Nýja dagblaðið - 11.04.1934, Blaðsíða 3
N Ý J A
DAOBLAÐIS
S
NÍJADAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“
Ritstjóri:
Dr. .phil. JJorkell Jóhannesson.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
áusturstrœti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús Guðmundsson.
Áskriítargj. kr. 2,00 á mánuði.
1 lausasölu 10 aura oint.
Prentsmiðjan Acta.
Mjólkurmálið
Mjólkurmál Reykjavíkur og
Hafnarfjarðár hefir lengi verið
í stöku ólagi. Mjólkin í þessum
bæjum er mjög dýr fyrir
neytendur, en þó fá framleið-
endurnir herfilega lágt verð
íyrir vöru sína og vinnu. Þegar
lítri af mjólk er seldur á 42
aura, fær bóndinn austanfjalls-
á bezta ræktunarsvæðinu
stundum ekki nema 12—14
aura. fskipulagsleysið og óþarf-
ir milliliðir gleypa meir en
helming af söluverðinu.
Forráðamenn Reykjavíkur
hafa lítið gert til að bæta úr
þessu. En nú hafa þeir fundið
ráð virkilega gott: Að láta
bæinn setja upp nýja mjólkur-
hreinsunarstöð, til að vinna úr
mjólk þeirra, sem ekki vilja
vera í hinum fjórum, sem fyrir
eru.
Sér er nú hver búmennskan.
Vesalings neytendur í Reyk-
javík eiga nú að bæta fimmtu
stöðinni ofan á allan þann
kostnað, sem fyrir var. Og ekki
verður bændunum það meiri
búbót, að fá enn aukinn kostn-
að, án þess að af því leiði auk-
inn markað.
1 stað þess að bæta við nýrri
stöð, ætti að réttu lagi að vera
ein stöð, sem hreinsaði alla
mjólk fyrir bæinn. Og í staðinn
fyrir 100 mjólkurbúðir, sem
eru að sliga bændurna í um-
hverfi Reykjavíkur, ætti að
vera ein höfuðútsala á mjólk
fyrir bæinn, með hæfilega
mörgum undirdeildum til að
fullnægja sanngjarnri þörf
Lolksins.
Fundur kaupfélagsstjóra,
sem nýlega var haldinn í Rvík,
tók þetta mál til ítarlegrar
meðíerðar. Og þar voru lagðir
frumdrættir að skipulagi, sem
vonandi tekst að koma í fram-
kvæmd innan skamms. Samkv.
því er ætlazt til að verði alls-
herjar félagsskapur milli allra
mj ólkurframleiðenda á því
svæði, sem flutt getur sölu-
mjólk til bæjarins, og verðið
jafnað í réttum hlutföllum við
aðstöðu og framleiðslukostnað.
Það eru sjaldan góð mál, sem
Alþ.bl. og Mbl. eru sammála
um. En þau álíta afarnauð- |
synlegt að búa til fimmtu
hreinsunarstöðina handa Reyk- 1
víkingum. Þeim dettur ekki í
hug að bæta skipulagið, heldur
að auka á glundroðann og
vandræðin.
Myndarbóndi einn í Árnes-
sýslu sagði nýlega á fundi
eystra, út af mjólkurmálinu:
„Ef ég fengi 20 aura fyrir
lítrann gæti búskapurinn borg-
J
Fjársvikin
í Landsbankanum
Ávísanamál • Mjólkurfélags
Reykjavíkur hefir vakið meiri
athygli hér í bænum og um alk
landið en nokkuð annað mál,
sem á dagskrá hefir komið hér
á landi langa hríð.
Vöru íhaldsblaðanna
Hin þöglu svik
Umræður þær, sem orðið
hafa um máíið, meðan á rann-
sókn stóð, eru reyndar ekki síð-
ur eftirtektarverðar. Öll íhalds.
blöðin, að Morgunblaðinu frá-
töldu, hafa, eins og eftir einni
skipun, farið hamförum að
verja málstað þeirra manna,
sem sakbornir eru í málinu.
