Nýja dagblaðið - 03.08.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 03.08.1934, Blaðsíða 1
Hundruðum þúsunda af fé bæjarbúa er er eytt í haldlausa malbikun og ó- nýta grágrýtis-»púkkningu« í stað þess að nota járnbenta steinsteypu, sem að líkindum myndi vera ódýrari. Viðtal við Tón Gunnarsson verkfræðing Tilfinnanlegur útgjaldaliðu)’ hjá bæjarsjóðnum ér viðgerð og viðhald gatna og er t. d. á yfirstandandi ári ætluð helm- ingi hærri fjárupphæð til við- gerðar á götum, en til nýrra götulagninga. En þó má hik- laust gera ráð fyrir, að áætl- unin muni hvergi nærri geta staðizt í þessum efnum a. m. k. ekki ef viðgerðir eiga að vera framkvæmdar alstaðar þar, sem þeirra verður að teljast brýn nauðsyn. Þrátt fyrir hundruð þús- unda króna framlög árlega til viðhalds gatna og götugerðar, eru margar götumar óviðun- andi, blautar og forugar í rign- ingum, rykugar í þurkurn og holóttar og ójafnar til stór- kostlegs baga fyrir umferð iijóla og bifreiða. í margar þessar götur er búið að leggja tugi þúsunda, bæði til frum- lagningar og viðgerða. Hlýtur hver og einn að geta séð, að hér er ekki allt með felldu og orsökin liggur að miklu leyti í óhyggindum og þekkingar- skorti þeirra manna, sem haft hafa þessar framkvæmdir með höndum. Nýja dagblaðið hefir snúið sér til Jóns Gunnarssonar verkfræðings og leitað hans álits um götulagningar hér í bænum. En Jón hefir stundað verkfræðinám og kynnt sér vegagerð árum saman, bæði á Norðurlöndum og í Bandaríkj- unum. Hefir hann leyft blaðinu að hafa eftir sér þau ummæli, sem hér fara á eftir: Um götumar, sem lagðar' hafa verið hér í bænum má segja yfirleitt, að í þær hafa f f verið notuð léleg efni, onot- hæft grjót (grágrýti) og lé- leg tjara. Blöndun efnanna hef- ir líka auðsjáanlega verið í mörgum tilfelluml röng. Hér er höfð tvennskonar gatnagerð. T. d. Laugavegur- inn og Hverfisgata eru dýrasta tegund af malbikuðum götum (sheet asphalt pavement). Slíkar götur eiga að geta ver- ið endingargóðar, ef notuð eru rétt •fni og þeer vandlega Jón Gunnarsson lagðar. Þær eiga að geta enzt í 15—20 ár með litlu viðhaldi. En hér er verið að rífa þær upp með stuttu millibili. Á næst- seinasta ári var t. d. Lauga- vegurinn og Hverfisgata brot- in upp að miklu leyti og lögð að nýju. Þetta á ekki að geta átt sér stað. Ef efnin væru góð og göturnar réttilega lagðar, hefði slíkt ekki komið xfyrir. Hér er einnig önnur tegund af malbikuðum götum. Má þar t. d. benda á Njálsgötu og Grettisgötu, milli Klapparstígs og Frakkast. Þessar götur eru „púkkaðar“ og þunnt lag af tjörubornum mulningi haft efst. Þessar götur eru alger- lega haldlausar og koma í þær stórar holur rétt eftir lagning- una. Viðgerðirnar eru fram- kvæmdar þannig, að þegar hol- urnar eru orðnar stórar, þá er yfirborðið rifið upp og borið ofan í þær laus grágrýtissalli. Eftir þetta er naumast hægt að sjá að gatan hafi verið ;,púkkuð“ og malbikuð og get- ur þannig löguð viðgerð varla talizt til bóta. Þessar götur verða alltaf rykúgar og vondar yfirferðar