Nýja dagblaðið - 08.04.1934, Qupperneq 4
4
I f J A
DAOBbABlB
Auuáll
Skipafréttir. Gullfoss er á leið
til Kaupmannahafnar frá Leith.
Goðafoss fór frá Hamborg í gœr á
leið til Hull. Brúarfoss kom frá út-
löndum í gœrmorgun. Dettifoss
fór frá Siglufirði í gœrmorgun á
leið til ísafjarðar. Lagarfoss er á
leið til Kaupm.hafnar frá Aust-
fjörðum. Selfoss kom til Antwerp-
en í fyrradag.
Síðasti dagur listsýningar Krist-
ins Péturssonar í Oddfeliowhúsinu
er i dag kl. 10—7 síðd.
Laugarvatnsskólanum var eins
og áður er getið, sagt upp 27.
marz. í skólanum voru í vetur
137 nemendur úr nálega öllum
sýslum landsins, þar af 44 í eldri
deild og luku 39 nemendur prófi
i þeirri deild en 82 i yngri deild,
af 93, sem þar voru. Auk þess
starfaði þar íþróttaskóli Björns
Jakobssonar. — Fœði kostaði kr.
1.15 á dag fyrir pilta, en kr. 0.90
fyrir stúlkur. Allur dvalarkostn-
aður yfir 6 mánaða tíma varð kr.
312.00 fyrir pilta en 267.00 fyrir
stúlkur. (Bœkur og fatnaður ekki
meðtalið). — 1. maí hefjast þar
tvö námskeið í garðyrkju- og
matreiðslu.
Dórnur var í gær kveðinn upp
yfir Magnúsi Jóhannssyni, þeim
er ók hifreið þeirri, er varð
drengnum að bana á Rauðarár-
stígnum. Magnús var dæmdur í
6 mánaða fangelsi og sviftur öku-
leyfinu æfilangt.
Af veiðum komu í gær togar-
arnir Imperialist með 127 föt lifr-
ar, Tryggvi gamli með 89 og
Hilmir með 64.
Fjórir bruggarar voru í gœr
dæmdir. Lægsta sekt var kr. 500,
en hæsta kr. 3000 og 3ja mánaða
iangelsi.
Bruggun. í fyrradag gerði Bjöm
Blöndal löggæzlumaður, ásamt
tveim lögregluþjónum, húsrann-
sókn á Hofi á Kjalamesi hjá bónd-
anum þar, Hjálmari þorsteins-
syni. Fundust þar í þvottahúsi
350 lítrar í gerjun og 11 flöskur
af fullbrugguðum spíritus. Bmgg-
unaráhöldin kvaðst Hjálmar hafa
iengið að láni. — Húsrannsókn
var og gerð i Dalsmynni á Kjalar-
nesi, en þar fannst ekkert brugg.
Farþegar með Brúaríossi frá út-
löndum i gær: Guðmundur Kam-
ban rithöfundur, August Nielsen,
Guðni Jónsson, Ludvig Storr og
frú, Jón Guðmundsson og frú,
þorsteinn Gíslason og frú, H. K.
Laxness, Sigurlaug Árnadóttir, Ás-
gerður Einársdóttir, Sigurður Guð-
mundsson, Bjami Bjamason, C.
Rydelsborg, H. Rydelsborg, Svava
Karlakór Reykjavíkur
Söng'stjóri Sigurdnr Þórðarson
Samsöngur
í Gamla Bíó sunnud. 8. april kl. 3 e. h.
Píanoundirspii: Ungfrú Anna Péturs.
Aðgöngumiðar á kr. 1,00, 2,50 og 3,00 seldir í Gamla
Bíó frá kl. 10 í dag.
Til sölu
ágætt íbúðarhús með nýtízku þægindum vestan við bæinn, ásamt
ræktuðu erfðafestulandi, görðum og stakkstæðum.
Upplýsingar gefur
Jónas H. Jónsson
Hafnarstræti 15 - Sími H327
Zoega, Arinbjörn Jónsson, Sæ-
mundur Sigurðsson, Stemgrímur
Oddsson, Guðleifur Guðmundsson,
Hjörtur Guðmundsson, Páll Jóns-
son, Ólafur Túbals, Stefán Dag-
finnsson, Lauritz Pedersen, Carl
Mnrtinsen, C. E. Courley, Jón Ól-
afsson, A. Aikman. M. W. Sand-
liack.
Mjólkurhreinsunargtöð. það hef-
ir komið til orða i Bæjarráði
Reykjavíkur, að bærinn léti reisa
mjólkurhreinsunarstöð fyrir þá
mjólk, sem seld er hér í bænum,
írá þeim, sein ekki geta hreinsað
mjólkina sjálfir, eða fengið hana
hreinsaða á annan liátt. í bænum
og i nágrenni hans er fjöldi fram-
leiðarida, sem liefir selt óhreins-
aða mjólk í bæinn, en verða nú að
hœtta því vegna mjólkurlaganna,
ef mjólkin verður ekki hreinsuð.
Sama gildir um þá bændur aust-
anfjalls, sem hingað til hafa selt
óhreinsaða mjólk i bæinn og ekki
hafa aðgang að hreinsunarstöð.
