Nýja dagblaðið - 04.01.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 04.01.1934, Blaðsíða 4
4 N Ý J A D A O B L A Ð I Ð Ann&LL. Bæjarstjóinarkosningin á Akur- eyri. Kjörstjórnin á Akureyri hei- ir nú úrskurðar bæjarstjórnarlist- ana 6 að tölu. par aí eru D-Iisti og F-listi nýlega komnir iram. Fimm iyrstu sæti á D-lista, jsaö er iista Framsóknarmanna, eru Fannig skipuð: Brynleiíur 'l'obias- son k.ennari, Vilhjálmur pór kaup- iélagsstjóri, Jóhannes Jónasson yíiríiskimatsmaður, Snorri Sig- iússon skóiastjóri og Óiaíur Magn- ússon sundkennari. F’imm eístu menn á F-lista, hað er listi iðn- aðarmanna, eru þessir: Jóhann F’rimann skólastjóri, Steíán Árna- son kaupm,, Steindór Jóhannes- son járnsmiður, Jóhann Steinsson trésmiður og Friðjón Axíjörð múr- ari. — F.Ú. Jólatrésskemmtunm, sem F'ram- sóknarílokkskonur gengust íyrir í Oddíellowhúsinu í iyrrakvöld var hin íjölsóttasta og bezta. Um 150 börn tóku þátt í henni. Að jóla- trésskemmtuninni lokinni og langt íram eitir nóttu skemmti íuliorðna íólkið sér við dans. Var húsið allan timann þéttskipað og menn í hátiðaskapi og kom saman um, að þessi skemmtun heíði verið sérstaklega ánægjuleg. — Konur þær, sem gengust íyrir samkomu þessari og sáu um undirbúning hennar eiga skilið beztu þakkir íyrir. Ágóði varð aí skemmtun- inni og verður honum varið til næsta jólatrésíagnaðar. Ótrúlegt en satt. Á jóladaginn var heimilisíólkið i Æðey i ísa- fjarðardjúpi á gangi um eyna, og týndi þá fífil og sóleyjar í túninu. Hefir slikt aldrei komið fyrir, svo elztu nienn muni. Frá Siglufirði. Söngskemmtun var haldin á gamlárskvöld i kirkj- unni. 54 manna blandaður kór söng lög úr kantötum Björgvins Guðmundssonar og Bjarna þor- steinssonar, og „Nú árið er liðið" og fleiri lög. Ásgeir Bjarnason raf- fræðingur lék undir á orgel og frú Elsa Blöndal á píanó. Karla- kórinn „Visir“ söng 5 lög — Dan- íel Þorkelsson og Sigurður Birkis sungu einsöng. Söngstjóri beggja kóranna er pormóður Eyjólfsson konsúll. Aðgangur var ókeypis og sóttu skemmtunina um 900 manns. Frakkar og pjóðverjar. Franski sendiherrann í Berlín, sem nýlega var kvaddur heim til þess að ræða við frönsku stjórnina um afvopn- unarmálin og þýzkaland, kom aft- ur til Berlinar í fyrradag. Fisksalan. Júpiter seldi aíla sinn i Grimsby, 3000 körfur, fyrir 1623 sterlingspund og Walpole seidi í llull 1300 kröfur fynr 911 ster- lingspund. Frá höíninni. British Puck fór iiéðan i íyrrakvöld til útlanda. þórólíur og Skallagrímur fóru á veiðar í fyrrakvöld. Garðar úr Hafnarfirði kom í gær til þess að taka ís og fór strax á veiðar. Væntanlegt skip með kol til gas- stöóvarinnar i nótt. Bylgjalengd útvarpsstöðvarinn- ar breytist 15. janúar og v.erður þá 1639 m. Breyting þessi mun kosta um 50 þús. kr. Egill Skallagrimsson kom frá Austíjörðum í fyrrakvöld. Fór hann þangað til þess að taka síld og fara með hana út, en fékk ekk- ert, þvi veiðin er nú sáralitil. Skipafréttir. Gullfoss, Goðafoss, Brúarfoss og Lagarfoss eru í Kaupmannahöfn. Dettifoss er , Hamborg. Selfoss er í Reykjavik. þeir átu farminn. það þótti miklum tíðendum sæta í Dan- mörku á annan í nýári, að vél- skip, Martha, sem lagði úr höfn í Kaupmannahöfn, áleiðis til Stege 16. desember og hefir verið horfið síðan, kom fram á Stege- höfn 