fyrir hjól og bifreiðar. Þær hafa enga kosti fram yfir venju legar malargötur, en eru miklu dýrari. — Hvernig álítið þér, að bezt mundi vera að haga. götu- lagningunni ? — Það er mitt álit að þar sem umferðin er mest t. d. við höfnina og í miðbænum, eigi að leggja göturnar úr járnbenti’i steypu. Steyptar götur eru ekki dýr- ari o g miðað við erlenda reynslu ættu þær að vera 10 —15% ódýrari, heldur en dýr- ustu malbikuðu göturnar (t. d. Laugavegur, Ilvevfisgata o fl.). En þar að auki eru steyptar götur mikið endingarbetri og þurfa mikið minna viðliald. Það er auðvelt að hat la þeim ryk- lausum og þær eru skemmti- legri umfei'ðar en hinar. Það ætti þvi að vera krafa bæjarbúa, að aðalgöturnar vrðu steyptar. Fyrsta sporið í þá átt er að færa mulningsvél bæjarins inn fyrir Laugai’nes og mylja þar blágrýti. Grágrýti er ekki hægt að nota í steypt- ar götur, til þess er það of hald lítið. Þar sem reynzla er fengin í gatnagerð og tillit tekið til rannsókna á traustleika og end- ingu efnisins, er grágrýti talið ónothæft til gatnagerðar. Fjárráð bæjarins, a. m. k. fyrst um sinn, leyfa ekki, að steyptar séu nema aðal göturn- ar. Aðrar götur eiga að vera malbomar. Það sem þarf að gera þeim til viðhalds, er að bera í þær vegolíu á vorin. Með því er nokkurn veginn öruggt, að þær drekka i sig lítið af vatni og verða algerlega ryk- lausar. Þessar götur verða bæði þrifalegri, betri til umferðar og margfalt ódýrari heldur en þær, sem lagðar eru á sama 'hátt og t. d. Njálsgata, Grettisgata, Bárugata, öldugata o. fl. Nú er unnið að því að rífa upp Skólavörðustíginn. Ætla bæjarbúar að láta sökkva þar 60 þús. kr. í sömu vitleysuna og áður? Einar Kritfjámon Iiinn ungi og efnilegi söngvari sem er staddur hér heima á æskustöðvunum stuttan tíma, heldur kveðjusöngskemmtun í Gamla Bíó í kveld kl. 7!/4. Fyrir nokkrum dögum hélt hann söngskemmtun hér fyrir fullu húsi og hlaut mikla að- dáun áheyrenda. Og svo mún aftur verða í kveld. Er það vel þegar bæjarbúar meta að verðleikum list landa sinna, er brjótast áfram úti í heimi méð dugnaði og elju. Hlýjar viðtökur og samúð heim an af æskustöðvunum er það veganesti sem framar flestu léttir íslenzka listamanninum gönguna á erfiðu listabrautinni meðal stórþjóðanna. V. Bæjarsíjópnapfundup í gazp íhaldið fellip 400 kp. slypk fil mæðpaslypksnefndap- innap og synjap vepkamönnum hjá bænum um eins dags sumapleyfl. Formaður Vapðapfélagsins fæp bitling með 400 kp. mánaðaplaunum. Bæjarstjórnarfundur var hald inn í gær kl. 5 í , Kaupþings- salnum. Fá mál voru a dagskrá og skal hér skýrt frá þeim, sem umræður urðu um. Mæðrastyrksnefnd hafði sótt um 400 króna styrk til bæjar- ins til skýrslusöfnunar. Sýndi frú Aðalbjörg Sigurðardóttir fram á nauðsyn þessa verks. Ilafa tvær konur starfað að ! jæssu í tvo mánuði og er verkið fólgið í því, að afla upplýsinga um kjör bágstaddra mæðra í I bænum. Á þessari skýrslugei’ð | ætti síðar að vera hægt að byggja frekari umbætur í þess- um málum, sem allir hljóta að viðurkenna nauðsynlegar. Nafnakalls var óskað um til- löguna. Hún var felld með 8 :7 atkv. íhaldið allt á móti. Jakob Möller rak lestina. „Hann ætti að sitja yzt en ekki innst, ræf- illinn sá arna“ varð gömlum og stillilegum verkamanni að orði, I svo Hiátt, að greinilega heyrð- ist um salinn. 