Nýja dagblaðið - 05.01.1934, Side 1
2. ár.
ÍDAG
Sólaruppkoma kl. 10,21
Súiarlag kl. 2,45.
Flóð árd. kl. 8,00.
Flóð síðd. ki. 8,20.
Veðurspá: Stmningskaldi á vest-
an. Nokkur snjóél.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 3
—10.
Söfn, skrifstofur o. fL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðminjasafnið ...... opið 1-3
Náttúrugripasafnið ..... opið 2-3
pjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
Alþýðubókasafnið......opið 10-10
Landsbankinn ......... opinn 10-3
Búnaðarbankinn ....... opinn 10-3
Útvegsbankinn ........ opinn 10-4
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg .................. opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsiminn ............. opinn 8-9
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél....Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband ísl. samvinnufélaga
opið kl. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafélag ísland .... opið 9-4
Sölusamb. ísl. fiskframieiðenda
opið 10-12 og 1-6
Stjórnarráðsskrifstofurnar
opnar 10-12 og 1-4
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Tryggingarstofnanir ríkisins
opnar kl. 10-12 og 1-5
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Baðhús Reykjavíkur .... opið 8-8
Lögregluvarðstofan
opin allan sólarhringinn.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ........... 3-6
Laugarnesspítali ...... kl. 12^4-2
Vífilstaðahælið 12V2-1Ú2 og 3i/2-4y2
Kleppur ................... kl. l-ö
Fæðingarheimilið, Eiríksgötu 37,
1-3 og 8-9
Sólheimar 3-5, sunnud. 11-12 og 3-5
Næturvörður í Reykjavikur apó-
teki og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4, sími 2234.
Samgöngur og póstferðir:
Suðurland frá Borgarnesi.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Cavalcade, kl. 9.
Gamla Bíó: Monsieur Baby, kl. 9.
Hæstiréttur .............. kl. 10
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15, Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. 19,00
Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,20
Tilkynningar. 19,25 Óákveðið. 20,00
Kiukkusláttur. Fréttir. 20,30 Kvöld-
vaka.
Lesið um vatnsveitumólið á 3. síðul
Reykjavík, föstudaginn 5. janúar 1934.
3. blað.
Kjallaraíbúðirnar í Reykjavíkurbæ
stofna heilsufari almennings í voða.
Ræða Foosewelts
á þingi Bandaríkja-
manna í gær.
London kl. 17 4/1 F.Ú.
í einni slíkri íbúð voru fimm liraust böru orð-
in berklaveik eftir þrjú ár. »• Nóg og gott liús-
uæði í bæuum, segir forseti bæjarstjórnarinnar.
Húsvilltar
ijölskyldur.
I sumar átti tíðindamaður
blaðsins tal við Guðm. Ásbjörns-
son forseti bæjarstjórnar um
húsnæðismái. Var það um sam-
vinnubyggingarnar, sem Guð-
mundur hefir verið ákaflega
mótfallinn, og tafið eftir getu
að komizt gætu í framkvæmd.
Fullyrti þá bæjarfulltrúinn, að
nóg væri hér af íbúðum í
Reykjavík. og enginn þyrfti að
kvarta um húsnæðisleysi, það
væri því algjör óþarfi að
byggja hér á næstunni.
Guðmundur Ásbjörnsson er
efsti maður á lista íhalds-
manna og má hiklaust gera
ráð fyrir að hann tali í þess-
um málum fyrir munn íhalds-
flokksins.
Það sýndi sig þó 1. október
að það var ekki rétt hjá Guð-
mundi, að húsnæði væri nóg,
því þá voru fjölda margar fjöl-
skyldur húsvilltar. Nokkrar af
þessum fjölskyldum fengu
fyrst húsnæði, þegar kom langt
fram á vetur og sú síðasta
fyrir nokkrum dögum. Allar
hafa þá þessar húsvilltu fjöl-
skyldur fengið húsnæði, en
hvemig er það?
Rannsókn heil-
brigðisneíndar.
fcj-' " .53®
grjóti eða snjó inn um glugg-
ana, ef þeir eru nokkra stund
opnir.
Þannig er ástandið í fjölda-
mörgum íbúðum í bænum, og
flestum þeim íbúðum, sem
heilbrigðisstjómin hefir látið
skoða og dæmt óhæfar eða lítt
hæfar. Þrátt fyrir þetta er
ennþá búið í þessum íbúðum,
sökum húsnæðisskorts.
10 dæmi af víg-
sföðvum berkla-
veikinnar.
Hér fer á eftir umsögn heil-
brigðisnefndar um 10 íbúðir,
tekin upp úr skýrsiu nefndar-
innar.
1. íbúð:
Grafin í jörð 55 cm., hæð
glugga frá jörð 55 cm., sólar-
laus, rök, mjög léleg.
2. íbúð:
Bær, vasklaus, vatnslaus,
rottur, óhæf til íbúðar.
3. íbúð:
Grafin í jörð 80 cm., hæð
glugga frá jörð 20 cm., rök,
köld, léleg, rottur.
4. íbúð:
Grafin í jörð 1 m., gluggar
við jörð, rök, afleit, rottur.
Heilbrigðisnefndin hefir dæmt
39 kjallaraíbúðir, sem nú er þó
búið í, ófærar til íbúðar, og
álíka margar lítt nothæfar. Tíð-
indam. bl. hefir í gær skoð-
að nokkrar af þessum íbúðum.