2. jan. öllum að óvörum, og voru allir heilir innanborðs. Var skipið löngu talið af. Skipstjórinn skýrir svo frá, að vélarbilun og óhagstæð veður, hafi valdið þess- um rniklu töfum. Hafi þeir hrak- izt viðsvegar á seglum, og með herkjum forðað sér frá strandi, en engin loftskeytatæki haft, eða neitt annað, til að gera vart við sig; en það hafi orðið þeim til lifs, að farmur skipsins hafi að nokkru leyti verið matvæli, og sé hann viðbúinn að svara til saka um það, þótt þeim verði ekki öllum skilað samkvæmt farmskirteinum. Vígbúnaður í Indlandi. Stjórnin í Indlandi ráðgerir að víggirða höfuðborgina í Kasmír, og mynda þar nýja heranðarmiðstöð við iandamærin, til þess að verjast innrásum, Aðalástæðan til þess- arar ráðstöfunar er sú, að menn eru hræddir um að óeirðir kunni að brjótast út í Turkestan, því að ástandið er þar mjög órólegt eftir dauða Dalai Lama i Tibet. — FÚ. Lögreglan í Barcelona letni í gær i bardaga við fimm ræningja, sem réðust á banka. Féll einn af ræningjunum í viðureigninni, en annar særðist, og átti lögreglan íullt í fangi með að vemda hann fyrir mannfjölda, sem vildi taka hann af án dóms og laga. — F.Ú. Hersýning fór fram í Poona i Indlandi á nýársdag með mjög einkennilegum hætti. þrjú þúsund hermenn hlýddu, sem einn maður lyrirskipunum, sem geínar voru í fjarska, en bárust til þeirra um hijómlúðra, sem komið hafði vei’- ið fyrir með vissu millibili, og tengdir voru með neðanjarðar- leiðslum. þótti þessi sýning á her- æfingum mjög merkileg skemmt- un. — F.Ú. Kvikmyndahús brennur. Eldur kom upp í gær i kvikmyndahúsi í útjaðri Parísar á meðan á bama- sýningu stóð. Eldurinn var i sýn- ingarklefanum, og tókst fljótlega að slökkva hann, en þó greip svo mikill ótti börnin, að þau tróðust að útgöngunum og meiddust mörg þeirra, og 3 þeirra hættulega. Svartaþoka var um mest allt England á nýársdag, og hlutust mörg slys af, bæði á strætum úti, og vegum. Verðir gengu með blys á undan strætisvögnum sumstaðar í London, til þess að vama árekstrum. Skipagöngur tepptust, og flugferðir féilu með öllu niður. Nýtt langilug. Frönsk sjóflugvél, sem lagði af stað kl. 1,12 siðdegis í fyrradag frá París, í þeim til- gangi að setja nýtt met í lang- flugií beina línu, var komin suður fyrir Carthage kl. 6 í fyrradag. Viðskiptasamningur milli þýzka- lands. og Póllands, sem var út- runninn um nýárið, var fram- lengdur í Warschau í fyrradag. Samningur þessi tryggir báðum þjóðunum ýmiskonar tollalækkan- ir. — F.Ú. Atvinnuleysl í Frakklandi. í iðn- aðarhéruðunum í norður-Frakk- landi hefir atvinunleysi aukizt all- mikið síðustu mánuðina. Sérílagi hafa hafa vefarar og smiðir orðið hart úti. í borginni Roubai jókst þannig tala atvinnuleysingja á þremur mánðuum úr 8300 i 13000. í annari smáborg- bættust 360 at- vinnuleysingjar i hópinn í desem- ber. — F.