Nýja dagblaðið - 31.12.1933, Side 2

Nýja dagblaðið - 31.12.1933, Side 2
t n t j a DAS BLABI0 g)sRum öílum gCeði og far^ceCðar d U)?ja drtuu ^oíeí ^Sorg Gleðilegt nýár! •tfr-'*- Jt' Jt- Sláturfélag Suðurlands $4 »♦ j|4 'jfi 'jfZ ~J\J 'Íjí^ Gleðilegt nýár! Þökkum viðskiptin á gamla árinu. KJÖTVERZL. HERÐUBREIÐ Fríkirkjuveg 7. Gunnlaugsstaðir 1 Borgarfjörð hefi ég ekki komið í tuttugu og tvö ár, þangað til nú rétt fyrir skömmu. Ég ætla ekki að skrifa ferðasögu, eða neitt þesskonar, en mig langar til að minnast ofurlítið á eitt af þeim heimilum, sem ég sá þar. Vakti það eftirtekt mína, en ég hygg hinsvegar, að fáum muni það mikið kunnugt. Bær sá, sem ég á við, er Gunnlaugs- staðir í Stafholtstungum. Ég fór þar hjá fyrir tuttugu og tveimur árum, og virtist mér þá, að hér væri um reglu- legan kotbæ að ræða. Bæjar- hús voru óálitlegir moldai’kof- ar og óvistlegir sem mest mátti verða, að því er mér virtist til að sjá, en innanhúss var mér sagt, að jafnan hefði ver- ið stakur þrifnaður. Sama var að segja um útihúsin. Ofur- lítill túnbleðill var kring um bæjarhúsin, en hann var ekki aðeins lítill heldur líka grýttur og þýfður og á allan hátt mjög óálitlegur. Fannst mér þama óvistlegt í meira lagi. Það bætti heldur ekki um álit mitt á heimilinu, að rétt fyrir neð- an bæinn lenti ég í forarfeni 0g vár hræddur um, að þar mundi ég hleypa hestinum á kaf. Sem betur fór, varð það þó ekki, 0 g einhvemveginn slarkaðist hann þama yfir þessa ófæru. í stuttu máli fannst mér þá Gunnlaugsstaðir eitthvert óálitlegasta býlið, sem ég hafði séð í hinu fagra og vistlega Borgarfjarðarhéraði. Ég hafði þá heldur raun af að sjá þennan bæ. Ég hefi jafnan haft ánægju af öllu, sem fag- urt er og gott í íslenzku sveitalífi, en raun af hinu, sem því er gagnstætt. Sjálfur er ég uppalinn á íslenzkum sveita- bæ, og enn í dag sakna ég sveitalífsins, þótt ég hafi dval- ið mikinn hluta æfinnar í stór- borg, sem er „fjarri fóstur- jarðarströndum". Nú er bærinn Gunnlaugs- staðir svo breyttur, að hann er alveg óþekkjanlegur frá því sem áður var. Þar er nú allt öðruvísi umhvorfs heldur en var fyrir tuttugu og tveimur árum. Fyrir neðan bæinn er kominn góður akvegur og mað- ur verður ekkert var við for- arfenið, sem ég lenti þar í forð- um. Einnig er nú kominn góð- ur akvegur heim að bænum og moldarkofarnir, sem fólkið bjó í áður, eru horfnir, og í þeirra stað er komið mjög laglegt hús úr steinsteypu, og virtist þar vel frá öllu gengið. Fjárhúsin eru líka nýlega byggð, öll í einu lagi, góðan spöl frá bæn- um, og við þau jámvarin hey- hlaða. Fjós og hesthús, hvort- tveggja í einu lagi, er skammt frá bænum, og er það hrörleg bygging og skyldi mig ekki furða þó þar yrðu góðar um- bætur gerðar áður en langt líður. Þar er þó vel stæðileg heyhlaða fyrir töðuna. Gamla túnið er nú orðið glétt að mestu, en jarðfast grjótið stendur þar víða upp úr og verður ekki við gert. En ný- rækt er mikil og falleg og er nú túnið orðið allstórt og gaf af sér 250 hesta í sumar. Fyr- ir fáum ámm fengust ekki af því nema 35 hestar og sum ár- in jafnvel enn minna. Nú er það stækkað og bætt á hverju ári og fullar líkur til, að inn- an fárra ára verði það orðið svo stórt og gott, að af því fáist svo mikil taða, að fóðra megi á henni svo margar skepnur, að kallast megi gott meðalbú, eða kannske fram yf- ir það. Einhvemtíma í ung- dæmi mínu las ég það, eða þá heyrði haft eftir einhverjum