Nýja dagblaðið - 26.06.1934, Side 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Hreðavatn
Þar er yndislegasti staður á Islandi, segja
margir. — Skógar, sléttar grundir, hraún,
fjöll, hlíðar, dalir, fossandi lækir og ár —
og stöðuvötn.
Silungsveiði í vötnunum og laxveiði í
Norðurá.
Á Hreðavatni er tekið á móti dvalargest
um og Veiticg’askálixm við þjóðveginn
norður hefir nú verið opnaður.
Nánari upplýsingar hjá
Ferðaskrifstofu Islands
Ingólfshvoli, sími 2939
Bændur um íand allt eru beðn
ir að athuga:
seljum einungis nýjustu
sláttuvélum —
- með sjálfvirkri
smurningu,
Vélarnar eru með öllum nýjustu endurbótum.
Samband ísl. samvinnufélaga
8
Lækjarforgi 1 Síini 4250
Forstjóri: Jón ölaisson §
Býður yður hagkvæmar líftryggingar. —
Spyrjist fyrir um ýmsar líftryggingar á
skrifstofu félagsins eða hjá tryggingamanni
þess
Kristjáni Póturssyni
Vesturgötu 67
Sími 2150
Höfum enn til
og ágæta
sáðhafra
Samband isl. samvinnufélaga
Er það tflviljon?
Á sama tíma og jarð-
skjálftinn hófst norðan-
lands, varð jarðskjálfta
vart víða í Evrópu, og í
stórum stíl í Indlandi.
Ensk stórblöð skýra frá því,
að laugardaginn 2. júní hafi
geysisnarpur jarðskjálfti gert
vart við sig í Muzzaffapur í
Indlandi. Hafi fólk flúið hús
sín og íbúðir, og heil bæjar-
hverfi hafi hrunið saman fyr-
ir augum þess.
Á sama tíma, um hádegi
þess laugardags, urðu íbúar
Dalvíkur að flýja hús sín og'
íbúðir í þeim mesta jarð-
skjálfta, er þar hefir gert vart
við sig.
Ásamt jarðskjálftanum í
Indlandi reið yfir hvirfilbylur,
er gerði geysilegan skaða, og
að því búnu steyptist regnið
úr loftinu, svo stórkostlega
sem það aðeins getur gert í
hitabeltislöndum. Varð af
þessu myrkur um hádaginn,
svo sem um miðnótt væri.
Þennan sama eftirminnilega
laugardag varð allmikils jarð-
skjálfta vart í Fez í Marocco,
og einnig í Ancona á Italíu,
án þess þó að verulegar
skemmdir yrðu af á þeim stöð-
um.
Einnig varð nokkurs jarð-
skjálfta vart á jarðskjálfta-
mæla í Lundúnum og. Brom-
wich í Englandi þennan sama
dag.
Hvort þama sé um samband
að ræða milli þessara mörgu
jarðhræringa víðsvegar í heim-
inum þennan sama sólarhring,
verður ekki dæmt um af leik-
mönnum, en óneitanlega virð-
ist þetta einkennilegt mjög og
ekki ólíklegt að þarna sé um
samband að ræða.
Væri gaman að heyra álit
þeirra, er vit hafa á slíkum
hlutum, á því hvort líkur séu
til að hér sé aðeins um svo
margfalda tilviljun að ræða,
eða hér sé um einhver sam-
bönd milli þessara ægilegu
jarðhræringa að gera.
Fímmburar
Kanadisk bóndakona
eignast fimmbura. Maður
hennar fyllist örvæntingu.
Kanadisk bóndakona, Olivia
Dionne að nafni, eignaðist
fimmbura fyrir stuttu síðan.
Voru það allt stúlkur og heils-
ast þeim' vel, að sögn.
Áður áttu hjónin fimm
börn og var það elzta þeirra
sjö ára, svo nú eiga þau tíu
barna hóp innan átta ára ald-
urs.
Mælt er að faðirinn hafi orð-
ið mjög áhyggjufullur út af
þessum alls óvænta barnahóp.
Talið er að þessi fimm-
burafæðing sé met fyrir Kan-
ada, og þó víðar væri leitað,
en þetta hefir þó þekkst fyrri,
og fyrir fáum árum átti kona
í Buineos Aires í S.-Ameríku
sexbura.
