Nýja dagblaðið - 23.05.1934, Blaðsíða 1
Frambjóðendur
Framsóknarflokksins
í Mýra- og Borgarfj.s.
Á aðalfundi Framsóknarfél.
Borgfirðinga voru ákveðnir
frambjóðendur Framsóknarfl.
Bjarni Ásgeirsson alþm. Reykj-
Framboð íhaldsins
í Reykjayik
HarOvítugar innbyrðisdeilur hafa staðið hjá
íhaldsmönnum út af framboði þeirra í Reykjavík.
Skipulag afurðasölunnar
Fyrir nokkrum missirum
benti Jón Ámason á 1 Tíman-
um, að sjálfsagt væri að lög-
bjóða að blanda smjörlíki með
smjöri, gera smjörlíkið, þessa
algengu fæðutegund, hollari og
skapa um leið síaukinn markað
fyrir smjörframleiðsluna í land-
mu. Alþingi tók upp þessa vit-
urlegu tillögu J. Á. og gerði lög
um þetta efni. En nú vantar
smjör í landið. Smjörlíkið er
enn lítið blandað og oft ekkert.
Ráðagerð Framsóknarmanna
um stór aukið landnám, um
samvinnubyggðir, byggist ekki
sízt á vissunni um þennan
mikla innlenda markað fyrir
smjör.
Jón Ámason tók málið um
skipulag afurðasölunnar í heild
sinni fyrir í miðstjóm Fram-
sóknarflokksins í sumar sem
leið, og þeir Eysteinn Jónsson
og Jón lögðu þar allan grund-
vö'll að þeirri baráttu. Tveir
þriðju hlutar af kjötframleiðsl-
unni er notað í landinu, og
stundum fer meir en helmingur
af verðinu í milliliði, marga al-
óþarfa. Um mjólkina er það að
segja að bóndinn austanfjalls
fær oft ekki nema V3 af því
verði, sem neytandinn borgar
í Reykjavík. Þar er talið að séu
100 mjólkurbúðir, en þyrftu
ekki nema 10. Allt hitt eru
óþarfa útgjöld fyrir bændur og
neytendur. Skipulagningin er í
því fólgin að fækka milliliðum
og minnka óþarfan kostnað, og
láta báða hagnast, bóndann
sem framleiðir, og bæjamann-
inn, sem kaupir. Gott dæmi um
þýðingu skipulags er það, að
bændur í Eyjafirði fá meira
fyrir hvem lítra af mjólk sinni,
heldur en bændur austanfjalls.
Þó er mjólkin meir en x/3
ódýrari á Akureyri en í Reykja.
vík. Glöggir bændur telja að
ágóðinn af skipulagningu kjöt-
sölunnar myndi fyrir meðalbú
alltaf geta orðið 300 kr. án
þess að verðið hækkaði sýni-
lega í bæjunum.
Bjargráðið, sem allir sáu.
Mitt í erfiðleikum kreppunn-
ar fundu allir, að hér var um
að ræða stærsta hagsmunamál
bænda. Tr. Þ. viðurkenndi í
blaði sínu, að Kreppulánasjóður
væri ekkert framtíðarúrræði,
nema ef bóndinn fengi meira
f-yrir afurðir búanna. Hann
taldi ósennilegt, að íhaldið yrði
gagnlegt við þessa löggjöf, af
því að hún gengi að nokkru út
á að þrengja kost milliliðanna.
Tr. Þórhallsson viðurkenndi
að þessa löggjöf myndi verða
að framkvæma af Fram-
sóknarflokknum og Alþýðu-
flokknum. Og honum fannst
slíkt samstarf geta verið eðli-
legt. Allt átti að hækka, Ilærra
verð fyrir kjötið til handa
Itændum. Hærra kaup handa
verkamönnum. Eysteinn Jóns-
son og Tr. Þ. unnu um stund
að bví að mynda san.bræðslu-
stjórn til að hrinda þessu máli
í framkvæmd. öll miðstjórn
Framsóknarflokksins og lang-
samlega mestur hluti þing-
flokksins vildi þessa lausn. Það
var að hrinda í framkvæmd
stærsta atvinnumáli bændanna.
Það var að láta rætast þeirra
•stóru bón.