Úr Hafnarfirði 7/4. Hingað kom
af veiðum í dag Kópur með 60
föt lifrar og Surprise með 90 föt
og mótorskipin Minne og Nanna.
Nanna var með góðan afla. Einnig
kom til Hafnarfjarðar línuveiða-
skipið Örninn með 120 skp. Hann
er aflahæsta skip hér í Hafnar-
firði á þessari vertíð og hefir afl-
að samtals í 6 veiðiferðum 1110
skippund. Fyrsta aflann lagði
hann á land 20. febr. Saltskip. er
vœntanlegt hingað til Hafnar-
fjarðar um helgina. — FU.
E.s.Suðurland
fer til Breiðafjarðar næstk.
miðvikudag 11. þ. m. Viðkomu-
staðir samkv. ferðaáætlun.
Flutningi veitt móttaka á
miðvikudag 10. þ. m.
Tíminn
kemur út á morgun. Hann er
bezti boðberinn út um allt land
nú fyrir vorið.
Auglýsingum sé skilað í
Acta.
Frá Vopnafirði 7/4. Brúarfoss
tók hér á Vopnafirði nýlega 5000
kioppa af freðkjöti. — FÚ.
Eru vísindamenn morðíngjar?
Zamoru, forseti Spánar, sagði í
ræðu, er hann hélt á alþjóðaþingi
vísindamanna, að vísindamenn
brygðust köllun sinni, ef þeir
beindu kröftum sínum að því, að
láta stjómum í té fullkomnari
morðvopn, til notkunar í hernaði,
í stað þess að leggja alla stund á
það, sem mætti verða til þess að
nuka vellíðan og velmegun mann-
kynsins. — í Madrid eru nú nokk-
ur hundruð vísindamanna úr
flestum löndum heims saman-
komnir, á áttunda þing Alþjóða-
samb. vísindamanna. — FÚ.
Siindlaugarnar og
Sundhöllin
Framh. af 3. síðu.
sundhöll með sólbyrgjum hér í
Reykjavík.
Við höfum fengið heita vatn-
ið til afnota frá náttúrunnar
hendi, og stöndum því aðdáan-
lega vel að vígi í þessu efni.
Þjóðin sjálf má því ekki lengur
láta sitt eftir liggja að fá af
þvi full not“.
Bréf í. S. í. til boryarstjór-
ans 1. marz sL
Þann 1. marz s. 1. skrifaði
stjórn I. S. í. bæjarstjórn
Reykjavíkur rækilegt bréf um
sundmál Reykjavíkur. Jón Þor-
láksson svaraði um hæl. Bréf
hans er dagsett 2. marz, en það
var lítið svar og hvergi varð á
því séð, að bréf í. S. 1. hafi
verið lagt fyrir bæjarstjórn
eða bæjarráð og verð ég að
hafa það til marks um tóm-
læti ráðandi flokksins í bæjar-
stjórninni á meðan að annað
reynist ekki sannara, en það
kemur illa heim við loforð
Sjálfstæðisflokksins fyrir bæj-
arstjórnarkosningamar í vetur.
Ég held að það væri rétt af
ráðamönnum bæjarins að gera
opinberlega grein fyrir þessu
ástandi sem nú er á öllum þess-
um málum, því það er mikil
óánægja yfir þessu, og mér
virðist það ekki ósanngjörn
krafa, að bæjarbúar fái að vita
hvar þessum málum er komið
og hverra úrræða er von eða
hvort nokkurra bóta sé að
vænta nú í vor.
Magnús Stefánsson.
Er verkfall yfiryofandi?
Framh. af 1. síðu.
er notaður, en hinsvegar munu
kolakaupmenn ekki spara nema
50 aura á tonni með notkun
kranans, því hann er dýr í
rekstri.
Dagsbrún mun þó, eftir því
sem blaðið hefir frétt, ekki
taka að sér þessa deilu, þar
sem ákvæði eru fyrir hendi um
það, hve mikið eigendur kran-
ans megi taka fyrir notkun
hans, þegar hann er leigður
öðrum, og ekki mun vera til-
ætlunin að bregða frá þeim á-
kvæðum.
f Ódýro $
aug-lýsingarnar.
Kaup og sala
5 hestaíla Trumph-mótorhjól
í ágætu lagi, er til sölu fyrir
tækifærisverð. Upplýsingar á
Grettisgötu 22 D frá kl. 4—7 á
kvöldin.
Tækifærisverð á nýtízku
sveínherbergishúsgögnum,
vegna burtfarar, ásamt fleiri
húsgögnum. Einar Carlsson,
Vatnsstíg 3 eða á Laugaveg
141. Símar 4587 og 2672.
Rúgbrauð, franskbrauð og
normalbrauð á 40 aura hvert.
Súrbrauð 30 aura. Kjarnabrauð
30 aura. Brauðgerð Kaupfél.
Reykjavíkur. Sími 4562.
Húsnæði
Sólríkt herbergi með sérinn-
gangi óskast 14. maí fyrirkarl-
mann í fastri atvinnu. Tilboð
merkt „Sólríkt" leggist á afgr.
blaðsins.
