Nýja dagblaðið - 15.02.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 15.02.1934, Blaðsíða 1
NVJA DAGBIAÐIÐ 2* ár. Reykjavík, fimmtudaginn 15. febrúar 1934. 39. blað 1500 fallnir í Austurríki. Herréttir stiórnarinnar ern teknir til starfa. — Fyrsti líilátsdómnrinn var kveðinn npp í gærdag og- aftakan fór tafarlanst fram. Fréttariiarar eriendra blaða lýsa binu hroðaiega blóðbaði. í DAG Sól^ruppkoma kJ. 8.28. Sólarlag kl. 4.57. Flóð árdegis kl. 6.20. Flóð siðdegis ki. 6.40. Veðurspá: Suðvestan eða vestan- átt með snörpum hryðjum og' éijum. Ljósatimi lijóla og biireiða kl. 5.20 til kl. 8.05. Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 Jfjóðskjalasafnið ....... opið 1-4 Pjóðminjasafnið ......... opið 1-3 Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3 AlJjýðubókasafnið .. . .opið 10-10 Landsbankinn ......... opinn 10-3 Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3 Utvegsbanl’inn opinn 10—12 og 1—4 Utbú Landsb., Klapparst. opið 2-7 Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7VÍ Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan ...... opin 10-5 Landssiminn ............ opinn 8-9 Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6 Búnaðaríélagið .. opið 10-12 og 1-4 Fiskiíél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5 Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6 Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda opið 10—12 og 1—6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafélagið .......... opið 9-6 Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4 Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Lögregluvarðst. opin allan sólarhr. Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 Bæjarstjórnarfundur í Kaupþings- salnum kl. 5. Heimsóknartími sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspítalinn ........ kl. 3-5 Laugarnesspítali .... kl kl. 12%-2 Vífilstaðahælið 12^-1% og 3%-4% Kleppur .................. kl. 1-5 Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9 Næturvörður í Reykjavíkurapóteki og lyfjabúðinni Iðunn. Næturlæknir: Jón Norland Lauga- veg 17. Sími 4348. Skemmtanlr og samkomur: Nýja Bíó: Við sem vinnum eld- hússtörfin, kl. 9. Gamla Bíó: Fimm kátar stelpur, dönsk tal- og söngvamynd kl. 9. Oddfellowhúsið: Dansskemmtun Kvennad. Slysavarnafél. kl. 9. Varðarhúsið: Skemmtun kl. 9. Samgöngur og póstferðlr: Suðurland til Borgarness. ísland til Færeyja, Leith og Kbh. Dagskrá útvarpslns: Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15.00 Miðdegisútvarp. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19.20 Lesin dagskrá næstu viku. Tilkynningar. 19.30 Enskukennsla. 19.55 Auglýsingar. 20.00 Klukku- sláttur. Fréttir. 20.30 Erindi: pjóð- leg myndlist (Guðmundur Einars- son). 