Nýja dagblaðið - 05.01.1934, Page 4
4
|T>
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Kisniigistiilsloli
er á Langaveg ÍO. —
landsins, er sú, að Framsókn-
arflokkurinn ætlar sér að lyfta
allri þjóðinni, gera þjóðina
frjálsa, ekki aðeins pólitískt,
heldur líka fjárhagslega og
menningarlega.
íhaldið vill að Reykjavík sé
stærsta sjóþorp landsins, þar
sem allir eru í vandræðum,
og sjómennirnir, sem framleiða
fyrir bæinn, allra verst settir.
Framsóknarflokkurinn ætlar að
gera Reykjavík að fallegum
bæ og höfuðstað, þar sem
öllum getur liðið vel, einkum
þeim, sem mest reyna á sig
og mestu hætta við að vinna
fyrir bæinn. J. J.
Kvikinyudirnar
og börnin.
Framh. af 2. síðu.
inu mest um það bil, er börnin
hafa náð 16—17 ára aldri.
6. Af því að þess þótti eng-
inn kostur að rannsaka áhrif
kvikmyndanna á heilbrigði
barna, var sá kostur tekinn að
rannsaka áhrifin, sem þær
hefðu á svefn þeirra. Það var
gert með því að telja hreifing-
ar barnanna í svefni (með
svefnmæli: hypnograf). Þær
mælingar sýndu, að hreifingar
drengjanna voru 26% meiri í
svefni eftir að þeir höfðu horft
á sýningar en endranær, en
stúlknanna aðeins 14% meiri.
Áhrifin eru svipuð og af því
að færa háttatímann frá kl. 9
til kl. 12.
7. Um það, hvernig hægt
væri að gera börnin kvikmynd-
unum vaxin, svo að þær verði
þeim ekki hefndargjöf, þau
valdi þeim, að þær mali þau
ekki í mjöl og duft, hafa ver-
ið ýmsar skoðanir. Tvær koma
þó helzt til greina.
a. Almenn fræðsla um kvik-
myndir.
b. Nákvæmt val kvikmynda
eftir þroska barnanna og við
hæfi þeirra á allan hátt.
Hið fyrra er í raun réttri
miðað við það, að kvikmynd-
irnar séu bamseðlinu fjand-
samlegar, en bamið geti þó ef
til vill lært að taka þær í þjón-
ustu sína líkt og Sæmundur
kölska.
Hið síðara er hinsvegar við
það miðað, að kvikmyndimar
megi taka í þjónustu uppeldis-
ins, og það virðist því meiri
ástæða til þess, sem þær eru
mikilvirkari í þeim efnum.
En ef það er rétt af því
opinbera að taka skólana í sín-
ar hendur, þá er miklu meiri
ástæða til þess um kvikmynd-
imar. A.
Anuáll.
Guðspekilélagið. Reykjavíkur- N
stúkan, íundur í kvöld kl. 8^2- —
Efni: Grundvöllur dulfræða.
Glúnuíélagið Ármann. íþrótta-
æfingar hefjast aftur mánudag-
inn 8. þ. m.
Skipaíréttir. Gullfoss fer frá
Kaupmannahöfn í dag áleiðis til
Leitli. Goðafoss, Brúarfoss og Lag-
arfoss eru í Kaupmannahöfn. Sel-
foss er í Reykjavik. Dettifoss er í
Hamborg.
Frá höfninni. Kári kom frá Eng-
landi í gœr. Enskur togari kom
til ’þess að taka lóðs. Tvö fisk-
tökuskip komu og eitt fór héðan
fullfermt. Max Pemperton kom af
veiðum með 1100 körfur og fór til
Englands.
Cavalcade heitir myndin, sem
sýnd hefir verið nú síðan á 2. í
jólum í Nýja Bió. Er það mjög
merkileg mynd, er sýnir sögu
Englendinga i fáum dráttum frá
1900 til 1933. Tilgangurinn með
myndinni virðist að nokkru leyti
vera að sýna þau áhrif striðsins
á þjóðirnar, hver harmkvæli ,og
sorg það bakar öllum almenningi.
En einstaklingarnir virðast þó
ekkert læra og ekki þjóðin i heild.
Myndin er mjög áhrifarík og
merkileg.
Byggingarkostnaður í Reykja-
vík. Eftir útreikningi húsameist-
ara ríkisins hefir byggingarkostn-
aður dálítið lækkað síðastiiðið ár.
