Nýja dagblaðið - 13.06.1934, Síða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
listinn er listi Framsóknarflokksins
Ferðaskrifstofa Islands
Ársfundur
hefir nú opnað afgreiðslu sína í Ing-
ólfshvoli, sama stað og 1 fyrra.
Ferðaskrifstofan gefur allar upplýsing-
ar um ferðalög og sumargistihús eins
og að undanförnu. Sirui 2939
Sláttuvélar
Bændur um land
allt eru beðnir að
athuga:
Að vér seljum ein-
ungis nýjustu gerð
af sláttuvélum —
Herkúles og Detring
- með sjálfvirkri
smurníngu,
Vélarnar eru með öllum nýjustu endurbótum.
Samband ísl. samvinnufélaga
•REYKJAVIK •
__—
LITUN - HRftÐPRLffUN
HRTTRPRE/7UN KEMITK
FRTR OG iKINNVÖRU =
HRE.INJ UN -
Afgreiðsla og hraðpressun Laugaveg 20 (inngangur
frá Klapparstíg). — Verksmiðjan Baldursgötu 20.
Sent gegn póstkröfu um allt land.
Sími 4263. — Pósthólf 92.
Móttaka hjá ITirti Hjartarsyni, Bræðraborgarstíg 1.
Sími 4256. — Afgreiðsla í Hafnarfirði í Stebbabúð,
Linnetsstíg 1. — Sími 9291.
Ef pér þui-fið að láta gufuhreinsa, hraðpressa, lita
eða kemisk-hreinsii fatnað yðar eða annað, þá getið
þér verið fullviss um, að þér fáið það hvergi betur
né ódýrara gert en hjá okkur. — Munið, að sérstök
biðstofa er fyrir þá, er bíða meðan föt þeirra eða
hattur er gufuhreinsaðnr og pressaður..
Sendum. — Allskonar viðgerðir. — Sækjum.
Mynda og nammavenzl.
FREYJUG. 11 Sími 2105
Í5LENZK MflLVERK
Ursmiðavinnustofa
mín er í Austurstræti 8.
H&raldur Hag&n
Sími: 8890.
Sambands sunnlenzkra kvenna
Sjötti ársfundur sambands
sunnlenzkra kvenna ei- nýlega
afstaðinn. Var hann haldinn í
nýja barnaskólahúsinu í Braut
arholti á Skeiðum. Fundinn
sátu 14 fulltrúar frá 10 sam-
bandsfélögum. í sambandinu
eru alls 13 félög.
Lögð var fram skýrsla um
störf sambandsins á síðast-
liðnu ári. Fyrir tilhlutun þess
voru haldin tvö ’saumanám-
skeið og tvö vefnaðarnámskeið
við Reykjahæli. Þá beittu fé-
lagskonur sér fyrir því, að
handavinna væri kennd við
bamaskólana á sambandssvæð-
inu. Ennfremur stóð samband-
ið fyrir leiðbeiningum í garð-
yrkju og fékk Jarðþrúði Ein-
arsdóttur til að gegna því
starfi. Nokkur námskeið í mat-
reiðslu á- grænmeti hélt það
einnig á síðastliðnu hausti.
Hefir starfsemi sambandsins
verið hin myndarlegasta og fé-
lagskonunum til mesta sóma.
í sambandi við ársfundinn
var haldin handavinnusýning.
Voru þar sýndir ýmsir munir,
sem unnir höfðu verið á náms-
skeiðunum eða konurnar höfðu
unnið sjálfar á heimilum sín-
um. Mesta athygli vakti
handavinna frá barnaskólanum
í Biskupstungum. Kom þar til
greina bæði fjölbreytni og
vandvirkni.
Meðal þess sem rætt var á
fundinum var húmæðrastofnun
á sambandssvæðinu- Var skor-
að á félögin að halda málinu
vakandi og afla til þess fjár.
Skorað var á fræðslumálastjóra
að koma því til leiðar, að
handavinna væri kennd við
kennaraskólann og haldin
handavinnunámskeið fyrir kenn
ara, sem ekki hefðu hlotið þá
fræðslu.
Frú Aðalbjörg Sigurðardótt-
ir flutti fyrirlestur einn fund-
ardaginn, er hún nefndi: Heim-
ili og skólar“.
Kosnir voru fulltrúar á lands-
fund kvenna. Kosnar voru:
Fyrir Rangárvallasýslu: Oddný
Guðmundsdóttir, Stórólfshvoli.
Fyrir Árnessýslu: Herdís Ja-
kobsdóttir, Eyrarbakka.
Margar konur sóttu fundinn,
auk fulltrúanna, 0g var hann
áreiðanlega góð hvatning í
þjóðnýta starfi.
FlioiirBkt (inriíi
Þar eru ræktaðar flugur
handa sportmönnum, er
stunda veiðai- í hinum
fiskisælu stórám suður-
ríkjanna.
I Georgía ríkinu í Bandaríkj-
unum er stundaður margskon-
ar landbúnaður og margvísleg’
ræktun. Eitt af því allra ein-
kennilegasta og fágætasta, sem
ræktað er þar, eru flug'ur.
Georgia ríkið er eitt af suð-
urríkjunum. Þar er heitt lofts-
lag. Eftir því falla margar
fiskisælar ár, og þyrpast sport-
menn þangað á sumrum til
veiða. Þeim er hin mesta nauð-
syn að fá flugur og borga þær
háu verði. Er það orsök þess,
að sumir bændur þar tóku það
ráð að fara að rækta flugur,
og telja það borga sig miklu
betur en það er þeir hafi áður
fengizt við, svo sem hveiti-,
baðmullar. eða baunarækt.
