Nýja dagblaðið - 18.04.1934, Side 2
2
N ♦ 3 A
DAGBLAÐIÐ
Reiðhjól
Fermingar- og aumargjafir
Reiðhjól okkar, svo sem „Fálkinn11, „Armstrong“, „Con-
vincible“ og „Philips11 eru fyrir löngu viðurkennd hór á
landi fyrir gæði sín, sem hin beztu sem á markaðnum eru.
Verð lægra en á sambærilegum teg. hjóla
annarsstaðar. Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Reidhjólaverksm. »Fá!kínn«
Dansskemmtun
verður haldin i Mýrarhúsaskólanum
í kvöld kl. 9
m
Nýtízku-
mnustur
Skinandi góð verk. Beztu hlutir til tækifærisgjafa, eins og allir sjá.
Bezt úrval hjá
Jóni Sigmundssyni
gullsmiði Laugavegi 8
Efnalaugin Lirnlin,
Frakkastíg 16, Reykjavík. Sími 2256
Kemisk hreinsun á karlmannafatnaði kr. 7,50. —
Stórkostieg verðlækkun á kemiskri hreinsun á
kvenkjólum og kvenfatnaði, t. d. áður 5—6 kr., en
nú 4—5 kr. — Hattar hreinsaðir og gerðir sem
nýir. — Nýtízku-vélar, áhöld og aðferðir.
Alls konar fataviðgerðir eru leystar af hendi fljótt
og vel--Sími: 2256.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
E.s. Hekla
tekur vörur til flutnings beint til Reykja'
víkur frá:
NAPOLI kríngum 23. þ. m.
GENCA „ 28. „
Afereiðsla á báðum stöðunum er hjá:
Northern Shipping Agency
Símn. „Korthship1.
Allar frekari upplýsingar hjá:
Faaherg- & Jakobsson
Islenzkir leirmunir
til sumargjafa. í Listvinafélagshúsinu
og hjá Árna B. Björnssyni, Lækjarg, 2.
Bálför Finns Jénssonar
Með Finni Jónssyni er fallinn frá einn hinn merkasti íslendingur
og duglegasti fræðimaður í norrænum fræðum um nær hálfrar
aldar skeið. Líkami hans var brenndur með mikilli viðhöfn 5. april
á bálstofunni í Bispebjerg, að viðstöddu míklu fjölmenni.
Eins og frá var skýrt í ís-
lenzkum blöðum fór bálför
Finns prófessors Jónssonar
fram í Kaupm.höfn fimmtu-
daginn 5. apríl, að viðstöddu
fjölmenni. Var þar mættur
mikill fjöldi Hafnar-lslendinga
og ýmsir hinna merkustu fræði-
manna danskra, er verið höfðu
vinir og samverkamenn Finns
Jónssonar. Höfuðræðurnar, sem
þarna voru fluttar,, héldu þeir
Ásgeir Ásgeirsson forsætisráð-
herra af íslendinga liálfu, en
próf. Erik Aarup flutti ræðu
af hálfu Dana. Fer hér á eftir
minningarræða ' Ásgeirs Ás-
geirssonar forsætisráðherra:
Vér erum hér saman komin
við -bálför Finns Jónssonar pró-
fessors til að færa honum þakk.
upphafi, sögulegur réttur, ætt-
g'öfg’i og manndómur forfeðr-
anna, snilld og mannvit. I
skrælnuð blöð sögunnar hafa
yngri kynslóðir sótt þor og
þrek og metnað til að.meta sína
þjóð til jafns við stærri
og voldugri.
Hinar fornu bókmenntir
skópu oss tilverurétt meðal
Jijóðanna. Fræðimenn, sem að
útgáfu þeirra og skýringum
hafa unnið, hafa að sínu leyti
um langt skeið farið með utan~
rikismál íslenzku þjóðarinnar,
unnið henni það álit, sem hún
nýtur erlendis og vakið þann
áhuga, sem ágætir menn er-
lendir hafa sýnt á að kynna
sér nútíð þjóðarinnar og styðja
hana í baráttunni fyrir sjálf-
átæði og bættum lífskjörum.
Frá útlararathöfninni. — Forsætisráðhcrra Ásgeir Ásgcirsson flytur
minningarræðuna.
Kistan i bálstofunni. Krans frá konungshjónum fremst við kistunn.
ir fyrir langt og' mikið starf í
þjónustu íslenzkra fræða, tjá
hinum mikla drengskaparmanni
virðingu vora og flytja honum
hinnztu kveðju íslenzku þjóð-
arinnar.
Fræðistörf hafa jafnan verið
í miklum metum á íslandi. Þau
voru stunduð af höfðingjum og
höfuðklerkum. í skinnbókum og
pergamentsblöðum hefir varð-
veitzt saga þjóðarinnar frá
Mestur þeirra er Jón Sig-
urðsson. Hann gerði hvort-
tveggja að skrá fortíðina og
skapa framtíðina. Til jafns við
hann kemur enginn. En um
fræðistörf stendur Finnur
Jónsson honum næstur, og ég
hygg um drengskap og mann-
dóm, þeirra íslendinga, sem
starfað hafa hér í Kaupmanna-
höfn um langan aldur.
Finnur Jónsson hefir um tæp
Próf. Finnur Jónsson.
60 ár unnið að íslenzkum fræð-
um af svo miklum kröftum og
þoli að fádæmum sætir. Hann
hefir rýnt í torlesin handrit,
borið saman sæg af heimildum
og samið yfirlitsrit, sem létta
þeim kynslóðum, er á eftir
koma, stórlega öll störf. Á
þeim grunni, sem hann hefir
hlaðið, byggja nú allir vísinda-
menn norrænna fræða. Hann er
kennifaðir þeirrar kynslóðar,
sem nú leggur stund á norræn
vísindi. Um það ber hið mikla
afmælisrit, sem út var gefið í
tilefni af 70 ára afmæli hans,
skýran vott. Um langan aldur
mun vart verða stungið svo
skóflu í jarðveg íslenzkra
fræða, að ekki komi niður á
hleðslur, sem hann hefir lagt.
Að vísu mun oft þurfa að taka
upp stein og færa til svo
traustlega verði byggt ofan á.
En þó mun betur standa
verk hans en venja er til, því
hugarflug bar hann ekki af-
vega. Og þó einkum vegna
þess, að hann hafði ást á við-
fangsefnum sínum og bar fyrir
þeim dýpstu lotningu.
Finnur Jónsson lagði þegar í
æsku út á þær brautir, sem
honum var áskapað að halda.
Til æfiloka hélt hann svo beina
stefnu. Æfi hans er eins og
þungur straumur, sem fellur í
föstum farvegi frá upptökum
til ósa. Það eru engir fossar
né hávaðar í æfistraumi hans.
Það er öðrum ætlað að leika á
fiðlu fossbúans og ná litum
regnbogans, sem myndast í úða
sögunnar. En göngu Finns
Jónssonar fjdgir þungur niður,
sem er öruggur leiðarvísir fyr-
ir þá, sem reyna að ná hljómi
og litskrúði liðinna tíma.
Finnur Jónsson er hinn
rammíslenzki fræðiþulur, sem
vinnur erlendis sitt meginstarf.
Af hvorutveggju hafði hann
ávinning. Hann stóð föstum
fótum á íslandi og aftur í öld-
um, þó hendumar, sem penn-
anum stýrðu, hvíldu á dönsku
borði og hugsunin klæddist
búningi danskrar tungu. Að-
Framh. á 4. síðu.