Nýja dagblaðið - 07.03.1934, Qupperneq 2
2
N Ý J A
DAOBLAÐIB
W.%%%%%%%%%%%%%%%%%^
I Klæðaverksmiðjan GEFJUN |
Aknreyri
framleiðir beztu innlendu fataefni, sem völ er á. A saumastofu Gefjun-
ar í Reykjavík er saumaður allskonar karlmannafatnaður og frakkar
eftir nýjustu tízku. Drengjaföt og telpukápur eru afgreiddar með mjög
stuttum fyrirvara. Avallt fyrirliggjandi allar stærðir af drengjafötum
og pokabuxum.
Gefjunar band og lopar er unnið úr valinni fyrsta flokks norð-
lenzkri vorull. Allar tegundir fyrirliggjandi. Verðið hvergi lægra.
Hvítt band einfalt kr. 2,90 pr. 1/* kg.
— tvinnað — 3,75 n n n
Blágrátt band þrinnað — 3,90 n n n
— — tvinnað — 3,75 n n n
Rauðk. — — — 3,75 n n n
Grátt — þrinnað — 3,55 n . n n
Mórautt — — — 3,55 n n n
Sauðsv. — — — 3,55 n n n
Svart, litað band — — • 4,65 n n n
Mærfatalopar . . — 1,65 n n n
Sokkalopar . . . — 1,50 n n n
Sjóvettlingalopar . . — 1,25 n n n
Verzlið við Gefjuni, með því gerið þér beztu og hagkvæmustu inn-
kaupin um leið og þér styrkið innl. iðnað.
Tökum ull í skiptum fyrir vörur.
Vörur sendar gegn póstkröfu um land allt, beint frá verksmiðjunni eða
útsölunni í Reykjavík. G E F J U N , Laugaveg 10, sími 2838.
%%%%%%%%%%%%%%%%%%lk
Bókmenntir — iþróttir — listir
húsvistina sjálfir, og auk þess
hefir sjúkrahúsplássum fjölgað
að mun á seinni árum. Á síð-
asta ári hefir hann farið 345
þús. fram úr áætlun, en áætl-
unin var 650 þús. kr. Er það
nokkru hærra en 1932 og stapp-
ar nú nærri milljóninni. Vegna
kreppuráðstafana fyrir land-
búnaðinn, voru á árinu greidd-
ar samtals 264 þús. kr. og eru
þar í taldir vextir sem Búnað-
arbankinn á að greiða ríkis-
sjóði og nú renna í Kreppu-
lánasjóð.
Þessar greiðslur hafa farið
fram samkv. heimildum í 22.
gr.:
1. Til Jóns Guðraundss. Valhöll 1,110
2. Rannsókn 4 Flóaáveitunni . 9,765
3. Kjósarvegur.............7,283
4. Osta- og smjörbúastyrkur . 20,500
Kr. 38,648
Fjáraukalög,
þingsályklanip
og sérsfök lög
Eftir sérstökum lögum, fjár-
aukalögum og þingsályktunum
(24. gr.) hefir þetta verið
greitt:
Væntanl. fjáraukalög (þar af
vegna Sildareinkasölunnar
kr. 100,000)............ 147,868
Þingsályktanir:
Brúargerð á Múlakvisl . . . 45,000
Rannsókn á stofnun sútunar.
verksraiðju..............7,000
Nefndakostnaður o. fl. . . . 16,266
Sérstök lög:
L. 40’26 Barnaskólabyggingar 7,000
- 56’27 Þjóðleikhús .... 24,000
- 40’28 Búnaðarfélagið . . 13,000
- 53’30 Skurðgröfur . . . 21,000
- 27’31 Innflutn. sauðfjár . 18,500
- 45’31 Hafnarg. á Eyrarb. . 9,650
- 27’32 Brúargerð á Þverá . 17,200
- 82'33 Sogsvirkjun ''vegag.) 33,000
- 79’33 Vaxtalækkun bænda 45.000
Ýms lög............49,181
Kr. 463,665
Þá tel ég ekki ástæðu til að
sundurliða fleiri greiðslur og
vík að sjóðsyfirlitinu.