Ekkert hefir verið sparað til
þess að svívirða þá menn, sem
dirfzt hafa að skýra frá ein-
stökum atriðum málsins. Það er
sök sér um Jakob MÖller,
banka„eftirlits“mann, þótt
hann reyni að skýla misíerlum
sínum í „embættis“rekstrinum
með skömmum og rangfærsl-
um. Hitt er alvarlegra, þegai'
blöð íhaldsflokksins standa
saman um það að verja hin al-
varlegustu misferli í fjármál-
um, sem fyrir hafa komið hér
á landi langa hríð. Það verður
að vera krafa þjóðarinnar til
opinberra málgagna, þótt
íhaldsmálgögn sé, að þeim sé
ekki beitt vísvitandi og blygð-
unarlaust til þess að breiða yfir
og afsaka opinber fjársvik og
látin 1 þokkabót rægja og
svívirða þá menn, sem vilja að
slík afbrot sé opinber gerð og
þoli lög og dóm. Sú spilling,
sem Reykvíkingar hafa nú
nógu lengi og nógu vel kynnzt
af látlausri baráttu íhaldsmál-
gagnanna undanfarið til varnar
fjársvikum þessum er brenni-
mark á þann flokk, sem lætur
slíkt viðgangast eða jafnvel
gengst fyrir því að þetta sé
gert — brennimark á íhalds-
flokkinn. Þögn Morgunblaðsins
í gær um þetta mál, eftir að
því hafði borizt skýrslan um
rannsóknina, sýnir afstöðu
blaðsins, þótt hingað til hafi
, það haft sómatilfinningu til
þess að taka ekki virkan þátt í
baráttunni fyrir fjársvikunum.
Það hefir kosið sér hin þöglu
svik. En um afstöðu þess þarf
enginn að efast lengur.
„Gagukvæm viðakiíti*
Málið liggur nú ljóst fyrir,
eftir skýrslu þá um rannsókn-
ina sem blaðið birti í gær. Þó
skal hér drepið á höfuðatriði.
1. Með sviknum ávísunum
liefir Mjólkurfélag Reykjavík-
ur náð í veltufé hjá Lands-
bankanum, tryggingarlaust,
heimildarlaust og vaxtalaust.
2. Til þessa hefir það notið
aðstoðar gjaldkera bankans.
3. Gjaldkerunum, sem tekið
hafa á móti þessum ávísunum,
geymt þær í sjóði tímum sam-
an og leyft Mjólkurfélaginu að
endurnýja þær, til þess að
hilma yfir greiðsludráttinn —
þeim hefir Mjólkurfélagið lán-
að ávísanir til þess að dylja
þurrð í kassanum hjá sér.
Hér er um skipulögð svik
tveggja aðila að ræða. Og við-
skiptin eru gagnkvæm.
Það mun leitun á jafn-
grófgerðri spillingu í fjár-
málum og fram kemur í þessu.
Og þetta hefir átt sér stað
við sjálfan þjóðbankann, ekki
einu sinni eða tvisvar. Ekki
snöggvast. Nei. Þetta hefir ver-
ið leikið árum saman, þótt far-
ið hafi vaxandi og líklega náð
hámarki 1. okt. í haust.
Það er þetta athæfi sem
íhaldsblöðin hafa nú tekið und-
ir verndarvæng sinn.
En þau hafa gert meira. í
ákafafumi sínu að breiða yfir
þetta mál hafa þau reynt að
koma skuldinni af þeim seku
yfir á bankastjóra og banka-
ráð.
að sig“. En hann fékk ekki
nema 14—16 aura. Þess vegna
var hann óánægður. Vegna
slíkra manna er stungið upp á
að auka hinn óþarfa kostnað, í
stað þess að spara óþörf út-
gjöld, samræma framleiðsluna
og geta látið bóndann fá a. m.
k. 50% af því verði, sem
mjólkin er seld fyrir. Sú krafa
er ekki hörð. Menn geta miklu
fremur undrast langlundargeð
bændanna, sem unnið hafa að
mjólkurframleiðslunni og látið
leika sig svo grátt af forráða-
mönnum Rvíkur.
En þetta mál á ekki að
detta niður með hinni fávísu
ósk um fimmtu stöðina. Það á
að bjarga bændum og neytend-
um úr þeim mikla vanda sem
þeir hafa verið settir í. Skipu-
lagstillögur kaupfélagsstjór-
anna eru fyrsti ljósglampi sem
brugðið hefir verið yfir það
vanrækta mál. J. J.
