Nýja dagblaðið - 04.04.1934, Page 2

Nýja dagblaðið - 04.04.1934, Page 2
a N Ý 3 A DACB&iABlB Nýtízku- mnnstur Skínandi góð verk. Beztu hlutir til tækifærisgjafa, eins og allir sjá. Bezt úrval hjá Jóni Sigmundssyni gullsmiði Laugavegi 8 Kúaeigendur! Höfum enn tíl, og blöndum dag- lega, fóðurblöndu sem i eru 12°|o af fyrsta flokks síldarmjöli Samband isL samvinnufélaga Brúðkaup Sigvards prins Myndin hér að ofan var tekin þegar þau Sigvard prins og Erica Patzek, kaupmannsdóttirin þýzka komu út af gift- ingarskrifstofunni í London, þar sem hjónavígslan fór fram. Gifting þessi vakti afarmikla athygli og þyrptist mikill mannfjöldi saman, er það vitnaðist hvað hér átti fram að fara, og varð Lundúna lögreglan að slá hring um brúðhjónin tíl að verja þau fyrir fjöldanum, sem þama var kominn til þess að árna þeim hamingju. K YNNIÐ ykkur hvern- ig þið getið notið arðs hjá Kaupfélagi Reykjavíkur til jafns við félagsmenn. Sími kaupfélagsstj. 1245. 8 kr. daglaun er hægt að hafa við saum og sölu á á- teiknuðum útsaum. Vinnusýn- ishorn send hvert sem er. Haandgerningshuset Aalborg, Danmark. Hljómsveit Reykjavíkur. Meyjaskefflman verður sýnd annað kvöld (fimmtudag) kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó (sími 3191) í dag kl. 4—7 og á morgun eftir kl. 1. Kynnið yður söngvana. Kaupið leikskrána. Nótnahefti með vinsæl- ustu lögunum fást í leik- húsinu, Hljóðfærahúsinu og hjá K. Viðar. Nýlegt, vandað og óskemmt harmonium óskast til kaups nú þegar. Verðtilboð og aðrar upplýs- ingar óskast gefnar í síma 2950 kl. 12—1 og 7—8 e. h. Ferðamenn ættu að skipta við Kaupfélag Reykjavíkur. — Þar hafa þeir tryggingu fyrir góðum og ódýr- um vörum. Bifreiðarsiys I morgun klukkan 8 rakst bifreiðin RE 898, bílstjóri Þor- steinn Jóhannesson, á síma- staur á hominu á Ásvallagötu og Blóinvallagötu. Frammi í bílnum við hliðina á bílstjóranum sat Björn lækn- ir Gunnlaugsson. Ekki voru aðrir í bílnum er áreksturinn varð. Við áreksturinn kom svo mikill hnykkur á bílinn, að Björn hrökk fram á rúðuna og lenti með höfuðið í gegnum glerið. Skarst hann allmikið á enninu, en þó ekki hættulega, að því er talið er. Var hann fluttur á sjúkrahús Hvíta- bandsins. En hann var á leið þangað til þess að aðstoða við holdskurð, er slysið vildi til. Honum leið vel eftir atvikum er blaðið hafði fréttir af líðan hans í gærkvöldi. Bókmenntir — iþróttir • Skautamót íÞrándheimi milli Norðmanna og Finna. Hér í blaðinu hefir öðru hvoru verið skýrt frá því helzta, sem frændþjóðir okkar, Norðurlandabúar, afreka á sviði íþróttanna. Eru það eink- um vetraríþróttirnar, sem um er rætt, enda eru þeir þar jafnan í broddi fylkingar. Það hlýtur að vera íþróttamönnum okkar hvatning, að heyra hverju snjallir menn fá áork- að, og aðstaðan til vetrarí- þrótta er víða svo góð hér á landi, að við ættum ekki að þurfa að vera eftirbátar ann- ara, ef viljinn væri góður. I ýmsum sveitum, einkum norð- anlands, hafa skautafélög ver- ið starfandi áratugum saman, þó að með mismunandi fjori hafi verið, og stundum á kapp- mótum hefir náðst svo góður hraði, að furðu gegnir, þegar þess er gætt, hve lítið menn- irnir hafa verið þjálfaðir og útbúnaður allur lélegur, saman- borið við það, sem tíðkast er- lendis. Á skautakappmóti í Þingeyjarsýslu í fyrra vetur, varð mestur hraði í 500 m hlaupi 46,5 sek. Geta menn borið það saman við«tölur þær, sem hér fara á eftir. 