Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 15.08.1934, Qupperneq 2

Nýja dagblaðið - 15.08.1934, Qupperneq 2
z N Ý J A DAGBLAÐI9 Lögtök Til Borgarilard&r ogr Borgrarness Tillögoa* um st&rfshætti i ekélum Eftir beiðni tollatjórans í Reykjavík og að undan- gengnum úrskurði, verður lögtak látið fram fara fyrir ógreiddum bifreiðasköttum og skoðanagjöldum, sem féllu í gjalddaga 1. júlí þ. á., svo og iðgjöldum fyrir vátryggingu ökumanna bifreiða fyrir árið 1934, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar. Lögmaðurinn í Reykjavík, 13. ágúst 1934 Biörn Þórðarson Opna aítnr Ijósmyndastofu mina í dag, 15. ágúst Jón Kaldal Tillzynxiing Það tilkynnist hórmeð mínum viðskiptavinum, að í dag hefi ég selt skó- og gúmmívinnustofu mína á Vesturgötu 51 B, herra Guðjóni Þórðarsyni. Um leið og ég þakka fyrir viðskiptin á liðnum árum, vænti ég þess, að þeir láti hinn nýja eiganda njóta sömu við- skipta áfram. Virðingarfyllst Þorvaldur R. Helgason Eins og að ofan greinir, hefi ég í dag keypt skó og gúmmivinnustofu Þorvalds R. Helgasonar, og vænti ég þess að njóta sömu viðskipta og hann hefir notið. Allar skó- og gúmmíviðgerðir fijótt og vel af hendi leystar. Virðingarfyllst Guðjón Þórðarson eru fastar bílferðir alla miðvikudaga og laugardaga kl. 10 f. h. Afgr. á Nýju Bitreiðastödinni, simi 1216. Finnbogí Guðiauisson HARO -SJALFBLEKUNGURINN er sá langhentugasti; með honum er hægt að taka afrit af því sem skrifað er. Má skipta um penna eftir vild. HARO sjálfblekungurinn er sér- lega hentugur við bókfærslu, teikningu o. fl. — HARO fæst hjá helztu bóksölum í Reykjavík og út um land Hjónaskilnaðir i Ameríku Amerískir skilnaðardóm- stólar heyra meira af einkennilegum atvikum og viðburðum úr lífi fólks en flestum öðrum gefst kostur á. Hér er skýrt frá einni slíkri skilnaðar- ástæðu. Ameríka hefir stundum ver- ið kölluð land hjónaskilnað- anna, því þar -er meira um hjónaskilnaði en víðast annars- staðar, og margvíslegri og fáránlegri ástæður færðar fyr- ir skilnaði en í nokkru öðru landi. Koma þá upp margar og skrítnar sögur í sambandi við það. Síðastliðinn vetur sótti kona nokkur amerísk um skiln- að frá manni sínum og skal skýrt hér frá ástæðum þeim, er hún færði fram til skilnað- arins. Hin óhamingjusama kona, er hét Irene Moe kom fyrir dóm- stólana í Chicago og krafðist skilnaðar frá manni sínum, Haakon Moe, sökum þess að það væri svo sterkt „Tarzan- eðli“ í honum. Sagði hún, að hann eyddi meiri hlutanum af tíma sínum uppi í trjátoppum, þar sem hann öskraði mjög villimannslega, eða þá að hann héngi í ljósakrónum og á hurð- unum heima í íbúð þeirra. Haakon Moe, sem um eitt skeið var þekktur léttiflokks- hnefaleikari, var um eitt skeið vinur og félagi hins mikla sundgarps og sportsmanns John Weissmuller, sem leikið hefir Tarzan í fjölda kvik- mynda. Varð Moe mjög hrif- inn af Weissmuller, og alveg gagntekinn af Tarzan-kvik- myndunum. Fór hann hvað eftir annað að sjá þær. Skömmu eftir að Moe giftist konu sinni segir hún að farið hafi að brydda á Tarzaneðlinu í honum. Hann stökk upp í ljósakrónurnar í íbúð þeirra með frábærum fimleik og gaf frá sér ógurlegt óskur, alveg eins og Tazan gerir í myndun- um. Þegar ljósakrónurnar voru slitnar niður hékk hann á hurðunum og færði þær allar úr lagi svo þeim varð ekki lok- að. En það var ekki nóg með það. Ilann heimtaði að hún eins og hver önnur Tarzaníta klifraði með sér, og hann hafði það til að æfa hnefaleik á henni, þegar hún ekki fékkst til þess. Þetta orsakaði það, að þau voru stöðugt að flytja. Þegar þau höfðu komið sér þægilega fyrir, var þeim vísað út inn- an fárra daga, því þá voru ljósakrónurnar slitnar