Þetta minnir á söguna um
manninn, sem var kallaður
þjófur af því að það var einu
sinni stolið frá honum.
Því að það er upplýst eins
og skýrslan um rannsókn máls-
ins ber með sér, að þessum að-
ilum var ókunnugt um þetta
mál, og hlaut að vera ókunnugt
um það eftir málavöxtum og
allri starfstilhögun bankans
meðan endurskoðun leiddi ekki
svikin í ljós.
Og það var líka fyrsta verk
bankaráðs og ' bankastjórnar,
þegar upp komst um málið, að
láta hina brotlegu starfsmenn
víkja úr starfi og láta rann-
saka málið. Er það í samræmi
við aðgerðir bankastjórnarinn-
ar í öllum áþekkum málum,
sem fyrir hafa komið í bankan-
um nú undanfarið. Þau mál eru
sorglega mörg. Þau væri færri
orðin, ef ekki hefði nú um
langan tíma undanfarið sú
Frá Hacodate.
Bruninn mikli í Japan
í fyrra mánuði varð í Japan
einhv.er sá mesti stórbruni er
sögur fara af. Hafnarborgin
Hakodate brann að 4'/r, hlutum
til kaldra kola.
Bruninn mun hafa átt upp-
tök sin þannig, að afskaplegt
mikið af fólki, að vandræði ætl.
uðu að hljótast af.
Skip, sem send voru til
hjálpar, komust ekki nærri
strax á vettvang, sökum of-
veðursins.
Um 2000 manns fórust af
Haeodate.
völdum brunans. Um 20 þús.
hús hafa eyðilagst. Eignatjón-
ið er metið á 9 millj. sterlings-
punda eða sem svarar 200
millj. íslenzkra króna.
Hakodate er 10. stærsta
borgin í Japan. Hún er sunnan
á eyjunni Jeru. Utanríkis-
verzlun var leyfð þar fyrst
1854. Aðalútflutningsvörumar
eru fiskur, þang og kol. Verzl-
unin þar hefir verið blómleg,
vöxtur borgarinnar ör, sem
sézt á því, að íbúatalan hefir
meira en tvöfaldazt seinasta
aldarfj órðunginn.
Hötnin í
fárviðri geysaði þar á strönd-
inni. Fuku reykháfar af húsum
og kviknaði út frá þeim. Of-
viðrið gerði jafnframt allar
slökkvitilraunir árangurslitlar
og á skammri stund varð
meirihluti borgarinnar eitt eld-
haf.
íbúar borgarinnar eru nál.
200 þús. Langsamlega mestur
hluti þeirra varð húsnæðislaus
og geta allir gert sér í hugar-
lund, við hvaða ástand þeir
hafa átt og eiga að búa. Þeir,
sem gátu, flúðu út- í skipin í
höfninni og tróðst í þau svo
venja þróast hér í skjóli ís-
landsbankaóreiðunnar að láta
mönnum haldast uppi óráð-
vandleg meðferð fjár bótalaust
eða með málamyndaryfirklóri.
Lögfull ábyrgð á slíku athæfL
er það eina, sem læknað gæti
þessa soi'glegu meinsemd.
En viku eftir viku, meðan
stóð á rannsókn þessa ávísana-
máls, hefir íhaldið unnið leynt
og ljóst að því að breiða yfir
það, og hætt sér svo tæpt, að
varanlegt hneyksli er að orðið.
Því slíkt mál sem þetta
verður ekki svæft. Jafnvel
Magnús Guðmundsson mun
ekki treysta sér til að láta
breiða yfir það. Þolinmæði
landsmanna væri ofboðið með
því.
Úr bréfi.
Merkur bóndi í Skagafirði
skrifar m. a.:
„Hér mun lítið breytast
afstaða til hinna gömlu flokka.
-----Sá var háttur Rómverja
hinna fornu, að beita hertekn-
um foringjum fyrir vagn sinn.
Það er illt og ömurlegt að sjá
nú íhaldið nota Tryggva með
líkum hætti“.---
IþiO viíýið »0 teU8 wi rd
eftir auglýsingum ykk-
ar, þá skuluð þi5 helzt
auglýsa f
Nýja dagblaðinu