Nýja dagblaðið - 25.02.1934, Qupperneq 1
í DAG
Sálaruppkoma kl. 7. 54.
Sólarlag kl. 5.30.
Flóð árdegis kl. 2.55.
Flóð síðdegis kl. 3.20.
Veðurspá: Minnkandi norðan-
átt og bjartviðri.
Söin, skrifstofur o. tl.:
Alþýðubókasafnið ....... opið 4-10
þjóðminjasafnið ........ opið 1-3
Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3
Listasafn Einars Jónssonar kl. 1—3
Pósthúsið: BréfapóstsL opin 10-11
Landssiminn ....... opinn kl. 10-8
Messur:
Dómkirkjan kl. 11 séra Fr. llall-
grímsson og kl. 5 sr. Bjarni Jóns-
son (altarisganga). Fríkirkjan kl.
5 sr. Arni Sigurðsson.
Heimsóknartimi sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........ kl. 2-4
Landakotsspitalinn ....... kl. 3-5
Laugarnesspítali .... kl kl. 12%-2
Vífilstaðahœlið Í^Yz-lVz og 3%-4%
Kleppur ................. kl. 1-5
Fœðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-0
Sólheimar ............... kl. 3-5
Næturvörður i Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Bergsveinn Ólafsson
Suðurg. 4, sími 3677.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Vermlendingar kl. 5
og 7. Konungur Zigaunanna kl.9.
Gamla Bíó: Fimm kátar stelpur
kl. 4^2 og 63/4- Aðalforstjórinn,
þýzk mynd kl. 9.
K.-R.-húsið: Dansleikur Hvíta-
bandsins kl. 9%.
Samgöngur og póstferðir:
Dettifoss í hraðferð vestur og norð-
ur kl. 6.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Enskukennsla. 11,00
Messa iDómkirkjunni (sr. Friðrik
Hallgrímsson). 15,00 Miðdegisút-
varp. 15,30 Erindi: Frá Indlandi,
III. (írú Kristín Matthiasson). 18,45
Barnatími (Aðalsteinn Sigmunds-
son). 19,10 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. 19,25 Grammófóntónleikar:
Tschaikowski: Lög úr óp. Eugen
Onegin o. fl. 19,50 Tónleikar. —
Auglýsingar. 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Erindi: Trú og vísindi
(sr. Benjamín Kristjánsson). 21,00
Grammófóntónleikar: Tschaikow
ski: Fiðlu-konsert í D-dúr (Mischa
Elman og Symphoniu-orkestrið í
London, John Barbirolli). Danslög
til kl. 24.
Á mánudag:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.
Tilkynningar. 19,25 Erindi Stór-
stúkunnar: Áfengi og lýðmenntun
(Ólafur Friðriksson). 19,50 Tónleik-
ar. Auglýsingar. 20,00 Iílukku-
sláttur. Fréttir. 20,30 Frá útlönd-
um: Óíriðarspár — ófriðarhorfur
(sr. Sigurður Einarsson). 21,00 Tón-
leikar: a) Alþýðulög (Útvarps-
kvartettinn). b) Einsöngur (María
Markan), c) Grammófónn: Strav-
insky: Eldfuglinn.
Skálholt eftir Guðm. Kamban
sýnt i Konunglega leik-
kúsinu i Kaupmannahötn
16. þ. m. var leikrit G. Kam-
bans, Skálholt, sýnt í fyrsta
sinn í Konunglega leikhúsinu.
Gunnlaugur Blöndal listmálari
sendar úrklippur úr blöðum,
þar sem farið er mjög lofsam-
legum orðum um þessa frum-
sýningu Skálholts. Leiktjöldin
Johanncs Poulsen ig Else Skoabo, sem Brynjólfur biskup og Ragn-
heiður dóttir hass.
málaði leiktjöldin, en sjálfur
annaðist Kamban leikstjórnina.
v Því fer fjarri, að þetta' sé í
fyrsta sinn, sem leikrit Kamb-
ans eru sýnd í Konunglega leik-
fögur, „hrifu eins og íslenzk
fjallasýn" og meðferð leiksins
öll með fyrirmannlegri hóf-
semi, sem að allmiklu leyti er
þakkað forsögu Kambans.
Else Skouboc og Eyvind Johan-Svendsen, sem Ragnheiður og Daði.
húsinu í K.höfn. Fyrir 13 ár-
um var Konungsg'líma hans
sýnd þar til virðingar höfund-
inum meir en leikritsins vegna
sjálfs, að því sagt var um það.
En þá virðingu átti Kamban
að þakka leikritunum Hadda-
padda og Vér morðingjar, er
bæði höfðu fengið almannalof
í meðför Konunglega leikhúss-,
ins.
Nýja dagblaðinu hafa verið
Hinsvegar virðist leikritið
sjálft ekki hafa fengið jafn
góðan dóm.