2—3 stofur og eldhús óskast
í nýtízku húsi 14. maí. Fyrir-
iramgreiðsla. Sími 2092.
Tilkynningar
Ef þú villt að af sé máð
óhreinkun í tíma:
3—1—8—3 er ráð,
þá að hringja í síma.
Tapað-Fundið
Tapazt hefir fyrir fáum dög-
um grábröndóttur köttur
(fress). Hver sem kynni að
verða hans var, er vinsamlega
beðinn að láta vita um það á
Hverfisgötu 32 b í kjallaranum.
RAUÐA HÚSIÐ.
— Nú ætla ég að ganga heim undir húsið. Farðu
aftur að trénu og vertu á verði, ef Cayley skyldi
koma í annað sinn. Herbergið þitt er til vinstri
handar og Cayleys herbergi er næst yzt til vinstri,
er ekki svo?
Bill kinkaði kolli.
— Það er gott. Feldu þig hérna og bíddu, þangað
til ég kem. Ég veit ekki, hvað mér kann að dveljast
lengi, en þú mátt ekki vera óstilltur. Þér kann að
finnast biðin lengri en hún er í raun og veru. Hann
klappaði Bill á öxlina og kinkaði til hans kolli, bros-
andi, og svo lagði hann af stað.
Hvað var í töskunni? Lyklar og skammbyssur
sökkva af sjálfu sér, það er óþarfi að setja slíkt í
tösku. Hvað var í töskunni ? Eitthvað sem ekki sökk
af sjálfu sér, eitthvað, sem grjót þurfti með, svo að
það sykki í leðjuna. Jæja, þeir myndi nú komast
að því áður lyki. Það var óþarft að brjóta heilann
um' það. Það var óþrifaleg næturvinna, sem beið
Bills. En hvar var líkið niðurkomið. Eða, ef hér
var ekkert lík — hvar var þá Mark?
En hér var önnur spuming öllu meira aðkallandi:
hvar var Cayley nú? Antony flýtti sér allt hvað af
tók áleiðis til hússins og faldi sig í runnunum næst
grasvellinum, og beið þess að kveikt yrði ljós inni
hjá Cayley. Ef ljós yrði tendrað í herbergi Bills, þá
var allt komið upp um þá. Það þýddi það, að Cay-
ley hefði litið inn til Bills, þótt grunsamlegt útlit
brúðunnar í rúminu og kveikt ljós til þess að ganga
úr skugga um þetta. Og þá myndi verða fullur
fjandskapur milli þeirra. En ef ljós væri kveikt inni
hjá Cayley ...
Nú tendraðist ljósið. Antony hrökk við af æsing-
unni. Þetta var inni hjá Bill. Ófriður!
Þama var ljósið og lýsti bjart. Nú var byrjað að
kalda. Tunglið hvarf bak við ský og skugga dró á
húsið. Bill hafði gleymt að draga tjöldin fyrir glugg.
ann. Það var trassaskapur mikill, fyrsta vitleysan,
sem! hann hafði gert, en ...
Aftur dró frá tunglinu ... og Antony hló nú með
sjálfum sér. Þarna var enn einn gluggi, enn eitt
herbergi, og þar var ekkert ljós. Það var engan
veginn víst að ófriður yrði hafinn.
Þama lá Antony og njósnaði meðan Cayley var að
hátta.
En Bill aftur á móti fór nú að gerast óþolinmóður.
Það sem honum þótti verst var það, ef hann eyði-
leggði nú allt með því að gleyma tölunni sex. Það
var sjötti staurinn. Sex. Hann braut sundur kvist og
skipti honum í sex búta og lagði þá á jörðina hjá
sér í röð. Sex. Hann leit yfir síkið, taldi á nýjan
leik og tautaði fyrir munni sér: Sex. Svo leit hann
á kvistabútana: Einn — tveir — þrír — fjórir —
fimm — sex — sjö. Sjö! Voru þeir sjö? Eða hafði
einn legið þarna og lent saman við. Þeir áttu ekki
að vera fleiri en sex! Hann hafði víst sagt sex við
Antony? Antony myndi muna eftir því og þá var
allt í lagi. Sex. Hann fleygði sjöunda bútnum og
týndi hina bútana saman. Það var kannske vissast
að geyma þá í vasa sínum: Sex — hæð manns í hærra
lagi — hæð hans sjálfs. Sex fet. Já, þetta var rétta
aðferðin til að setja svona lagað á sig. Nú varð
hann rólegri og tók nú að hugsa um tösk-
una, hvað Antony myndi segja um hana, um það
hvað vatnið myndi vera djúpt og um leðjuna á botn-
inum. Og hann hélt áfram að brjóta heilann og
mælti fyrir munni sér: —- Þetta var auma atvikið!
En í því korh Antony.
Bill gekk til móts við hann.
— Sex, sagði hann og var ekkert hik í röddinni.
Sjötti staur frá horninu.
— Ágætt, sagði Antony. Minn var sá átjándi.
— Því fórstu?
— Til þess að ganga úr skugga um, að Cayley
færi að sofa.