Byggingarkostnaður er miðaður
við steinsteypuhús, að stærð 8,5X
7,2, liyggt í Reykjavík. í ár er
kostnaðurinn áætlaður 18.614 kr.,
en í fyrra var hann áætlaður
19.597. Leiðslur í húsið eru ekki
reiknaðar með. Byggingarkostnað-
urinn er því um 5% lægri en í
fyrra. Lækkunin er mest á timbri
og sementi.
MinnlngarsjóSur Knud Rasmus-
sen. Stauning forsætisráðherra
hefir tilkynnt að í ráði sé að skipa
nefnd til þess að undirbúa sjóð-
stofnun til minningar um Knud
Rasmussen. Er tilætlunin að safna
fé í hann í Danmörku, íslandi og
Færeyjum og meðal Dana, sem
búsettir eru í öðrum löndum.
Eldur mikill kom upp í París á
miðvikud. var, á svæði því, þar
sem nýlendusýningin mikla var
haldin, en þar eru nú dýragarðar.
í eldinum fórust 5 fílar. — FÚ.
Danski þjóðbankinn hefir birt
skýrslu sína fyrir síðastliðið ár. í
skýrslunni segir, að viðskiptalífið
á árinu hafi batnað talsvert mik-
ið, og afkoma yfirleitt betri en
áður. Velta bankans var mun
meiri en áður, og seðlar í umferð
21. milj. kr. meiri en árinu áður.
Til kreppuráðstafana hefir bank-
inn alls lánað 14 milj. kr. Að lok-
nm hvetur bankastjómin kaup-
sýslumenn og hlutafélög til áfram-
haldandi gætni í ráðstöfunum um
fjármál. — F.Ú.
fliKHllÉllÍÉS
Símar 3 8 8 4 og 2 3 5 3.
0 Ódýru 0
, auglýsingarnar.
Kaup og 8ala
„Komi ríki þitt“ fæst hjá
öllum bóksölum. Kostar aðeins
4 kr. bundin, en 3 kr. óbundin.
Sir John Simon og
Mussoliai.
Framh. af 1. síðu.
með þá skoðun sína, að Þjóða-
bandalagið væri óhæft í nú-
verandi mynd sinni. Endur-
skipulagning sú, sem rætt er
um í skeytinu, mun helzt fara
í þá átt, að stórveldin ráði
öllu, sem þau vilja í Þjóða-
bandalaginu. En áhrif hinna
smærri ríkja þverri að sama
skapi. Verða þau þá að gerast
skjólstæðingar stærri ríkjanna
um framgang þeirra mála, sem
nú eru útkljáð á fundum
Þjóðabandalagsins með jafn-
gildum atkvæðum fulltrúanna,
hvort sem þeir mæta fyrir
hönd smárrar eða stórrar
þjóðar.
Nazístalistinn. Á honum eru:
Helgi S. Jónsson verzlunarmaður,
Magnús Guðmundsson skipasmið-
ur, Stefán Bjamason verzlunar-
maður, Benedikt Jakobsson leik-
fimiskennari, Gísli Bjarnason full-
trúi og Jón Aðils símamaður.
Hirðir blaðið ekki að telja fleiri
af lista þessum, enda er áfram-
haldið álíka merkiiegt og byrjun-
in.
í næstu hefti Dvalar skrifa ýms-
ir af merkustu mönnum bæjarins
um unga fólkið í Reykjavík. —
Ritið flytur smásögur, sagnafróð-
ieik, skrítlur og margt skemmti-
legt. það verður stór og eiguleg
bók, um 800 bls. yfir árið. Ættu
menn, sem unna góðum bókum
að halda því saman. — Nýir
kaupendur að Nýja dagblaðinu fá
Dvöl frá byrjun í kaupbæti, með-
an upplagið endist.
Danska lögreglan er þessa dag-
ana að rannsaka mál hjónabands-
braskara eins, sem á skömmum
tíma hefir tekið saman við, eða
lofað eiginorði, 10 konum, flestum
í Kaupmannahöfn, en skilið síðan
við þær, eftir að hafa haft út úr
þeim stórfé. Hann komst í sam-
band við konumar með hjóna-
bandsauglýsingum blaðanna. FÚ.
Stærsti togari heimsins hljóp af
stokkunum á danskri skipasmíða-
stöð á miðvikudaginn var. Hann
er smiðaður fyrir franskt útgerð-
arfélag, og í honum er dieselvél
frá Burmeister & Wain. — FÚ.