Sjóðsyfirlif
Til þess að finna greiðslu-
halla ársins, muninn á inn- og
útborgunum, verður að taka
eignahreyfingar með rekstrar-
tekjum og rekstrargjöldum.
Innborgað er á árinu (í þús.
króna):
Fjárl. 2. - 5. gr. Áætl. Innb.
Rekstrartekjur .... 13308
20. gr. I. Fyrningar. . II. Utdr. banka- 353 353
vaxtabréf . . III. Endurgr. fyr- 24 32
irframgreiðsl. IV. Endurgr. lán og andvirði 10 27
seldra eigna 20 80
Tekin lán Kr. 1542 15.345
og útborgað (í þús. kr.):
Áætlun: Útb.:
Rekstrarútgj. 13.083
20. gr. I. Afborganir lána 870 963
II. Eignaaukn. rik-
isstofnana 127 657
III. Bygging nýrra
vita 50 93
IV. Lögboðnar fyrir-
framgreiðslur 10 40
Aukinn íjóður 508
Kr. 1.5.345
Hjnn raunverulegi greiðsluhalli
verður þá:
tekin lán á árinu kr. 1.542.900.00
að frádreginni sjóðs-
aukning - 508 491.00
Greiðsluhalli kr. 1.034.409.00
eða um 1 millión krór.a sem svarar þvi
seui næst til afborgana eldri lána á
árinu.
Skuldir Fíkisins
Þessar breytingar hafa orðið
á skuldum ríkissjóðs á árinu
1933:
Ný lán:
J. Hjá Barklays-banka
ca. kr. 1.350.000.00
2. Lán til brúargerð-
ca. - 200.000.00
Samtals kr . 1.550.000.00
Þar frá dragast afborg-
af eldri lánum ca. - 1.000.000.00
Skuldaaukning kr 550.000.00
Alla skuldir rikisins
voru í árslok 1932 kr. 40.577.545.85
Við bætast á árinu
1933 550 000.00
Rtkisskuldir 1 árslok
1933 voru þá kr. 41.127.545.85
Það verður ekki annað sagt
en að afkoma ríkissjóðs á síð-
astliðnu ári er eftir öllum von-
um. Árið 1932 var tekjuhall-
inn IV2 milljón kr., 1933 er V4
milljón kr. tekj uafgangur og
greiðsluhalli litlu hærri en af-
borganir af eldri skuldum. Og
þó fylgja þessu árferði og óróa-
tímum margháttuð ný útgjöld.
En þó má betur ef duga skal,
því ekki er vel fyrr en skuldir
afborgast án þess það myndist
nýjar.
„KonvertePÍng“ enska
lánsins 1921
Það bætir og hag ríkis-
sjóðs og bankanna og allra,
sem héreftir þurfa að leita er-
lendra lána, að nú hefir tekizt
að breyta enska láninu frá
1921 í hagstætt horf. Stjómin j
hefir nýlega lokið við samn-
inga um að vextir af því láni !
Framh. á 3. síðu. i
Gód barnabók
Bömin frá Víðigerði,
eftir Gunnar M. Magn-
úss. — Ólafur P. Stef-
ánsson gaf út.
Gunnar M. Magnúss er þegar
kunnur, bæði sem ágætur .kenn
ari, svo og fyrir það, er hann
hefir ritað, sögur, smáljóð og
frásagnir ýmsar, fyrir böm.
Barnabókin „Brekkur“ er vin-
sæl. í tímaritið „Sunna“ fyrir
börn, sem Gunnar gaf út í fé-
lagi við Aðalstein Sigmundsson
kennara, hefir hann ritað ýmis-
legt. Sunna var mjög vinsæl
meðal barnanna og er leitt til
þess að vita að þeir félagar
hafa orðið að hætta útgáfu
hennar vegna fjárhagslegs
halla. Sunna var einhver merki-
legasta nýjung í þágu fræðslu
og uppeldis og væri vonandi, að
hún ætti eftir að koma, og það
sem fyrst, fram á sjónarsviðið
aftur.
