Nýja dagblaðið - 02.05.1934, Síða 4

Nýja dagblaðið - 02.05.1934, Síða 4
4 rt t j a DAOBLASIÐ í DAG Sólaruppkoma kl. 4.02. Sólarlag kl. 8.50. Flóð árdegis kl. 7.15. Flóð síðdegis kl. 7,40. Veðurspá: Stinningskaldi að vest- an eða norðvestan, skúrir eða éljaveður. Ljósatimi hjóla og bifreiða 9,15— 3,40. Stfin, akriístoiur o. iL: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 pjóðskjalasafnið ........ opið 1-4 Alþýðubókasafnið opið 10-12 og 1-10 Listasafn Einars Jónssonar .... 1-3 Landsbankinn ......... opinn 10-3 Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3 ÚtvejfsbanHnn opinn 10—12 og 1—4 Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7 Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7^2 Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan ...... opin 10-5 Landssíminn ............ opinn 8-9 Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6 Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4 Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5 Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipaíélagið ......... opið 9-6 Stjómarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4 Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda opið 10—12 og 1—6 Skrit'st. bæjaiins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst lögrnanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Tryggingarst ríkisins 10-12 og 1-5 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 Hœstiréttur kl. 10. Hatmsóknartíml sjúkrahúsa: Landsspítalinn .......... kl. 3-4 Landakotsspitalinn ........ kl. 3-5 Laugarnesspítaii ...... kl. 12%-2 Vífilstaðahœlið 12^-1% og 3Vi-4Vi Kleppur .................. kl. 1-5 Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9 Sólheimar...................kl. 3-5 Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4 Næturvöröur í Laugavegs- og Ing- ólfs-apóteki. Næturlæknii'; Hannes Guðmunds- son, Hverfisgötu 12. Sími 3105. Skemmtanir: Iðnó: Mevjaskemman kl. 8. Samgöngur og póstferðir: Lyra frá Færeyjum og’Bergen. Selfoss til Antwerpen, Dagskrá útvarpstns: KI. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. Tilkynningar. 19,20 Erindi í. S. í. IJm glímur (Arnór Sigurjónsson). 19,50 Tónleikar. Auglýsingar. 20,00 lílukkusláttur. Fréttir. 20,30 Er- indi: Undrasaga álsins (Árni Frið- riksson). 21,00 Fiðlu-sóló (þórar- ínn Guðmundssop. Grammófónn: Schubert: Rosamunde. Símar Nýja dagblaðslns: Ritstjóri: 4373. Fréttaritari: 2353. Afgr. og augL: 2323. Málverkasýning Finns Jónssonar Ansturstrœti 10 er opin í síðasta sinn 1 dag til kl. 8 síðdegis. Anná.11 Skipafréttir. Gullfoss fór vestur og norður í gærkvöldi með mikinn fjölda farþega, Goðafass kom til Hull i nótt um miðnætti. Brúar- foss fór frá Kaupm.höfn i gær. Dettifoss fór frá Hull í gærkvöldi. Lagarfoss var á Akureyri í gær. Selfoss er i Reykjavík. Frá jökulförunum hafa enn engar fréttir borizt. Málverkasýning Finns Jónssonar er opin í dag og ekki lengur. Ágætur afli hefir verið undan- farið í verstöðvum á Suðvestur- landi og sömuleiðis á sunnanverð- um Austfjörðum. Framan af ver- tíð voru mjög miklar ógæftir, en í marzmánuði kom mjög mikill fiskur á land, og er búizt við, að heildarútkoma vertíðarinnar verði vel í meðallagi. Nú allra síðast hafa togararnir aflað skipa bezt hlutfallslega. Margir þeirra komu inn eftir síðustu helgi vegna storms en fóru strax út aftur og sögðu mikinn fisk. Gagnfræðaskóla Reykjavíkur er sagt upp í dag. Námusprenging varð í Englandi í gærmorgun. 