Tveir þingmenn eyðilögðu •
þetta. En á bak við þá stóð
Þorst. Briem. Hann átti aðra
bón fram að bera, bón hins
pólitíska spekulants. Hann vildi
fá að lafa í stjórninni fáeinum
mánuðum lengur. Hann og Jón
vissu, að þeir myndu falla í
Dölum og Húnaþingi. Þeim datt
sá ófamaður í hug að spekúlera
fyrir sig, en skaða umbjóðend-
ur sína. Þeir afréðu að setja
upp sprengiflokk í því eina
skyni að reyna að komast inn
sem uppbótarþingmenn. Þeir
treystu á vinsældir Tr. Þ. á
Ströndum. Hann átti að draga
þessa tvo menn inn í þingið.
Til að uppfylla þeirra bæn, varð
að setja mál bændanna í hættu.'
Bændastéttin er beðin að svíkja '
sjálfa sig, dreifa kröftum; sín-
um frá sinni lífsbaráttu, og
liðsinna tveim spekúlöntum,
sem ekki geta komizt að í neinu
kjördæmi.
Hvað áttu verkamenn að fá?
Bændur áttu að fá sína bæn
uppfyllta. Þeir áttu að fá skipu-
lagningu á innlendum markaði.
En verkamenn áttu í sinn hlut
að fá það, að samið yrði um
kaup þeirra í opinberri vinnu
með hliðsjón af taxta atvinnu-
rekenda og verkamanna í næsta
kaupstað eða kauptúni. Þetta
var ekki nema að nokkru leyti
mál verkamanna. Það var líka
stórmál fyrir bændur, alvey
Framh. á 4. síðu.
um í Mýrasýslu og Jón Hann-
esson bóndi í Deildartungu í
Borgarf j arðarsýslu.
Stjórnarskifti
í Búlgaríu
Hin nýja sfjórn situr við stuðn-
ing hersins og hefur atnumið
jiingræðið og tekið sér einræð-
isvald. Grunur leikur á, að
konungurinn sé fangi hinna
nýju stjórnenda
London 21./5. kl. 17. FÚ.
1
1 Búlgaríu er allt rólegt síð- i
an nýja stjórnin tók við völd-
um á laugardaginn. Stjómin
er aðallega skipuð herforingj-
um og fyrst og fremst háð
hernum, en er í andstöðu við
hina gömlu flokka í landinu.
Stjórnin hefir þegar afnumið
þingið í landinu, en sett á lagg-
irnar í staðinn nýja þingsam-
komu, og sitja á því þingi 100
fulltrúar, og eru 75 þeirra til-
nefndir af stjórninni, en 25 af
atvinnusamböndum í landinu.
London 22./5. kl. 17. FÚ.
Búlgaríufregnir segja, að í
Sofia sé allt nokkumveginn
eins og það eigi að sér að vera
og að herstöðvar séu nú ein-
ungis hafðar til öryggis við op-
inberar byggingar.
London 22./5. kl. 17. FÚ.
í gær voru stjórnardeildirnar
fengnar í hendur hinum nýju
yfirmönnum þeirra. Allt virð-
ist vera rólegt í landinu, en
menn gera ráð fyrir því, að í
Makedoníu muni geta komið til
óeirða, en það er erfitt að fá
þaðan áreiðanlegar fregnir.
Fregnum ber ekki saman urr
það, hvernig stjórnarDreyting-
in hafi verð framkvæmd. Bor-
is konungur tók á móti nýju
ráðherrunum í höll snni í gær.'
Konungurinn hefir ekki sézt-|
opinberlega síðan stjórnarbreyt
ingin varð og þessvegna hefir
komið upp orðasveimur um það,
að hann sé í raun og veru fangi
í höll sinni og að hernum hafi
tekizt að koma á stjómarbreyt-
ingunni einungis vegma þess,
að hann hafi umkringt höllna
áður.
Deilt hefir verið um Guðrúnu í Ási, Sigurð
Heimdallarritstjóra, Helga Hermann 0. fl.
Þessar innbyrðis róstur sýna, að íhaldið er
sundurlyndur, ósamstæður og þar af leiðandi
deyjandi flokkur,
Á Varðarfundi 18. f. m. var
kosin nefnd til að ráða vali
manna á lista íhaldsflokksins
við Alþingiskosningamar í
Rvík. 1 nefndina vom valdir ó-
lafur Thors, Guðmundur Ás-
björnsson, Vigfús frá Engey,
Ámi frá Múla, Sigurður Heim-
dallarritstjóri og einhverjir
fleiri.