21.00 Tónleikar: a. Útvarps- liljómsveitin. b. Einsöngur (Pétur Á. Jónsson). c. Danslög. London kl. 21,15 13/2. FÚ. Fregnirnar frá Austurríki eru aðalfréttir þessa kvölds. Ástancfyið er mjög alvarlegt, sem meðal annars sést á því, að mjög er nú orðið erfitt að fá fregnir um það, sem raunveru- lega er að gerast í Vín. Frettaritari BJaðsins Daily Telegraph, mr. Geddes, sendir blaði sínu svohljóðandi fregn- skeyti í kvöld. „Ég hefi verið vottur allra þessara hryllilegu atburða, sem verið hafa að gerast í Vín und- anfarna þrjá daga. Orustunum hél áfram alla nóttina og mér er óhætt að segja, að það var barist því grimmara, sem nær dró morgninum. Eftir að her- lið stjórnarinnar hafði hrakið jafnaðarmenn úr stöðvum sín- um í miðliluta borgarinnar, bjuggust þeir til varnar í út- hverfum borgarinnar í hinum nýju verkamannabústöðum. Kl. 9 í morgun var svo komið, að aðalvígi jafnaðarmanna voru hinir geysimiklu verkamanna- bústaðir -—- Karl Marx-húsin svonefndu, sem eru um hálfa en^ka mílu á lengd. Mér tókst að komast alla leið þangað, en var hvað eftir annað stöðvaður af lögreglu og hermönnum og leitað á mér að vopnum. Þeg- ar ég kom, voru fjölmennar her sveitir að síga að, búnar hríð- skotabyssum og sprengjum og fóru þær með mikilli varúð og leituðu skjóls hvar sem þess var auðið, því öðru hvoru féllu skot út úr húsunum. Svo hófst ógurleg skothríð. öll glugga tjöld voru dregin niður í hús- unum, en hersveitimar skutu látlaust á glugga, og einkum þar sem eitthvað kvikt sýndist inni fyrir. Þessu hélt áfram þangað til íbúarnir gáfust upp. Alstaðar þar sem bardag- ar hafa staðið, er hroðalegt um að litast. Svo að segja hver einasta rúða í ráðhúsinu er brotin og kúlur og sprengju- brot eru um allt eins og hrá- viði. 1 allan dag hefir mátt sjá fanga, sem .reknir eru eins og fénaður í fangelsin og ganga með uppréttum höndum milli hermannaraða. Enn er barist á ýmsum stöð- um í Vín. En endirinn er auð- sær. Stjómin mun bera sigur úr býtum. En jafnaðarmenn verjast eins og víkingar, hörfa úr einu vígi þegar allar varnir eru þrotnar, til þess að taka upp baráttuna í því næsta, al- Táðnir í að selja líf sitt eins dýrt eins og vera má“. London kl. 17 14/2. FÚ. Samkvæmt fréttum, sem bor- izt hafa frá Vínarborg, eftir fréttariturum erlendra blaða, linnir ekki bardögunum í Aust- urríki enn. Aftur á móti hefir stjórnin gefið út yfirlýsingu í dag og tilkynnt, að hún hafi hvarvetna náð yfirhöndinni. Danskar útvarpsfregnir segja mannfall til þessa hafa verið 1500. Jafnaðarmenn hafa verið hraktir með skothríð úr bæki- stöðvum sínum í Florisdorf, en þeir hafa tekið sér bækistöðv- ar annarsstaðar, og þegar síð- ast fréttist, var stjórnarliðið búið að hefja skothríð á þær stcðvar, og stóð bardagi yfir. Skothríðin heyrðist um alla borgina. Fyrirskipanir hafa verið gefnar út af stjórninni, um að uppleyst skuli ýms félög jafn- aðarmanna og eru tilnefnd 34. Sérstakir herréttir hafa verið settir á fót, og voru leiðtogar jafnaðarmanna teknir fyrir þá í dag. Einn líflátsdómur var kveðinn upp og honum fram- fylgt, en ekki er þess getið hver hafi þannig verið tekinn af lífi. Vínarbúar, sem áttui fé sitt í aðal sparibanka borgarinnar, er verið hafði undir stjórn bæj- arstjórnarinnar, þyrptust þang- að í dag til þess að taka út innieignir sínar, þar sem þeir óttuðust að stjórnin myndi gera allt fé bankans upptækt, vegna þess að honum hafði verið stjórnað af jafnaðar- mönnum. Ályktanir írá tulltrúaráði Fram- BÓkuarmanna í Norður- Þingeyjarsýslu. I. Fundur fulltrúaráðs og félagsstjórnar Framsólmarfé- lags Norðursýslu, haldinn að Garði í Núpasveit 