Flestar eru þær mikið niður-
grafnar, rakar og dimmar. Sól-
ar nýtur næstum aldrei og
flestar eru íbúðirnar fullar af i
rottum. Það má nærri geta
hvernig loftið er og líðan fólks-
ins í þessum kjallaraholum.
Þó kosta þær um og yfir 50
kr. á mánuði.
I einni af þessum íbúðum —
á Bjargarstígnum — býr t. d.
gömul ekltja með tvær litlar
telpur, sem hún er að basla við
að vinna fyrir. Hún hefir tvær
litlar herbergisholur, þar sem
aldrei sér sólina’, lítið óvistlegt
eldhús með öðrum og með hálf-
ónýtri eldavél, hálfa svolitla
geymslu, sem bæði er fyrir kol
og mat. Á nóttunni er lítill
friður fyrir rottum. Á daginn
og kvöldin skemmta óknytta-
ki’akkar sér við að kasta for,
5. íbúð:
Grafin í jörð 70 cm., hæð
glugga frá jörð 40 cm., sólar-
láus, mjög léleg.
6. íbúðs
j öll í jörð, eitt herbergi og
i eldhús, óhæf.
7. íbúð:
Öll í jörð, rök, mjög léleg.
8. íbúð:
öll í jörð, sólarlaus, rök, lé-
leg, ónýtt gólf.
9. íbúð:
öll í jörð og meira til, rök,
mjög léleg, rottur.
10. íbúð:
Grafin í jörð 70 cm., hæð
glugga frá jörð, 40 cm., sólar-
laus, mjög léleg.
Það skal tekið fram, að orð-
ið „sólarlaus" er hér sett þar
sem í skýrsluformi nefndarinn-
ar stendur: „Eru gluggar í
rétta átt? Nei“. En í raun og
veru eru fleiri af íbúðunum
sólarlausar eins og gefur að
skilja, þegar um niðurgrafna
kjallara er að ræða.
Nógu góðar
samt.
Þetta eru nógu góðar íbúðir
fyrir fátæka fólkið, finnst
íhaldsmönnunum. Það er nóg
og gott húsnæði til í bænum,
segja þeir líka. Þeim er kapps-
mál að ekki verði byggð ódýr
hús, til þess að leigan lækki
ekki og tekjur þeirra sjálfra
rýrni ekki.
Kjallaraholur þessar, sem
fátækasta fólkið býr í, eru vit-
anlega stórlega heilsuspillandi.
Vel þekktur læknir hér í bæn-
um hefir t. d. sagt frá einni
9 manna fjölskyldu, sem fyrir
fáum árum flutti í kjallara-
íbúð inni á Grettisgötu. Þegar
fólkið flutti þar inn, voru allir
heilbrigðir. 3 árum síðar eru 5
af bömunum orðin tæringar-
veik.
En er þeim stjómmálaflokki |
trúandi til að fara með völd, !
sem berst móti því að byggð
séu í bænum hús, sem séu
ódýr og boðlegir mannabústað-
ir, einungis til þess, að þessar
stórhættulegu kjallaraíbúðir
leigist út til fátæklinganna?
Roosewelt, Bandaríkjafor-
j seti, hélt aðra ræðu sína í dag
fyrir þingi Bandaríkjanna, og
ræddi að þ'essu sinni um fjár-
' málaástand landsins' í sam-
bandi við fjárlögin. Iiann
komst svo að orði, að viðreisn-
arstarfið mundi um næstu 2
ár, valda áætluðum tekjuhalla,
’ er næmi 9 þús. milj. dollara.
Þó að þetta yki ríkisskuldirn-
ar fram yfir það, sem nokkra
sinni hefði verið áður, kvaðst
hann vona, að sér yrði auðið
að jafna tekjuhallann á fjár-
lögunum, áður en viðreisnar-
starfseminni væri lokið og eft-
ir það mundi hann af alefli
stefna að sífelldri minnkun rík-
isskuldanna, því næst fór for-
setinn fram á mikla fjárupp-
hæð, til þess að halda viðreisn-
arstarfinu áfram, og skýrði
jafnframt frá því, að í þessari
i upphæð væri einnig fólgið það
I fé, sem ætlað væri til atvinnu-
leysishjálpar. Þá benti hann á,
að fjárlög þau, er hann hafði
lagt fyrir þingið, táknuðu
raunverulega 684 milj. dollara
lækkun á reglulegum og venju-
legum útgjöldum, miðað við
síðustu fjárlög, sem fyrri
stjóm hefði lagt fram.
Nýlega var sagt frá því að
Woodin fjármálaráðh. Roose-
velts hefði sagt af sér, og fleiri
stuðningsmenn forsetans hafa
látið bugast af andróðri þeim,
sem stefna Roosevelt hefir
sætt. En sjálfur er hann
ótrauður og hinn vígreifasti.
Utanrikisráðherra Breta
og Mussolini ræðast yið.
Sir John Simon. Benito Mussolini.
London kl. 17 4/1 F.Ú. !
Opinber tilkynning, sem gef- j
in var út í morgun, um við-
ræður þeirra Sir John Simon I
og Mussolini í Róm, hermir að
rækilega hafi verið fjallað um
afvopnunarmálin, á fundi
þeirra í gær. Það er gert ráð
fyrir, að á fundi þeirra í dag,
muni Mussolini ætla að skýra
fyrir Sir John Simon skoðanir
sínar á því, hvernig farið skuli
að því að endurskipuleggja
þj óðabandalagið.
Svo sem kunnugt er orðið,
hefir Mussolini ekki farið dult
Framh. á 4. síðu.