Nýja dagblaðið - 12.05.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 12.05.1934, Blaðsíða 4
4 N Ý J A DAGBLAÐIÐ í DAG Sólaruppkoma kl. 3,28. Sólarlag kl. 9,21. Flóð árdegis kl. 4,30. Flóð síðdegis kl. 4,45. Veðurspá: Vaxandi sunnanátt og rigning. L.jósatimi hjóla og bifreiða 9,45— 3,05. Sfifn, skrlistofur o. fL: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 Alþýðubókasafnið .. 10-12 og 1-10 Landsbankinn ........ opinn 10-3 Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3 ÚtvegsbanFinn opinn 10—12 og 1—4 Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7 Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7% Fósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan ...... opin 10-5 I.andssíminn ............ opinn 8-9 Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6 Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4 Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5 Samb. ísl. samvinnufél 9-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafélagiö .......... opið 9-6 Stjómarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4 Sölusamb. ísl. fiskframlsiðsnda opið 10—12 og 1—6 Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Trygkingarst. ríkisins 10-12 og 1-5 Ilafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 Skipaskoðunar og skráningast. ríkisins 10-12 og 1-6 Baðhús Reykjavíkur .... opið 8-8 Lögregluvarðst opin allan sólarhr. Helmsóknartími sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspítalinn ........ kl. 3-5 Laugarnesspítali ....... kl. 12Ú2 2 Vífilstaðahælið 12V2-iy2 0g 3y2-4% Kleppur .................. kl. 1-5 Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl.l-3og8-9 Sólheimar...................kl. 3-5 Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4 Næturvörður í Reykjavíkurapóteki og lyfjabúðinni Iðunn. Næturlæknir: þórður jpórðarson, F.iríksgötu 11. Sími 4655. Samgðngur og póstfcrðir: Suðurland til Akraness og frá Akranesi. „Dronning Alexandrine" til Fær- eyja og- Khafnar. Esja austur um í luingferð. Brúarfoss til Breiðafjarðar og N’estfjarða. Skemmtanlr og samkomur: G.T.-húsið: S. G. T.: eldri dansarnir í kvöld. * Dagskrá útvarptdna: Kl. 10,00 Veðrufregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 18,45 Barnatími (frú Margrét Jóns- dóttir). 19,10 Veðurfregnir. Tilk. 19,25 Erindi: Um ástir (Jlórunn Richardsd.). 19,50 Tónleikar. Aug- lýsingar. 20,0Ö Klukkusláttur. Frétt- ir. 20,30 Upplestur: Sögukafli (Halldór Kiljan Laxness). 21,00 Tónleikar (Lúðrasveit Reykjavík- ur). 21,20 Grammófónkórsöngur: Operukórar. Danslög til kl. 24. Simar Nýja dagblaðsins: Ritstjóri: 4373. Fréttaritari: 2353. Afgr. og augL: 2323. Þetr sem vilja gera éóð ka«p á allskonar málningarvörum komi á Laugaveg 25. Þar fæst t. d. löguð málning í öllum litum, distemper í öllum iitum, mattfarvi fjölda litir, lökk fjölda tegundir. Rex húsgagnao Lang ódýrast í bænum. Málning og járnvörur Laugaveg 25 Sixni 2 8 7 6 Simi 2 8 7 6 á b u r ð u r Dósir á. 55 aura í öllum búðum. Anná.11 Skipafréttir. Gullfoss fór frá Vestmannaeyjum í fyrradag á leið til l.eith. Goðafoss fer frá Ham- l)org i dag á leið til Hull. Brúar- foss fer til Breiðaíjarðar og Vest- fjarða í kvöld kl. 11. Dettifoss lcom til Siglufjarðar í gær. Lagarfoss var á Akureyri i gær. Selfoss var í gær á leið til Antwerpen frá Leith. Bisp var i Reykjavík í gær. Sigrid fór frá Hull 9. þ. m. á leið hingað. Fisktökuskipið Beiriz frá Fortúgal fór í gær. Einnig salt- skipið Word til Akraness. U. M. F. Velvakandi heldur síð- asta fund sinn á þessu starfsári í kaupþingssalnum