I júlí er beztur márkaðurinn
íyrir flugumar. Þá eru þær
sendar út um allar jarðir í litl-
um stokkum úr smáriðuðu vír-
neti. Eru þær sprelllifandi, feit-
ar og- fjörugar, þegar veiðimað.
urinn fær þær og stingur þeim
á öngulinn.
Stundum kemur það fyrir, að
veðráttu hagar þannig, að egg-
in ónýtast, og- það verður lítið
sem bóndinn fær af flugum.
Verður hann þá að taka það tíl
bragðs að fara á flugnaveiðar
með háf og net, svo hann missi
ekki viðskiptavinina.
Að vísu eru það ekki eins
girnilegar flugur, sem hann
nær í á þann hátt, en þó getur
það verið bót í máli og hjálpað
út úr. þeim vandræðum, sem
verða kynnu, ef márgir sport-
menn yrðu flugnalausir.
Annars virðist svo sem það
væri töluvert mikið „sport“
fyrir þessa góðu veiðimenn, ef
þeir byrjuðu á því að veiða
flugurnar, sem þeir síðan beita
fyrir fiskinn, í stað þess að fá
þær sendar, vel upp aldar, feit-
ar og gljáandi, heiman af
bændabýlunum til þess að lenda
í kviði hinna gráðugu fiska.'
Skaðlaust tóbak
Undanfarin ár hafa þýzkir
og amerískir vísindamenn gert
mjög merkilegar tilraunir, sem
álitið er að hafi tekist að lok-
um að ná góðum árangri í.
Þeir hafa verið að reyna að
framleiða tóbaksplöntur, sem
væru lausar við nicotinið, þenn-
an erkifjanda, og þeim hefir
tekist það.
Álit manna hefir jafnan
verið, að það myndi engin
nautn fylgja neyzlu slíks tó-
baks, en tilraunir, sem þessir
vísindamenn hafa gert, benda
ákveðið í þá átt, að áhrifin séu
þau sömu. Fjöldi tóbaksmanna
er hefir reykt þetta nicotin-
lausa tóbak, telja að það veiti
þeim sömu ánægju og annað
tóbak.
í haust verður fyrsta upp-
Áskornn
til Rangœinga
Daglega heyrum við sagt
frá þeim hörmungum, sem
gengið hafa yfir Norðurland nú
að undanförnu, þar sem eru
jarðskjálftarnir og það eigna-
tjón, er þeim hefir verið sam-
fara. í Dalvík og nágrenni
hafa 65 íbúðarhús skemmst að
meira eða minna leyti og 12
eyðilagzt. Geta menn af þessu
séð, hversu geysilegt eigna-
tjón hefir verið jarðskjálftun-
um samfara; enda er talið eftir
lauslegri áætlun, að tjónið
muni nema minnst 400 þús-
undum króna.
Við Rangæingar, sem búum
hér svo nærri eldfjöllunum og
höfum oft orðið fyrir þungum
búsifjum af völdum jarð-
skjálfta, ættum manna helzt
að geta sett okkur í spor
fólksins nyrðra nú. Og okkur
ætti að vera það bæði ljúft og
skylt að leggja þeim, sem fyrir
tjóninu hafa orðið, þá hjálp,
er okkur er unnt.
Ég veit, að flestir okkar
eiga nóg með að sjá fyrir sér
og sínum á þessum tímum, og
þess vegna ekki um stórar
fjárhæðir að ræða, þótt leitað
væri almennra samskota.
Mér hefir því komið til hugar
leið, sem við ættum að fara til
þess að safna allverulegri fjár-
hæð ef vel væri á haldið.
Það mun vera í ráði, að
hinn 1. júlí n. k. verði haldin
brúarvígsla eða héraðsmót við
Markarfljótsbrú. Við komum
þar saman til að gleðjast yfir
því mannvirki, er þar hefir
verið unnið og þeirri sam-
göngubót, er öldurrl og óborn-
um hefir þar hlotnast.
Til þess að sjá um undirbún-
ing og framkvæmdir þepnan
dag höfum við kosið okkur
nefnd. Ég vil nú leyfa mér —
og þar veit ég að fjöldinn er
mér sammála — að skora á
þessa framkvæmdanefnd að
sjá um að allur ágóði af hér-
aðsmótinu vei’ði látinn ganga
til þessa fólks, sem orðið hef-
ir fyrir tjóni á jarðskálfta-
svæðinu.
Og ég vil ennfremur skora
á alla Rangæinga, er þess eiga
kost, að koma til þessa móts,
þar sem þeir gera með því
tvennt í einu: að gleðja sjálfa
sig, um leið og þeir gleðja
aðra.
Amarhvoli í Hvolhreppi.
8. júní 1934.
Ágúst Einarsson.
skeran (svo heitið geti) af
þessari dýrmætu jurt. Er það
í Kentnaky ríkinu í Bandaríkj-
unum, sem þessar tilraunir
hafa farið fram, svo og í
Þýzkalandi. Vísindamenn, er
við þetta hafa fengizt, bíða
þess nieð óþreyju að sjá og
reyna fyrsta ávöxt þessara
merkilegu tilrauna.