Nýja dagblaðið - 01.05.1934, Page 1

Nýja dagblaðið - 01.05.1934, Page 1
NyJA DAGBIAÐIÐ 2. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 1. maí 1884. 100. blað Hæstaréttardómurinn í gœr í máli Lárusar Jóhannessonar gegn Afengisverzlun ríkisins Dómurinn féll klukkan 10 í grarmorgun. Forstjóri Afengisverzlun- arinnar og fjárraálaráðherra voru algerlega sýknaðlr. — Lárus Jó- hannesson hefir þar með tapað mólinu fyrir fullt og allt. ágreiningur um það, að út- reikningur áfrýjanda á álagn- ingu Áfengisverzlunar á um- ræddum tímabilum umfram 75% af kostnaðar- eða útsölu- verði sýni eigi of háar tölur, og að hinar umkröfðu upphæðir séu því eigi út af fyrir sig eigi of hátt settar. Ágreiningur að- ilja varðar þar á móti það tvennt, hvort Áfengisverzlunin hafi verið bundin við ákveðna hundraðstölu við álagningu sína á hin svonefndu Spánar- vín, og hvort hinum stefndu væri, ef svo reyndist, að Áfeng- isverzluninni hafi verið settar slíkar skorður, skylt að endur- greiða áfrýjanda það af and- virði úttektar hans, er uinfram- álagningunni nemur samkvæmt framangreindum kröfum hans. Um fyrra atriðið athugast, Yiðtal við Guðbrand Magnússon forstj. Dómsniðurstaðan hljóðarsvo: Því dæmistrétt vera: Hinir stefndu, Guðbrandur Magnússon, f. h. Áfengisverzl- unar ríkisins og Ásgeir Ás- geirsson fjármálaráðherra, f. h. ríkissjóðs, eiga aðverasýkn- ir af kröfum áírýjanda, Lárus- ar Jóhannessonar, f. h. Guð- mundar Þórarinssonar, í máli þessu. Málskostnaður, bæði í héraði og fyrir hæstarétti falli niður. Hér fara á eftir: forsendur dómsins Áfrýjandi hefir krafizt þess fyrir hæstarétti, aðallega að hinir stefndu verði in solidum dæmdir til að greiða honum umstefndar kr. 1812,18 með vöxtum eins og í hinum áfrýj- aða dómi segir, en til vara, að hin dæmda upphæð verði kr. 1760,55 með 6% ársvöxtum af ; kr. 47,03 frá 31. dez, 1928 til 81. dez. 1929 til 31. dez. 1930, kr. 1167,21 frá 81. dez. 1930 til 31. dez. 1931 og af kr. 1760,55 I frá 31. dez. 1931. Er varakrafa þessi miðuð við það, að end- urgreiðsla kynni að verða dæmd af andvirði úttektar hans aðeins frá 24. ágúst 1928 til 81. dez. 1931. Til þrautavara krefst áfrýjandi, að hin dæmda upp- hæð verði ákveðin kr. 1703,55 með 6% ársvöxtum af kr. 47,03 frá 81. dez. 1928 til 31. des. 1929, af kr. 630,32 frá 81. dez. 1929 til 31. dez. 1930, af kr. 1167,21 frá 31. dez 1930 til 6. nóv. 1931, og af kr. 1703,55 frá 7. nóv. 1931. Er þrauta- varakrafan miðuð við það, að honum yrði aðeins dærnd end- urgreiðsla af ancivirði úttektar- innar frá 24. ágúst 1928 til 6. nóv. 1931. Loks krefst áfrýj- andi málskostnaðar fyrir báð- um réttum. Hinir stefndu hafa krafizt staðfestingar á hinum áfrýj- aða dómi og málskostnaðar fyr- ir hæstarétti. 1 máli þesiu er enginn Blaðið hafði í gærdag tal af Guðbrandi Magnússyni forstj. Áfengisverzlunar ríkisins. — Gerðuð þér ráð fyrir þessum úrslitumí? — Já, ég hefi gert ráð fyrir því frá upphafi, að ríkið myndi Guðbrandur ISagnússon. vinna þetta mál. Mér hefði satt að segja þótt það nokkuð hastarlegt, ef dómstólamir hefðu úrskurðað það ólöglegt, að ríkissjóður væri látinn njóta hagnaðar, sem fenginn var með því eingöngu, að lækka innkaupsverð vínanna með því að kaupa þau beint, frá fram- leiðendum. — Hefir þá útsöluverð vín- anna alls ekkert hækkað hér í yðar tíð? — Nei, útsöluverðið hefir staðið í stað að heita má og þó heldur farið lækkandi. Aðeins ein tegund af kampavíni hefir verið hækkuð til samræmis við aðrar. — Voru nokkrar ráðgtnfan- ir gerðar til verðlækkunar, þegar málshöfðun Lárusar Jó- hannessonar koni fram í fyrra- sumar? — Nei. Að vísu lagði dóms- málaráðherrann fyrir mig, bréflega, að gæta þess, að á- lagning á vínin yrði ekki hærri en „lög stæðu til“, og mun hann þar hafa átt við 75%. Vegna þessara fyrirmæla var byrjað að flytja vínin inn á flöskum. Og af því að með því móti reiknast af þeim hærri tollur, og á hann er einnig lagrt, þá varð þessum fyrirmælum dómsmálaráðherrans fullnægt án þess að söluverð vínanna þyrfti að breytast og með þvi móti var ríkissjóði forðað frá tapi að mestu leyti. — Gjörið þér ráð fyrir, að þessum innflutningi á flöskum verði haldið áfram, eftir að dómur er fallinn um, að álagn- ingin hafi verið lögleg? — Nei, að sjálfsögðu flyfj- um við vínin inn á tunnum