200 menn unnu í námunni. Talið að 15 hafi farizt. Um 20 fiskiskip lágu á Sandi í fyrradag vegna óveðurs. Veitingastaður. Einn af þeim ó- dýru og snotru en yfirlætislausu veitingastöðum hér í bæ, er á Laugaveg 5. Hefir þar sú breyting á orðið, að Óskar Thorberg Jóns- son bakari rekur hann einn fram- vegis. Hefir þai' nú verið komið fyrir góðum radió-grammófón og útvarpstaiki, svo menn geta hlust- að á músik og fréttir o. fl. um leið og þeir njóta ágætrar hress- ingar, sem þar er á boðstólum. Foreldrar skólaskyldra bama í Skildinganesi hafa sótt um það til skólanefndar, að vorpróf barna, sem heima eiga þar í hverfinu, verði látin fara fram í skólanum þar, en ekki inni í Miðbæjarskóla, eins og venja liefir verið undan- farið. I ofviðrinu á sunnudaginn brotn- aði nokkur hluti handriðsins á Tjarnarbrúnni að norðanverðu. Er handriðið orðið mjög fúið, og svo mun vera um brúna yfirleitt. Virð- ist ástæða til að aðvara menn um að keyra varlega um brúna. Vinna stöðvuð. Á mánudags- kvöldið yar verið að ljúka við uppskipun á salti úr skipi, sem hefir iegið hér næstliðna viku, og var eftir ca 1 kl.st. vinna eða 15 til 20 tonn kl. 10 um kvöldið. Komu þá þrír menn frá Dagsbrún niðureftir og stöðvuðu vinnuna, og lögðu $vo fyrir, að ekki yrði unnið við skipið fyr en á mið- vikudag. En skipið fór í gær kl. 1!Á>, án þess að lokið yrði vinn- unni. Gaskolaskip kom í fyrrinótt með gaskol til gasstöðvarinnar. Tveir franskir togarar komu í íyrradag að fá sér' kol og salt. 3 nemendur frá Reykholti tóku próf upp í 2. bekk Kennaraskól- ans og fengu þeir hærri einkunnir en aðrir utanskólanemendur og álíka háar og þeir sem beztir voru innan Kennaraskólans. Eftir Skeiðarárhlaupið síðasta varð þess vart að borizt hafði all- mikið af viðarlurkum fram á sandinn með hlaupinu, og verður þess lielzt getið til, að jökullinn hafi fyr á tímum skriðið yfir skóglendi þar upp frá, og við um- lirot þau og sprengingu er í jökl- inum varð, liafi lurkar þessir bor- izt með jökulhiaupinu. Má því ætla,- að þessir viðarlurkar séu komnir æðimikið til ára sinna, og I. mai í Reykjavik Framh. af 1. síðu. hornum. Héðinn Valdimarsson, Guðjón Baldvinsson, Sigurjón Ólafsson og Stefán Jóh. Stef- ánsson töluðu og auk þeirra fulltrúi frá Þvottakvennafélag- inu Freyja og einn sendisveinn, en Lúðrasveitin lék á milli ræðanna og Karlakór Alþýðu söng nokkur log. Meðan á ræðuhöldunum stóð á Austurvelli héldu kommúnist- ar til í Lækjargötu og voru þar ræðuhöld og spilað þess á milli af lúðrasveit. Töluðu þar Aðalbjörn Pétursson frá Siglu- firði, Eggert Þorbjarnarson frá ísafirði, Stefán ögmundsson, Jóhannes úr Kötlum og Einar Olgeirsson. Auk þess talaði, spanskur sjómaður til landa sinna nokkurra er þátt tóku í kröfugöngunni. Nazistar sáust óvíða og munu þeir hafa haft lítið um sig og gengið helzt um götur, þar sem| þeir bjugg- ust ekki við að rekast á aðra. Allt fór fram með kyrrð og spekt, og dreifðist mannfjöld- inn um er áðurnefndum ræðuhöldum lauk kl. 4. í gær- kvöldi héldu Alþýðufélögin skemmtun í Iðnó, en kommún- istar héldu skemmtun í K.