Ú. Mynd ai Dimitroff. í fyrrakvöld bar það við i Sofia í Búlgariu, að komið var inn með stóra mynd af Dimitroff, þar sem verið var að halda dansleik, og varð það til þess að lögreglan skipaði þeim sem á dansleiknum voru að slita skemmtaninni. þátttakendur ó- hlýðnuðust þessari skipun, og varð úr alvarlegur bardagi. Beið einn maður bana, þrír særðust, en 260 voru settir í fangelsi næturlangt. Voraldarsamkoma í Varðarhús- inu í kvöld kl. 8x/á. Ugnmennafélagið Trausti undir Eyjafjöllum hélt nýlega samkomu vegna Slysavarnafélags íslands. Ágóðinn var 90 kr. Sama íélag liélt iþróttanámskeið i desember. Leilur Auðunsson og Ólafur Sveinsson kenndu glimur og íim- leika. Nemendur voru 14. Að kvöldi 29. des. hélt kvennfélagið Eining jóiatréssamkomu fyrir börn að Stórólfshvoli. F'jöldi manns var viöstaddur og skemmt- un þótti góð. Sigfús kennari Sig- urösson las liúslestur, Björgvin Vigfússon sýsiumaður las upp, Sigurður Vigiússon sagði sögur. Að endingu var stiginn dans. FÚ. Minnapróíi í sjómannaíræöi i Vestmannaeyjum iuku 14 nemend- ur 30. des. s. 1. Hæstur var Guðni Ivarsson með 46 stig, lægsta einkunn var 37 stig. Kennari var Sigfús Scheving. Prófdómendur voru þórarinn Björnssori 1. stýri- maður á Óðni. Lúðvík Lúðviksson skipstjóii og Páll þorbjamarson kaupféiagsstjóri. Blóm liafa víða sprungið út i görðum í Vestmannaeyjum, t. d. blómstraði næturfjóla um jólin í garði liristjáns Liimets bæjarfó- geta, og þó liggur garður hans hátt. — F.Ú. Brezkar atvinnuleysisskýrslux sýna, að atvinnuleysi fer stöðugt minnkandi þar í landi, og voru atvinnuleysingjar 51.000 færri í desember en nóvember. Mest hafði at\inna aukizt i járn- og stáliðn- uðinum og i vefnaðarverkstæðum. þann 18. des. voru aðeins 1.830.000 manna taldir iðjulausir í öllum brezku eyjuum. — F.Ú. Állir vilja þeir friðl Japanar haía nú lýst því yíii, að þeir vilji írið umfram allt, og sérstaklega við Rússa. Litvinoff hefir einnig talað um þessi mál og sagt, að ! Rússar vildu einnig friðinn fyrst j og fremst, en jafnframt átaldi hann aívopunarráðstefnuna og að- gerðir stórveldanna í þessum mál- um, og sagði að þær ynnu raun- verulega aö aultnum vigbúnaði en ekki afvopnun. þessvegna sagði hann, að Sovétsambandið væri neytt til þess að hafa góðan og öruggan her á landi, á sjó og í lofti, því að með því einu gæti það tryggt öryggi sitt gagnvart öðrum, þótt ekki vildi það á þá ráðast. — F.Ú. Sjóslys. Franskt strandferðaskip frá Bretagne, sam lagði af stað frá Cardiff i Wales 10. desember, er ekki enn komið fram, og er nú talið víst að það muni hafa íarizt með allri áhöfn. — F.Ú. 9 Ódýru 0 aug-lýsingarnar. Kaup og sala |J K J ARN ABRAUÐIN Hafið þið reynt hið holla og ljúffenga kjamabrauð frá Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík- ur? Tilkynningar „Verkstæðið Brýnsla* Hverfisgötu 4 (hús Garðars Gíslasonar) Brýnir öll eggjám. Sími 1987. Atvinna Vetrarmaður óskast í sveit til að hirða skepnur. Uppl. í Þingholtsstræti 8 kl. 5—6. Húsnæði Góð stofa til leigu í nýju húsi í austurbænum. A. v. á. Stórt kjallaraherbergi til leigu, hentugt fyrir verkstæði. Sigurvin Einarsson, Egilsg. 18. Sólríkt herbergi til leigu á Bergstaðastræti 82. Bílskúr til leigu. Uppl. í síma 1895. Tiipað-Fnndið Karlmannsúr fundið. A. v. á. Gylli og- hreinsa. Komið sem fyrst. JÓN DALMANNSSON. QU-LLSMIÐUR ÞINGHOLTSSTRÆTI ! Nýia dagblaðið birtir smáauglýsingar fyrir eina krónu. Þær þurfa að vera komnar á afgr. fyrir kl. 7 eða í Acta fyrir Id. 10 e. h. KAUUA HUSIÐ. skildi margt, sem áður hafði farið fram hjá honum. Það var ósköp eðlilegt að Cayley vildi vera laus við gesti sína strax og vitnaðist um það sem fyrir hafði komið, bæði vegna sín og þeirra. En hann hafði verið heldur ákafur að