Nýja dagblaðið - 13.04.1934, Page 1
NYJA
2. ár.
ÍDAG m ,■
DAGBIAÐIÐ
Reykjavík, föstudaginn 13. apríl 1934.
86. blað.
Henderson
talar um afvopuunar-
málin
London 12/4. FÚ.
Árthur Henderson kom aft-
ur til London í dag eftir að
hafa stýrt fundi framkvæmda-
Hcnderson.
ráðs afvopnunarráðstefnunnar
í Geneve. I viðtali, sem hami
leyfði blaðamanni að hafa við
sig á járnbrautarstöðinni í
London, við heimkomu sína,
lýsti hann því yfir, að í höfuð-
borgum Evrópu væri vaxandi
skilningur á því, að alvarlega
tilraun yrði að gera til þess að
leiða ráðstefnuna farsællega til
lykta.
Samsæri
gegn Rúmeníukonungi
LRP 12/4. FÚ.
Frá Búkarest kemur sú
fregn, að upp hafi komizt um
samsæri, er stofnað skyldi til í
þ\í skyni að ráða Carol kon-
ung af dögum, og nema vin-
konu hans, frú Lupescu, á
brott. Opinberlega er tilkynnt,
að 11 foringjar í hernum hafi
verið teknir fastir. f Rúmeníu
eru æsingar miklar yfir þessu
máli.
'Þýzkir flóttamenn fá
embsetti í Saar
Berlín 12/4. FÚ.
St j órnarnef nd Þ j óðabanda-
lagsins í Saar hefir á síðast-
liðnu ári sett allmarga flótta-
menn um stundarsakir í em-
bætti í landinu. f gær fengu all-
margir þessara manna veitingu
fyrir embættum sínum, meðai
þeirra eru Max ilögreglustjóri í
Saarbruclien og yfirmaður
leynilögreglunnar í Saar, en
þeir eru báðir jafnaðarmenn.
Ráðstöfun þessi vekur nokkra
gremju hjá blöðum Nazista í
Saar.
Mótmælafundir
Berlin kl. 8 12/4. FÚ.
Mótmælafundum franskra
embættismannagegn launalækk-
unum heldur enn áfram. Meðal
annars gerðu póstmenn í Lyon
nokkurra stunda mótmælaverk-
fall í gær.
Sólaruppkoma kl. 5,07.
Sólarlag kl. 7,51.
Flóð ái'degis kl. 4,50.
Flóð síðdegis kl. 5, 10.
Veðurspá: Hægviðri og skýjað,
úrkomulaust að mestu.
Söín, skrifstoíur o. fL:
Laridsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
Alþýðubókasafnið .. . .opið 10-10
Landsbankinn ......... opinn 10-S
Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3
Útvegsbanþinn opinn 10—12 og 1—4
Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7þ2
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landssíminn ............. opinn 8-9
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 14
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafélagið .......... opið 9-6
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda
opið 10—12 og 1—6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 14
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 14
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Ríkisféhirðir ................ 10-3
Lögregluvarðst opin allan sólarhr.
Baðhús Reykjavtkur .... opið 8-8
Hæstiréttur kl. 10.
Helmsóknartiml sjúkxahúea:
Landsspítalinn .........*.. kl. 34
Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5
Laugarnesspítali ....... kl. 12^-2
Vífilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y24y2
Kleppur .................. kl. 1-5
Fæðingarli., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar.............,. ..kl. 3-5
Sjúkrahús Hvílabandsins .... 2-4
Elliheimilið ................. 1-4
Næturvöröur í Reykjavikurapótaki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Gísli Fr. Petersen,
Barónsstíg 59. Sími 2675.
Skemmtanir:
Iðnö: Meyjaskemman, kl. 8.
Samgöngur og póstíerðir:
Magni til Borgarness.
I fyrrasumar byrjaði Nor-
ræna félagið á því að gangast
fyrir ódýrum skólaferðum héð-
an frá íslandi til Noregs. Fé-
lagið hefir ákveðið að gangast
fyrir samskonar ferðum í sum-
ar, bæði fyrir skólafólk og fé-
lagsmenn Norræna félagsins,
ef nægileg þátttaka verður.
Skólaferðirnar verða þá
farnar til Danmerkur, Noregs
og Svíþjóðar.
Noregsferðin.
Farið verður til Bergen með
Lyru 28. júní. Dvalið verður
þar í tvo daga og síðan farið
til Oslo, með viðkomu í Voss.
I Oslo verður dvalið í 2 eða 3
daga og síðan farið til Lille-
hammer, þaðan til Guðbrands-
dalsins og staðnæmst þar í seli
einn eða tvo daga, þá upp til
Þrándheims og þaðan með
skipi innan skerja til Bergen
og svo heim.
öll ferðin tekur 26 daga,
með 17 daga dvöl í Noregi, og
mun kosta 200 krónur islenzk-
ar, fæði og gistingar innifalið.
Svíþjóðarferðin.