1 byrjun þessa mánaðar var skautakappmót í Þrándheimi milli Norðmanna og Finna. Var margt snjallra manna á kepp- endaskránni, t- d. Bemt Even- sen í sveit Norðmanna og Thunberg af hálfu Finna, sem báðir eru heimsfrægir hrað- hlauparar. Ýmsir fleiri kunnir menn voru meðal keppendanna, svo sem Ballangrud, Harald- sen, Pedersen (norskir), Ek- man og Wassenius (finnskir). Var því eftirvæntingin mikil og búizt við miklum afrekum. Nokkuð dró það þó úr ánægj- unni, að veðrið var ekki í listir bezta lagi og ísinn slæmur. Varð að bæta hann hér og þar með aðfluttum ísjökum, enda segja norsk blöð, að skauta- mennirnir hafi orðið að þræða beztu blettina, og því ekki náð eins góðum hraða og annars mundi hafa orðið. Úrslitin urðu sem hér segir: 500 metrar: Sek. 1. Haakow Pedersen (N) . 45 2. Bemt Evensen (N) . . 45,3 3. Thunberg (F).........45,5 4. Friman (F)...........45,6 5. Ballangrud (N) . . . . 45,7 6. Ekman (F)............46,5 7. Haraldsen (N)........46,5 8. Wassenius (F)........46,8 5000 metrar: m. 1. Ballangrud...........8,36 2. Evensen..............8,44 3. Ekman................8,45 4. Wasenius.............8,46 5. Haraldsen............8,50 6. Thunberg.............8,55 1500 metrar: m. 1. Haraldsem* . . .. « . • • 2,22 2. Ballangrud...........2,23 3. Ekman................2,24 4. Evensen..............2,24 5. Thunberg.............2,25 6. Wasenius.............2,26 3000 metrar: m. 1. Ballangrud...........5,07 2. Haraldsen............5,14 3. Ekman................5,14 4. Wasenius.............5,17 5. Evensen..............5,18 6. Paananen (F).........5,28 7. Bergholm.............5,30 8. Thunberg.............5,30 Norðmenn báru því glæsileg- an sigur af hólmi. Telja þeir Ballangrud nú snjallasta hrað- hlaupara heimsins. Evensen virðist vera í afturför, en vel má hann við það una, því að hann á glæsilega sigurbraut að baki sér. X. ^ounnacC aummsJMI ■X I I S-C _ .to g S o P bn U > v e.__ 53 2 o »1 “O c 2 +- í c 03 g. 3 2 03 rt .5 c S « 15 Æ «§■ 1-1 I § I - LITUN - HRRÐPRLÍfUN * -HRTTRPREÍJUN KENUK FRTF\ OQ JKINNVÖRU = HRt IN/ UN - Afgrtíðsla og hraðpressun Laugaveg 20 (inngangur frá lvlapparstíg). — Verksmiðjan Baldursgötu 20. Sent gegn póstkröfu um allt land. Sími 4263. — Pósthólf 92, Móttaka hjá Hirti Hjartarsyni, Bræðraborgarstíg 1. Sími 4256. — Afgreiðsla í Hafnarfirði í Stebbabúð, Linnetsstíg 1. — Sími 9291. Ef þér þurfið að láta gufuhreinsa, hraðpressa, lita eða kemisk-hreinsa fatnað yðar eða annað, þá getið þér verið fullviss ura, að þér fáið það hvergi betur né ódýrara gert en hjá okkur. — Munið, að sérstök biðstofa er fyrir þá, er bíða meðan föt þeirra eða hattur er gufuhreinsaður og pressaður.. Sendum. — Allskonar viðgerðir. — Sækjum. Auglýsifi í Nýia dagMaðínn! WV Anglýsingar í Nýja dagblaðinu auka viðskiftin.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.