í kvöld kl. 9, og er þetta afmælisfagnaður félags- ins. Ollum ungmennafélögum er heimill aðgangur að fundinum. Aí veiðum komu í fyrradag tog- ararnir Belgaum, llilmir og Im- perialist. í gær kotnu Skallagrim- ur með 70 og Tryggvi gamli með 68 lifrarföt. Hvalreki. Sainkvæmt frásögn fréttaritara útvarpsins í Rangár- vallasýslu rak nýlega hval á Dals- fjöru undir Eyjafjöllum. Hvalur- inn 10 álna langur, en ekki vita tnenn hverrar tegundar hann e.r. Kinar Jónsson myndliögyvari átti sextugsafmæli í gær. Ilann dvélur nú' erlendis. Frambjóðendur Alþýðuliokksins i Skagafirði eru ákveðnir: Krist- inu Gunnlttugsson verkamaðui' á Sauðárkróki, og Pétur Jónsson á Brúnastöðum. Einnig er ákveðið framboð Finns Jónssonar aljringis- rnaniis á Ísaíirði. Glímufélagið „Ármann“ biður drengi þá, sem ætla að verða með í innanfélagshlaupi drengja á aldrinum 12—16 ára og innan 12 ára aö mæta í menntaskóiann á sunnudaginn kl. 10 f. h. Harmonikusnillingarnir Gellin og Borgström eru væntanlegir hingað til lands nú bráðlega. Útsvörin á ísafirði. Niðurjöfnun útsvara á Isafirði er nýlokið. Jafn- að var niður 212,300 krónum. þessir eru hæstu gjaldendur: Kaupfél.^ ísfi rðinga 8,040 kr., Raf- lýsing Ísaíjarðar li/f. 5,900, Björg- vin Bjarnason 5,800, Guðni M. Bjarnason 5,670, Jón S. Edwald 5,600, Olíuverzlun íslands 5,500, Soffía Jóhannsdóttir 5,500 og Shell- félagið 5,300 krónur. Síldarverksmiðjan nýja, sem reist verður á Norðurlandi, mun verða sett á Siglufjörð. Meiri hluti nefndai' þeirrar, sem velja átti staðinn, leggur til að svo verði. Búizt er við að þessi ráðstöfun spari landinu hálfa miljón króna. Srglufjarðarbær mun hafa í hyggju að krefja ekki leigu af hinni miklu lóð, sem ríkisbræðsl- an var reist á. Ennfremur ætla Siglfirðingar að láta dýpka höfn- ina til þess að greiða fyrir af- greiðslu síldarskipa, og leggja fram kostnað við það verk. Enn- Iremur sparast kostnaður við að reisa ýmiskonar mannvirki, svo sem bryggjur, geymsluþrær o. fl., við það að hin nýja verksmiðja vcrður sett á þennan stað. Skólamál Miðnesinga Framh. af 8. slðu. menntamála Miðnesinga ? Lið- ugar 2 þúsundir króna til 2ja kennara. Það er með öðrum orðum meðlag tveggja til þriggja ómaga, eins og þeir gerast nú margir. En er nú ekki kominn tími til að skapa æskunni á Mið- nesjum betri skilyrði til menningar og þroska en verið hefir, vegna einangrunar og illra aðstæðna í menntamálum og atvinnumálum ? — Vonandi slaka þeir ekki á klónni, sem hafizt hafa handa í þessu máli, fyr en það er sem farsælleg- ast til lykta leitt. Valdimar Össurarson frá Kollsvík. Aflaleysi við Austurland. Einar Friði’iksson frá Hafranesi er ný- kominn úr ferð um Austfirði. Segir hann að nú sé að kalla iiskilaust við Austurland. Fram að páskum aflaðist mjög vel á llornafirði og einnig á Fáskrúðs- íirði. Ilöfðu uílahæstu vélbátar á þessum stöðum þá fengið 230 skp. Var það einn hinna nýju sam- vinnubáta al' Eskifirði, sem afla- liæstúr var á Hornafirði. En afla- hæsta bátinn á Fáskrúðsfirði á Sigurgeir Jónsson útgerðarmaður. l’ni páska livarl' fiskur eystra að kalla, þar til nú, að afli er tekinn að giæðast aftur á Hornafirði. — Síldarafli er nú hvergi á Aust- fjörðum, nema hvað „brislingur" (mjög smá síld) lékkst í dráttar- iiætur á Homafirði. Eggjum varpað í hafið. Nýlega var 10 millj. af eggjum varpað í sjóinn á Spáni. Höfðu þau verið flutt þangað frá Póllandi. Var liá- marki innflutningsleyfis þess, sem Fólverjar höfðu fyrir egg, þegar náð, og eggin byrjuð að skemm- ast, svo annað úi-ræði var ekki fyrir hendi. Mikill tungumálamaður. í ensku