokkra grein fyrir rekstri útvarpsins á síðasta ári. Nýja dagblaðið liefir haft tal af útvarpsstjóra og fengið hjá honum r.okl-crar upplýsing- ar um þróun útvarpsstarf- rækslunnar. Útvarpsnotendum í landinu hefir fjölgað örar en ráð var fyrir gert, þrátt fyrir fjár- hagsörðugleikana og einkum hefir fjölgunin verið mikil á þessu síðasta ári. Skipuleg sala útvarpsviðtækja og gott val þeirra mun mjög hafa stuðlað að auknum útvarps- notum. Auk tiltölulega góðrar dagskrár, þegar litið er á örð- ugleika fámennisins, hefir út- varpið gert ýmislegt til þess að auka útvarpsnotin og greiða fyrir þeim með skipulegum úr- ræðum. Útvarpsnotendur eru þann 15. des. síðastl. orðnir 6,69 af hverju hundraði lands- búa og eru Islendingar í þessu efni komnir framarlega í röð meðal Norðurálfuþjóða. En þegar litið er á þessa til- tölulega öru fjölgun verður það sérstaklega athugunarvert, að í sveitum eru aðeins tæp- lega 4 af hundraði útvarps- notendur á móti rúmlega 9 af Undirréttardómur í máli Kristjáns Jóhannssonar. Hann var sýknaður. Mál þetta var, samkvæmt kæru frá Mjólkurfélagi Reykja- víkur, höfðað af valdstjómar- innar hálfu gegn Kristjáni Jó- hannssyni kaupmanni, Laugar- holti við Laugarnesveg hér í bænum, fyrir brot á ákvæðum laga nr. 97 frá 19. júní 1933 um heilbrigðisráðstafanir um sölu á mjólk og rjóma. Málavextir voru í aðalatrið- um þeir er hér greinir: I fyrstu málsgrein ofan- greindra laga er ákvæði um, að í öllum þeim kaupstöðum og kauptúnum hér á landi, þar sem mjólk eða rjómi er selt frá fullkomnum mjólkurbúum, er viðurkennt hafi verið af at- vinnumálaráðherra, skuli ó- heimilt að selja þessar vörur ógerilsneyddar. Undanþegin þessu skuli þó mjólkurbú, sem að dómi atvinnumálaráðherra hafa aðstöðu til þess að hreinsa mjólkina og koma henni óskemmdri á markaðinn. En í síðari málsgrein fyrstu grein- ar er það tekið fram að ákvæði þetta nái þó ekki til svonefndr- ar barnamjólkur, og ekki held- ur til þeirrar mjólkur, sem framleidd er innan lögsagnar- umdæmis Reykjavíkur og flutt er beint til neytanda, enda skuli bæjarstjóm eða hrepps- nefnd semja um þetta reglu- gerð er atvinnumálaráðherra staðfestir. Brot gegn þessum ákvæðum varða sektum allt að kr. 500,00. Kærði kannaðist við það að hafa 4 mjólkurbúir hér í bæn- um, þar sem hann seldi ó- hreinsaða og ógerilsneydda mjólk austan úr sveitum. Bar hann það fyrir sig, að mjólk sú, er hann seldi, mætti kallast barnamjólk samkv. 2. málsgr. 1. gr. nefndra laga. En það er hlutverk bæjarstjómar og at- Frh. á 4. síðu. hundraði í kaupstöðum og kauptúnum. Þannig hefir hin harða landbúnaðarkreppa haml- að því, að bændastéttin gæti notið þessarar menningarum- bótar, sem var þó ekki hvað sízt ætluð henni. En auk krepp- unnar kemur þá fleira til greina að dómi útvarpsstjóra. Gerði hann í erindi sínu grein fyrir þeim aðstöðumun, sem ríkti í þessu efni milli sveita og kaupstaða og þeim sérstöku | örðugleikum, sem sveitabúar ættu við að búa. Telur útvarpsstjóri að nokkru af ágóða Viðtækja- verzlunarinnar eigi að verja, til þess að greiða fyrir út- 1 j varpsnotum