vitrum manni, að sá væri nýt- ur bóndi, sem léti tvö strá gróa, þar sem eitt hefði gróið áður. Ekki þarf að efa, að mik- ið er til í þessu, en ef sá bóndi gerir vel, sem tvöfaldar töðufallið á ábýhsjörð sinni, þá gerir hinn miklu betur, sem sjöfaldar það og kannske miklu meir, áður en lýkur. Um engjarnar á Gunnlaugs- stöðum er ekkert að segja, þær eru engar. Jörðin er land- lítil 0g landið ekkert nema klettar og flóar. Það má að visu slá eitthvað dálítið í fló- anum hér og þar, en þeir eru þýfðir og ógreiðfærir og frá- leitt grasgóðir. En útbeit mun þar vera nokkur fyrir sauðfé og hesta. Bóndinn á Gunnlaugsstöðum heitir Jón Þ. Jónsson, en kona hans Jófríður Ásmundsdóttir. Þau byrjuðu þar búskap fyrir rúmum þrjátíu árum með litl- um efnum. Hygg ég þó að þau hafi átt jörðina og er Jón þar fæddur og upp alinn og hefir verið þar mestan hluta æfinn- ar. Konan er úr Þverárhlíð. Á þessum árum hafa þau eign- ast sextán börn, níu pilta og sjö dætur. Er það elzta þrjá- tíu ára og það yngsta fimm j ára. Munu fjögur þeirra enn j innan fermingaraldurs. öll eru þau mannvænleg og vel gefin og hraust og dugleg og at- orkusöm, þau sem til aldurs eru komin. Svo að segja allar þær miklu umbætur, sem gerðar hafa ver- ið á Gunnlaugsstöðum, hafa verið gerðar á síðastliðnum 5 1 —6 árum, eða síðan elztu ' drengimir urðu vinnufærir. ‘ Eins og nærri má geta gat ! bóndinn ekki mikið sinnt jarðabótum eða húsabótum meðan hann var einyrki. Hjón- in höfðu víst fram yfir það .nóg að gera, að hafa ofan af fyrir sér og sínum stóra bama- hóp. En þessu hefir verið sinnt með miklum dugnaði og forsjá, síðan eldri drengimir urðu vinnufærir. Var mér sagt að engin jörð í því nágrenni hefði tekið slíkum stakkaskipt- um síðustu 5—6 árin. Ég get ekki sagt, að ég sé kunnugur á Gunnlaugsstöðum eða fólkinu þar. En ég hefi komið þar, og var mér mikið ánægjuefni að kynnast hjónun- um þar, Jóni og Jófríði og bömum þeirra, er heima voru. Bóndinn er nú kominn yfir sex- <33óíra£nntix - íþróttir - tietir Pistlar Þorbergs. Margir munu hafa beðið eft- ir þessari bók með nokkurri eftirvæntingu. Hvort, sem menn eru hneigðir til að tala vel eða illa um Þorberg, lesa þeir oftast það, sem hann skrifar og hafa stundum gam- an af, hvort sem þeir kannast við það eða ekki. En þessi bók mun verða ýmsum þeim vonbrigði, er mestar mætur hafa á Þorbergi. Þeir pistlarnir, sem beztir eru, bæði á bragð og í raun, eru áð ur kunnir. Víst er gott að eiga þá í snoturri bók. En þó er sá galli á gjöf Njarðar, að sumt af því, sem gerði þá ljúf- fengasta á bragðið, er tíma- bundið. Þó má gera ráð fyrir, að opna bréfið til sr. Árna Sigurðssonar og Eldvígslan verði „klassisk“ bréf. Ekki er það vegna þess, að þau séu svo hnituð í öllum dómum, að nákvæmlega falli við það, sem réttast verður fundið, heldur er það vegna þess, að þar er Þorbergur allur. Þar eru skaps- munir hans sannir, og þó að hans eigin stíll kitli hann líka þar, þá er það allt náttúrlegt og upprunalegt. 