niður og hurðirnar hangandi á annari hjörinni. Að öðru leyti en þessu var Moe hinn almennilegasti, en það greip hann þetta óstjórn- lega Tarzaneðli. Eitt sinn síðastliðinn vetur voru hjónin í boði hjá ná- grönnum sínum. Sátu þau við borð og voru að spila bridge, er Moe varð allt í einu litið inn í næstu stofu og sá þar stærðar ljósakrónu úr bronce í loftinu. Næst þegar Moe lagði spil sín, stóð hann á fætur, tók undir sig stökk mikið og hljóp upp í krónuna. Hékk hann þar á höndum og fótum og gaf frá sér regluleg Tarzan- öskur og sagðist vera hinn villti Tarzan. Vorið áður höfðu þau farið sér til skemmtunar norður í Kanada og leigt sér bjálkakofa langt úti í skógi. En ekki voru þau fyr komln þangað en Moe klæddi sig úr öllum fötum, batt handklæði um mitti sér og hljóp út í skóginn. Tók hann að kliíra upp í trén og stökkva á milli þeirra eins og api. Heimtaði hann að kona sín gerði slíkt hið sama, og þau lifðu hreinu Tarzanlífi úti í skóginum, en til þess fékkst hún ekki. Færði hún honum mat út í skóginn, því þar hélst hann við. Eftir allar þessar sorgarsög- ur sá dómarinn sér ekki annað fært en að gefa konunni skiln- að. Hr. Moe mætti ekki. Sagði kona hans að hann væri alltaí upptekinn af því að klifra á milli trjáa úti í skógi og mundi honum finnast þetta koma sér lítið við. I sambandi við skólasýning- una í vor, skipaði fræðslu- málastjórnin 5 manna nefnd til þess að athuga neménda- vinnu á sýningunni og með hliðsjón af þeim' athugunum gera tillögur um starfshætti í íslenzkum skólum'. 1 nefndina voru skipuð: Að- alsteinn Eiríksson kennari í Reykjavík, Amfinna Björns- dóttir kennslukona á Akur- eyri, Guðjón Guðjónsson skóla- stjóri í Hafnarfirði, Lúðvíg Guðmundsson skólastjóri á ísafirði, Unnur Briem kennslu- kona í Reykjavík. Nefndin hefir nú lokið störf- um og sent fræðslumálastjórn- inni eftirfarandi tillögur: I. Að fræðslumálastjórnin feli hæfum manni að athuga og gera tillögur um endurbæt- ur á starfsháttum við skrift- arkennslu. II. Að nú þegar á þessu sumri verði gefnar út almenn- ar leiðbeiningar um starfsbók- argerð í barna- og unglinga- skólum. Ennfremur, að gefnar verði út hið fyrsta leiðbeining- ar um kennslu í öllum náms- greinum, sem kenndar eru í barna. og unglingaskólum, og verði bendingar þær endur- skoðaðar á fárra ára fresti, svo að kennarastéttin, á hverj- um tíma sem er, hafi í hönd- um ábyggileg skilríki um reynda og góða starfshætti í hverri grein. III. Að verklegt nám í kenn- araskólanum verði þegar á hausti komandi aukið að mun. IV. Að hið bráðasta verði stofnuð, í sambandi við kenn- araskólann, sérstök deild, er veiti kennslu í handavinnu þeim kennaraefnum, er hafa í hyggju að gera kennslu í handavinnu að sérgTein sinni. V. Að kennsla í hagnýtri matreiðslu og umgengni og hirðingu húsa verði almennt tekin upp í efstu bekkjum bamaskóla kaupstaða, kaúp- túna og heimavistarskólum sveitanna. VI. Að jafnan sé til í land- inu nægilegt úrval af efnum og kennslutækjum, sem nauðsyn- leg eru til kennslu í íslenzkum skólum. VII. Að nú þegar verði haf- inn undirbúningur að stofnun skólasafns í Reykjavík. VIII. Að fræðslumálastjórn- in taki til yfirvegunar hvort eigi sé ástæða til að koma á í skólum1 landsins daglegri skýrslugerð um nám og starfs- háttu almennt. Er þetta ekki í fyrsta sinn að kvikmyndir og lestur reyf- ara hefir komið almennilegu fólki til að hegða sér á eitthvað sviplíkan hátt og hér hefir ver- ið frá skýrt. Sérstaklega er það svo, þar sem fólk býr við lík skilyrði og lýst er í sögun- um og hefir tækifæri til þess að lifa á eitthvað svipaðan hátt og kvikmyndirnar lýsa.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.