almennings í land- 1 inu og sérstakléga til þess að jafna þennan mikla aðstöðu- ! mismun. Útvarpið er nú þegar orðinn | verulegur þáttur í lífi þjóðar- : innar og ekki sízt í sveitum, þar sem þess er notið. Verður því ekki komizt hjá, að taka til greina starf þess og gera þær kröfur, að jafnframt því sem vandað verði til dagskrár- innar, verði og stutt að því af ! ríkisstjóm, Alþingi og sjálfri stjórn útvarpsins, að sem flest- um landsmönnum gefist kost- ur á að njóta þess, sem út- varpið hefir gott að bjóða. Frá brennumálinu. Dómsniðurstöðurnar verða kunnar í dag. Van der Lubbe fyrir róttinum. Kalundborg kl. 17,00 22/12 FÚ Wolfsfréttastofan skýrði frá því í morgun, að dómsniður- staða ríkisréttarins í Leipzig í brunamálinu hafi þegar verið tilkynnt Hitler og Göhring. Út af þessu hefir fréttastofa þýzka ríkisins sent út yfirlýsingu um það í dag, að þetta sé með öllu tilhæfulaust og bersýnilega breitt út í þeim tilgangi, að fólk festi trúnað á það, að dómurinn sé kveðinn upp und- ir áhrifum Hitlers og Göhrings, en það sé alveg ósatt. Bunger dómstjóri.hefir einnig gefið út yfirlýsingu um það í dag, að Wolfsfréttin sé einber upp- spuni, því að dómsniðurstöð- una megi ekki tilkynna fyr en á morgun neinum manni, enda hafi það ekki verið gert. Göb- bels hefir látið svo um mælt, að Wolfsfréttin sé svívirðileg lýgi- Dómurinn verður upp í fyrramálið. kveðinn Knud Rasmussen látinn. Hinn víðfrægi landkönnuður Knud Rasmussen lézt í fyrri- nótt í Kaupmannahöfn, 54 ára gamall. Knud Rasmunssen var fædd- ur í Grænlandi árið 1879. Fað- ir hans var danskur prestur þar, en móðir hans var græn- lenzk. Nám stundaði hún í Kaupmannahöfn. Hafði Knud Rasmussen mikinn áhuga á að kynnast fólkinu 1 móðurlandi sínu og fór fjölda marga vís- indaleiðangra til Grænlands. Mun hann manna bezt hafa þekkt siði, trúarbrögð og lifn- aðarháttu Eskimóa. Hefir hann ritað margar merkar bækur um þessi efni. Knud Rasmussen kom meðal annars hingað til lands í leið- öngrum sínum og hélt hér eitt sinn fyrirlestur um Grænland. Danska stjórnin hefir á- kveðið að jarðarför Dr. Knud Rasmussen skuli fara fram á ríkisins kostnað, og hefir ekkja hans fallizt é það. Jarðarförin fer fram í kyrþei samkvæmt ósk hins látna. Mowinckel, forsætisráðherra Norðmanna, hefir sent dönsku stjórninni samúðarkveðju Norðmanna, vegna fráfalls Dr. Knud Rasmussen. Strandmennirnir. af togaranum Margarete ' Clark koma á jóladaginn '' til Reykjavíkur. (Samkvæmt símtali við Kirkjubæjarklaustur). Strandmennirnir af togaran- um Margarete Clark, sem strandaði um daginn fyrir austan, fóru í gær yfir Skeið- arársand. Eru þeir 16 alls, 4 af þeim eru þýzkir af togar- anum, sem ætlaði að bjarga. í nótt ætluðu þeir að gista að Kálfafelli í Fljótshverfi í nótt. í ráði er að Bjarni á Hólmi og tveir synir Lárusar í Klaustri fari í dag á bílum austur að Kálfafelli, til þess að sækja þá, ef hægt verður að kornast yfir Múlakvísl, og fari með þá hingað til Reykjavik- ur. Er búizt við að þeir komi þá hingað á jóladaginn.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.