halda því að þeim og þegar miss Morris stakk upp á því, að fara heldur með lestinni seinna um kvöldið, hafði hann gefið henni það kurteislega en alveg ákveðið til kynna, að hún skyldi fara með sömu lestinni og hitt fólk- ið. Antony hafði fundizt eðlilegt, eins og á stóð, að hann léti sér þetta í léttu rúmi liggja, en það var öðru nær. Af þessu dró hann þá ályktun, að Cayley hefði verið ljós nauðsynin á því, að hún færi sína leið. I Hvers vegna? Miss Morris var ýtt á brott vegna þess að hún þekkti leynigöngin. Og þá voru leynigöngin á einhvern hátt í sam- bandi við leyndarmálið um dauða Roberts. Miss Norris hafði notað þau til þess að geta leikið draug á nógu áhrifamikinn hátt. Ef til vill hafði hún fundið ganginn sjálf. Ef til vill hafði Mark sagt henni frá honum í trúnaði, án þess að hann grun- aði, að hún myndi nota sér trúnað hans svona. Ef til vill hafði Cayley verið í ráðum með henni. Hvað sem öllu þessu leið, þá hafði hún fengið að vita um leynigöngin, þess vegna varð að senda hana hið bráðasta héðan. Hversvegna? Vegna þess, að ef hún beið og færi eitthvað að tala um málið, þá var hætt við að hún minntist á leynigöngin. En Cayley vildi ekki að um þau yrði talað, auðsjáanlega af því, að sjálf göngin eða auk heldur bara vitneskjan um að þau voru til, gat gefið bendingu í málinu. — Gaman hefði ég að vita hvort Mark felur sig þarna, hugsaði Antony. Og út frá þessu sofnaði hann. Mr Gillingham fer með rugl. Næsta morgun var Antony í bezta skapi, þegar hann kom niður að borða morgunverð. Cayley var þar fyrir. Hann leit upp frá bréfalestri sínum og kinkaði kolli. — Nokkuð að frétta um mr Ablett — um Mark? sagði Antony og fékk sér kaffi. — Nei. Lögreglufulltrúinn ætlar að slæða í vatn- inu seinna í dag. — Svo, j4. Er hér vatn í grenndinni? Það vott- aði fyrir brosi í svip Cayleys en það hvarf jafn- skjótt aftur. — Reyndar er það bara síki, en það er kallað „vatnið“. Firrur úr Mark, hugsaði Antony með sér. Upphátt sagði hann: Hvað halda menn að þar sé að finna? — Þeir halda að Mark ... hann þagnaði og ypti öxlum. — Hafi drekkt sér, þegar hann sá, að hann gat ekki komizt undan. Og vissi líka, að hann kom upp um sig, ef hann yfirleitt reyndi að flýja. — Já, ég hugsa það, sagði Cayley dræmt. — Ég hefði haldið, að hann myndi reyna að komast dálítið langt í burtu, úr því að hann hefði nóga peninga við hendina og svo hafði hann skamm- byssu. Gat hann ekki komizt til Lundúna áður en lögreglan fékk nokkuð að vita? — Honum hefði ef til vill getað heppnast það. Það var einmitt lest á ferð um þetta leyti. Menn hefðu kannske tekið eftir honum í Woodham, en ekki í Stanton, þar er hann ekki eins þekktur. Lögreglufulltrúinn hefir látið grennslast eftir þessu, en enginn hefir orðið var við hann. — Og það koma fljótlega einhverjir, sem þykjast hafa séð hann. Ennþá hefir enginn horfið svo að ekki hafi fjöldi fólks komið og svarið og sárt við lagt að hafa séð hann á ýmsum stöðum samtímis. Cayley brosti. — Já. Það er áreiðanlegt. En hvað sem því líður á nú að leita í síkinu. Hann bætti við þurrlega: Eftir því sem mér hefir skilizt af spæjarasögum þá eru lögreglufulltrúar alltaf vanir að slæða fyrst af öllu í einhverju síkinu. — Er það djúpt?

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.