Nýja dagblaðið - 13.04.1934, Qupperneq 4
4
tt t J A
DAðBLAÐlÐ
Anná.11
Hjarðmannalil. Vigfús Guð-
mundsson flytur erindi í útvarpið
í kvöld er hann kallar: Frá Amer-
íku. Hjarðmannalíf í Klettafjöllum
o. fl. Hefir V. G. dvalið sem úti-
legumaður í fleiri ár þar vestra.
Mun vera fátítt að íslendingar hafi
lifað hjarðmannalífi erlendis og er
sennilegt að marga fýsi að heyra
Irásagnir Vigfúsar um það,
Alurftasala lnudbúnaðarins. Hík-
isstjómin hefir skipað 5 manna
milliþinganefnd í þeim málum. í
nefndinni eru: .Tón Árnason frkv-
stj., af hálfu Samb. ísl. samvinnu-
félaga, Egill Thorarensen kfstj., af
hálfu Mjólkurbandalags Suður-
lands, Helgi Bergs frkvstj., af
hálfu Sláturfélags Suðurlands,
Guðm. Jónsson bóndi, Hvítárb'akka,
af hálfu Iíaupfélags Borgfirðinga
og Hannes Jónsson alþm. útnefnd-
ur formaður af rikisstjóminni.
Karlakór Reykjavíkur söng aftur
í gœrkvöldi fyrir fullu húsi í
Gamla Bíó við mikinn fögnuð
áheyrenda. Má það viðburð telja,
að þarna skuli vera fœrst í fang
að syngja annað eins lag og Vín-
arvals Strauss, An der schönen
blauen Donau. Mun enginn söng-
flokkur íslenzkur áður hafa ráð-
izt á jafnháan garð. Og sýnir það
þroska og þjálfun söngflokksins,
hversu góðum tökum hann þegar
hefir náð á þessu yndislega lagi
og hafa þó ekki tekið það til œf-
inga fyr en á síðastliðnu hausti.
Má vœnta þess, að karlakór
Reykjavíkur eigi eftir að flytja
landsmönnum þetta dáða sönglag
Vínarbúa enn um mörg ár, mœtti
það orka nokkru um að létta lund
og limaburð landans, sem um of
hefir farið á mis við áhrif söng-
listarinnar allt til þessa. þótt
ekkert vœri annað á söngskránni
mundi engan iðra þess að hafa
sótt söngskemmtun Karlakórs
Reykjavíkur að þessu sinni. Hefir
sérhver sá skyldu við sjálfan sig,
að láta nú ekki tœkifœrið ónotað,
sem á annað borð á þess kost að
njóta fagnaðar fyrir greitt gjald.
Ferðafól. íslands byrjar skemmti-
ferðir sinar í ár með ferð upp í
Skálafell og að Tröllafossi, á
sunnudaginn kemur. Lagt verður
upp kl. 8 árd. frá Bifreiðastöð
Steindórs og ekið upp að Svana-
stöðum, en þar snúa bílarnir aft-
ur. Verður svo gengið upp á
Skálafeil ef veður og færð leyfir,
en þaðan er ágœtt útsýni í björtu
veðri. Af Skálafelli verður gengið
niður á Svinaskarð og þaðan um
Haukafjöll að Tröllafossi. En þeir
sem eigi vilja leggja á sig fjall-
göngu, fara frá Svanastöðum vest-
ur með Leirvogsá að Tröllafossi og
hitta þar fymefnda hópinn. Frá
Tröllafossi verður gengið niður á
þjóðveginn við Varmadal, en þang-
að sækja bifreiðar fólkið. Ráðgert
er að koma til bæjarins aftur á
sjöunda tímanum. Farmiðar fást í
dag og fram eftir deginum á morg-
un á afgreiðslu Fálkans, Banlca-
stræti 3, og kosta kr. 4,50 fyrir
íélagsmenn og kr. 5,00 fyrir aðra.
Rannsókn fór fram í gær út af
blöndun eit.ursins í lyfin í Ingólfs-
apóteki. Ekkert upplýstist í mál-
inu framyfir það, sem upplýst var
með skýrslu lyfsalans P. L. Mo-
gensens, sem hann sendi land-
lækni og birtur var útdráttur úr
í gær. Málið verður aftur sent
stjómarráðinu. Sennilega verður
ekkert mál höfðað, þar eð þetta
var greinilegt óhapp.
Tf
ungra Framsóknarmanna
Síðasti
verður
fundur félagsins á þessum vetri
haidinn í Sambandshúsinu kl.
81!* í kvöld.
Aðalverkefni fundarins:
Stjórnmálaflokkarnir og næstu kosningar
Málshefjandi Eysteinn Jónsson alþm.
0 Ódýrn 0
auglýeing’8 rnar.
Kaup og 8aia
Vil kaupa útungunarvér 175
—260 eg-gja. Sími 4486._____
Kryddsíld, saltsíld, súr sviða-
sulta og súr hvalur
Kjötbúð Reykjavíkur.