eins og áður, svo að greiðslan fyrir vinnu við aftöppun fari ekki út úr landinu. — Meðal annara orða: Hefir Pétur Zophóníasson þurft að fá nokkuð af áfengisbókumj verzl- unarinnar til vísindalegra rann- sókna síðan málið var höfðað í fyrra? — Nei, Áfengisverzlunin hefir ekkert orðið vör við Pét- ur í þeim erindum síðan. — Ég vil nota tækifærið til þess, segir forstjórinn að lok- um, að taka það fram, að verj- andinn Pétur Magnússon hæstaréttarmálaflm. hefir lagt mikla og góða vinnu i þetta mál. Tíl lesenda Dr. Þorkell Jóhannesson hef- ir í gær látið af ritstjóm Nýja dagblaðsins, en heldur áfram ritstjóm fylgiritsins „Dvöl“. Með þessu blaði tekur Gísli Guðmundsson við ritstjórn Nýja dagblaðsins. Utgáfustjórnin. að 1. gr. laga nr. 62/1921 bann- ar öllar öllum nema ríkisstjórn. inni, að flytja inn í landið áfengi og vínanda, sem í er meira en 2^4% af alkóhóli að rúmmáh. Eftir 7. gr. sömu laga skal leggja á áfengi þetta 25%—75% af verði þess, kom- ins í hús að viðbættum tolli og eftir 11. gr. þeirra skal ríkis- stjórnin ákveða hámarksverð í smásölu á áfengisvörur þessar. Verður að skilj a ákvæói þessi þannig, að í 7. gr. sé átt við álagningu á vörur þessar í heildsölu, en í 11. gr. sé ríkis- stjórninni auk þess veitt heim- ild til álagningar á vörurnar í smásölu. Eftir orðum sínum tekur fyrsta gr. nefndra laga til hverskonar áfengis, er þá var leyfilegt að flytja inn í landið eða síðar kynni að verða leyfð- ur innflutningur á, enda mátti þá þegar snemma á árinu 1921 búast við því, að ekkj yrði kom- izt hjá því að leyfa innflutning á vínum frá þeimc löndum, þar sem aðalmarkaður fyrir íslezk- an salt fisk var. Með lögum nr. 9/1922 sbr. tilsk. nr. 10 s. á. var svo leyfður um eitt ár að sinni og síðar með lögum nr. 3/1923 um óákveðinn tíma, innflutningur hinna svonefndu Spánarvína, og í reglugjörð nr. 65 frá 18. júlí s. á., er svo ákveðið í 1. gr., að Áfengis- verzlun ríkisins, er þá var ný- stofnuð, annist um innflutning þeirra vína, og í 4. gr., að hún ákveði útsöluverð þeirra, er eigi megi fara fram úr inn- kaupsverði með áföllnum kostn- aði, að viðbættum venjulegum verzlunarhagnaði. Sölutilhögun- in var sú, að Áfengisverzlunin lét einstaka menn annast smá- söluna á nokkrum tilteknum stöðum á landinu í sínu nafni. og á sína ábyrgð gegn V6 af útsöluverðinu, en í Reykjavík rak Áfengisverzlunin smásöl- una í eigin nafni. Það er að vísu óglöggt hvort ætlazt hefir verið til þess í öndverðu, að verðlagsákvæði 7. og 11. gr. áð- umefndra laga nr. 62/1921 tækju til Spánarvínanna, en gera verður þó ráð fyrir að átt sé við þessi álagningarákvæði í hinum áðumefndu óákveðnu ákvæðum 4. gr. reglugjörðar nr. 65/1922, og að minnsta kosti er þessu nú slegið föstu með lögum nr. 69/1928, svo sem Framh. á 4. gíðu. Fascisminn lögtestur í Austurriki með nýrri stjórnarskrá London kl. 18, 30/4. FÚ. Ilin nýja stj órnarskrá Aust- urríkis gengur í gildi á morg- un, og verður Austurríki þar með Fasistaríki en ekki sam- Fey varakanzlarí, sem stjórnaði blóðbaðinu í Wien- arborg í vetur. bandslýðveldi, eins og verið hefir. Stjórnin samanstendur af forseta, ráðuneyti hans og 4 ráðum, sem skipuð eru af íorsetanum, ríkisráði, mennta- málaráði, sem fjallar um trú- mál, listir og menntamál, fjár- málaráði og ráði, sem fjallar um málefni hinna einstöku landshluta, og verður það skip- að landsstjórum og ráðgjöfum þeirra. Þessi 4 ráð kjósa svo í sameiningu 5. ráðið, sem nefnt er sambandsráð, og hefir það aðeins rétt til þess, að fallast á eða hafna frumvörpum stjórnarinnar, en ekki að gera neinar breytingar né eiga frum. kvæði að málum. Ef sambands- ráðið hafnar einhverju frum- varpi stjórnarinnar, er henni samkvæmt stjórnarskránni heimilt að lýsa yfir hernaðar- ástandi í landinu. Stjórnarskrá- in í þessari mynd var sam- þykkt í einu hljóði á þingi Austurríkis í dag og er þingið í rauninni þar með úr sögunni. Ospektír á Whíte-Star Spaneknr sjómaður settur inn Kl. 10,05 á sunnudagskvöld- ið var lögreglan kölluð frá kaffihúsinu „White Star“ og beðin að koma og stilla þar til friðar. Koni lögreglan og tók þar spánskan sjómann, er var með óspektir, og var honum fengin gisting í steininum. Hann var sektaður um 50 kr. í gærmorgun og látinn laus.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.