Nýja dagblaðið - 28.12.1933, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 28.12.1933, Blaðsíða 3
* Ý J ▲ SAftBLABIB S NYJA DAGrBLAÐIÐ Útgefendi: „Blaöaútgáfan h/f‘ Ritstjóri: Di'. phil. þorkell Jóhannesson. Ritstjómarsk rifstofur: I augav. 10. Símai': 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskiáfstofa: Austurstræti 12. Sími 2323. Framkv.stjóri: Vigfús Guðmundason. Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura eint Prentsmiðjan Aeta. ——...... ..............— Listinn Þegar Framsóknarflokkurinn í árslokin 1929 ákvað að ! hafa frambjóðendur í kjöri í I fyrsta sinn við bæjarstjórnar- j kosningar í Reykjavík, var af : mörgum illa spáð fyrir þeirri tilraun. Sérstaklega skorti • ekki hrakspárnar hjá and- stæðingunum. Einn af þekkt- ustu íhaldsmönnum bæjarins, fyrverandi þingmaður og ráð- herra, spáði því þá í sinn hóp og í fullri alvöru, að listi Framsóknarmanna myndi ekki fá nema 350 atkvæði og eng- um jnanni koma inn í bæjar- stjórnina. En þegar á leið kosningabar- áttuna þá, fór að koma upp skelkur mikill í liði andstæð- inganna. Það sýndi sig, að fylgi Framsóknarmanna hafði vaxið í kyrþey og að þeir voru orðnir fjölmennur og sterkur flokkur í bænum. Spá íhalds- foringjans um 350 atkvæði reyndist óvitahjal. Listi Fram- sóknarmanna fékk hvorki meira né minna en nærri hálft fjórtánda hundrað at- kvæða og kom tveim fulltrú- um inn í bæjarstjórnina. Síðan hefir flolckurinn einu sinni gengið til almennra þing- kosninga hér í bænum. Það var vorið 1931. Það var gert til að reyna á ný fylgi flokks- ins. Það reyndist fast og vax- andi og eins þó baráttan í það sinn væri vonlítil. Aukakosningunni haustið 1932 og almennu þingkosning- unni í sumar tók flokkurinn ekki þátt í. En nú — eftir fjögur' ár — gengur Framsóknarflokkurinn til bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík í annað sinn. Listi flokksins er birtur hér í blað- inu í dag. Um þá þrjátíu manna sveit, sem þar er í framboði af ílokksins hálfu, þarf ekki að fara mörgum orðum nú. Fram- bjóðendurnir eru flestir al- kunnir í bænum og margir þjóðkunnir. í tveim efstu sætum listans eru núverandi bæjarfulltrúar flokksins, þau Hermann Jónas- son lögreglustjóri og frú Aðal- björg Sigurðardóttir. Bæði njóta þau með réttu almennrar viðurkenningar í bænum fyrir gáfur og dugnað og störf sín í þágu almennings. Báðum er þeim kosning vís. En í þetta sinn mun ekki látið þar við sitja. 1930 kom- ust tveir Framsóknarmenn að, þegar andstæðingarnir spáðu, að enginn næði kosningu. í þetta siim komast þrír að. Allur bæriiiu heimtar: Meira vatn, hreint vatn Borgarstjóri reynir að friða bæjarbúa með þýðingarlausum fyrirheitum um skólpsíu í Elliðaánum og laugavatn úr miðstöðvum. Vatnsveitan hér í Reykjavík er sjálfsagt einhver sú allra hneykslanlegasta af opinberum framkvæmdum bæjarins undir stjórn íhaldsmanna. Fyrsta vatnsæðin var lögð árið 1908, en 1923 var sú æð orðin alltof lítil. Þá var vatnsveitan aukin og lögð önnur ný æð í viðbót. Jón Þorláksson, núv. borgar- stjóri, reiknaði út aukninguna, og samkvæmt útreikningum hans átti hún að fullnægja bæn- um í 40—50 ár. Fyrir þennan útreikning og eftirlit með verk- inu tók Jón 18 þús. kr. úr bæjarsjóði. En aukningin sem hann reiknaði út að endast mundi í 40—50 ár, var orðin ónóg eftir 7 ár og fjöldi húsa vatnslaus. Vatnsskatturinn var þá hækkaður um 25% til að fá peninga í nýja aukningu. Og nú er verið að