Sími 4769.
Vantar miðstöðvarketil no. 3.
Má vera notaður. Tilboð send-
ist afgr. blaðsins merkt „3“.
SPAÐKJÖT
af úrvalsdilkum alltaf fyrir-
liggjandi. S. 1. S. — Sími 1080.
Af veiftum kom togarinn Kári i
gær með 80 tn. lifrar.
Próf eru nú að byrja í þeim
skólum hér í Reykjavík, sem hætta
um næstu mánaðamót.
Matreiðslunámskeið heldur Helga
Sigui'ðardóttir liér innan skamms.
Brúarfoss íór t.il ísafjarðar i gær-
kvöldi.
Aðrir hljómleikar Hljómsveitar
Beykjavíkur verða næstkomandi
sunnu dag í iðnó. í hljómsveitinni
eru nú 34 menn. Stjórnandi er dr.
Mixa. Viðfangsefni eru að þessu
sinni verk eftir Schubert, Tschai-
kowsky og Mendelsohn.
Félag ungra Framsóknarmanna
heldur íund kl. 8% í kvöld. Ey-
steinn Jónsson alþm. talar um
stjórnmálaflokkana og næstu
kosningar. þetta er seinasti fund-
urinn í vetur. Ef tími vinnst til,
verður rætt um sumarstarfsemi
félagsins. Hún hefir verið lítil und-
anfarið, en nú er í ráði að auka
hana að miklum mun. Er það lika
full nauðsyn og þarf að ræða og
undirbúa það starf rækilega. Væri
æskilegt að sem flestir félagsmenn
létu til sín heyra um það mál.
peir, s.eni gerast nýir kaupend-
ur að Nýja dagblaðinu i dag fá
sérstaklega góð kjör.
Framför. Mbl. er að smálaga á
sér útganginn og taka upp eftir
Nýja dagblaðinu bæði efnisniður-
röðun o. fl. Og það er eins og Val-
týr sé að minnka skammimar og
læra mannasiði. Eru þetta góð tíð-
indi, a. m. k. ef framförin verður
nokkuð varanleg. Meira að segja
liggur við að Mbl. flökri við að
taka málstað ávísanasvikaranna,
eins og það er þó vant að gera
með flestan ósóma, sem upp kemst
í þjóðíélaginu, en láti Vísi það ein-
um eftir. — Allt er þetta framför.
Farþegar með e.s. Brúarfoss til
Vestfjarða og Breiðafjarðar í gær:
Magnús Guðmundsson, Haraldur
Guðmundsson Elías Jónsson og
frú, Elín Samúelsdóttir, Bjöm
Hjaltested, þráinn Sigurðsson, Ól-
afúr Proppé, Matthías Sveinsson,
Óskar Ámason, Bjarni Jónassori,
Bjarni Sigurðsson, Ingibjörg Guð-
brandsdóttir, Evlalía Kristjánsdótt-
ir, Aðalbjörg Aðalsteinsdóttir, Ing-
ólfui' þórarinsson, Guðm. Krist-
jánsson, Jón Bjarnason, Arthur
Nielsen, Jóhanna Sigurjónsdóttir,
Anna Pálmadóttir, Kristín Hall-
dórsdóttir, Svava Gísladóttir, Inga
Sigurðardóttir, Margrét Júlíusdótt-
ir, Kristín Eiríksdóttir, Kristin
Guðmundsdóttir, Ólafur Pétursson,
Guðm. Einarsson, Andrés Karlsson,
Jóhann Gíslason.
Fólagflstlórnin.
Nýkomid:
Asparges í dósum (ítalskar).
Asíur í glösum.
Agurkur í glösum.
Appelsínu-marmelaðe (ítalskt).
Sýróp í glösum.
Capers í glösum.
Gerduft í stömpum.
Jarðarberjasulta (ítölsk).
Kaupfélag1
Bankaetrœti 2
Kirsuber Cocktail í glösum.
Marmite Extract, 2 oz. og 4 oz.
Maccarónur, ítalskar.
Ferskjur, niðursoðnar.
Perur, niðursoðnar.
Apricosur, niðursoðnar.
Blandaðir ávextir, niðursoðnir.
Reykjavíknr
Sími 1245
Verzlið
að öðru jötnu viö þá
sem auglýsa í
Nýja dagblaðinu
Clóð bók
I
er einhver bezta tækifæris-
gjöfln. Flestir bókamenn lesa
Nýja dagblaðið. pað er því
heppilegt að minna á góðar
bækur í Nýja dagblaðinu,
nú fyrir sumardaginn fyrsta.
Nefnd liefir ríkisstjórnin skipað
sér til aðstoðar til þess að leið-
]>cina um val á stað fyrir hina
nýju síldarverksmiðju, sem í ráði
er að reist verði á Norðurlandi. í
nefnd þcssari em: Guðm. IJlíðdal
landssímastjóri formaður, Krisfján
Bergsson form. Fiskifélagsins,
Trausti Ólafsson efnafr., Loftur
Bjarnason útgerðarmaður, Sveinn
Benediktsson framkvstj., og Svoinn
Árnason fiskimatsmaður.
