Nýja dagblaðið - 23.01.1934, Side 1
NYJA DA6BLAÐIÐ
2. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 23. janúar 1934.
19. blað
/ DAG
Sólamppkoma kl. 9.40.
Sólarlag kJ. 3.40.
Flóð árdegis kl. 11.10.
Flóð siðdegis kl. 11.45.
Veðurspá: Vestan eða norðvestan
köldi. Dálítil snjóél. ICaldara.
I.jósatimi hjóla og bifreiða kl. 3,40
—9,35.
SKin, skrlÍBtotur o. IL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
pjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
pjóðminjasafnið ........ opið 1-3
Nóttúi'ugripasafnið .... opið 2-3
Alþýðubókasafnið..opið 10-10
Landsbankinn .......... opinn 10-3
Búnaðarbankinn ........ opinn 10-3
IJtvegsbankinn ........ opinn 10-4
l.'tbú Landsb., Klapparst. opið 2-7
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............. opinn 8-9
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12ogl-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samb. isl. samvinnufél. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafélagið...........opið 9-6
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Skrifst. bœjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12ogl-4
Tryggingarstofnanir ríkisins
opnar kl. 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Lögregl u varðstof an
opin allan sólarhringinn.
Baðhús Reykjavikur .... opið 8-8
Heimsóknartimi sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 3-4
l.andakotsspitttlinn ......... 3-5
Laugarnesspítaii ..... kl. 12%-2
Vifilstaðahœlið 12y2-l% og 3y2-4y2
Kleppur .................. kl. 1-5
Fæðingarheimilið, Eiríksgötu 37
kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar.........kl. 11-12 og 3-5
Næturvörður í Laugavegsapóteki
og Ingólfsapóteki.
Næturiæknir: Bergsveinn Ólafsson
Suðurg. 4, sími 3677.
Skemmtanir eg samkomnr:
Nýja Bíó: Verjandi hinna ákærðu
kl. 9.
Gamla Bíó: þrír skálkar kl. 9.
Fundur Framsóknarfél. Reykjavík-
ur i Sambandshúsinu kl. 8%.
Samgöngur og póstierðir:
Suðurlandspóstur kemur.
Lyra frá Bergen.
Dagskró útrarpatns:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregn-
ir. 19,20 Tilkynningnr. - Tónleik-
ar. 19,30 Erindi Iðnsambandsins:
Um steinsteypu. III (Steinn Stein-
sen verkfræðingur). 19,55 Auglýs-
ingar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir.
20,30 Erindi: Um leiklist (Harald-
ur Björnsson). 21,05 Tónleikár:
Cello-sóló (þórhaliur Árnason).
Grnmmófónn: Haydn: Symphonia
nr. 2 í D-dúr (London Symhoni-
an). — Danslög.
Úrslit bæjarstjórnarkosn-
inganna í Reykjavík
íhaldið nær 8 fulltrúum í bsejarstjórnina með
tilstyrk nazista, en fær þó ekki fullan helm-
ing greiddra atkvæða.
Bjarni Benediktss
Jakob Möller . .
Guðrún Jónasson
Guðm. Eiríksson
Jóhann Ólafsson
Sig. Jónsson . .
Pétur Halldórss.
Listi Framsóknarmanna, D-
listinn fékk 1015 gild atkvæði
og kom að einum manni.
Atkv.:
Herm. Jónasson .. hlaut 1004
Listi nazista, E-listinn, fékk
399 atkv. og kom engum að.
Atkvæðatalan sem fellur á
hvern fulltrúa er þannig fund-
in út, að fyrsti maður á lista
fær öll atkvæði listans, sé hann
hvergi strikaður út, eða færð-
ur til. 2. maður öll atkvæði
listans að frádregnum V30
allra þeirra atlcvæða er listinn
fær. 3. maður V30 atkvæða
minna en 2. maður o. s. frv.
Hvernig sætin skiftast á milli
listanna fer eftir hlutfalli
þannig, að 1. maður fær öll at-
kvæðin, 2. maður helming, 3.
maður þriðjung o. s. frv.
Allir efstu menn listanna
hafa eitthvað verið strikaðir
út, eða fluttir til.
Stefán Jóhann Stefánsson
hafa 2 strikað út.
Talning atkvæða var lokið ;
um ld. 11 á sunnudagsmorgun.