29. janúar 1934, lýsir yfir því áliti sínu, að hann telur brottvikningu al- þingismannanna Hannesar Jónssonar og Jóns Jónssonar úr Framsóknarfloldcnum í des. s. 1. hafa verið óumflýjanlega vegna starfsemi flokksins í framtíðinni. II. Fundurinn ákveður að halda fast við stefnu og starfs- reglur þær, er samþykktar voru á síðasta flokksþingi Framsóknarmanna og lýsir fullri andstöðu við hinn ný- stofnaða Bændaflokk. I tilefni af því, felur fundurinn deildar- stjórum sínum að safna með- limum í félagið. III. Fundurinn lýsir ánægju sinni á íramkomu þingmanns- ins og viðhorfi til stefnumála Framsóknarflokksins og felst algerlega á þann samstarfs- grundvöll sem ráðgerður var af Framsóknar- og Jafnaðar- mönnum í sambandi við sam- komulagstilraunir um stjórnar- myndun á s. 1. Alþingi. Allar tillögumar voru samþ. með samhljóða atkv. Fundarstjóri var Pétur Sig- geirsson á Oddsstöðum, en fundarskrifari Sigurður Bjöms- son á Grjótnesi. Framsóknarfélag Norður- sýslu nær yfir Norður-Þing- eyjasýslu vestan öxarfjarðar- heiðar, þ. e. Presthólahrepp, öxarfjarðarhrepp, Fjallahrepp og Kelduneshrepp. Leon Blum foringi franskra jafn- aðarmanna heimtar þingrof og nýjar kosn- ingar. London kl. 17 14/2. FÚ. Franski jafnaðarmannaflokk- urinn ákvað á fundi í dag að styðja ekki Doumergue-stjórn- ina á þingi á morgun. Leon Blum var falið að tilkynna Doumergue þetta og sömuleið- is að krefjast þess, að hann léti tafarlaust fara fram al- mennar lcosningar. Símar Nýja dagblaSsins: Ritstjóri: 4373. Fréttaritari: 2353. Afgr. og augl.: 2323. Útbrelðsla kyhsjúkdóma. Nýja sjúkrahúsið á Landsspítalalóðinni. Kynsjúkdómar hafa á síðari árum töluvert aukizt hér á landi. Auk þess hefir syfilis, sem es skæðastur allra kyn- sjúkdóma, orðið hér landlægur síðan 1932. Hinar tíðu sam- göngur við útlönd eiga sinn þátt í þessu. Það helzta, sem gert hefir verið til þess að vinna gegn veikinni, er að veita sjúkling- um ókeypis læluiishjálp. All- ströng lög um það, hvernig þeir er veikjast skuli haga sér hafa verið gefin út. Skulu sjúklingar tafarlaust vitja læknis og hlýða hans fyrir- skipunum. Jafnvel hefir komið fyrir að menn hafi verið dæmd- ir eftir lögum þessum í fang- elsi. í mörgum löndum eru lög um varnir gegn kynsjúkdómum mjög strong, og hefir sýnt sig að það hefir verið eitt bezta ráðið til þess að útrýma þeim, Allmikil hjálp hefir hér ver- ið að því að sjúklingar hafa ! fengið ókeypis læknishjálp. Á síðastl. ári komu t. d. um 300 | sjúklingar til Hannesar Guð- i mundssonar læknis. En sökum vöntunar á sjúkrahúsi fyrir ! þá, er sýkzt hafa af kynsjúk- dómum, hefir verið mjög erfitt að hefta útbreiðslu veikinnar. Nú er verið að ljúka við sjúkrahús, sem ætlað er ein- 1 göngu fyrir þessa sjúklinga. . Mun það geta tekið á móti 15 sjúklingum. Rúm verða þar | fyrir 10 manns, sem ætlast er j til að fái ókeypis sjúkrahús- ; vist. Slíkt er nauðsynlegt, því illt er það að skipa t. d. fólki, : sem enga möguleilva hefir til þess að greiða fyrir sig, að ( dvelja á svona sjúkrahúsi, og | láta það fara á sveitina. j Vonandi verður hið nýja sjúkrahús að miklu gagni í bar- I áttunni gegn kynsjúkdómun- | um.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.