Magni fer kl. 10 í Borgarnes í
staðinn fyrir Suðurland, sem er
vestur á Breiðafirði.
Guðspekifélagið. — Reykjavíkur-
stúkan, fundur í kvöld kl. 8%' —
Efni- Magnús Gíslason les nokkra
kafla úr ræðum Mr. Botli. Gestir.
Skipafréttir. Gullfoss var í Kaup-
mannahöfn í gær. Goðafoss var i
gær á leið til Vestmannaeyja frá
Hull. Brúai'foss fór til Vestfjorða
og Breiðafjarðar í gærkvöldi.
Dettifoss fer til Hull og Hamborgar
í kvöld kl. 8. Lagarfoss var í Kaup-
mannahöfn í gær. Selfoss var í
Antwerpen í gror.
Norræna félagið
Framh. af 1. síðu.
Áætlað er að ferð þessi kosti
230 krónur. Þátttakendur eiga
að vera á aldrinum 13—18 ára.
Gert er ráð fyrir að skóla-
fólkið fari á II. farrými með
Lyru, sem er mjög gott.
Skemmtiferðir
Norræna félagsins.
Skemmtiferðum félagsmanna
verður líkt fyrir komið og
ferðum skólafólksins, að öðru
leyti en því, að gert er ráð
fyrir ferð um Hardangerfjörð-
inn í ferðinni fyrir félagsmenn.
Ferðaáætlunin í Svíþjóð verð-
ur í öllum aðalatriðum eins.
Ferðirnar fyrir félagsmenn
j verða nokkru dýrari en fyrir
j skólafólkið, og stafar það af
því, að ekki fæst jafnmikill af-
sláttur á fargjöldum fyrir full-
orðna og fyrir unglinga, og
gert er ráð fyrir, að félagsmenn
búi á hótelum, en skólaung-
lingarnir í skólunum. Verð
Noregsferðarinnar er áætlað
kr. 300—375 en Svíþjóðarferð-
arinnar 375—440 kr., eftir því
hvort farið verður á I. eða II.
farrými á skipinu. Svíþjóðar-
ferðin hefst 12. júlí, en Nor-
egsferðin 26. júlí.
Umsóknir um þátttöku þurfa
að vera komnar til ritara fé-
lagsins, Guðl. Rósinkranz,
Tjarnargötu 48, fyrir 1. júní.
(Nánari upplýsingar viðvíkj -
andi ferðunum er hægt að fá
hjá ritara félagsins, sími 2503).
*ft 'Allt með íslenskiiiii skipnm! *fi
Rúgbrauð, franskbrauð og
normalbrauð á 40 aura hvert.
Súrbrauð 30 aura. Kjamabrauð
30 aura. Brauðgerð Kaupfél.
Reykjavikur. Sími 4562.
Rósastilkar, afar fallegt úr-
val fæst á Vegamótum við
Kaplaskjólsveg.
Bökun í heimahúsum, eftir
Helgu Sigurðardóttur er ný-
komin út í annari útgáfu, auk-
in og endurbætt. Fæst hjá öll-
um bóksölum.
Ágætt píanó til sölu með
tækifærisverði. Uppl. í síma
4484.
Vegna burtflutnings vil ég
selja lítið notuð svefnherberg-
ishúsgögn, með tækifærisverði.
I-Iúsgagnavinnustofan Einar &
Júlíus, Vatnsstíg 3.
Óviðjafnanlega góðar norð-
lenzkar gulrófur fást nú í
Flóru, Vesturgötu 17. Sími
2039.
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
„Komi ríki þitt“ fæst hjá
öllum bóksölum. Kostar aðeins
4 kr. bundin, en 3 kr. óbundin,
Munið
lága vöruverðið á
TÝSGÖTU 8
Tilkynningar
Sníð allan kvenfatnað eftir
máli, er að hitta alla virka
daga frá kl. 1—5 e. h. á heim-
ili mínu, Laufásvegi 12.
Láretta Hagan. Sími 4247.
Ef þú villt að af sé máð
óhreinkan í tíma:
3—1—8—3 er ráð,
þá að hringja í síma.
Sníðum og mátum kvenkáp-
ur og dragtir. Saumastofan
Tízkan, Austurstr. 12, 1. hæð.
Húsnœði
Herbergi í eða nálægt mið-
bænum óskast 14. maí eða fyr.
Fyrirframgreiðsla. A. v. á.
Lítil íbúð á góðum stað í
bænum til leigu frá 14. maí.
Uppl. á skrifstofu S. I. S. Sími
1080,
Tvö herbergi og eldhús ósk-
ast 14. maí, má vera í góðum
kjallara. A. v. á.
2 herbergi og eldhús óskast
14. maí handa manni í fastri
stöðu yfir árið ef um semur.
Tilboð sendist Nýja dagblað-
inu merkt „Skilvís“.