Nýja dagblaðið - 03.07.1934, Side 4
4
M Ý J A
daobladid
í DAG
Sólaruppkoma kl. 2,16.
Sólarlag kl. 10,47.
Flóð árdegis kl. 9,55.
Flóð síðdegis kl. 10,20.x
Veðurspá: Vaxandi suðaustanátt,
og rigning.
Söln, akrllstofur o. IL:
Landsbókasaínið .... opið kl. 1-7
Alþýðubókasa. opið 10—12 og 1—10
þjóðskjalasafnið ........ opið 1-3
þjóðminjasafnið ......... opið 1-3
Náttúrugripasafnið ..... opið 2-3
Landsbankinn ......... opinn 10-3
Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3
Útvegsbanfrinn opinn 10—12 og 1—4
Útbú Landsb., Klapparat. opið 2-7
Fósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststoían ..... opin 10-5
Landssíminn ............ opinn 8-0
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t 10-12 og 1-5
Samb. lal. samvinnufél. 0-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 0-12 og 1-6
Gimskipafélagið ......... opið 0-6
Stjómarráðsakrifst .. 10-12 og 1-4
Sölusamb. ísl. fiskframlaiðsnda
opið 10—12 og 1—6
Skrifst bœj&rins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. iögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skriíst lögrnanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Tryggmgarst ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
BaiauAknartiml sJákrahÚM:
Landsapítaiinn ........... kl. 3-1
Landakotaspitalinn ........ kL 3-6
Laugameaspítali ...... kl. 12%-2
Vifilstaðahœlið 12^-1% og 8ft-4ft
Kleppur ................. kl. 1-6
Fseðingarh., Eiriksg.37 kl. 1-3 og 8-8
Sólheimar..................kl. 3-6
Sjúkrahús Hvltabandsina .... 2-4
Farsóttahúaið ............... 24
Nœturvörður í Reykjavikurapóteki
og Iðunn.
Næturlœknir: Jón Norland Lauga-
veg 17. Sími 4348.
Samgðnffnx og póatfarðir:
Suðurland til Borgarness og frá.
Norðan og vestanpóstur fer.
Cxullfoss til Kaupmannahafnar.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregn-
ir. Tilkynningar. 19,25 Grammófón-
tónleikar. 19,50 Tónleikar. Auglýs-
ingar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir.
20,30 Erindi: Kristnin og píslar-
vottarnir (Valdimar V. Snævarr
skólastjóri). 21,00 Tónleikar: a)
Píanó-sóló (Emil Thoroddsen). b)
Grammófónn: Beethoven: Kvartet
Op. 18, No. 4, í C-moll. c) Danslög.
Hreðavatn
Eins og- kunnugt er, er
þar einhver yndislegasti sum-
ardvalarstaður sem völ er á
hér á landi, vegna náttúrufeg-
urðar. Þeir, sem vilja tryggja
sér verustað í bænum Hreða-
vatni, ættu að gera það sem
allra fyrst, en þeir, sem vilja
liggja í tjöldum, fá ókeypis
tjaldstæði á fegurstu stöðun-
um og geta þeir þá fengið
sér fæði, hvort þeir vilja
heima á bænum, eða í veit-
ingaskálanum, sem er þar við
þjóðveginn norður.
Allar nánari upplýsingar
hjá
Ferðaskrifstofu Islands
Ingólfshvoli. Simi 2939.
Annáfll
4. landstundur kvenna var sett-
ur kl. 8Yz í gærkvöldi í Iðnó. Um-
ræðufundir verða í Varðarhúsinu
næstu daga milli kl. 1—7. Öllum
er velkomið að hlusta á umræð-
urnar.
Margir Reykvikingar fóru aust-
ur að Markarfljótsbrú á sunnu-
daginn. Mátti kalla, að ekki væri
hægt að fá neina bifreið hér í
liænum mestallan daginn.