Kamban hefir í viðtölum við
blaðamenn (þar á meðal við
Politiken) lagt áherzlu á, að
leikritið sé óháð skáldsögu
þeirri, er hann hefir samið um
þetta sama efni. Það hafi orð-
ið til í huga hans á undan sög-
unni, og þegar það fékk sitt
endanlega form, hafi það orðið
Ragnheiður vinnur eiðinn.
furðu líkt þeirri fyrstu hug-
mynd. Politiken dregur það að
vísu ekki mjög í efa, en segir
þó, að bannfæring hins „sögu-
lega drama“ hafi gerzt harðla
harðleikin við hann. Hann hafi
ekki getað látið staðar numið
á þeirri miklu örlagastundu,
þar sem leikslok ættu að vera,
heldur hafi sagan teygt hann
til að sýna það, er síðar varð.
En „að gera drama úr söguleg-
um þáttum með rénandi á-
hrifamagni, er jafn fráleitt og
að gera höggmynd úr reyk“.
Ennfremur er sagt, að höfund-
urinn leggi svo mikla áherzlu á
að sýna 17. aldar menninguna
íslenzku, að hann fórni fyrir
það því, að gera lýsingu sumra
höfuðpersónanna nógu glögg-
ar, t. d. Daða, hann sé eins og
„ski-ælþurr saltfiskur“.
En um þessa gagnrýni má
tvennt segja til viðbótar:
Fyrst það, að einmitt vegna
vinsælda Kambans í K.höfn,
eru þar gerðar til hans sér-
staklega miklar kröfur. Hitt
er það, að sjálfur greinarhöf-
undurinn gerir sína gagnrýni
talsvert ólíklega með því að
segja að lokum, að þrátt fyrir
alla galla og of margar sýning-
ar, hafi leiksýningin í heild
sinni verið áhrifamikil, höfund-
urinn verið kallaður fram með
mjög miklum fögnuði.
Kamban segir, að því hafi
hann samið þetta leikrit, að
hann hafi verið ástfanginn í
Ragnheiði Brynjólfsdóttur
„eins og allir ungir íslending-
ar“. Og hvað varðar um ágall-
ana, ef honum bara tekst að
gera leikhúsgestina ástfangna
með sér?
En um það fáum við íslend-
ingar vonandi að vita von
bráðar, því. að Kamban semur
öll sín skáldrit á íslenzku fyrst,
þó að hann kjósi sér ekki
fyrsta dóm yfir þeim frá lönd-
um sínum.
Kona drukknar
Samkvæmt símskeyti frá
fréttaritara Nýja dagblaSs-
ins á pórshöfn.
í gærmorgun var konu sakn-
að á Bakkafirði. Óttuðust
menn um hana og var leit haf-
in og’ loks fannst konan örend
í fjörunni skammt fyrir innan
þorpið. Er álitið að hér sé um
slys að ræða, og hafi konan
fallið í sjóinn. Ilún hét Guð-
rún Jónsdóttir.
Sjóðþurðin í Vest-
mannaeyjum nem~
ur 61 þús. kr.
Það hefir áður verið skýrt
frá því hér í blaðinu, að sjóð-
þurð hafi orðið í útibúi Út-
vegsbankans í Vestmannaeyj-
um.
Blaðið átti í gærkvöldi tal
við Jón Baldvinsson banka-
stjóra og fékk hjá honum eft-
irfarandi upplýsingar: Endur-
skoðuninni er nú lokið. Björn
Steffensen endurskoðandi hef-
ir framkvæmt endurskoðunina.
Sjóðþurðin nam 59 þús. króna,
ásamt 2000 kr., sem vantaði nú
í kassann.
Gjaldkeranum Sigurði
Snorrasyni, hefir með því að
falsa tölurnar í bókunum, tek-
izt að dylja þetta, svo endur-
skoðendurnir, sem árlega hafa
endurskoðað í bankanum, hafa
ekki tekið eftir þessu. Hefir
Sigurður byrjað á þesum fjár-
drætti og fölsunum 1924 og
haldið því áfram til síðustu
áramóta, að það komst upp um
hann.
Bankinn hefir nú tekið á-
kvörðun um að kæra gjaldker-
ann.
| Það má merkilegt heita, að
1 starfsmanni í litlu útibúi
1 skuíi takast um 10 ára bil, að
' stela svo tugum þúsunda skift-
ir og falsa bækur án þess að
i bankastjóm eða endurskoðend-
ur verði varir við það. — Og
þó er hér dýr bankaeftirlits-
! maður, kostaður af almannafé.
Tog'ari
strandar
Enskur togari, „Kingston
1 Peridol“ frá Hull, var í fyrri-
nótt að koma vestan úr Jökul-
djúpi. Hafði hann lítið fiskað
þar og ætlaði til Vestmanna-
eyja og fiska þar í 2 daga áð-
ur en hann færi heim. En í
fyrrinótt kl. 3% strandaði
hann við Hafnarberg í Höfn-
um skammt fyrir sunnan Kal-
mannstjörn. Dimmviðri var og
Framh. á 4. síðu.