Saga sú, sem hér um ræðir,
fjallar um Reykjavíkurdreng,
sem verður smali í sveit. Það
er sagt frá störfum, atvikum
og æfintýrum, sem kemur fram
í samtölum og frásögn barn-
anna sjálfra.
Langi-Stjáni hrífur hugi
sveitabamanna með sögum ur
sinni fjölbreytilegu lífsreynslu.
Kemur þar vel fram mis-
munurinn á umhverfinu —
áhrifum þess á ungar salir.
Stjáni kemur sér fljótt út úr
húsi, þykir grobbinn og óþjáll.
En úrræðagóður er hann, hygg-
inn og hugmikill.
Við að lesa samtöl hans og
Geira félaga hans lifi ég upp
mína bernsku og smaladaga —
ertni, ofurkapp, bráðlyndi og
sáttfýsi, að ógleymdum öllum
byggingum skýjaborga. Víði-
gerðisfólkið fer til Ameríku í
hamingjuleit, eins og fleiri í þá
daga. Góð er lýsingin á ferða-
laginu vestur um haf, svo og
erfiðleikunum og baslinu þar.
í allri frásögninni kemur
fram glöggur skilningur á
hugsun og máli drengja. Lát-
leysi og næmleiki prýða frá-
sögnina.. Hispursleysi og fjör
gera persónur, eins og Stjána
ljóslifandi og eðlilegai’. Það er
slegið á ýmsa strengi af svo
miklu látleysi og einfaldleik, án
alls predikunartóns og orð-
skrúðs, að .esandinn verður
gripinn af. T. d. þegar Geiri og
Gerða eru að kveðja bæinn
sinn. Geira litla er þungt um
að skilja við bernskustöðvarn-
ar. Hann tautar við sjálfan
sig: „Ég skal koma aftur“.
Munaðarlausi, greindi en
óprúttni drengurinn hann langi
Stjáni, verður manni svo kær
og þó kemur hann sannarlega
til dyrarina, eins og hann er
klæddur — að lesandinn kenn-
ir söknuðar, að vita ekki um af-
drif hans, — en frá þeim! verð-
ur skýrt í næstu bók — áfram-
haldi þessarar. Ég fagna þeirri
bók og það veit ég að nemend-
ur mínir gera líka. Fáar bækur
hafa vakið jafn almenna gleði
og áhuga hjá þeim, eins og
„Börnin í Víðigerði“. Mörgum,
sem rita fyrir böm, hættir um
of við að nota þunglamalegan
stíl — miðaðan við hugsun
og tilfinningar fullorðinna.
Stærsta glappaskot í bama-
bókmenntum og starfi skóla er
að hinum fullorðnu hættir við
að skoða barnið, sem smækk-
aða útgáfu af fullorðnum
manni og það ekki sérlega
skáldlegum né fjölhæfum.
Börnin, framtíð þjóðarinnar,
eiga skilyrðislausa kröfu til
þess, að slík starfsemi,
sem útgáfa barnabóka og nám
í skólum sé miðað við þroska,
hæfileika og þarfir einstakl-
inga.
Gunnar Magnúss hefir með
þessari bók sinni lagt merki-
legan skerf til ísl. bamabók-
mennta. Ilann er skáld, en
fyrst og fremst er hann kenn-
ari, sem skilur bömin — ritar
á þeirra máli og hugsar svo
þau skilja.
í desember 1933.
Aðalsteinn Eiríksson.
Byggingarsamvinnufélag1 Reykjavikur
Útboð
Þeir sem vilja gera tilboð í byggingarvörur
geta fengið vöruskrá og aðrar upplýsingar
hjáÞorláki Ófeigssyni, Laugav. 97. Sími 3997.
Happd ræ 11 i
Háskóla íslands
Nú eru aðeins 3 dagar þar
til sölu á 1. flokki er lokið.