Námskeið við Núpsskólann. Við
héraðsskólann á Núpi hafa staðið
yfir námskeið undanfarið. Hið
fyrsta hófst 16. maí og lauk 17.
júní. Nemendur voru 15, allt ung-
ar stúlkur, og var kennd ýmis-
konar hagnýt handavinna, og mat-
reiðsla, kennslukonur voru Amý
Filipusdóttir, og Gunnhildur
Sveinsdóttir. Húsmæðranámskeið
hófst 13. júni og stóð til þess 23.
Veitt var tilsögn í matreiðslu og
ýms uþví, er að hússtjóm lýtur.
Neinendur vom 20, og kennslu-
konur Helga Sigurðardóttir og Ar-
ný Filipusdóttir. Loks hófst sund-
námsskeið við héraðsskólann 25.
júní, og er ætlast til að það standi
í þrjár vikur.
Menn eru vinsamlega minntir á
að greiða blaðið við hver mán-
aðamót.
Happdrættið. Menn eru áminntir
um að endurnýja miðana í happ-
drætti háskólans. Næsti dráttur
fer fram 10. júlí.
Dánarfregn. pann 29. f. m. and-
aðist að heimili sínu á Akureyri
ekkjan Jóna Jónsdóttir frá Mýri i
Bórðardal 96 ára gömul. Hún var
elzti íbúi Akrueyrar.
Skipafréttir. Gullfoss kom að
vestan og norðan í fyrradal; fer
til Kaupmannahafnar í kvöld.
Goðafoss fór frá Hull í gærkvöldi
kl. 12 áleiðis til Hamborgár.
Brúarfoss kom til Leith í gær-
morgun. Dettiíoss er í Reykjavík,
en fer vestur og norður á morgun.
Lagarfoss var í Kaupmannahöfn
í gær. Selfoss fór frá Færeyjum
29. f. m. áleiðis til Kaupmanna-
hafnar.
Fró kennaraþinginu, sem staðið
hefir undanfarna daga verður
sagt í blaðinu fljótlega. Hefir
það verið fjölmennt og tekið mörg
inerkileg mál til meðferðar.
Skólabörn á þingeyri fóru ný-
lega í ferðalag til Breiðafjarðar-
eyja og voru 9 daga í ferðalag-
inu. Formaður fararinnar var
Sveinn Guðmundsson skólastjóri.
Fjár til ferðarinnar öfluðu börnin
sér sjálf með skemmt.unum, sem
þau héldu í vetur.
Skólasýningin í Austurbæjar-
skólanum er opin daglega frá kl.
2—10 e. h. Sýning þessi er stór-
merkileg og ættu sem flestir að
kynna sér hana. En hún verður
aðeins opin í nokkra daga ennþá
og fer því að verða hver síðastur
að sjá hana úr þessu.
Tilneíning í útvarpsráð. Eins og
kunnugt er eiga fimm menn sæti
i útvarpsráðinu. Tilnefna útvarps-
notendur sjálfir einn mann',
kennarasambandið einn, prestar
einn, háskólaráðið einn og einn er
stjórnskipaður. Kennarar hafa á
þingi sínu nú kjörið Guðjón Guð-
jónsson skólastjóra til að vera
fulltrúa sinn áfram. Háskólaráðið
hefir valið Bjama Benediktsson
prófessor til að vera þess full-
trúi í stað dr. Alexanders Jó-
hannessonar. Um útnefningu
presta og ríkisstjómarinnar er enn
4ðalfundur
Samb. Isl. samvinnnfél.
Frá Mahatma Oandhi
# Odýru $
Framh. af 2. síðu.
anylýsingarnar.
settnr i gær.
Aðalfundur Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga var
settur á Laugarvatni rétt eft-
ir hádegi í gær. Er fundur vel
sóttur og munu vera niættir
fulltrúar frá öllumj eða næst-
öllum félögunum, sem eru í
Sambandinu.
Fundur mun standa fram
eftir vikunni og verða ýms
merkileg mál snertandi sam-
vinnufélagsskapinn í landinu
tekinn þar til meðferðar.
Verður síðar sagt frá fund-
inum hér í blaðinu og afkomu
samvinnufélaganna á seinasta
ári, samkvæmt skýrslum þeim',
sem forstjórar og stjórn Sam-
bandsins munu gefa á fundin-
um.