leggja vatns- veituna í þriðja sinn. Þetta eru afleiðingarnar af mistök- um þeirra, sem ráðin hafa. Fé bæjarbúa er kastað í sjóinn, bilunarhætta þriggja vatnsæða er þrisvar sinnum meiri en á einni. % # Aukningin átti öll að koma í ár. Efsti hluti vatnsleiðslunnar frá Gvendarbrunnum og niður í Rauðhóla, um 1,7 km. leið, er víð trépípa. Úr þessari tré- pípu liggja svo leiðslurnar frá 1908 og 1923 niður í bæinn og þaðan á nýja leiðslan einnig að liggja. Lagning þessarar nýju leiðslu átti auðvitað að hraða svo í sumar sem leið, að henni væri lokið nú, en í stað þess er nú eftir að leggja 3 km. Jafnframt þurfti að setja niður rafmagnsdælu við Gvendar- brunnana, til þess að auka vatnshraðann í efsta hluta leiðslunnar, sem er hallalítill. Það er nieira að segja hæpið að ný leiðsla úr trépípunum komi að nokkru haldi, ef dælan verður ekki sett upp. Ef þetta hefði verið gert í sumar, gæti nú verið nóg af Gvendarbrunna vatni í öllum húsum í bæn- um. En í stað þess eiga nú bæj- arbúai að fá skólpið úr Ell- iðaánum og líklega ósíað. Nú er framkvæmdin það á veg komin, að í ráði er að veita vatni úr Elliðaánum inr. í bæinn. Þetta Elliðaárvatn eiga bæjarbúar að sætta sig við fyrst um sinn. Borgarstjór- inn var núna nýlega að láta taka sýnishom af þessu vatni til rannsóknar, en svo hittist á, að sýnishornið var tekið þegar árnar voru ekki í vexti og tiltölulega mjög hreinar. Þessi rannsókn er því þýðing- ! arlítil. 1923 var Elliðaárvatnið | notað um tíma, eins og Jón Þorláksson getur um í Morgun- blaðinu. Þá var leirleðjan í vantsgeyminum komin í mjóa- legg, þegar Gvendarbrunna- vatninu var hleypt á. Þess hef- ir líka áður vcrið getið hér í blaðinu, að aL'ennsli í árnar frá bæjum, sumarbústöðum og pen- ingshúsum í nágrenni þeirra hljóti út af fyrir sig að gera notkun vatns úr þeim ákaflega varhugaverða og jafnvel hættulega. Og nú er helzt að skilja á Jóni Þorlákssyni að skólpsían muni ekki koma í bráðina og bersýnilegt er það, að hún getur ekki komið fyr en einhverntíma í vor eða sum- ar, þar sem allan undirbúning vatnar. Nú hefir borgarstjórinn til viðbótar upplýst nýtt regin- hneyksli i þessu máli. Hann skýrir sem sagt frá því, að gömlu vatnsæðarnar frá 1908 og 1923 séu lagðar undir vatnsuppistöðu rafveitunnar. „Uppistöður rafmagnsveitunn- ar gera það ómögulegt um langan tíma“, segir borgar- stjórinn, „allt að níu mánuðum á hverju ári að komast að efri hluta vatnsæðarinnar frá Gvendarbrunnum og niður und- ir Skyggni ca. 3J/2 km. Hvað segja nú bæjarbúarum svona framkvæmdir? Þegar fyrsta vatnsæðin var lögð 1908 var hún sett niður þar sem nú er látið standa vatn níu mánuði ársins, vegna rafveitunnar. Af hverju var þetta gert þá? Það var af því að Jón Þor- láksson þóttist hafa reiknað út, að aldrei kæmi til mála að byggja rafstöð við Elliðaámar. En 1923, þegar ný vatnsæð er lögð, er hún enn sett niður á sama stað. Þó búið sé að byggja rafstöðina og enn á að leggja nýju leiðsluna, sem ver- ið er að gera á sama stað. Þessvegna verður að bíða með hana fram á sumar. Ef hitt ráðið væri upp tekið, sem liggur alveg beint við, að setja leiðsluna, sem nú er verið að leggja á öðrum stað, þar sem hún ekki væri á kafi í vatni níu mánuði ársins, þá væri nú hægt að halda verkinu áfram í vetur og það því frem- ur, sem talsvert af pípum er fyrirliggjandi, sem búið er að kaupa. Þessi síendurtekna vitleysa, að hafa leiðslurnar á kafi í vatni, þar sem ekki