Nýja dagblaðið - 11.04.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 11.04.1934, Blaðsíða 2
2 H ♦ J A DAOBLABIÐ Stofnfundur bindindisfélags fyrir eldri og yngri skólamenn verður haldinn í kvöld kl. 8V2 í Menntaskólanum Skorað er á alla áhugasama bindindismenn að mæta á fundinum. Undirbúningsneíndm. SKINFAXI TÍMARIT U. m. F. I. Ritstjóri: AÐALSTBINN SIGMUNDSSON Tímaritið er 10 arkir á ári, vönduð útgáfa, og kostar kr. 3,00. Upplag 3500 eintök, og er útbreiðslan mest út um land. Til að kynna ritið í Reykjavík eru boðin neðangreind kostaboð: Þrír síðustu árg. ritsins fást fyrir kr. 2,00 á afgreiðslu Nýja dagblaðsins, Austurstræti 12, Reykjavík. Skrifsiofuv okkar verða lokaðar í dag, allan daginn, vegna jarðarfarar. G. Helgason & Melsíed h.f. $ZcmÍBk fút&hrmmu o$ (itutt 54 ^imii 1300 <Hej|k)awtk. Býður ekki viðskiptavinum sínum annað en fullkomna kem- iska hreinsun, litun og pressun. (Notar eingöngu beztu efni og vélar). Komið því þangað með fatnað yðar og annað tau, er þarf þessarar meðhöndlunar við, sem skilyrðin eru bezt og reynsl- an mest. Sækjum og sendum. Hitar, ilmar, heillar drótt, hressir, styrkir, kœtir. Fegrar, yngir, færir þrótt Freyju kaffibætir. mm Bókmenntir — iþróttir — llatir Veðráttan í febrúar Veðráttan var óstöðug og vindasamt. Úrkomur voru víða afar miklar og hrakviðri. Á Austurlandi var úrkomulítið og tíð þar talin góð. Hlýindi voru lengst af og snjólétt, einnig voru víðast dálitlir hagar, en nýttust illa vegna óveðra. Gæftir mjög stopular og afli misjafn þegar á sjó gaf. Úrkoma var mikil, 63% um- fram meðallag á öllu landinu. Var tiltölulega mest á Vest- • fjörðum. Á Suðureyri var úr- koma 167% umfram meðallag, en þreföld meðalúrkoma var á Akureyri. Allmiklar skemmdir urðu víða af vatnavöxtum. Þoka var sjaldgæf. Vindar voru tæplega umfram meðallag. Suðvestan og vestan- átt var tíðust í þessum mán- uði. Snjólagið var tiltölulega minnst á Norðausturlandi, Sunnanlands var það heldur meira en venjulega, en í kring- um meðallag á Vesturlandi. Hagi var svipaður og venju- lega. Sólskin í Reykjavík var í 15,2 st. allan mánuðinn. Er það 6,5% af því sem mest gæti verið. Meðaltal 10 undanfar- inna ára er 51,2 st. Hafíss varð vart ekki fjarri landi. Þ. 1. sást hafísbreiða út af Straumnesi. Þ. 5. var hafís út af Isafjarðardjúpi. Þ. 6. var ísbreiða mikil út af Kögri og skemmdist enskur togari þar í ísnum. Þ. 17. var hafís 14 mílur norðvestur af Rit og austur eftir. Þ. 20. voru hafísjakar út af Hælavíkurbjargi og þ. 23. var ísbreiða um 15 mílur norð- vestur af Dýrafirði. Landskjálfta varð tvívegis vart í Reykjavík, 14. og 21. mánaðarins. Hinn fyrri átti upptök norðvestan við Filipps- eyjar, en hinn síðari skammt héðan í burtu. (Skv. yfirliti Veðurst.). Byggingar í Englandi Elnska stjórnin mun hafa í hyggju, að leggja bráðlega fram fimm ára áætlun um út- rýmingu lélegra húsakynna og byggingu nýrra íbúða í stað- inn. Hefir verið gerð ítarleg' rannsókn á húsakynnum ca. 90% íbúanna, svo hægt væri að vita nákvæmlega um það, hvað endurbætumar þyrftu að vera miklar. Samkvæmt upp- lýsingum, sem lagðar hafa ver- ið fyrir um þetta, þarf að rífa 254.750 hús, sem ekki geta tal- izt til viðunandi húsakynna. Samanlögð íbúatala þessara i húsa er 1 millj. 