BRUSLETTO
Hvað er „BRUSLETTO“ ?
Það er ljáaverksmiðjan norska, sem fram-
leiðir hina góðfrægu handsmiðuðu stál-
ljái. — Eylandsljái.
Þessir ljáir eru eingöngu smíðaðir fyrir
oss.
Athugið að nafnið „Brusletto“ standi á
þjóinu á ljánum.
Samband ísl. samvínnufélaga
LITUN - HRftOPRCffUN
HRTTRPREÍÍUN - KEMIIK
FRTR OG JKINNVÖRU =
HReiNJ un -
Afgrfciðsla og hraðpressun Laugaveg 20 (inngangur
Jt | frá Klapparstíg). — Verksmiðjan Baldursgötu 20.
& p ’p Sent gegn póstkröfu um allt land.
p 1 £ Sími 4263. — Pósthólf 92.
o.Móttaka hjá Hirti Hjartarsyni, Bræðraborgarstíg 1.
g bc V Sími 4256. — Afgreiðsla í ITafnarfirði í Stebbabúð,
•£ ° H Linnetsstíg 1. — Sími 9291.
■§ § § Ef þér þurfið að láta gufuhreinsa, hi-aðpressa, Iita
g .S $ eða kemisk-hreinsa í'atnað yðar eða annað, þá getið
Jj J2 p, þér verið fullviss um, að þér fáið það hvergi betur
so ^ g né ódýrara gert en hjá okkur. — Mmiið, að sérstök
2 biðstofa er fyrir þá, er bíða meðan föt þeirra eða
g § | hattur er gufuhreinsaður og pressaður..
Sendum. — Allskonar viðgerðir. — Sækjum.
Duglegur
veiðimaður
Fimm ára gamall drengur í
Hjörring 1 Danmörku, kom
inn til mömmu sinnar nýskeð
allur eitt bros og sagðist hafa
veitt marga, marga fiska.
Svo dró hann upp úr vasa
sínum átta smá höggorms-
unga, vel lifandi, og lagði á
gólfið. Ormamir hópuðu sig
saman á gólfinu í vamar-
stöðu. Móðir drengsins hraðaði
sér út með hann og fékk
höggormana drepna. Þeir voru
orðnir nokkuð vaxnir, ca. 6—8
þuml. langir, og eitraðir.
Þykir það mésta mildi að
enginn þeirra skyldi bíta
drenginn.
Danir selja land
Ein af fegurstu eyjum
Danmerkur til sölu.
Eyjan Faney er til sölu.
Hún er í Litla-belti mílli Fjóns
. og Jótlands. Sund, V% km.
breitt, skilur hana frá Fjóni.
Faney hefir verið kölluð
fegursta perlan í Danska
eyjakranzinum. Siglingaleiðin
eftir Litla-belti gegn um Fan-
eyjarsund, er mjög rómuð.
Eyjan er um 400 hektarar á
stærð, mjög gróðursæl og góð
(írsmiðavlnnustnfa
mín er í Austurstræti 8.
Haraldnr Hagan
Sími: 8890.
undir bú. Allt sem á eyjunni
er, annað en fólkið, fylgir í
sölunni. Margir smábændabæ-
ir, ásamt tveim stórum bú-
görðum, ferðamannahóteli,
kirkju, skógi og ökrum, hjört-
um og dádýrum og stórri
hjörð af hérum, 120 kýr, svín,
alifuglar og ótal margt fleira.
Ferjurnar, sem ganga yfir
sundið að Fjóni, eru líka í
kaupunum1. Húsið, sem fóget-
inn býr í, er það eina sem
eiganda eyjarinnar tilheyrir
ekki, svo og tæpt hundrað
manna, sem eru leiguliðar
eigandans.
Stórbóndinn Lawaetz hefir
átt eyjuna síðastliðinn áratug,
og ríkir sonur hans þar. eins
og kóngur.
En þeim gengur illa að láta
búskapinn bera sig, svo ef ein-
hver er til með að gefa þeim
eina litla miljón króna fyrir
eyjuna, þá ætla þeir að selja
hana.
Spumingin er: verður nokk-
ur til að bjóða eina miljón
króna 1 Faney og standa við
boðið.