blaði cr nýlega sagt frá manni, *sem er mjög lærður í tungumál- um, Dr. Ludwig Harald Schútz í Frankfuit on Muin. Hann skilur 200 tungumál og talar 60 þeirra fullum fetum. Hann or sextugur að aldri. Lítil prentvél. Tveir menn í Moskva, vélfi'æðingui'inn Lepkov og prentarinn Golnbkov, hafa fundið upp og smíðað prentvél, sem er lítið eitt stærri en ritvél. Getur hún unnið með þrennum liraða — pi’entar hún 1,500, 2,000 og 2,500 eintök á kl.stund. Hún er stigin eða í’ekin með rafmagni, og getur því notazt víða og undir misjöfnum ki'ingumstæðum. Verð- itr innan skamms fai'ið að • fram- leiða þessa vél í stórum stíl. Ráðgert er að leggja bílveg frá Bandaríkjunum og suður til Bu- enos Aires í S.-Ameiíku. Ilefir stjórn Bandai'íkjanna gert kostn- aðaráætlun vegarins suður til Panama, sem er 25—80 milljónir dollara, eftir því úr hverju veg- urinn yrði byggður. Drjúgur og: gljáir vel Alla fína og viðkvæma innanstokksmuni gljáið þór úr R e x S. G. T. Vegna áskorana: Eldri dans- arnir í kvöld í G.T.-húsinu. Áskriftarlisti á sama stað, sími 3355. — Bernburg spilar (sex menn). ÚrsBÍfiavinnustofa mín er í Austurstræti 3. Haraldur Hag'au Sími: 3890. Stúlka óskast 14. maí. Björn Rögnvaldsson Hringbraut 110 Samvinnumenn í Svíþjóð. — Sænska samvinnublaðið, Konisu- mentblaðið, skýrir frá því, að sam- kvæmt skýrslum samvinnufélag- anna þar fyrir síðastl. ái', séu nú alls 533 þús. félagsmenn i sœnsku kaupfélögunum og ef talið er að oinn félagsmaður hafi að baki sér fjögra manna fjölskyldu til jafn- aðar, lætur nærri að rúmur þriðj- ungur þjóðarinnar hafi viðskipti við kaupfélögin. Síðastl. ár bætt- ust við 20.857 félagsmenn. § Ódýrn an^lýsingeruar. Kaap og sala Nýleg eldavél emeleruð til sölu. — Bjöm Rögnvaldsson, I-Iringbraut 110. Sel heimfluttan húsdýraá- burð. Valdemar Jónsson Hverf- isgötu 41. Ódýr útungunarvél til sölu (250 egg), Sólstöðum í Lang- holti. Kalkun-egg til sölu í Lauga- . dal við Engjaveg.____________* Nitrophoska IG, algildur á- burður, handhægasti áburður- inn við alla nýrækt, garðrækt og að auka sprettu. Kaupfélag Reykjavíkur. SPAÐKJÖT af úrvalsdilkum alltaf fyrir- liggjandi. S. í. S. — Sími 1080. Saltfiskbúðin er vel birg af nýjum fiski. Sími 2098. Til sölu lítið einbýlishús í út- jaðri bæjarins (Kirkjusandi). Uppl. kl. 11—12 f. h. og 8—9 e. h. Steingr. Stefánsson, óð- insgötu 4. Sími 2769. Munið lága vöruverðið á TÝSGÖTU 3 Reiðhjólih Hamlet og Þór eru þau beztu segja allir, sem reynt hafa. Fást hvergi landinu nema hjá SIGURÞÓR. Hús og aðrar fasteignir til söiu. Hús tekin í umboðssölu. Skrifstofan í Aðalstræti 9 B opin kl. 11—12 ug 5—7. Sími 4180 og 3518 (heima). Helgi Sveinsson. Hillupappír, mislitan og hvítan selur Kaupfélag Revkia- víkur. Sími 1245. n Húsnæði n Kjallaraherbergi til leigu Lauí'ásvegi 79. á Gott herbergi til leigu með sérinngangi, rétt við miðbæinn. Upplýsingar hjá Þórhalli Bjarn- ars'ýni prentara í Gutenberg. Herbergi og eldhús til leigu á Fi'amnesveg 40. \ Tilkyiiningnr . . .Áður en þér flytjið í nýja húsnæðið, skuluð þér láta hreinsa eða lita dyra_ og gluggatjöld, fatnað yðar eða annað, sem þarf þess með, hjá Nýju Efnalauginni. Sími 4268. Lauritz Jörgensen málara- meistari Vesturvallagötu 7 tek- ur að sér allsk. skiltavinnu, utan- og innanhúss málningar. Atvinna Unglingspiltur á aldrinum frá 11—14 ára óskast á gott heimili í sveit. A. v. á. Tvær stúlkur óskast 14. maí á búið í Viðey. Sími 1949. Stúlka óskast 14. maí eða síðar. Gott kaup. A. v. á. Tek að mér allskonar hrein- | gerningar. Sími 3467.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.