-R- húsinu og í fundarsal sínum í Bröttugötu. Síra Sigurður Einarsson messaði í þjóðkirkjunni í Hafn- arfirði, og var messunni út- varpað. kynni áð vera þarna efni til at- hugunar fyrir þá, er skynbragð bera á slíka hluti. Mun Hannes bóndi á Núpstað ætla að halda sýnishornum af þessum trjábútum til liaga. Lyra kom frá útlöndum í gær- kvöldi. Lokadansleikur Appollo klúbbs- ins verður næsta laugardagskvöld. Bifreið stolið. Kl. 9,15 á sunnu- dagskvöldið var hringt til lögregl- unnar og lienni skýrt frá, að bif- reið heíði verið ekið upp í grjót- vegg við hús á Sóleyjargötu. í bif- roiðinni höfðu verið þrír ungling- ar og hlupu þeir út úr henni og á brott. Er lögreglan kom á vett- vang, fann hún bifreiðina R.E. nr. 896 þarna við garðinn, og var hún mikið brotin að framan, með stýr- ishjólið ú r sambandi, og yfirleitt illa útleikná. Eigandi bifreiðarinn- ar, Svanborg bifreiðarstjóri, liafði gengið frá bifreiðinni niður við Tðnó, þar sem hann var að horfa á leiksýningu, og hafði liann skil- ið lykilimi eftir í bifreiðinni og lar henni stolið meðan á leiknum stóð. það hafði ekki hafst upp á unglingum þeim er valdir voru að stuldinum, er síðast fréttist Frá byggingar- og landnáms- sjóði. Milli 20 og 30 bændur víðs- vegar um land hafa fengið lán úr „Byggingar- og landnámssjóði" til bygginga á íbúðarhúsum á yfir- standandi ári. Auk þess munu all- margir hafa í hyggju að byggja sér hús á þessu vori, með von um lán á n. k. ári. Útlit er fyrir að almennt séu menn að hneigjast meira að einlyftum húsum, með kjallara og flötu eða hallalitlu þaki, og hefir sú breyting orðið mikil á allra siðustu árum. VORSKÓLI Austurbæjar byrjar nú 3. stárfsár sitt. Hefir aðsókn að skólanum verið mikil undanfarin ár, því að áhugi fólks fyrir vor- Prófin í Kennaraskólanum Framh. af 1. síðu. dóttir, Reykjavík. Rósa B. Blöndal, Framnesi, Árn. Sigfús Sigmundsson, Grófargili, Skaga- firði. Sigríður Árnadóttir, Odd- geirshólum, Árn., Sigfríður Sigurðardóttir, Víðivöllum, Fljótsdal, Skeggi Ásbjarnarson, Svartagili, Norðurárdal. Soffía Benjamínsdóttir, Vatnsleysu- strönd. Soffía Jóhannesdóttir, Reykjavík. Solveig Guðmunds- dóttir, Hafnarfirði. Tryggvi Tryggvason, Kirkjubóli, Isa- firði. Valborg Benediktsdóttir, Bildudal. Valgerður Briem, Reykjavík. Þorsteinn Matthías- son, Kaldrananesi, Stranda- sýslu. Þessir útskrifuðust úr 4. bekk: Aðalsteinn Teitsson, Víði- dalstungu, Húnv. Áslaug Egg- ertsdóttir, Leirárgörðum, Borg- arfj.s., Bjarni Jónsson, Stakka. hlíð í Loðmundarfirði. Björn Jónsson, Glitstöðum, Norður- árdal. Dagmar Bjarnason, Reykjavík. Eirikur Stefánsson, Ilallfreðarstöðúm, Múlasýslu Felix Jósafatsson, Húsey, Skagafirði. Gísli Gottskálksson, Úlfsstöðum, Blönduhlíð, Guð- mundur Björnsson, Núpdals- tungu, Húnav. Guðmundur Eggertsson, Einholtum, Mýra- sýslu. Guðmundur Vemharðs- son, Hvítanesi, Isafj. Helga Skúladóttir, Keldum, Rang. Helgi Vigfússon, Klausturhól- i um, Árn. Jóhann Hjaltason, Hólmavík, Steingrímsfirði. Jón Konráðsson, Eyvindartungu, Árn. Jón Kristgeirsson, Hauka- dal, Árn. Jónas B. Jónsson, Torfalæk, Húnav. Jónatan Ja- kobsson, Aðalbóli, Miðfirði. Páll Þorsteinsson, Hnappavöllum, öræfum. Sigfús Hallgrímsson, Vestmannaeyjum. Sigfús Jóels- son, Húsavík. Steingrímur Benediktsson, Vestmannaeyj- um. Steinþór Einarsson, Djúpa- læk, N.