1 bæjarráðinu hafði komið fram tillaga þess efnis, að verkamenn, sem unnið hefðu í sex mánuði hjá bænum, fengju eins dags sumarfrí með fullu kaupi. Þessi tillaga var nú bor- in undir bæjarstjórn og felld að viðhöfðu nafnakalli með 8 : 7 atkv. íhaldið sameinað á móti eins og áður. Þegar Jakob Möll- er greiddi atkvæði, kallaði ein- hver af áheyrendunum: „Hann Framh. á 4. síðu Hindenburg látinn Hann lézt ki. 7 í gærmorgun. - Hitler tekur forsetavaldið í sínar hendur. . London 2./8. FO. Ilindenburg Þýzkalandsforseti rnissti meðvitundina síðast- liðna nótt og andaðist í morg- un kl. 9 eftir þýzkum' tíma, 86 ára gamall. 1 útvarpserindi, sem hófst þegar á eftir þeirri þögn, sem gerð var í útvarpinu eftir að dauði forsetans hafði verið til- kynntur í gegnum allar þýzkar stöðvar, gerði dr. Göbbels út- breiðslumálaráðherra Þýzka- lands, grein fyrir því, að Hitl- er ríkiskanslari væri nú kjörinn bæði forseti og kanslari Þýzka- lands. Hann mælti á þessa leið: „Þýzka stjórnin hAir gefið út lög, sem ganga í gildi við dauða Hindenburgs forseta og mæla lögin svo fyrir, að embætti for- setans skuli sameinað embætti ríkiskanslarans. Þar af leiðir, að það vald, sem Hindenburg ríkisforseti hefir hingað til haft og vald það, sem Hitler hefir nú sem ríkiskanslari, verður iivorttveggja sameinað héreft- ir í höndum Hitlers, sem sjálf- i ur hefir vald til þess að til- nefna sinn eigin varamann, Alþjóðaatkvæðagreiðsla um hin nýju lög mun fara fram hinn 19. ágúst“. Að svo mæjftu tók Göbbels að skýra frá ráðstöfunum þeim, sem gerðar hafa verið til þess að haldin verði 14 daga þjóð- arsorg í Þýzkalandi í tilefni af andláti forsetans og mælti að lokum nokkur minningar- og saknaðarorð um Hindenburg forseta. Hitler hefir sent sonum Hind enburgs samhryggðarbréf, sem hann lýkur með þessum orðum: „I djúpri sorg sameinast ég gjörvallri hinni þýzku þjóð yf- ir fráfalli forsetans og bið yður að veita viðtöku þessum votti minnar eigin samhryggðar og allrar hinnar þýzku þjóðar“. Jarðarför Hindenburgs for- seta fer fram á þriðjudaginn kemur. Eitt af helztu blöðum Bret- lands ræðir um Hindenburg for- seta og fráfall hans á. þessa leið í dag: „Á hinum erfiðu tímum, sem gengið hafa yfir hina þýzkú þjóð undanfarið, hefir fjöldi Þjóðverja og út- lendra manna engu síðifr verið þakklát fyrir það, að æðsti maður Þýzkalands skyldi vera maður, sem sákir staðfestu, heiðarleika og trúmennsku mátti treysta á hverju sem gekk. Hann virðist hafa verið eini maðurinn, sem1 pólitískar árásir, illvilji og hatur náðu ekki til. Jafnframt þvi sem hann var einn fyrirferðarmesti maður Þýzkalands meðan á ó- friðnum stóð, hefir hann síðan verið álitlegasti valdsmaður þess“.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.