Farið verður með Lyru 12.
júlí til Bergen, með Bergens-
brautinni til Oslo og þaðan til
Karlstad í Vermalandi með
járnbraut. Frá Karlstad verð-
ur farið með bílum lengra
norður í Vermaland, upp að
Márbacka, þar sem Selma
Lagerlöf býr. Þar næst verð-
ur farið til Dalarna, Leksand,
þaðan með gufubát eftir Siljan
til Mora, þar sem listasafn
Zorns er. Frá Mora verður
farið með járnbraut til Upp-
sala, þar sem konungahaug-
arnir gömlu eru. Þá verður
farið til Stokkhólms og dvalið
þar í 2 eða 3 daga. Stokkhólm-
ur er, sem kunnugt er, talinn
fegursti bær á Norðurlöndum,
hefir fagrar byggingar eins
og t. d. ráðhúsið og konungs-
höllina, og umhverfi Stokk-
hólms er einnig fagurt, enda
er gert ráð fyrir ferð út í
Skerjagarðinn. Loks verður
farið til Gautaborgar og þaðan
heim aftur yfir Bergen. Ferðin
öll tekur 26 daga, með 14 daga
dvöl í Svíþjóð, og kostar um
250 krónur.
Danmerkurförin.
Farið verður með Gullfossi
3. júlí og komið heim aftur
þann 4. ágúst. Gert er ráð fyr-
ir 3 daga dvöl í Kaupmanna-
höfn og ferð út á Fjón og' til
Jótlands.
Formaðurinn í Dansk-Is-
landsk Samfund, dr. Arne
Möller, hefir lofað að greiða
fyrir ferð þessari og hjálpa til
með að gera hana eins ódýra
og skemmtilega og hægt er. —
Framh. á 4. síðu.
vér eigum að gæta sjálfra vor,
og ekki blanda okkur í málefni
annara Evrópuríkja, en vér
megum ekki snúa baki við Ev-
rópu. Friður verður ekki
tryggður með einangrun, held-
ur með almennri viðurkenningu
þeirrar staðreyndar, að árásar-
þjóð er óvinur allra annara
þjóða. Það mun taka nokkurn
tíma, að slíkur skilningur festi
rætur. Það þarf langan tíma til
þess að ala upp almennings-
álitið. Einasta vonin fyrir okk-
ur og aðra er viðurkenning
hinnar sameiginlegu ábyrgðar,
sem aliir hafa, um það, að varð.
I veita fi’iðinn eins og áskilið er
I í þjóðabandalagssáttmála“.
í fyrradag lögðu leiðangurs-
menn af stað upp á jökulinn.
Hannes Jónsson bóndi á Núps-
stað fylgdi þeim á leið með
hesta. Gekk ferðin vel. Hannes
sneri aftur með hestana þegar
ekki var hægt að fara með þá
lengra en leiðangursmenn héldu
áfram með farangur sinn á
skíðasleða inn á jökulinn. Tveir
menn úr Hverfinu eru með
þeim.
Ekkert fréttist af ferð þeirra
í gær, sem ekki var von, þar
eð þeir ei’u uppi á jökli. Ætluðu
þeir að fara inn að eldstöðvun-
um í gær. Munu ferðalangarnir
hafa fengið afbragðsveður all-
an daginn í gær. Hvenær þeir
koma aftur er ekki gott að
segja. Fer það eftir því hve
lengi þeir verða við eldstöðv-
arnar. Ekki er það heldur víst
hve langt er að eldstöðvunum,
og getur það vel verið mun
lengra en gert er ráð fyrir.
1 skeyti sem útvarpinu barst
frá leiðangursmönnum í gær,
var sagt, að þrír þeirra myndu
þá leggja á stað inn að eld-
stöðvunum, ef veður yrði gott
og heiðskýrt. Þeir voru þá
staddir í 620 metra hæð og var
hiti þar 3 stig.
Bretar grennslast
um herbúnað þjóðverja
London 12/4. FÚ.
Brezki sendiherrann í Berlín
hefir nú sent skýrslu sína, um
fjárveitingar Þýzkalands til
hers, flota og’ loftflota. Hafði
brezka stjórnin boðið honum
að grennslast eftir því við
þýzku stjórnina, livað byggi
undir hinni miklu aukningu
fjárveitinga til þessara fram-
kvæmda. Skýrsla sendiherrans
er nú komin í hendur Sir John
Simon, en efni hennar hefir
enn ekki verið gert heyrum
kunnugt.
Dagskrá útvaxpsdns:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.
Tilkynningar. 19,25 Erindi: Jarð-
vegsrannsóknir, III. (Hákon
Bjarnason). 19,50 Tónleikar. Aug-
lýsingar. 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Kvöldvaka: a) Guð-
mundur Friðjónsson: Upplestur.
b) Vigfús Guðmundsson: Hjarð-
ínannalíf i Klettafjöllum. c) Kjart-
an Ólafsson: Kvæðalög, — íslenzk
:ög.
Simar Nýjn dagblaðslns:
Rltstjóri: 4373.
Fréttarltari: 2353.
Aigr. og aagl.: 2323.
Englendingar ræða
um ])j óðabandalapð
Londoa 12/4. FÚ.
Ráðstefna var haldin til
varnar Þjóðabandalaginu í
London í dag og voru þar sam-
ankomnir fulltrúar hvaðanæfa
úr landinu. í ræðu, sem að Cecil
lávarður hélt í fundarbyrjun
komst hann svo að orði, að ef
Þjóðabandalagið færi út um
þúfur, þá væri það augljóst, að
hið úrelta skipulag stjórnmála-
legrar einangrunar væri þegar
í stað komið á aftur. Sir Austin
Chamberlain talaði ennfremur í
sömu átt: „Einangrun Bret-
lands er bæði ómöguleg og
óæskileg“, sagði hann, „ég veit
að það bólar á þeirri skoðun, að