-Múl., Svafa Skaftad., Skarði í Dalsmynni. Sæmund- ur Dúason, Krakavöllum, Skagafirði. Þorbjörg Benedikts. dóttir, Reykjavík. Þórunn II. Guðmundsdóttir, Þorfinnsstöð- um, ísafjarðarsýslu. Þessi vetur var 25. starfsár skólans. Samtals hafa sótt hann um 700 nemendur, en útskrif- ast 532, að þeim meðtöldum, sem útskrifuðust nú. Þar af munu vera starfandi nú við bamakennslu í þjónustu ríKi^ ins um 250 kennarar. skólastárfsemi hér í bænum eykst stöðugt. Er það einnig hin mesta nauðsyn, að sem flest börn geti verið undir handleiðslu kennara við náin óg útilíf að sumrinu. GötuTífið er eí til vill hættulegast, þegar skólar eru hættir að vor- inu og börnin hafa ekkert at- livarf með áhugamál sín, félags- i þörf og starfslöngun. Vorskóli Austurbæjár hefir átt miklum vin- sældurn að fagna, enda haft góð- niii starfskröftum á að skipa. llafa fjöldi foreldra tjáð, að börn sín liáfi notið gleði og gagns við slílca starfsemi. Vonandi að sem flest börn fái notið vorskólans. • Ódýrn f auglýsiiigarnar. Taða til sölu á 11 aura kg. A. v. á. Nokkrir klæðaskápar seljasc í’yrir 14. maí með sérstaylega góðu verði. Uppl. í síma 2773. FROSIN DILKASVIÐ fyrirliggjandi. S, í. S, — Simi 1080. Nýir dívanar á 35 krónur, madressur o. fl. fáið þið mjög ódýrt og vandað og einnig rúm með madressum með tækifæris- verði á Laugavegi 49 A. Einn tvísettur skápur með innbyggðum servanti, til sölu fyrir 80 krónur. Uppl. í síma 2773. Saltfiskbúðin er vel birg af nýjum fiski. Sími 2098. D I V A N A R (og viðgerðir) með góðu stoppi og mörgum fjöðrum, verða beztir og sterkastir, ódýrastir og fallegastir. — Húsgagna- vinnustofan Skólabrú 2 (hús Ól. Þorsteinssonar læknis). Nokkrar húseignir til sölu Lítil útborgun. Til viðtals á Baldursgötu 16, uppi, kl, 1—2 og 6—7 daglega. Sig. Guð- mundsson. Rúgbrauð, franskbrauð og normalbrauð á 40 aura hvert. Súrbrauð 30 aura. Kjamabrauð 30 aura. Brauðgerð Kaupfél. Reykjavíkur. Sími 4562. Tilkynningar Lauritz Jörgensen málara- meistari Vesturvallagötu 7 tek- ur að sér allsk. skiltavinnu, utan- og innanhúss málningar. Gott ódýrt fæði fæst í K.-R- húsinu. Einnig einstakar mál- tíðir. Hreinsa og geri við eldfæri og miðstöðvar. Sími 3183. Menn teknir í þpónustu. Upp- á Laugav. 64 uppi. Veitið athygli! Fæði og lausar máltíðir fáið þið bezt og ódýrast. Matstofan Tryggva- götu 6. Húsnæði IJerbergi til leigu á allra skemmtilegasta stað í Miðbæn- um. A. v. á. Ilerbergi, helzt . með hús- gögnum og aðgangi að síma, óskast nú þegar. Tilboð merkt garðyrkjumaður, sendist Nýja dagblaðinu. Góð íbúð óskast handa manni í fastri stöðu með litla fjöl- skyldu. Tilboð merkt „P“ send- ist afgr. Nýja dagblaðsins fyr- ir 30. þ. m. 2—3 stofur og eldhús óskast í nýtízku húsi 14. maí. Fyrir- framgreiðsla. Sími 2092. Skílvísir kaupendur blaðsins gerðu því greiða, ef þeir borguðu það á hverjum mánaðamótum án ít- rekaðra rukkana.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.