er hægt að ná til þeirra, nema þrjá mán- uði á árinu, kostar hvorki meira né minna en það, eftir því, sem J. Þ. sjálfur segir, að bærinn þarf að koma sér upp skólpsíu, til að hreinsa Elliða- árvatn, ef svo færi að leiðsl- urnar biluðu á þeim tíma árs- ins, sem ekki er hægt að ná til þeirra- Bollaleggingar Jóns JJorláks- sonar um heitt laugavatn og að spara Gvendarbrunna- vatnið. Ráðagerðir J. Þ. um að safna saman laugavatni úr mið- stöðvum húsa í Skólavörðuholt- inu og veita því til íbúða sem baðvatni, er eins og hver önn- ur firra, sem ekki verður fram- kvæmd, og. ekki væri vit í að framkvæma v'egna kostnaðar. Hinsvegar liggur beint við að nota þetta vatn í sundlaug. Ein bollalegging J. Þ. er sú, að spara Gvendarbrunnavatnið með því að veita Elliðaárvatni til hafnarinnar. Eins og nú er, er sérstaklega eftir því sózt af erlendum skipum t. d. ferða- mannaskipunum á sumrin að taka vatn hér 1 Reykjavík, því það þykir betra en annarsstað- ar. En útlendingarnir rpyndu sennilega ekkert kæra sig um síaða skólpið úr Elliðaánum og mætti þá segja, að íhaldsspar- semin hefði eyðilagt eitt af því fáa, sem þessu bæjarfélagi má til frama verða í annara aug- um. Almenn óánægja i bænum. Um allan bæinn sérstaklega á vatnsleysissvæðinu, er vatns- veituhneykslið búið að vekja almenna gremju, sem vonlegt er. Hér í blaðinu var skýrt frá því fyrir nokkru að húseigend- ur á vatnsleysissvæðinu hefðu haldið fund í Varðarhúsinu og kosið nefnd til að bera fram kröfur sínar við borgarstjór- ann. Síðan lá málið í salti í heil- an mánuð, og ekkert virtist hafa verið aðhafst. En skyndí- lega éftir að farið var að rita um þessi mál á ný hér í blaðinu virðist borgarstjórinn hafa vaknað við vondan di’aum. Flokksmenn hans í vatnsleysis- nefndinni rjúka þá til og skrifa honum bréf þ. 14. þ. m. eftir mánaðarumhugsun og borgarstjórinn svarar samdæg- urs og lætur birta svarið í Morgunblaðinu. Jóni Þorlákssyni er að skilj- ast það loksins nú, að það ger- ræði, sem hann hefir framið, hvað eftir annað í vatnsveitu- máli bæjarins verður eklci lengur þolað af bæjarbúum um- tölulaust. Menn geta sætt sig við það um tíma, þó að fjár- munurn sé eytt að óþörfu, en menn munu aldrei sætta sig við að heilbrigðismálum bæjarins sé stofnað í voða með skaðlegu neyzluvatni. Bæjarbúar krefjast þess, að haldið verði áfram að leggja nýju vatnsæðina þegar í stað, og að hún verði ekki lögð þar sem hún liggur undir. vatni níu mánuði ársins. Að tafarlaust verði sett raf- magnsdæla við Gvendarbrunn- ana til þess að auka vatns- magnið. U.M.F. Velvakandi Jólaskemmtun verður í Kaup- þingssalnum í kvöld kl. 8*4 og hefst með samdrykkju. Fé- iagar mega taka með sér gesti. Ilúsinu er lok^að kl. 10. Jólatrésskemmtunin fyrir börn, í Oddfellow-húsinu 2. janúar n. k., hefst kl. 5 síðdegis. Fullorðið fólk fser aðgang kl. 10. — Aðgöngumiðar fást. í Kaupfél. Reykja- víkur Bankastræti og á afgr. Nýja dagblaðs- ins í Austurstræti. Verð kr. 2,75 fyrir börn, þar í innifaldar veitingar, og kr. 2,00 fyrir fullorðna, án veitinga. Móðir.eða ein kona má fylgja hverjum heimilishóp barna og fær ókeyp- is aðgöngumiða. Frambvæmdanefudin. Beztu eigaretturnar í 20 stk. pökkum, sem kosta kr. 1.10 — •ru Commandei' Westminater Virginia cigarettur Þeeei ágæta cigarettutegund fæst ávalt í heildaölu hjá Tóbakseinkasölu ríkisms Búnar til af lobacco Ciwll liOndon

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.