En þá var eftir að ganga frá j
vafaatkvæðum og reikna út at-
kvæðatölu hvers fulltrúa af
þeim, sem komust að. Var það
gert í gær.
Úrslit kosninganna urðu, sem
hér segir:
Listi Alþýðuflokksins, A-
listinn, fékk 4675 gild atkvæði
og kom að 5 mönnum:
Atkv.:
Stefán Jóh. Stef. . . hlaut 4673
Jón Á. Pétursson .. — 4516
Ólafur Friðriksson . — 4361
Guðm. R. Oddsson — 4205
Jóhanna Egilsd. . . — 4050
Listi kommúnista, B-listinn,
fékk 1147 gild atkvæði og kom
að einum manni: Atkv.:
Bjöm Björnsson . . hlaut 1144
Listi íhaldsmanna, C-listinn,
fékk 7043 gild atkvæði og kom
að 8 mönnum. Atkv.:
Guðm. Ásbjörnsson hlaut 7025
— 6786
— 6431
— 5409
— 6099
— 5864
— 5631
— 5469
Björn Bjarnason hafa 2
strikað út.
Guðmund Ásbjörnsson hafa
19 strikað út.
Hermann Jónasson hafa 10 ;
strikað út.
Margir voru strikaðir út eða
færðir til á C-lista, en Jakob
Möller þó langmest. Höfðu 141 j
strikað hann út eða fært hann
niður.
Atkvæði hafa skiftst milli I
listanna í hundraðshlutum, sem ;
hér segir:
A-listinn....... 32,57 %
B-listinn....... 7,99—
C-listinn . . . . 49,05—
D-listinn....... 7,07—
E-listinn....... 2,78—
Auðir voru 56 seðlar en 22
ógildir.
Á kjörskrá voru 17.841 en
14.335 kusu, þar af 527 utan
kjörstaðar, eða rúml. 80% af
öllum er atkvæðisrétt höfðu.
Samkvæmt gjörðabókum und-
irkjörstjómanna höfðu 14.335
kosið, en við talningu koma
fram 14.357 atkvæði eða 22
atkvæðum fleira en samkv.
gjörðabókunum. Umboðsmaður
D-listans óskaði eftir að rann-
sakað yrði hvemig á þessum 22
atkvæðum stæði, en kjör-
stjómin neitaði því. Umboðs-
maðurinn óskaði >á eftir að fá
athugasemd þessa bókaða, en
því neitaði kjörstjórnin einnig.
Gleymt mál fundið
Nýlega telur ítalskur mað-
ur, Francesco Pironti, sig hafa
leyst þraut, sem reyndir mál-
fræðingar hafa fengizt við í
tvær aldir, en það er að þýða
rúnir, sem skrifaðar eru á et-
rúsku. Þetta mál, sem nú er
gleymt fyrir löngu, var talað
af íbúunum þar sem Róm er
nú og þar í nánd, mörgum öld-
um fyrir Krist. Vegna þess, að
mikið er til af rúnum og rit-
verkum ýmsum á máli þessu,
hefir það orðið málfræðingum
hin mesta dægradvöl. Eru
þekkt um 8500 slík verk og má
gera ráð fyrir, að af því mætti
fá mikinn fróðleik um for-
tíðina, ef hægt væri að lesa
málið. Fram til þessa tíma
telja málfræðingar sig hafa
fundið um 300 orð úr máli
þessu, sem þekkzt hafa á
skyldleika við orð í öðrum
málum. En nú telur Pironti sig
hafa samið tæmandi orðlista
og fundið nægilega málfræði
til þess að lesa megi texta á
etrúsku.
Mussolini hefir tjáð Pironti
þakkir sínar fyrir þetta afrek.
En svo hlálega vill til, að hann
gerði sama við mann, sem
þóttist hafa leyst sömu raun
fyrir nokkrum árum og gaf
honum auk þess 30 þús. lírur
sem verðlaun. Þá reyndust vera
svik á- ferðum. Og yfirleitt
eru mólfræðingar, sem við
þessa. hluti hafa fdngizt, ekki
sterktrúaðir á þessa uppgötvun
Vígbúnadnr Japana
í OTanclmriu.
Berlín kl. 11.45 22/1. FÚ.