ókunnugt Um tilnefningu út-
varpsnotenda er kunnugt af fyrri
írásogn hér í blaðinu.
Pýzku sendisveitarmennirnir, dr.
Rechenbach og dr. Gauch flytja
erindi á morgun í Kaupþingssaln-
um. Hefst það fyrra kl. 5.
Tryggvi gamli og Hannes ráð
herra eru nýfarnir á ísfiskveiðar.
Eysteinn Jónsson alþm. kom
liingað með Esjunni að austan á
sunnudagskvöld.
Áætlun um flotabyggingu Banda-
rikjanna fyrir árið 1934—35 er nú
fullsamin. Á þessum tíma ætla
Bandaríkin sér að byggja eitt ný-
lízku 10.000 smálesta orustuskip, 3
beitiskip, 6 tundurspilla og 6 neð-
ansjávarbáta. — FÚ.
Ökuleyfi æfilangt hefir verið
tekið af Sveini Jónssyni verzlun-
aistjóra í Sandgerði.
í Ólafsvík og á Sandi vinna nú
um 60 menn að hafnarbótum og
i þjóðveginum. Fyrir innan Ólafs-
vík vinna um 20 menn við vega-
gerð.
Gndurskoðun fræðsluiaganna.
þriggja manna nefnd starfar nú
að endurskoðun fræðslulaganna.
Hefir Snorri Sigfússon verið
tilnefndur í hana af ríkisstjóm-
inni, en skólaráð barnaskólanna
hefir tilnefnt þá Sigurð Thorlaci-
us skólastjóra og Pálma Jósefs-
son kennara.
Franklin Roosevelt Bandaríkja-
forseta var nýlega veittur sá heið-
ur, að vera gerður að doktor i
lögum við Yale-háskólann. Er
liann sá eini af forsetum Banda-
ríkjanna, sem hefir verið heiðrað-
ur á þennan hátt meðan þeir
gegndu cmhætti, að Georg Was-
h.ington undanskildum.
Nýtt met var nýlega sett í lang-
lilaupi í Bandaríkjunum af Dave
Komonen. Hlaupið var 26 mílur
og 385 yards og hljóu hann það
á 2 klst. og 43 mín, 26,2,5 sek.
(Míla er 1,6,09 km., svo vegalengd-
in hefir verið ca. 42—43 km.).
Heimili Roalds Amundsen hefir
verið opnað nýlega sem sýningar-
og helgistaður af norsku stjórninni.
það er gengið frá öllu, innan
hússins og utan, eins og það var,
er Amundsen skildi við það, árið
1928, þegar hann fór í flýti heim-
an frá sér, áleiðis í norðurhöf í
flugvél til að freista þess að
bjarga italska könnuðinum Nobile
og leiðangri hans. Amundsen og
þeir lélagar komu aldrei fram.
sökun meinlæta sinna og sum-
part er orsökin sú, að hinir
menntaðri meðal þjóðarinnar
finna, að þarna grípur Gandhi
á því meini er verið hefir
dekksti bletturinn á siðmenn-
ing þeirra.
Gandhi var sleppt úr fang-
elsi í september síðastl. Þar
sem honum var haldið fyrir
þátttöku hans í pólitík. Var
honum sleppt úr fangelsinu
skilyrðislaust, sökum þess, að
útlit þótti fyrir, að hann
mundi ætla að svelta sig í hel.
Gaf hann út yfirlýsingu þess
efnis skömmu eftir, að hann
hafði verið látinn laus, að hann
mundi ekki vinna á móti stjóm
eða landslögum meðan hinn
upprunalegi varðhaldstími sinn
væri ekki útrunninn, en það
verður 3. ágúst í sumár.
Hefir hann boðað það jafn-
framt, 1 þessum predikunum
sínum til hjálpar þeim óhreinu,
að þessu skyldi ekki blanda
inn í stjórnmálin. Biður hann
þá menn, er sýna vilja mót-
þróa og óhlýðni við lög Breta
í Indlandi að taka þetta ekki á
þeim grundvelli, þó það sé
boðað af sér, og halda þessu
nauðsynja. og mannúðarmáli
alveg frá öllum slíkum erjum.