1 það skiptið hefir Þorbergi vorum hitnað vel í hamsi, og það fer honum alltaf prýðilega, og þá er okkur hinum meira en ljúft, að hann hafi ofurlitla ánægju af því sjálfur. En ég verð að játa, að mér leiðast ýms hin bréfin. Þau hafa sum þann svip á sér, að Þorbergur hafi „reytt úr sér“ sínar „eðlisgáfur", og eitthvað tilsett, sem á að vera fyndið og „veslings fólkinu“ til skemmt- unar, komið í staðinn. Mér dettur fyrst í hug í þessu sam- bandi það, sem „kúnstugast“ er: Þegar Þorbergur mælir Há- konarhöllina í Bergen með al- inmálinu, sem er markað á kamarsvegg Steins afa hans, en finnur innra með sér ekkert Islendingseðli, því að „allur heimurinn er ættland mitt“. Einna leiðinlegast er bréfið til Kristínar Guðmundsdóttur. Að vísu verður því ekki neitað, að eitthvað í því sé satt, og höf. muni hafa dreymt hitt. Annars hefði það aldrei komið á pappírinn. En staðreyndim- ar sjálfar hafa svo íítið á Þor- berg fengið, að hver óbreyttur lesandi getur ekki annað fund- ið, en að þær séu nauða ómerki- legar og lítillar náttúru. Og draumamir verða líka leiðin- legir, af því að svo bersýnilegt er, að þeir eiga að vera hlað- búnir í skaut niður hinni snjöllustu fyndni, en sú fyndni er í reyndinni ekkert annað en kálfsfætur. 0g þeir kálfs- fætur skarta alls eklci eins og á strák, sem kemur heitur úr smalaferð eða fjallgöngu. Ekki verður Þorbergi um l?að neitað, að hann kann óvenjumikið um meðferð ís- lenzku stíls og máls. En það er alltaf leiðinlegt til lengdar, að verið sé að smjatta á stílnum. Og enn leiðinlegra verður það, þegar ekki er hægt að finna virðingu á stílnum og málinu sjálfu bak við. Við getum haft yndi af spémynd af lélegum stíl, eins og t. d. Appendix aft- ‘ an við eitt stofnalogiukorn, 1 jafnvel þó að við skiljum ekki 1 allt. En \dð viljum jafnframt r óvirðingunni á því óvirðulega finna virðingu fyrir því, sem ! virðulegt er í raun og veru — og það ekki sízt, þegar málið ; okkar á í hlut. Og að lokum: Það er vel l hægt að láta sér þykja vænt , um virðingarleysi Þorbergs fyrir öllu því, sem óvirðulegt j er. Það er jafnvel auðvelt og j — a. m. k. sem snöggvast — j nærri ljúft, að láta hann leiða I sig til þess að þykja það l óvirðulegt, sem er virðulegt í raun og veru. En það er ekki ljúft, nema meðan við getum i trúað honum til að sjá eitt- ; hvað verulega virðulegt bak j við allt þetta óvirðulega. Og j það getum við ekki lengi. Það , verður leiðinlegt til lengdaf að sjá hann fletta sjálfan sig og aðra þessum spélegu klæðum j til þess eins að sýna ennþá spé- ' legri nekt, því að við skiljum ^ þá, að það ér bara ófyndin lygi, að sú afklæðing hans j séu „meditationir hins bless- aða“. — Þess vegna verður mörgu því, er hann virðist þó vanda til eins og t. d. „Hinn miskunnsami stjórnmálamað- ur“ bezt lýst með þessum orð- um H. H.: „Máttlaust sífrandi soðvatn í sömu holuna datt“. En þó að Þorbergur þoli ekki, að hann sé mældur með því alinmáli, sem andleg stór- j menni eiga að mælast með, er þó enganveginn rétt, að við mælum hann með kvarðanum afa hans. Og við getum sann- arlega hugsað til þess með hlýleik, að hann er einn af oss. A. tugt, en konan er víst nokkuð yngri. Þrátt fyrir allt, sem þau hafa afkastað, liggur ekki nærri að þau séu orðin mjög afturfaraleg eða þreytuleg. Það lítur út fyrir, að þau muni enn geta afkastað miklu verki. Og eldri bömin hafa þegar sýnt, að þau hafa erft dugnað og vinnuþrek foreldra sinna og hagsýni. Gunnlaugsstaðaheimilið vakti eftirtekt mína og mér var mik- ið ánægjuefni að kynnast því. Virtist mér þar óvanalega mikil dagsverk unnin og samheldni fjölskyldunnar með afbrigðum góð. Það sem þar hefir. gert verið síðari árin • finnst mér vera meir en þess vert að því sé á lofti haldið og það kann- ske miklu betur og rækilegar, en hér er kostur á. Finnur Johnaon.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.