Ritari kommúnistaflokksins í
Austur-Síberíu, Lavrentin, hélt
ræðu í gær í Khabarovsk, og
sagði frá undirbúningi Japana
undir stríð í Austur-Asíu. 1
Manchuríu hefðu þeir byggt 50
flugvelli, auk þess sem þeir
hefðu lagt 2000 kilometra af
vegum til hergagnaflutninga
og- 1000 kilometra af járn-
brautarteinum. Hann kvað
Rússa nú vera að undirbúa
aukningu á flutningamöguleik-
um sínum í Austur-Siberíu,
því að úrslit væntanlegs stríðs
væru að mestu komin undir
því, að flutningar tækjust vel.
Mesta erfiðleikann kvað hann
þó vera þann, að Trans-Siberíu
járnbrautin lægi aðeins á ein-
földum teinum, og væri því í
ráði, að koma upp herbúðum
þar eystra, og verksmiðjum
til framleiðslu hergagna þar á
staðnum.
Gj aldeyrisf r um-
varp Roosevelts.
London kl. 19.50 21/1. FÚ.
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þingsins samþykkti í gær frv.
Uoosevelts um gjaldeyrismálin,
með 360 atkvæðum gegn 40.
Republikar gevðu nokkrar
breytingartillögur við frum-
varpið, en þær voru skyndilega
felldai*. Við atkvæðagreiðsluna
slriftust flokkarnir nokkuð;
tveir Demokratar — þ. e.
flokksmenn Roosevelts —
greiddu atkvæði á móti frum-
varpinu, en 68 Republikanar
með því.
Frumvarpið fer nú til öld-
ungadeildarinnar, og er gert
ráð fyrir, að hún geri nokkrar
breytingar á því, einkanlega að
því leyti er snertir ákvæði
þess um silfurgjaldeyri.
Þessi skýrsla ej- mjög at-
hyglisverð. Af henni má sjá,
að í raun og veru er það að-
eins tímaspursmál hvenær ó-
friður brýzt út þarna eysti'a.
Þótt Japanar í-eyndar neiti því,
að þeir hafi nokkuð slíkt í
huga, þá er þeim ekki trúað,
og sízríaf þeim er til þekkja.
Landskjálftarnir
í Indlandi.
London kl. 17 22/1. Ftí.
Tvær skýrslur hafa verið
birtar í dag af stjómarskrif-
stofu Indlandsmála í London
um afleiðingar jarðskjálftanna
15. jan. Eru skýrslur þessar
byggðai- á skýrslum stjórnar-
valdanna í Bihar og Orissa.
Jafnvel nú, viku eftir jarð-
skjálftana, hafa ekki náðst
enn fullkomnar skýrslur, held-
ur eru þær byggðar á lausleg-
um áætlunum og fregnum frá
ýmsum stöðum. Eins og nú
standa sakir er vitað um 2000
manns er farizt hafa, samt
sem áður er búist við, að miklu
fleiri hafi farist. Það er nokk-
ui’nveginn fullvitað, að aðeins
2 Evrópumenn hafa farist,
hvorttveggja konur, en 4, tvær
konur og tveir karlar, særst,
og er allt þetta fólk brezkir
þegnar. I skýrslunum er lögð
áherzla á, að þegar í stað sé
þörf á, að veita þeim, sem
heimilislausir hafa orðið, húsa-
skjól og hlý klæði, enda sé
þetta kaldasti tími árs. önnur
þörf, sem brýna nauðsyn beri
til að bæta úr hið skjótasta,
sé hreinsun vatnsbóla, í sveita-
héröðum, þar sem vatnsbirgð-
ír séu litlar. Héraðsstjórnin
hefir tekið að séi', að láta boi’a
50 brunna, þar sem vatns-
þöi'fin e r mest. I einni borg
sluppu allir fangar úr fangelsi
borgarinnar. Mjög er óttast, að
konur þær, sem blæju bex-a,
hafi yfir höfuð ekki komist af.
Miklar skemmdir hafa oi’ðið á
uppskeru, og það er einnig ótt-
azt, að mikill hluti þeirrar
uppskeru, sem ekki hefir beðið
tjón af jai’ðskjálftunum, rnuni
konxa að engum notum, vegna
þess, að meii’i hlutinn, af myll-
um í héraðinu er óstarfhæf-
ui', eða þá, að vegir að myllun-
um eru óhæfir til allrar um-
l'erðar. Rauði kross héi'aðsins
gei’ii’ sitt ítrasta til þess, að
sjá hinum bágstöddu mönnum
fyrir nothæfum klæðum og
sængurfatnaði.