Hversu mikil ráðgáta, sem
hugsanaferill og meinlætalifn-
aður Gandhis kann að vera
okkur Vesturlandabúum. Þá er
það víst, áð orð hans og at-
hafnir finna almennan og
gagnkvæman skilning hjá
landsmönnum hans.
(Að nokkru leyti þýtt eftir
grein í „Survey of Worlds af-
fairs“ eftir Everard Cotes).
Englendingar
heíðra minningu
John Ruskin
í Englandi hefir nýskeð ver-
ið stofnsett safn til minningar
um hinn merka fagurfræðing,
rithöfund og dráttlistarsnill-
ing, John Ruskin. Safnið er í
húsinu Brantwood við Coni-
stonvatnið, sem Ruskin átti og
bjó í síðustu 30 ár æfi sinnar.
í safninu verða fjölmargar
útgáfur af öllum ritverkum
höfundarins á ýmsum tungu-
málum, svo og allar dráttmynd-
ir og málverk eftir hann, ásamt
fjölda handrita og minnisblaða
og ýmissa fullgerðra og hálf-
gerðra teikninga.
Ruskin var merkur rithöf-
undur. Þekktustu bækur hans
fjalla um byggingar- og drátt-
list og fagurfræði. Á íslenzku
er til eftir hann „Kóngurinn í
Gullá“, æfintýri gefið út 1891.
Kaup og sala
Bátur.
Trillubátur án vélar, 27
fet, óskast til kaups. Pétur
Hoffmann, Ránargötu 10.
Grammófónn óskast til
kaups. A. v. á.
Vörubíll óskast í skiptum
fyrir nýjan trillubát. Umsókn:
pósthólf 833.
Tomatar, agúrkur, radísur,
blómkál og rabarbari, fæst í
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Nitrophoska IG, algildur á-
burður, handhægasti áburður-
inn við alla nýrækt, garðrækt
og að auka sprettu. Kaupfélag
Reykjavíkur.
SPAÐKJÖT
af úrvalsdilkum alltaf fyrir-
liggjandi. S. í. S. — Sími 1080.
Saltfiskbúðin er vel birg af
nýjum fiski. Sími 2098.
Skúr til sölu. Uppl. í síma 2506
og 1471. Arndal.____________
Hús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Austurstræti 14,
þriðju hæð, opin kl. 11—12 og
5—7. Sími 4180 og 8518
(heima). Helgi Sveinsson.
Atvinna
Duglegur kaupamaður ósk-
ast á gott sveitaheimili. A. v. á.
Kaupakona óskast norður í
Húnavatnssýslu. A. v. á.
Tilkynningar
Símanúmer Hannesar Jóns-
sonar, dýralæknis, er 2 0 9 8.
Símanúmer mitt er 4259.
Ari Guðmundsson
garðyrkj umaður.
Munið gullsmíðavinnustof-
una Þingholtsstræti 3. Guðl.
Magnússon.
Húsnœði
Góð íbúð, 2 herbergi og eld-
hús, í nýju húsi, óskast 1.
október n. k. Góð umgengi.
Ábyggileg greiðsla. Tilboð
merkt „1934“ leggist inn á af-
greiðslu Nýja dagblaðsins.
Ég vil fá 2—3 herbergi og
eldhús méð algengum þægind-
um 1. október við Skerjafjöð.
Tilboð með sanngjarnri leigu
sé merkt pósthólf 276 þarf að
vera komið 5. þ. m'.
Herbergi óskast til leigu nú
þegar. Tilboð merkt „Her-
bergi“, leggist inn á afgreiðslu
Nýja dagblaðsins.
Tapað-Fundið
Það ráð hefir fundizt, og
skal almenningi gefið, að bezt
og öruggast sé að senda fatn-
að og annað til hreinsunar og
litunar í Nýju Efnalaugina.
Röskan dreng, 12—14 ára,
vantar til snúninga í sveit. A.
v. á.