Þessi nefnd hefir nú haldið
marga fundi og auk þess hafa
ýmsar klíkur íhaldsmanna hér
í bænum haft fundi um þetta
mál. Og útkoman hefir alltaf
verið sú sama: Vaxandi ósam-
komulag og óánægja.
Af fjórum þingmönnum
Reykjavíkur á íhaldið nú þrjá,
Magnús Jónsson prestakennara,
Pétur Halldórsson bóksala og
Jakob Möller. En þingmanna-
tölu Reykjavíkur fjölgar nú
upp í sex. Ihaldsmenn þeir,
sem bjartsýnastir eru, gera sér
von um að vinna hér fjögur
þingsæti.
Um fjögur efstu sætin á list-
anum hefir því baráttan staðið.
Um Magnús og Pétur munu
flestir hafa verið sammála.
Iiinsvegar hafa staðið megn-
ustu deilur um Jakob Möller.
Hann er allra íhaldsmanna ó-
vinsælastur hér í bænum, þeirra
sem við opinber mál fást. 1
bæjarstjórnarkosningunum síð-
ustu strikuðu fjölmargir nafn
hans út af íhaldslistanum og
hans út af íhaldslistanum eða
færðu hann niður. — Þeir
sem voru á móti honum,
sögðu það því mestu óhæfu að
hafa jafn óvinsælan mann ofar-
lega á lista, þar sem það yrði
sérstök heppni, ef hægt væri að
vinna fjórða sætið. En Jakob
hótaði með sprengiframboði eða
kosningabandalagi við nazista.
Og nú er það ákveðið að Jakob
fari í eitthvert af þrem efstu
' sætum listans.
Um fjórða sætið hefir þó að-
al rimman staðið. Guðrún Lár-
usdóttir gerði þegar kröfu um
að fá það sæti. Hún þóttist
launa verð fyrir langa og dygga
fylgd við íhaldið. Þá mælti það
með sér, að hún væri kona og
gæti því ef til vill dregið eitt-
hvað af kvenfólki, sem kýs eft-
• ir kynferði, en ekki skoðunum.
' Jafnframt mun hún hafa hótað
með framboði Gísla sonar síns.
Sigurður Kristjánsson, ritstj.
Heimdallar, sótti einnig fast að
'hreppa sætið. Hann þykir nú
óboðlegur í kjördæmum úti á
landi og veldur því ritstjórnar-
ferill hans. Stuðningsmenn
hans sögðu að Reykvíkingar
væru svo sanntrúaðir, að það
mætti bjóða þeim allt. Sigurður
hafði líka talsmann í framboðs-
nefndinni, þar sem hann var
sjálfur.
Þá sótti Jóhann Möller það
fast að vera fjórði maður.
■ Ilann var fjórði maður á lista
íhaldsins við alþingiskosning.
arnar í fyrra, en þá var sætið
líka algerlega vonlaust. Ileim-
dellingar nokkrir munu hafa
stutt þessa viðleitni Jóhanns.
Þykir yngri mönnum íhaldsins
yfirleitt, að hinir eldri menn
sýni sér lítinn sóma. Fyrst var
þeim synjað um þátttöku í
framboðsnefndinni og svo fá
þeir ekki mann í vonarsætið.
Þá gerðu nokkrir iðnaðar-
menn kröfu um, að fá yfirráð
yfir fjórða sætinu. En áður en
lengra var komið, urðu þeir ó-
sáttir um, hver það sæti skyldi
hljóta. Sumir vildu Helga Her-
mann, en aðrir Einar Erlends-
son byggingarmeistara. Þar
með var það framboð úr sög-
unni.
Um þessa menn og nokkra
fleiri hefir verið rifist fram og
aftur í herbúðum íorystu-
manna íhaldsins. Um miðjan
dag í gær stóð það þannig, að
Sigurður Kristjánsson var á-
kveðinn í fjórða sætið og
gömlu þingmennimir þrír í hin
efstu. Jafnframt var ákveðið
að Guðrún Lárusdóttir yrði í
fimmta sæti, en óvísst hvort
Jóhann fengi inni á listanum.
í gærkvöldi var boðað til
fundar í Varðarfélaginu og til-
kynnti framboðsnefnd að þar
ætlaði hún að skila af sér störf-
um. Svo mikinn beig hefir hún
af hinum óbreyttu liðsmönnum,
. að hún gefur þeim ekki kost á
• að sjá listann, fyr en það er
orðið of seint fyrir þá að koma
Framh. á 4. síðu.