187 þús. Áætlað er að kostnaðurinn við hinar nýju húsabyggingar verði um 150 milj. sterlings- pund eða rúml. 3300 millj. ísl. kr. Framlagi ríkisins á að vera þannig fyrirkomið, að það leggi fram 3 milj. sterlings- punda árlega í næstu 40 ár. Samsöngup Kaplakórs Reykjavíkup Karlakór Re.vkjavíkur hélt fyrsta samsöng sinn á þessum vetri í Gamla bíó á sunnudag- inn fyrir fullu húsi. Á söng- skránni voru tólf lög, og átta þeirra eftir íslenzk tónskáld. Er gleðilegt að sjá, hve stóran hóp við eigum nú af efnilegum tónskáldum, og sást það ljós- lega á þessum hljómleikum, að verk þeirra geta fyllilega staðið mörgu af því á sporði, sem sótt er út yfir pollinn. Og víst er um það, að í þetta sinn var söngskráin óvenjulega fjöl- breytt og glæsileg. Meira en helmingur við- fangsefnanna var nú fluttur í fyrsta skipti opinberlega hér, þó að höfundar þeirra séu allir áður kunnir, og jók það ekki lítið á eftirvæntirtgu áheyrend- anna. Það er að vísu erfitt að átta sig til fulls á lögum, sem menn heyra í fyrsta sinn, og ekki sízt þegar um allstór verk er að ræða. En engum, sem á hlýddu, gat þó blandast hugur um, að þarna bættist okkur góður fengur. Vil ég þá fyrst nefna „Brennið þið vitar“, úr Alþingishátíðarkantötu Sigurð- ar Þórðarsonar, sem er glæsi- legt og áhrifamikið lag, „Föru- mannaflokkar þeysa“, eftir Karl Runólfsson, og „Syngið strengir“ eftir Björgvin Guð- mundsson, hvorttveggja til- komumikil og fögur lög. „Graf- arljóð“ eftir Jón Leifs, sem er samið í anda gamla tví- söngsins og rímnalaganna, og áreiðanlega gæti ekki verið eft- ir neinn annan en Jón Leifs, er afar einkennilegt, og skal ekki lagður á það neinn dómur hér. En í því er einhver hugð- næmur seiður, sem ekki slepp- ir auðveldlega tökum. Þórarinn Jónsson átti þarna lítið og stíl- hreint lag, við texta eftir sjálfan sig, og Þórarinn Guð- mundsson annað, við „ó, fögur er vor fósturjörð“. Síðasta lagið á söngskránni var hinn yndislegi og alkunni Vínarvals „An den schönen blauen Donau“ eftir Johan Strauss, í íslenzkri þýðingu eftir Freystein Gunnai’sson. Mun það vera í fyrsta sinn, sem hann er fluttur af karla- kór hér á landi. Eins og sézt á því, sem hér hefir verið talið upp, voru við- fangsefnin bæði mikil og fjöl- breytt, sem kórinn hafði að bjóða. En hann hafði ekki reist sér hurðarás um öxl. Flest lögin voru prýðisvel sung- in, og sennilega hefir kórinn aldrei sungið betur. „Brennið þið vitar“, og „Förumanna- flokkar þeysa“ var sungið af svellandi krafti og myndug- leika. Og- meðferðin á „Mán- anum“ eftir Helge Gad og Józka danskvæðinu, var bi'áð- skemmtileg. Vínarvalsinn er efalaust mjög erfiður viðfangs fyrir okkur íslendinga. Hin leikandilétta stemning, sem ber lagið uppi, ligg'ur fjarri okkur, en glatist hún, verða áhrifin aðeins daufur skuggi. Með- ferð kórsins var framar öllum vonurn, en nokkuð virtist þó skoi’ta á það sólskinsskap, sem þai’f til þess, að laginu séu gerð full skil. — Einsöngvarar voru Daníel og Sveinn Þorkels- synir og Erling Ólafsson. Ung- frú Anna Péturss aðstoðaði á pianó. — Söngnum var mjög vel fagnað, og varð að endur- taka mörg lögin. 1 tilefni af því, að söngstjórinn átti af- mæli þennan dag, i’isu allir upp úr sætum sínum og hylltu hann með húri'ahrópum. Sú nýbreytni hafði verið tekin upp í þetta sinn, að gefa út stóra og vandaða söngskrá. Eru í henni myndir af öllum íslenzku tónskáldunum og æfiágrip þeirx-a, auk söngtext- anna. Einnig voru þar greinar eftir Árna Thoi’steinsson, Pál ísólfsson og Sigurð Skúlason. Yrðu slíkar söngskrár vafa- laust vinsælai’, ef menn ættu þeiri'a framvegis kost. X. Tilkynning Með því að nægileg þátttaka hefii' fengist til áfram- haldandi starfsemi Sölusambands íslenzkra fiskframleið- enda, hefir undirrituð stjórn þess ákveðið að halda áfram starfsemi sinni með sölu á fiskframlelðslu þessa árs. Sölusamband íslenzkra íiskiramleiðenda f. h. Riohard Thors, Thor Thors, Olafur Froppé, Kristján Rinarsson Helgi Gj-uðmnndsson, M&gnús Sigurðsson.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.