í norska verzlunarflotanum eru
nú um áramótin 3975 skip, alls
hátt á 5. milj. reg. tonn. Rúm-
lega 80 ný skip hafa bætzt í flot-
ann a árinu, en fleiri hafa þó
gengið úr honum, svo að raun-
verulega hefir flotinn rýrnað um
48 skip. — FÚ.
Furðuflugvélin í Noregi. Ennþá
sjá menn furðuflugvélina hingað
og þangað i Noregi, síðast á nýárs-
dag segjast margir hafa séð ljós
hennar.
FlóSið í Kalifomíu. Menn vita
nú með vissu um 55 menn, sem
farizt hafa í flóöunum í Kalifom-
íu, en eru hræddir um að alls
muni hafa farizt um 100 manns.
íhaldið
sparar.
Þegar íhaldið lét af stjóm,
voru 70 menn í landinu, nálega
allt íhaldsmenn, sem höfðu 10
þús. kr. eða meira í árslaun.
íhaldið borgar Knúti Zimsen
10 þús. kr. í eftirlaun fyrir
dygga þjónustu. Ihaldið lætur
Richard Thors fá 24 þús. kr.
laun fyrir að vinna í fisksölu-
samlaginu, Ólaf Proppé önnur
24 þús. fyrir hið sama og
Kristján Einarsson þriðju 24
þús. kr. fyrir að vera með hin-
um tveimur.
Ihaldið er ódýrt á vinnu
sinna manna.Þrír menn fá 72
þús. kr. fyrir að selja fisk fá-
tækra sjómanna á íslandi.
Reykvíkíngar!
Þið, sem eigið frændur og
vini úti um sveitir og kaup-
tún landsins, sendið þeim Nýja
dagblaðið. Fátt verður vinum
ykkar í fjarlægð jafnkærkomið
í skammdeginu.
Saumum drengjafö!
oe teipckápur
vel og ódýrt, einnig dömukáp-
ur eftir nýjustu tízku.
Höfum fjölbreytt úrval af
unglingafötum og káputauum.
6EFJUN
Laugaveg 10. Sími 2838.
Ódýrastar og beztar vörur á'
Vesturgötu 16. Sími 3749.
VERZLUNIN BRÚARFOSS
Hillupappír, mislitan og
hvítan selur Kaupfélag Reykja-
víkur. Sími 1245.
Hús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Aðalstræti 9 B
opin kl. 11—;12 og 5—7. Sími
4180 og 3518 (heima). Helgi
Sveinsson.
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Sími 1245.
Húsna»ði
Góð stofa til leigu í nýju
húsi í austurbænum. A. v. á.
Stórt kjallaraherbergi til
leigu, hentugt fyrir verkstæði.
Sigurvin Einarsson, Egilsg. 18.
Sólríkt herbergi til leigu á
Bergstaðastræti 82.
Bílskúr til leigu. Uppl. í
síma 1895.
Kennsla
ÖKUKENNSLA.
Steingr. Gunnarsson Bergst.
stræti 65, heima. Sími 3973
eða á Litlu bílastöðinni. Sími
1380.
[ Tilkynningar 1
Fr fæ Munið að sími Herðubreiðar íkirkjuveg 7 er 4565. Þar st allt í matinn.
Kjötbúð Reykjavíkur, Vesturgötu 16. Sími 4769.
Kennum að taka mál og
sníða kjóla. Einnig að flosa,
stoppa og bródera á algengar
saumavélar. Ólína og Björg
Hellusund 3 (uppi).
Sleðaferðir barna.
Á eftirtöldum svæðum og götum er heimilt að renna sér
á sleðum:
AUSTURBÆR:
1. Amarhóll.
2. Frakkastígur frá Hverfisgötu að Skúlagötu.
3. Barónsstígur frá Hverfisgötu að Skúlagötu.
4. Njálsgata frá Barónsstíg að Hringbraut.
5. Barónsstígur frá Egilsgötu að Flosagötu.
6. Bragagata frá Laugásvegi að Sóleyjargötu.
7. Tún Frímúrara (áður Thor Jensen) við Laufásveg og Skot-
húsveg.
VESTURBÆR:
1. Biskupsstofutún.
2. Vesturgata frá Seljavegi að Hringbraut.
3. Vesturvallagata frá Holtsgötu að Sellandsstíg.
Bifreiðaumferð um ofangreinda götuhluta er jafnframt
bönnuð.
Lögreglustjórinn í Reykjavík 4. janúar 1934.
ff* SMptið íið [á sem angljsa í Njja dagbiaðinu.
Hermann Jónasson.